Leggst gegn nektardansstöðum 2. ágúst 2007 19:16
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur ákveðið að leggjast alfarið gegn rekstri nektarstaða á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kemur fram í umsögn embættisins um leyfisveitingu til handa nektardansstaðnum Goldfinger í Kópavogi. Ásgeir Þór Davíðsson, eigandi Goldfinger segir að áfram verði dansað á staðnum. Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur ákveðið að leggjast alfarið gegn rekstri nektarstaða á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kemur fram í umsögn embættisins um leyfisveitingu til handa nektardansstaðnum Goldfinger í Kópavogi. Ásgeir Þór Davíðsson, eigandi Goldfinger segir um fimmtíu manns missa vinnuna ef af verður. Samkvæmt lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald sem tóku gildi þann 1. júlí síðast liðinn er óheimilt að bjóða upp á nektarsýningar né með öðrum hætti að gera út á nekt starfsmanna eða annarra sem á staðnum eru. Þó er hægt að veita undnaþágu frá þessu lagaákvæði að fenginni umsögn sex aðila, þ.e. sveitarstjórnar, heilbrigðisnefndar, slökkviliðs, vinnueftirlits, byggingarfulltrúa og lögreglu. Þegar eigandi súludansstaðarins Goldfinger sótti um endurnýjun á leyfi fyrir sínum rekstri óskaði sýslumaðurinn í Kópavogi eftir þessum umsögnum og ákvað í kjölfarið að nektardans yrði bannaður á staðnum. Allt útlit er því fyrir að ekki verði dansaður nektardans á Goldfinger á næstunni. Ástæðan er umsögn lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu en í henni segir: ,,Slíkir staðir hafa mikil áhrif á umhverfið og er meiri þörf á eftirliti og/eða löggæslu við slíka staði." Þá segir: ,,Nokkur reynsla er af því hér á landi að starfsemi sem býður upp á nektardans byggir nær eingöngu á ungum erlendum stúlkum sem hingað koma til starfa. Reynst hefur ómögulegt að kanna hjá þeim stúlkum sem hingað hafa komið um stöðu þeirra og aðstæður og ástæðu þess að þær stunda þessa iðju og hvort þær séu þvingaðar til þess með einum eða öðrum hætti." Enn fremur segir í umsögninni að rannsóknir erlendis hafi sýnt að stúlkur sem taka þátt í slíkri starfssemi séu oft þolendur misneytingar af ýmsu tagi. Síðan segir: ,,...þykir rétt vegna ríkra mannúðarsjónarmiða og jafnframt almannahagsmuna og löggæslusjónarmiða að neita alfarið um leyfi til þess að heimila veitingastöðum að reka starfsemi sem býður upp á nektardans." Ásgeir Þór Davíðsson, eigandi Goldfinger hefur ákveðið að skjóta synjuninni til dómsmálaráðuneytisins með vísan til stjórnsýslulaga. Hann segir að ótrúlegt sé hvernig sýknt og heilagt sé verið að ráðast á sig. Hann segist óttast að Ísland sé orðið að lögregluríki. Goldfinger hefur áfram leyfi til vínveitinga og skemmtanahalds og segir hann að áfram verði dansað á staðnum, varla sé hægt að banna tangó eða einhvern annan dans.
Mest lesið Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Innlent Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Erlent Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Innlent Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Innlent Tókust á um veiðigjöld og þinglok Innlent Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Innlent Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Innlent Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Innlent Hiti gæti náð 25 stigum í dag Veður Kim lofar Rússum „skilyrðislausum stuðningi“ Erlent Fleiri fréttir „Eini rasisminn sem ég hef upplifað á Íslandi er frá lögreglunni" Tókust á um veiðigjöld og þinglok Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Þurfi að bæta skráningu ofbeldisbrota gegn fangavörðum Ursula von der Leyen kemur til Íslands Formenn takast á, fangelsismál og Trump á völlinn Ekki farið fram á gæsluvarðhald yfir fimmmenningunum Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Fundu kannabisplöntur við húsleit Dettifoss komið til hafnar Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Ofbeldi í garð fangavarða eykst Hnífstungumaður úrskurðaður í gæsluvarðhald Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Þinglokasamningur í höfn Þingfundi slitið eftir ítrekaðar frestanir og snörp orðaskipti Eldfimt ástand á þingi, árásir á fangaverði og full ungmenni á víðavangi Segir enga sérstaka ástæðu fyrir áhuga á 71. greininni Minnisblað Flokks fólksins: „Við þurfum að fá svar við þessu“ Þingfundur hafinn eftir ítrekaðar frestanir Dettifoss nálgast endamarkið Þurfi að taka á þeim sem telji sig geta keypt líkama annarra Hríðskotabyssa í poka kom Íslendingi á lista CIA Nafn mannsins sem lést í mótorhjólaslysinu Vonar að minnihlutinn sýni ábyrgð svo ekki þurfi að beita ákvæðinu aftur Telja jákvæðu skrefin of fá Sjálfvirk bílaþvottastöð opnuð á Selfossi Sjá meira