Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þurfti að fljúga blindflug hluta af ferðinni Indverji sem gerir tilraun til að setja heimsmet í hnattflugi á vélknúni fisi er nú staddur hér á landi. Hann flaug hingað til lands frá Grænlandi í gær við erfiðar aðstæður en mikil ísing myndaðist á vélinni og hann þurfti að fljúga blindflug hluta úr ferðinni. 3.8.2007 12:21
Ökumenn varaðir við heitu vatni í Mývatnssveit Vegna bilunar í dælubúnaði rennur heitt vatn yfir þjóðveginn við afleggjarann að baðlóninu í Mývatnssveit. Vegagerðin biður ökumenn um að fara varlega á vegakaflanum. 3.8.2007 12:21
Rekstrarleyfi Strawberries afturkallað Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur afturkallað leyfi veitingastaðarins Strawberries í Lækjargötu 6 til reksturs þar sem starfsemin sem þar fór fram reyndist ekki samrýmast starfsleyfinu. Veitingastaðnum hefur því verið lokað. 3.8.2007 12:20
Ósáttur við að ungt fólk sé ekki velkomið á Akureyri Kaupmaður á Akureyri er ósáttur við að að fólki á aldrinum átján til tuttugu og þriggja ára verði bannað að tjalda á Akureyri um helgina. Hann segir ákvörðun yfirvalda í bænum hreint óskiljanlega. 3.8.2007 12:16
Norska fjármálaeftirltið athugar að skoða eignarhlut Kaupþings i Storebrand Norska fjármálaeftirlitið athugar að skoða hvort Kaupþing ráði yfir meiru í norska tryggingafyrirtækinu Storebrand, en félagið hefur heimild fyrir. Hafi kaup fjármálafyrirtækisins Exista á bréfum norska félagsins verið gerð í samvinnu við Kaupþing er það brot á lögum. Stjórnarformaður Kaupþings segir svo ekki vera. 3.8.2007 12:06
Önnur árásarkvennanna yfirheyrð í Eyjum Búið er að yfirheyra aðra konuna sem réðst á 28 ára gamla konu fyrir utan skemmtistaðinn Sólon síðastliðna helgi. Konan var kölluð til skýrslutöku í Eyjum í gær en sleppt að því loknu því ekki þótti ástæða til að handtaka hana vegna málsins. Konan sem ráðist var á hefur legið á spítala í fimm daga og gengist undir aðgerð á eyra. 3.8.2007 12:06
Álag í Vínbúðum þessa dagana Mikið álag er á starfsfólki Vínbúðanna þessa dagana en búast má við að ríflega þriðjungur þjóðarinnar muni koma við til að kaupa áfengi fyrir þessa verslunarmannahelgi. 3.8.2007 12:03
Þrír teknir fyrir ölvunarakstur í höfuðborginni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði þrjá ökumenn í gærkvöldi og í nótt fyrir ölvunarakstur. Þá var einn handtekinn fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna. 3.8.2007 11:52
Teknir með fíkniefni í Vestmannaeyjum Tvö minniháttar fíkniefnamál komu upp í Vestmannaeyjum í gær. Farþegi með Herjólfi var handtekinn með lítisháttar að hassi sem hann hafði falið innklæða. Þá fundu lögreglumenn tvær e-töflur á aðila í tjaldi í Herjólfsdal. 3.8.2007 11:48
Nýtt altarisverk vígt í Ísafjarðarkirkju Nýtt altarisverk í Ísafjarðarkirkju verður vígt við messu á sunnudaginn. Verkið er eftir Ölöf Nordal og byggt á helgisögunni um lausnarann og lóurnar. Verkið hefur fengið nafnið Fuglar himinsins. 3.8.2007 11:44
Allt flug til Eyja á áætlun Flugvélar á vegum Flugfélags Íslands fara alls níu ferðir frá Reykjavík til Vestmannaeyja í dag. Tvær vélar fóru í morgun og ekki gert ráð fyrir öðru en allar áætlanir standist. Mikið hvassviðri var í Eyjum morgun og fór vindhraðinn upp í allt að 27 metra á sekúndu. 3.8.2007 10:54
Meistarinn rukkaður fyrir rausnarskapinn Jónas Örn Helgason, fyrsti sigurvegari spurningakeppninnar „Meistarinn" á Stöð 2, vakti athygli eftir keppnina þegar hann ákvað að gefa hluta verðlaunaupphæðarinnar til góðgerðamála. Hann afhenti 500 þúsund króna framlag til hjálparstarfs. Það kom Jónasi hins vegar á óvart nú um mánaðarmótin að Skattstjórinn í Reykjavík innheimtir 200 þúsund krónur í skatt af gjöf Jónasar. 3.8.2007 10:42
