Fleiri fréttir

Hjúkrunarfræðingar og ríkið funda áfram í dag

Hlé var gert á samningafundi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og samninganefndar ríkisins hjá ríkissáttasemjara nú í hádeginu en viðræðum verður haldið áfram um eittleytið.

Dæmdur fyrir þjófnað úr matvöruverslun

Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í 45 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa í félagi við aðra menn stolið vörum úr verslun Bónuss við Smiðjuveg fyrir hátt í hundrað þúsund krónur

Innanlandsflug raskast vegna þoku

Ekkert hefur verið flogið til Akureyrar og Ísafjarðar í morgun vegna þoku en athuga á nú um ellefuleytið hvort hægt sé að fljúga þangað.

Lyfjakostnaður TR jókst um 14% milli ára

Kostnaður Tryggingastofnunar ríkisins vegna lyfja á fyrsta þriðjungi ársins jókst um 14% miðað við sama tíma í fyrra, eða um 308 milljónir króna.

Félagar í BHM greiða atkvæði um kjarasamning

Atkvæðagreiðsla hófst í dag meðal félagsmanna í Bandalagi háskólamanna um kjarasamning sem gerður var við ríkið á dögunum. Um er að ræða rafræna atkvæðagreiðslu sem fram fer á heimasíðu bandalagsins, bhm.is. Félagsmenn eru í tilkynningu frá BHM hvattir til að nýta atkvæðarétt sinn en opið er fyrir atkvæðagreiðslu fram á miðnætti á föstudag.

Icelandair meðal óstundvísustu flugfélaga Evrópu

Icelandair er í fjórða sæti yfir þau evrópsku flugfélög þar sem seinkun á flugi til áfangastaða í Evrópu var hvað mest á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Þetta kemur fram í samantekt Sambands evrópskra flugfélaga, Association of Europena Airlines.

Áfram mótmælt við dómsmálaráðuneytið

"Jú, við ætlum að hittast í hádeginu á hverjum degi til 10. júlí, " segir Hörður Torfason leikstjóri og söngvaskáld en hann er einn þeirra sem staðið hefur fyrir utan dómsmálaráðuneytið til þess að mótmæla meðferðinni á Paul Ramses.

Anti-rasistar mótmæla meðferðinni á Ramses

Dane Magnússon, formaður Félags anti-rasista á Íslandi, skorar á stjórnvöld að snúa Keníamanninum Paul Ramses aftur til Íslands. Dane segist skammast sín í fyrsta skipti fyrir að vera íslendingur og neitar að hafa blóð manns á höndum sér.

Þrír ölvaðir ökufantar handteknir í Vogum

Lögreglan á Suðurnesjum handtók í gærkvöldi þrjá ölvaða menn í heimahúsi í Vogum á Vatnsleysuströnd, eftir að einhver þeirra hafði ekið bíl utan í annan á Reykjanesbraut fyrr um kvöldið með þeim afleiðingum að hann hafnaði utan vegar.

Síldveiðiskipin fyrir austan land fá mikið af makríl

Síldveiðiskipin fyrir austan land fá mikið af makríl sem meðafla. Þannig er eitt skip á landleið með 17 hundruð tonna afla, en þar af eru fimm hundruð til sex hundruð tonn makríll, eða um það bil þriðjungur.

Björn segir Jóhannes í Bónus hóta vopnavaldi

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra lýsir undrun sinni og harmar málflutning þeirra Árna Johnsens, flokksbróður síns, og Jóhannesar Jónssonar í Bónus vegna Baugsmálsins.

Ella Dís er með sjálfsofnæmi

Læknar í Lundúnum komust nýlega að því að tveggja ára íslensk stúlka, sem talin var glíma við hrörnunarsjúkdóm, hafi verið með sjálfsofnæmi sem orsakaði hrörnun vöðvanna. Stúlkan var búin að missa nær allan líkamsmátt en getur nú í fyrsta sinn í margar vikur haldið höfði.

Þung umferð í átt að bænum

Þung umferð er á Vesturlands og Suðurlandsvegi til höfuðborgarsvæðisins enda ein af stærstu ferðahelgum sumarsins að baki. Hún hefur verið að aukast með kvöldinu og biður lögregla ökumenn um að sýna biðlund og tillitsemi í umferðinni.

