Discovery gerir þátt hér á landi 17. ágúst 2007 18:30
Mikil leynd hvílir yfir hvað 25 manna hópur frá sjónvarpsstöðinni Discovery er að gera hér á landi. Hópurinn var í dag staddur í Hringsdal í Arnarfirði og augljóslega gekk mikið á. Arnarfjörður skartaði sínu fegursta í morgun og fjöllin í firðinum spegluðust í sænum. Ferðinni er heitið í Hringsdal, sem dregur nafn sitt af fornmanni sem þarna bjó. Heyrst hafði að í dalnum væri allt iðandi af lífi. Þar væri eitthvað mikið um að vera. Við kuml Hrings í Hringsdal í Arnarfirði er nú staddur um 25 manna hópur leikara og tökumanna frá Discovery en mikil leynd hvílir yfir tökunum. Þegar fréttastofa leitaði eftir því að fá viðtal við einhvern úr hópnum var því alfarið neitað og í raun vorum við vinsamlegast beðin um að fara svo mikil er leyndin. Fyrirtækið Labrador er hópnum til halds og trausts, forsvarsmenn fyrirtækisins vildu heldur ekki ljóstra upp miklu. Fréttastofa hefur hins vegar heimildir fyrir því að hópurinn frá Discovery sé að gera nokkurs konar leikna heimildarþætti í anda Indiana Jones, sem fjalla um mann sem ferðast um heiminn og grefur upp fornmenn. Fyrir um ári síðan fannst Hringur en hans hafði lengi verað leitað í Hringsdal. Kuml hans var vel varðveitt og vakti nokkra athygli. Getgátur voru þá uppi um að kuml Austmanns væri á sama stað, en sagan segir að þeir hafi verið heygðir hlið við hlið. Fornleifafræðingar telja það þó ólíklegt en að því er fréttastofa kemst næst mun persóna Discovery í þáttunum grafa Austmann upp í dag eða á morgun. Þetta ku vera í fyrsta skipti sem erlendar sjónvarpsstöðvar hafa sýnt íslenskum fornleifauppgreftri áhuga. Þegar tökum er lokið í Hringsdal þá mun hópurinn færa sig um set og kvikmynda á fleiri stöðum.Síðan liggur leið þeirra til Noregs þar sem fleiri uppgreftir verða sviðsettir. Þættirnir verða svo dagskrá hjá Disceovery stöðinni á næsta ári.
Mest lesið Sérsveitaraðgerð í Vestmannaeyjum Innlent Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Erlent „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Innlent Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Innlent Gagnrýna myndband Miðflokksins: „Þetta er bara Sovét-Ísland í dag“ Innlent „Auðvitað hef ég íhugað það“ Innlent Flugi aflýst vegna áhafnarskorts í annað sinn í vikunni Innlent Borgarstjóri fer í saumana á kortafærslunum Innlent Maður varð fyrir flugvél á flugbraut og lést Erlent Formaður Heimssýnar varar við ofbeldi gangi Ísland í ESB Innlent Fleiri fréttir „Varð að martröð“ Hrósar olíufélögunum fyrir viðbrögð sín Keyrði niður ljósastaur á Vesturlandsvegi Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Fólki yfir fimmtugt síður boðið í atvinnuviðtöl Starfsemi gæti hafist í nýjum Listaháskóla innan fjögurra ára Þriðja viljayfirlýsingin frá árinu 2007 undirrituð „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Oddviti Samfylkingar bregst við færslum borgarstjóra Flugi aflýst vegna áhafnarskorts í annað sinn í vikunni Maðurinn handtekinn og fluttur til Reykjavíkur í nótt „Sá gamli er miklu fallegri“ Bjó sér til vopn með því að setja steinhellu í sokk Sérsveitaraðgerð í Vestmannaeyjum Fær ár fyrir hvora flösku af amfetabínbasa Segir þekkt andlit mikið auglýst, jafnvel á kostnað málefna Drógu aflvana fiskibát í land „Beinlínis gengið í skrokk á fólki“ Myndskeiðið byggi á „netmemi og tölvuleikjamenningu“ „Auðvitað hef ég íhugað það“ Borgarstjóri í beinni um umdeildar kortafærslur Engin bið eftir plássi á meðferðarheimilum ungmenna Endurgreiddi eftir að fjölmiðlar spurðu út í innkaupakortið Lögregla sögð vilja koma höggi á blaðamenn Gagnrýna myndband Miðflokksins: „Þetta er bara Sovét-Ísland í dag“ Ótrúlegt kjörtímabil að baki á Vopnafirði Formaður Heimssýnar varar við ofbeldi gangi Ísland í ESB Stykkishólmur verður að vera annað og meira en svefnpláss Mikil tímamót fyrir Víkinga, byrja á bílastæðum „Ég kýs ekki þau sem vilja rífa höll barnanna“ Sjá meira