Bílvelta og útafakstur Erlendur ferðamaður á bílaleigubíl velti bílnum sem hann ók á Suðurstrandavegi í kvöld. Maðurinn slasaðist ekki en bíllinn var talsvert skemmdur að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum. 2.8.2007 22:26
Peningarnir suður Fjármálaráðherra sagði í Fréttablaðinu í dag að það væri útilokað að sveitarfélögin fengju hlutdeild í þessum skatti og þar við situr. Ísland í dag hitti tvo bæjarstjóra sem eru ósáttir við fjármálaráðherrann vegna þessa. 2.8.2007 21:41
Vinnuslys í IKEA Starfsmaður IKEA féll af lyftara á lager verslunarinnar í Kauptúni í Garðabæ um klukkan sjö í kvöld. Hann var flyttur á slysadeild og er talið er að hann hafi fótbrotnað á báðum að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 2.8.2007 21:36
Mæla allt að fjórar vikur aftur í tímann Ekkert umburðarlyndi er gagnvart þeim sem keyra um undir áhrifum fíkniefna eftir breytingu á umferðarlögum fyrir rúmu ári síðan. Lögreglan hefur nú tekið upp einföld próf sem mæla á svipstundu hvort að ökumaður sé undir áhrifum fíkniefna og mæla allt að fjórar vikur aftur í tímann. 2.8.2007 21:33
Herjólfur fullur Partíið er byrjað - Herjólfsdalur að fyllast og Þjóðhátíð í Eyjum byrjar í kvöld með húkkaraballi. Hjá mörgum byrjar veislan þegar á bryggjunni í Þorlákshöfn á meðan beðið er eftir Herjólfi og þangað kíkti Ísland í dag. 2.8.2007 21:29
Bæjarfulltrúi mótfallinn aldurstakmörkunum á tjaldsvæði Oddur Helgi Halldórsson, bæjarfulltrúi Lista fólksins, á Akureyri er mótfallinn ákvörðunum um að loka tjaldsvæðum á Akureyri fyrir hluta fólks. "Að gefnu tilefni vil ég taka fram að ég tók ekki þátt í þeirri ákvörðun, að loka tjaldsvæðunum á Akureyri fyrir hluta fólks. 2.8.2007 21:25
Regnfatnaður selst vel fyrir Verslunarmannahelgina Verslunarmannahelgin er að skella á og undirbúningur í hámarki. Gríðarlega mikið af regnfatnaði hefur selst í útivistarverslunum undanfarna daga, og svo virðist sem Íslendingar séu farnir að undirbúa sig fyrr en áður. 2.8.2007 19:30
Ókeypis bílastæði fyrir visthæfa bíla Eigendur um fjórtán hundruð bíla fá ókeypis bílastæði í Reykjavík. Þessir bílar uppfylla skilyrði borgarinnar um visthæfni og þeim má leggja frítt í níutíu mínútur. 2.8.2007 19:25
Lengsta beinagrind sem komið hefur upp Í morgun var opnuð lengsta kista sem komið hefur upp í Skriðuklaustri og með þeim lengri í fornleifarannsóknum á Íslandi. Hún er 2,10 metrar að lengd og 70 sm að breidd. Alls hafa verið opnaðar um 80 grafir í Skriðuklaustri og enn er mikið eftir. 2.8.2007 19:22
Leggst gegn nektardansstöðum Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur ákveðið að leggjast alfarið gegn rekstri nektarstaða á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kemur fram í umsögn embættisins um leyfisveitingu til handa nektardansstaðnum Goldfinger í Kópavogi. Ásgeir Þór Davíðsson, eigandi Goldfinger segir að áfram verði dansað á staðnum. 2.8.2007 19:16
Fjögurra manna letnesk fjölskylda á götuna vegna launasvika Fjögurra manna lettnesk fjölskylda í Reykjavík verður á götunni innan skamms, þar sem fjölskyldufaðirinn hefur verið svikinn um laun svo vikum skiptir. Fjölskyldufaðirinn og fimm landar hans lögðu niður í vinnu í dag vegna þessa, en mennirnir vinna við að reisa nýtt hótel í Reykjavík. Hóteleigandinn segir þetta ekki sitt vandamál þar sem verktökum hafi þegar verið greitt. 2.8.2007 19:14