Stefnan tilbúin í haust

Jóhannes Jónsson, oftast kenndur við Bónus, segist ætla að stefna íslenska ríkinu vegna Baugsmálsins og telur að stefnan geti litið dagsins ljós í september eða október. Hann segir að lögfræðingar sínir vinni nú að málinu en það sé nokkuð flókið að fara yfir það.

Stjórnarþingmaður sakar íslensk yfirvöld um valdníðslu og ofsóknir

Árni Johnsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, ætlar í haust að beita sér fyrir breytingum á lögum sem snúa að því að menn sem hafi hlotið skilorðsbundna dóma verði að víkja úr stjórnum fyrirtækja svo árum skipti. Í grein sem hann skrifar í Morgunblaðið í dag segir að þetta séu vitlaus lög og heimskuleg og því þurfi að spúla dekkið strax, eins og hann orðar það.

Landsmóti hestamanna lýkur í dag

Úrslit í öllum flokkum á Landsmóti hestamanna fara fram á lokadegi mótsins í dag og er þétt setið í áhorfendabrekkunni.

Tvö umferðarslys á Akureyri í gær

Lögregla og sjúkralið á Akureyri fengu tilkynningu um að ekið hefði verið á barn um sjöleytið í gær. Í ljós kom að bifreið hafði verið ekið út af bifreiðastæði við Kaupvangsstræti og í veg fyrir 8 ára dreng á reiðhjóli sem að lenti utan í bifreiðinni.

Æsiför endaði með bílveltu

Lögregla höfuðborgarsvæðisins stöðvaði för ökumanns í annarlegu ástandi með því að aka utan í stolna jeppabifreið sem hann ók ógætilega í gærkvöldi.

Lopapeysuball á Írskum dögum

Nokkur þúsund voru saman komin á hafnarsvæðinu á Akranesi í gærkvöldi, þar sem fram fór lopapeysuball, á Írskum dögum sem haldnir eru í bænum nú um helgina.

Hátíðarhöld á Suðurlandi ganga vel

Nóttin var róleg á landsmóti hestamanna á Hellu. Eitthvað var um pústra að sögn lögreglu en engin líkamsárás kærð. Þrír voru teknir með lítilræði af fíkniefnum til eigin neyslu.

Tólf hundruð manns styðja Ramses

Rúmlega 12 hundruð manns hafa sett nafn sitt á undirskriftarlista sem stofnaður hefur verið til stuðnings Keníamannsins Paul Ramses sem vísað var úr landi í fyrradag.

Fimm líkamsárásarmál í Reykjavík

Fimm líkamárásarmál voru tilkynnt til lögreglunnar í Reykjavík í nótt. Í einu tilfellinu voru 8 Litháar að slást við Keiluhöllina. Sjö þeirra voru handteknir og færðir í fangageymslu, einn var fluttur á Slysadeild með höfuðáverka og brotnar tennur.

Lögreglubifreið skemmd í Reykjanesbæ

Nokkur erill var hjá lögreglunni á Suðurnesjum í nótt. Ein líkamsárás var kærð og átti hún sér stað á einum skemmtistaðanna. Þá var ölvaður maður handtekinn í Grindavík eftir ólæti.

Bílvelta skammt frá Flúðum

Betur fór en á horfðist þegar lítill Yaris velti við Brúarhlöð, skammt frá Flúðum, um áttaleytið í kvöld. Að sögn lögreglu var um að ræða bílaleigubíl sem erlendir ferðamenn höfðu tekið á leigu. Þeir sluppu allir ómeiddir en bifreiðin er mikið skemmd.

Fjölgeislamælingar í Ísafjarðardjúpi

Í júní og júlí var rs. Árni Friðriksson við fjölgeislamælingar í Ísafjarðardjúpi, á Vestfjarðamiðum og í Kolluál. Rannsóknirnar eru liður í kortlagningarverkefni Hafrannsóknastofnunarinnar en eitt af meginmarkmiðum þess er að kortleggja veiðislóðir.

„Ég sakna sonar míns mjög mikið“

Vísir náði tali af Keníamanninum Paul Ramses sem staddur er í Róm fyrir stundu. Hann er ekki bjartsýnn og segist biðja fyrir íslenskum ráðamönnum. Erfiðast þótti Paul að yfirgefa mánaðargamlan son sinn, sem hann var kannski að sjá í síðasta skipti.

