Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Íslendingur aðstoðaði við björgunarstörf Íslendingur var sjónarvottur að því þegar átta akreina brú í Minneapolis hrundi á háannatíma. Að minnsta kosti sjö létust í slysinu. Einar Guðjónsson, segir á athugasemdakerfi Vísis að hann hafi nánast séð brúna hrynja í baksýnisspeglinum örfáum mínútum eftir að hann hafði sjálfur keyrt eftir henni. 2.8.2007 09:54
Ökumenn sýni varkárni um verslunarmannahelgina Slysavarnafélagið Landsbjörg brýnir fyrir mönnum að sýna varkárni í umferðinni um verslunarmannahelgina og ítrekar nauðsyn þess að forðast framúrakstur og keyra ekki þreytt eða undir áhrifum áfengis. 2.8.2007 09:51
Bílvelta í Hvalfirði Einn maður var fluttur í skyndi með sjúkrabíl á Slysadeild í Fossvogi eftir bílveltu á Eyrarfjallsvegi við bæinn Mýrdal í Kjós. Að sögn lögrelgunnar á höfuðborgarsvæðinu átti slysið sér stað rétt eftir klukkan sjö í kvöld. Ekki liggja fyrir frekari upplýsingar að svo stöddu. 1.8.2007 21:31
Flugóhapp við Múlakot í Fljótshlíð Engan sakaði þegar nefhjólið gaf sig á tveggja hreyfla flugvél á flugvellinum við Múlakot í Fljótshlíð í kvöld. Er nefhjólið gekk upp lagðist flugvélin, sem tveir voru í, á nefið. Lögreglan á Hvolsvelli er á staðnum en frekari upplýsingar liggja ekki fyrir að svo stöddu. 1.8.2007 20:48
Unglingsstúlka flutt með þyrlu á slysadeild eftir bílveltu í Gnúpverjahreppi Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti sautján ára stúlku á slysadeild í Reykjavík eftir að bíll sem hún var farþegi í valt í Gnúpverjahreppi rétt fyrir ofan Geldingaholt í kvöld. Grunur leikur á að stúlkan hafi hlotið háls- og hryggáverka. Fimm manns voru í bílnum og var stúlkan farþegi í aftursæti hans. Annar farþegi var færður til skoðunar á Heilsugæslustöðina í Laugarási en aðrir sem í bílnum voru sluppu ómeiddir að sögn lögreglunnar á Selfossi. 1.8.2007 20:39
Lindarvatn úr Eyjafjöllum uppistaðan í vestmannaeyskum bjór Lindarvatn úr Eyjafjöllunum verður uppistaðan í nýjum íslenskum bjór, framleiddum í Vestmannaeyjum, ef hugmyndir um bjórverksmiðju í Eyjum verða að veruleika. Með tilkomu Bakkafjöru lækkar flutningskostnaður bjórsins uppá fastalandið til muna. 1.8.2007 19:35
Átján ára aldurstakmark inn á tjaldsvæði á Siglufirði Aðstandendur Síldarævintýris á Siglufirði vilja í ljósi umræðu um aldurstakmörk á tjaldsvæðum um verslunarmannahelgina taka það fram að börnum yngri en 18 ára er bannaður aðgangur að tjaldsvæðum á Siglufirði nema þau séu í fylgd foreldra eða forráðamanna. 1.8.2007 19:23
1200 milljóna króna skuld Byggðastofnunnar aflétt Iðnaðar- og fjármálaráðherra hafa ákveðið að aflétta 1200 milljóna króna skuld Byggðastofnunnar, til að koma til móts við vanda útgerðanna í kjölfar kvótaskerðingar. Þetta var tilkynnt við opnun Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands á Ísafirði í dag. 1.8.2007 19:18
Gengur á 100 hæstu tinda landsins Þorvaldur Víðir Þórisson er líklega ókrýndur háfjallakóngur Íslands. Hann hefur á þessu ári klifið sjötíu og tvo af hundrað hæstu tindum landsins og stefnir á að ljúka við að klífa þá alla fyrir fimmtugsafmælið sitt í október. 1.8.2007 19:18