Pólitískar handtökur á Íslandi Pólitískar handtökur eru staðreynd á Íslandi, segir Eva Hauksdóttir, aðgerðarsinni. Hún kveður fjölmarga hafa verið handtekna fyrir það eitt að vera nærstadda við mótmæli Saving Iceland. Sjálf segist hún hafa verið svipt frelsi í níu klukkustundir eftir að hafa fylgst með mótmælum við Hellisheiðarvirkjun í síðustu viku. Hreyfingin hyggst kæra Ríkissjónvarpið til siðanefndar Blaðamannafélagsins. 2.8.2007 18:45
Samræmdar aðgerðir vegna hugsanlegra eldsumbrota Vegna viðvarandi skjálftahrinu norðan af Vatnajökli nánar tiltekið við Upptyppinga var í gær boðað til fundar með lögreglustjórum og yfirlögregluþjónum í umdæmum sýslumannanna á Húsavík og Seyðisfirði ásamt deildarstjóra almannavarnadeildarinnar. 2.8.2007 17:59
Sluppu með skrekkinn þegar skotið var á bíl í Reykjanesbæ Talið er að skotið hafi verið úr loftbyssu eða loftriffli á bíl sem stóð við Heiðarholt í Reykjanesbæ um kvöldmatarleytið í gær. Stúlka var að taka barn úr barnabílstól þegar ein rúðan í bílnum mölvaðist, að því er fram kemur á fréttavef Víkurfrétta. 2.8.2007 17:35
Samkomulag milli Flugstöðvarinnar í Keflavík og Þroskahjálpar Flugstöð Leifs Eiríkssonar og Þroskahjálp á Suðurnesjum hafa gert með sér samkomulag um tilraunaverkefni til þriggja mánaða sem felur í sér að skjólstæðingar Þroskahjálpar annast smölun á handfarangurskerrum í flugstöðinni í samstarfi við Fríhöfnina. 2.8.2007 16:47
Rússnesk fjölskylda á hraðferð Hraðferð fjögurra manna fjölskyldu frá Rússlandi lauk á Kjalarnesi um ellefuleytið í morgun en fólkið var á leið til höfuðborgarinnar. Lögreglan stöðvaði bíl fjölskyldunnar enda var honum ekið á 139 km hraða. 2.8.2007 16:38
Visthæfir bílar fá frítt í stæði Frá og með deginum í dag geta eigendur visthæfra bifreiða lagt bílum sínum frítt í stæði í Reykjavík í 90 mínútur í senn. Ókeypis verður í gjaldskyld stæði nema í bílastæðahúsum og í stæði sem eru lokuð. Í frétt á heimasíðu Umhverfissviðs kemur fram að sérstök bílastæðaskífa hafi verið útbúin af þessu tilefni. 2.8.2007 16:31
Erlendum ferðamönnum fjölgar mikið Erlendum ferðamönnum fjölgaði um rúm 19% fyrstu 6 mánuði ársins, miðað við sama tíma í fyrra, samkvæmt talningum Ferðamálastofu í Leifsstöð. Mikil aukning var í júní síðastliðnum en þá fjölgaði ferðamönnum um fjórðung á milli ára. Í júní er aukning frá öllum markaðsvæðum. 2.8.2007 16:20
Rekstrarstjórn DV og Birtings sameinuð Útgáfufélag DV og útgáfufélagið Birtingur hafa verið sett undir sameiginlega rekstrarstjórn af því er fram kemur í tilkynningu frá Birtingi. Þar segir ennfremur að ekki sé um sameiningu félaganna að ræða heldur rekstrarlega hagræðingur. Þá mun Elín Ragnarsdóttir , framkvæmdastjóri Birtings, verða framkvæmdastjóri beggja félaga. 2.8.2007 15:56
Skjálfti við Grímsey Veðurstofa Íslands mældi jarðskjálfta upp á 3,0 á richterskvarða á Kolbeinseyjarhrygg vestan við Grímsey um fimm mínútur yfir þrjú í dag. Að sögn Veðurstofu Íslands er engin sérstök virkni á svæðinu. Skjálfti upp á 3,0 á richter þykir ekki snarpur en líklegt er að einhverjir Siglfirðingar hafi orðið hans varir. 2.8.2007 15:54
Auka framlög til þróunarsjóðs um sex milljarða króna Auka á framlög til þróunarsjóðs Evrópska efnahagssvæðisins um rúma sex milljarða króna á næstu árum samkvæmt samningi um stækkun Evrópska efnhagssvæðisins. Samningurinn var undirritaður í síðustu viku og tók hann formlega gildi í gær. Gert er á ráð fyrir verulegum niðurfellingum á sjávarafurðum. 2.8.2007 15:24
Nektardans bannaður á Goldfinger Nektardansstaðurinn Goldfinger hefur misst leyfi til nektarsýninga. Ný lög um veitingastaði og skemmtanahald tóku gildi um síðustu mánaðamót. Samkvæmt þeim þurfa veitingastaðir aðeins eitt rekstrarleyfi, í stað veitinga, skemmti- og vínveitingaleyfis. 2.8.2007 15:17
