Viðskiptaráðherra vill nýjar rafrænar verðkannanir í verslunum 17. ágúst 2007 15:20 Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra. MYND/VG
Viðskiptaráðherra vill koma á fót rafrænum verðkönnunum til að stuðla að gagnsæi markaðar og virkri samkeppni. Neytendastofu hefur verið falið að vinna að framkvæmdaáætlun og á þeirri vinnu að vera lokið næsta sumar. Könnuninni er ekki ætlað að taka við af verðkönnunum Alþýðusambands Íslands heldur um viðbót að ræða að sögn viðskiptaráðherra. „Framtíðin í verðkönnunum er rafrænt eftirlit," sagði Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, í samtali við Vísi. „Með þessu er verið að efla verðkannanir hér á landi." Fram kemur í tilkynningu frá viðskiptaráðuneytinu að Neytendastofa muni setja leiðbeinandi verklagsreglur um rafrænar verðkannanir. Er Neytendastofu einnig gert að hafa víðtækt samráð við alla hagsmunaaðila í tengslum við málið í því skyni að stuðla að sátt um verðkannanir. Vonir standa til þess að þetta muni skila sér í nákvæmari og skjótari úrvinnslu upplýsinga. Vinna við áætlunina á að vera lokið fyrsta júní á næsta ári. Kaupmenn hafa gagnrýnt verðkannanir Alþýðusambands Íslands harðlega á undanförnum mánuðum og talað um atvinnuróg í því sambandi. Í síðasta mánuði sendu Samtök verslunar- og þjónustu frá sér yfirlýsingu þar sem þess var krafist að Hagstofa Íslands annist verðrannsóknir og að stjórnvöld endurskoði fjárframlög til hagdeildar Alþýðusambandsins vegna verkefna af þessu tagi. Björgvin G. Sigurðsson segir að ekki standi til að breyta fjárframlögum ríkisins til hagdeildar Alþýðusambandins. Hann ítrekar að ráðuneytið beri fullt traust til sambandsins í þessu efni. „Þetta verður einungis viðbót við þær verðkannanir sem nú þegar eru gerðar hér á landi og gert til að auka aðgengi neytenda að upplýsingum um verðþróun á markaði."
Mest lesið Þrjátíu þúsund fengu hærri lífeyri í dag en síðustu mánaðamót Innlent Nágranni hafði betur og verkstæðið verður ekki endurbyggt Innlent Vill skipta út borgarstjórnarflokknum en halda Hildi inni Innlent Lögregla kölluð til vegna slagsmála og hnífaburðar Innlent Sólveig Anna sé sjálf sek um dyggðaskreytingar Innlent „Kynlífsdúkka“ af ungu barni meðal gagna máls gegn fyrrverandi ráðherra Erlent Tilkynnt um hljóð úr neyðarsendi á flugi yfir Akranes Innlent Biðjast ekki afsökunar Innlent Vara við því að Kennedy ógni heilsu landsmanna Erlent Hútar réðust inn til Sameinuðu þjóðanna og tóku ellefu starfsmenn í hald Innlent Fleiri fréttir Mótmælti nýja kerfinu í fyrra en fagnaði því í dag Stórbætt afkoma öryrkja og „niðurlægjandi“ ástand Mjóddarinnar Lögregla kölluð til vegna slagsmála og hnífaburðar Leit vegna neyðarsendis frestað Falla frá hluta ákæru vegna tunnumótmælanna Nágranni hafði betur og verkstæðið verður ekki endurbyggt Innkalla ferskan kjúkling frá Matfugli vegna gruns um salmonellu Tilkynnt um hljóð úr neyðarsendi á flugi yfir Akranes Einfaldasta lausnin að bæta kjör geislafræðinga Veitur vara við svikaskilaboðum Áhersla lögð á andlega líðan eldra fólks sem sé lítið rædd Þrjátíu þúsund fengu hærri lífeyri í dag en síðustu mánaðamót Ákærður fyrir að bera sig ítrekað Segir nýtt kerfi stórbæta kjör lífeyrisþega Með á þriðja þúsund pilla í nammipokum Bein útsending: Nýtt örorku- og endurhæfingarkerfi tekur gildi Það sé skammtímalausn að lengja opnunartíma og senda fólk erlendis í geislameðferð Snærós ráðin framkvæmdastjóri Evrópuhreyfingarinnar Sólveig Anna sé sjálf sek um dyggðaskreytingar Með óspektir og réðst á lögreglumann Vill skipta út borgarstjórnarflokknum en halda Hildi inni Hútar réðust inn til Sameinuðu þjóðanna og tóku ellefu starfsmenn í hald Biðjast ekki afsökunar Ferðamaður tekinn á tvö hundruð kílómetra hraða Mótorhjólakappi fluttur á sjúkrahús eftir árekstur við framúrakstur Friðarsúlan „gagnslaus“ og megi alveg eins heita „woke-súlan“ Netþrjótar hirða meira en hálfan milljarð og verktaki bendir á borgina Gamall Volvo stóð í ljósum logum í Breiðholti Varðturnarnir á bak og burt Mikill hugur hjá skógræktarfólki um allt land Sjá meira