Óásættanleg hegðun á Akureyri síðustu ár, ástæðan Ekki var lengur hægt að sætta sig við að öllum viðmiðum siðmenningar væri sleppt um verlsunarmannahelgi segir talsmaður tjaldsvæðanna á Akureyri um þá ákvörðun bæjaryfirvalda að setja aldurstakmark á tjaldssvæði bæjarins. Síðast liðin ár hefur gefist illa að blanda saman ungu fólki og fjölskyldufólki og því var gripið til þessa örþrifaráðs. 1.8.2007 19:01
Árni Johnsen ítrekað misst stjórn á sér og sýnt dómgreindarskort segir Þjóðhátíðarnefnd Þjóðhátíðarnefnd í Vestmannaeyjum treysti sér ekki til að bera ábyrgð á Árna Johnsen sem kynni á hátíðinni. Nefndin segir það vera vegna þess að hann hafi ítrekað misst stjórn á sér og sýnt dómgreindarskort í þeim störfum. 1.8.2007 19:00
Bankagróði 6 mánaða dygði grunnskólum í 2 ár Þrír stærstu bankar landsins högnuðust um tæpa níutíu milljarða á fyrri hluta ársins. Hagnaðurinn myndi duga til að reka alla grunnskóla á landinu í meira en tvö ár. Landsbankinn kynnti afkomu á fyrri hluta ársins í dag og er hagnaðurinn röskir 26 milljarðar. 1.8.2007 18:45
Kerfisskýring á fæð skattadrottninga Af þeim níutíu sem raðast á topp tíu lista skattaumdæmanna eru sex konur. Skattadrottning landsins er Ingunn Gyða Wernersdóttir sem greiðir þriðju hæstu skatta landsins. Margrét Kristmannsdóttir, formaður Félags kvenna í atvinnurekstri, segir fæð kvenna meðal hæstu skattgreiðenda skýrast meðal annars af því að fjármagnstekjur reiknist á þann makann sem hefur hærri launatekjur. 1.8.2007 18:45
Læknanemar dreifa 15.000 smokkum Ástráður, forvarnarstarf læknanema, hefur í samstarfi við Halldór Jónsson, innflytjanda Durex á Íslandi, og fleiri góða aðila ákveðið að hrinda af stað smokkaátaki um Verslunarmannahelgina, á Gay pride hátíðinni og á Menningarnótt. 1.8.2007 18:21
ísland yfirtekur starfsemi Ratsjárstofnunar Ísland mun yfirtaka starfsemi Ratsjárstofnunar frá og með 15. ágúst næstkomandi. Starfshópur skipaður sérfræðingum utanríkisráðuneytisins vinnur nú að undirbúningi yfirtöku íslenskra stjórnvalda á starfsemi stofnunarinnar og aðlögun að íslenskri stjórnsýslu. 1.8.2007 17:29
Rafmagn ódýrast á Íslandi Orkuveitan hefur gert samanburð á verðskrá sinni og nýrri samantekt hagstofu Evrópusambandsins. Samanburðurinn leiðir í ljós að í íslensk heimili borga lægsta raforkuverð á Norðurlöndum. Finnar koma næst Íslendingum í verði en Danir þurfa að borga tvöfalt á við viðskiptavini Orkuveitunnar. 1.8.2007 16:31
Umferðartafir á gatnamótum Reykjanesbrautar og Bústaðarvegar Umferðarljós á gatnamótum Reykjanesbrautar og Bústaðavegar eru óvirk sem stendur. Búast má við umferðartöfum við þessi gatnamót vegna þessa en hámarkshraði verður lækkaður tímabundið af þessum sökum. Vegfarendur eru beðnir um að velja aðrar leiðir eigi þeir þess kost. 1.8.2007 15:55
Tekjublað Mannlífs kemur út á morgun Tekjublað Mannlífs kemur út á morgun. Í blaðinu eru birtar tekjur 2500 Íslendinga í öllum landshlutum. Í tilkynningu frá Mannlífi segir að æðstu stjórnendur fyrirtækja, bankastjórar, athafnafólk, stjórnmálafólk, lögfræðingar og dómarar séu meðal þeirra sem komIst á blað.Tekjublaðið munI einnig bregða ljósi á tekjur umönnunarstétta og fólks sem vinnI mikilvæg láglaunastörf 1.8.2007 15:09