Tveir ökuþórar teknir í Reykjavík Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í gærkvöldi karlmann á fertugsaldri fyrir að aka bifhjóli á 166 kílómetra hraða á Miklubraut. Maðurinn var sviptur ökuleyfi til bráðabirgða en hámarkshraði á þeim kafla þar sem hann var tekinn er 60 kílómetrar á klukkustund. 2.8.2007 14:47
Mótmælaskilti rifin niður í skjóli nætur Andstæðingar virkjana í neðri hluta Þjórsár eru í öngum sínum eftir að skilti sem þeir settu upp til þess að mótmæla virkjunaráformunum voru rifin niður í nótt. Skiltin voru tvö, og var öðru þeirra komið fyrir á hlaði bóndans sem setti það upp. Hitt skiltið er enn ekki komið í leitirnar. Málið hefur verið tilkynnt til lögreglu en formleg kæra hefur ekki borist. 2.8.2007 14:27
Reyna að setja heimsmet í fisflugi Orustuflugmenn í indverska flughernum freista þess að setja heimsmet í hnattflugi á vélknúnum fisflugvélum. Ágúst Guðmundsson, tengiliður mannanna á Íslandi, segir að vélin sé nú stödd í Kulusuk á Grænlandi. 2.8.2007 14:18
Fjórir sóttu um stöðu hæstaréttardómara Fjórir sóttu um embætti hæstaréttadómara sem skipað verður í frá og með 1. september 2007. Umsóknarfresturinn rann út þriðjudaginn 31. júlí síðastliðinn. 2.8.2007 14:09
Össur ekki hrifinn af hugmyndum um olíuhreinsistöð Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra segist ekki vera hrifinn af hugmyndum um olíuhreinsistöð á Vestfjörðum. Hann segir að ráðuneytið ætli ekki að leggjast í neinar athugunar vegna málsins. Þetta kemur fram í viðtali við ráðherrann á vef Bæjarins besta. 2.8.2007 13:44
Lögreglan boðar viðamikið eftirlit um verslunarmannahelgi Fylgst verður grannt með íbúarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu um næstu helgi til að koma í veg fyrir innbrot. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni sem boðar viðamikið eftirlit um næstu helgi. Fólk er hvatt til að láta vita um grunsamlegar mannaferðir. 2.8.2007 13:16
Borgarráð fundar með lögreglustjóra vegna ofbeldis í miðbænum Fulltrúar Samfylkingarinnar í borgarráði hafa óskað eftir að skilyrði rekstrarleyfa veitingastaða varðandi umgengni og öryggi verði tekið til endurskoðunar. Tilefnið er fólskuleg árás þriggja stúlkna á konu í miðbæ Reykjavíkur um síðustu helgi. Borgarráð hefur ákveðið að kalla lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins á sinn fund til að ræða aukna löggæslu í miðborginni. 2.8.2007 13:12
Vilja nýjan Herjólf Vinstri grænir á Suðurlandi vilja að fenginn verði nýr Herjólfur til að leysa núverandi skip af hólmi á leiðinni Vestmannaeyjar – Þorlákshöfn. Skipið skuli fullnægja flutningsþörfinni og fara 3 ferðir á sólarhring. 2.8.2007 12:45
Kristín Ástgeirsdóttir skipuð framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra, hefur skipað Kristínu Ástgeirsdóttur í embætti framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu. Hún er skipuð til fimm ára frá og með 1. september næstkomandi. 2.8.2007 12:25
Sláturhús sögð hindra innflutning á kjöti Sláturhús eru sökuð um að beita bellibrögðum til þess að hindra innflutning á kjöti á svokölluðum núllkvóta. Og landbúnaðarráðuneytið er sakað um að líta á þetta með velþóknun. Formaður neytendasamtakanna segir að útboðsaðferðin sé gersamlega misheppnuð. Fjölmargir fagaðilar hafa tjáð sig um þennan kjötinnflutning í fjölmiðlum undanfarið. Þarna er verið að fjalla um 550 tonn af kjöti sem boðin voru út í mars á núll krónur í toll. 2.8.2007 12:12
Ósamræmi milli tekjublaða Mikill munur er oft á uppgefnum tekjum einstaklinga í tekjublöðum Frjálsrar verslunar og Mannlífs. Á tekjulistum blaðanna má einnig sjá að sumir þekktir einstaklingar eiga varla til hnífs og skeiðar. 2.8.2007 12:07