Sex handteknir við húsleit í miðbænum

Tilkynnt var um innbrot í hús í miðbæ Reykjavíkur um hálf fjögur leytið í dag. Þegar á staðinn var komið ákvað lögreglan að gera húsleit og voru sex aðilar handeknir í kjölfarið. Lítilræði af fíkniefnum fannst í húsinu en innbrotið mun hafa átt sér stað snemma í morgun.

Ramses hefði átt að njóta vafans

„Mér finnst þetta mjög ömurlegt að við skulum ekki geta tekið málið fyrir. Ég veit að við getum ekki tekið við öllum sem koma hingað og kalla sig flóttamenn og bera fyrir sig allskonar sögur sem engin fótur er fyrir þegar farið er að kanna það,“ sagði Guðjón Arnar Kristjánsson formaður Frjálslynda flokksins í dag um mál Paul Ramses flóttamanns sem sendur var úr landi nýlega.

Þorsteinn Kragh í gæsluvarðhaldi vegna stóra hassmálsins

Umboðsmaðurinn og tónleikahaldarinn Þorsteinn Kragh situr nú í gæsluvarðhaldi í tengslum við smygl á 190 kílóum af hassi sem fundust í húsbíl um borð í Norrænu á Seyðisfirði þann 10.júní. Þorsteinn var úrskurðaður í þriggja vikna gæsluvarðhald á miðvikudag.

Heilbrigðisráðuneytið skoðar fjárhagsvanda á Suðurnesjum

Helgi Mar Arthursson upplýsingafulltrúi Heilbrigðisráðuneytisins segir fjárhagsvanda Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja vera í skoðun hjá ráðuneytinu. Stofnunin hefur ákveðið að frá og með 16.júlí verði læknar ekki á vakt eftir hefðbundinn opnunartíma, sjúklingar þurfa því að leita til Reykjavíkur.

Rotaðist á Goslokahátíð

Hátíðarhöld vegna goslokahátíðar í Vestmannaeyjum fór vel fram sl. nótt en eyjamenn fagna því að 35 ár eru síðan eldgosi lauk á Heimaey. Áætlað er að um fjögur til fimmþúsund manns hafði verið að njóta veðurblíðunnar og þeirra skemmtunar sem boðið er uppá vegna þessa tilefnis.

Ramses kominn á gistiheimili í Róm

Keníamaðurinn Paul Ramses sem sendur var úr landi til Ítalíu í fyrradag hefur nú verið fluttur á gistiheimili fyrir flóttamenn í borginni Róm.

Tíu fíkniefnamál á Landsmóti

Tíu fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar á Hvolfsvelli í gærkvöldi og tók tæplega þrjátíu manns fyrir of hraðan akstur við hefðbundið umferðareftirlit á Suðurlandsvegi í gærkvöld og í nótt. Tvær líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglu á höfuðborgarsvæðinu.

Ísland byrji að undirbúa Evrópusambandsaðild

Tveir helstu ráðgjafar eldri ríkisstjórna á Íslandi vilja að þegar verði byrjað að undirbúa umsókn um aðild að Evrópusambandinu til að endurheimta efnahagslegan stöðugleika og leysa vanda íslenskra banka og fjármálastofnana.

Björn um Ramsesmálið

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra bloggar um atburði gærdagsins fyrir utan ráðuneyti sitt. Þar söfnuðust 80-100 manns saman og mótmæltu brottflutningi Keníamannsins Paul Ramses. Björn segir sérkennilegt hve langt Eiríkur Bergmann Einarsson, fræðimaður við Háskólann á Bifröst, gangi langt í viðleitni sinni við að tala niður Dyflinarsamninginn, sem gerður er undir merkjum Schengen-samstarfsins.

Íbúi við Hallgrímskirkju að ærast úr hávaða

Hörður Ágústsson íbúi við Frakkastíg í Reykjavík segist vera að ærast úr hávaða vegna viðgerða á Hallgrímskirkju. Á hverjum virkum degi hefst vinna klukkan 07:00 að morgni að sögn Harðar og um helgar byrja viðgerðir hálftíma síðar. Hann segist við það að gefast upp og hefur áhyggjur af ferðamönnum.

Kona barin í Tryggvagötu

Nóttin var tiltölulega róleg í miðborginni og greinilega margir sem hafa yfirgefið borgina um þessa miklu ferðahelgi. Alls eru bókuð rúmlega 100 verkefni sem er í meðallagi að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Sjá næstu 50 fréttir