Ráðherranefndin kannar aðbúnað á norrænum leikskólum Norræna ráðherranefndin hefur sett af stað verkefni sem ætlað er að skoða hvað Norðlurlönd eru að gera fyrir börn í leikskólum. Í frétt á heimaðsíðu nefndarinnar segir að styrkja þurfi norrænt samstarf á sviði umhverfis- og heilbrigðismála. 1.8.2007 14:37
Tólf hundruð milljóna króna skuld verður aflétt Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra og Árni Matthiesen fjármálaráðherra hafa ákveðið að aflétta 1200 milljóna króna skuld Byggðarstofnunar. Þetta er á meðal þeirra aðgerða sem fyrirhugaðar eru til að takast á við afleiðingar af skerðingu í þorsksaflaheimildum. 1.8.2007 14:00
Þórólfur Þórlindsson settur forstjóri Lýðheilsustöðvar Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðis-og tryggingamálaráðherra, hefur sett doktor Þórólf Þórlindsson forstjóra Lýðheilsustöðvar til eins árs. Þórólfur hefur gegnt starfi prófessors við félagsvísindadeild Háskóla Íslands. Hann hefur sinnt viðamiklum félagsvísindarannsóknum á hegðan ungmenna, birt fjölmargar ritrýndar vísindagreinar í alþjóðlegum tímaritum og ritað bækur um efnið. 1.8.2007 13:20
Húnabjörgin kölluð út til bjargar 46 tonna bát Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Húnabjörg á Skagaströnd, fór til aðstoðar 46 tonna bát sem hafði fengið veiðarfærin í skrúfuna rétt við Kálfshamarsvita norðan við Skagaströnd. 1.8.2007 12:41
Össur hyggst kynna aðgerðir til að styrkja Byggðastofnun Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra segist í dag munu kynna afar mikilvægar aðgerðir til að styrkja Byggðastofnun. Aðgerðirnar eiga að gera henni fært að taka á málum útgerða sem eiga í vanda vegna skerðingar kvóta. 1.8.2007 12:28
Varðstjóri sakaður um brot í opinberu starfi Varðstjóri hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu hefur verið ákærður fyrir brot í opinberu starfi. Í dagbók lögreglunnar kemur fram að maðurinn sé sakaður um að hafa misnotað stöðu sína þegar hann nýtti sér mannafla og bifreið lögreglu í eigin þágu. 1.8.2007 11:46
Stöðvaður ölvaður við akstur og án ökuréttinda Tvítugur piltur var handtekinn á Seltjarnarnesi í nótt eftir að hafa lent í umferðaróhappi. Pilturinn gat ekki framvísað ökuskírteini en við athugun kom í ljós að hann hefur aldrei haft ökuréttindi. Hann reyndist líka vera ölvaður, eftir því sem fram kemur í dagbók lögreglunnar. 1.8.2007 11:03
Ekkert lát á skjálftum við Öskju Ekkert lát er á skjálftavirkni norðan Vatnajökuls, nánar tiltekið við Upptyppinga, austan Öskju. Síðustu tvo sólarhringa hafa mælst 130 skjálftar á svæðinu og eru skjálftarnir nú orðnir um 2300 frá því í febrúarlok. Það var um klukkan hálffjögur í gærmorgun sem síðasta skjálftahrinan byrjaði, og fara skjálftarnir ívið stækkandi að sögn Steinunnar Jakobsdóttur sem stendur skjálftavakt Veðurstofunnar. 1.8.2007 10:21
Kristinn Halldórsson skipaður dómari við héraðsdóm Vestfjarða Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, hefur skipað Kristinn Halldórsson héraðsdómara við héraðsdóm Vestfjarða frá 1. september 2007. 1.8.2007 09:56