Fleiri fréttir

Mikill fjöldi Íslendinga starfandi í Danmörku

Rúmlega þrjú þúsund Íslendingar störfuðu í Danmörku um síðustu áramót en landið er sem fyrr vinsælasti búsetustaður Íslendinga erlendis. Þetta kemur fram í vefriti fjármálaráðuneytisins. Flestir starfa við þjónustu við atvinnurekstur en þá starfa einnig margir Íslendingar við félagsþjónustu í Danmörku.

Lofaði fjölmiðla fyrir framgöngu þeirra í aðdraganda kosninga

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sagði nýafstaðnar kosningar vitnisburð um að lýðræðishefð væri hér sterk og lauk lofsorði á fjölmiðlaflóruna í aðdraganda kosninga þegar hann setti 134. löggjafarþing þjóðarinnar nú á þriðja tímanum.

Sungu inn hátíðina Bjarta daga

Nemendur í fjórða bekk allra grunnskólanna í Hafnarfirði sungu í dag inn hátíðina Bjarta daga í bænum. Um 400 börn komu saman á Thorsplani, skörtuðu heimagerðum og litríkum höttum og sungu fjögur lög sem þau hafa æft, þar á meðal Þú hýri Hafnarfjörður.

Anna Kristín verður aðstoðarkona Þórunnar

Þórunn Sveinbjarnardóttir, nýr umhverfisráðherra, hefur ráðið Önnu Kristínu Ólafsdóttur sem sinn aðstoðarkonu sína í ráðuneytinu. Frá þessu greindi Þórunn í hádegisviðtalinu á Stöð 2 í dag.

Slysum fækkaði í umferðaröryggisvikunni

Verulega dró úr tjónum vegna umferðaróhappa síðustu vikuna í apríl þegar alþjóðlega umferðaröryggisvikan var haldin hér á landi. Alls fækkaði tjónum um 22 prósent samanborið við sömu viku í fyrra. Þá slösuðust mun færri í umferðinni á tímabilinu.

Tvöfalt fleiri teknir úr umferð ár fyrir lyfjaakstur

Tvöfalt fleiri ökumenn eru teknir úr umferð í hverjum mánuði í ár fyrir akstur undir áhrifum lyfja eða fíkniefna en í fyrra. Að minnsta kosti fjögurra efna lyfjakokteill fannst í ökumanni sem lögreglan á Akranesi stöðvaði í gærkvöld á leið til bæjarins.

Reykingabann tekur gildi á morgun

Lög um reykingabann á veitinga- og skemmtistöðum á landinu tekur gildi á morgun. Ekki verður heimilt að reykja á sérstökum reyksvæðum innandyra en leyfilegt er að setja upp reykskýli utandyra.

Þingsetningu lokið

Setning sumarþings hófst með guðsþjónustu í Dómkirkjunni klukkan 13:30. Í morgun funduðu þingflokkar stjórnarflokkana . Kosið var í nefndir og rædd dagskrá sumarþingsins.

Slökkvilið og leikskólar í samstarf um brunavarnir

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hyggst ásamt fleiri slökkviliðum og Brunabótafélagi Íslands hefja samstarf við leikskóla um eldvarnaeftirlit og fræðslu til starfsfólks og elstu barnanna á leikskólunum og fjölskyldna þeirra.

Ólafur á að færa Blaðið í hæstu hæðir

Ólafur Þ. Stephensen, aðstoðarritstjóri Morgunblaðsins, hefur verið ráðinn ritstjóri Blaðsins frá og með næstu mánaðamótum. Fram kemur í tilkynningu frá Árvakri að ráðningin sé liður í sókn Blaðsins og því markmiði að gera það að mest lesna dagblaði á Íslandi.

Mikil veðurblíða á höfuðborgarsvæðinu

Blíðskaparveður er nú á höfuðborgarsvæðinu og mældist hitinn 16 gráður klukkan tíu í morgun. Gert er ráð fyrir því að hitinn fari allt upp í 18 gráður í hádeginu.

Róbert verður aðstoðarmaður samgönguráðherra

Róbert Marshall, fyrrverandi forstöðumaður NFS og fyrsti varaþingmaður Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi, verður aðstoðarmaður Kristjáns L. Möllers samgönguráðherra eftir því sem vefurinn Stokkseyri.is greinir frá.

Endurhæfing fyrir einstaklinga með geðraskanir

Velferðarsvið Reykjavíkurborgar hefur gert þriggja ára þjónustusamning við AE Starfsendurhæfingu um starfs- og atvinnulega endurhæfingu fyrir einstaklinga með geðraskanir og þá sem misst hafa hlutverk í samfélaginu. Markmiðið er að efla virkni og þátttöku þessara einstaklinga í atvinnulífinu.

Íslensku menntaverðlaunin afhent

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson veitti í kvöld Íslensku menntaverðlaunin við hátíðlega athöfn í Ingunnarskóla í Reykjavík.

Aðalfundur SÁÁ kaus nýja stjórn

Á aðalfundi SÁÁ í kvöld var Þórarinn Tyrfingsson endurkjörinn stjórnarformaður samtakanna. Þórarinn gegnir einnig stöðu yfirlæknis þeirra sjúkrastofnana sem samtökin reka. Pétur Blöndal hefur gert athugasemdir við þessa stöðu mála og hann segist hissa á því að breytingar hafi ekki verið gerðar.

Ásta Lovísa Vilhjálmsdóttir er látin

Ásta Lovísa Vilhjálmsdóttir lést í dag á Líknardeild Landsspítalans. Ásta vakti mikla athygli fyrir hetjulega baráttu sína við krabbamein, en hún hélt úti bloggsíðu þar sem hún fjallaði á opinskáan hátt um glímuna við sjúkdóminn. Hún var útnefnd Íslendingur ársins 2006 af tímaritinu Ísafold, meðal annars fyrir að opna umræðuna um þennan banvæna sjúkdóm sem þúsundir glíma við.

Áfengisauglýsingar á netsíðum unglinga

Áfengisauglýsingar á netinu verða sífellt fyrirferðameiri á netsíðum unglinga, þrátt fyrir blátt bann við slíkum auglýsingum hér á landi. Auglýsingarnar hvetja til drykkju unglinga og eru oftast kvenfjandsamlegar. Þetta kom fram á fundi í Neskirkju í dag um netið og siðferði.

Samfylkingin eyddi mestu, VG minnstu

Samfylkingin eyddi mestu fé í auglýsingar fyrir síðustu Alþingiskosningar eða rúmum tuttugu og sjö milljónum króna. Framsóknarflokkurinn kemur þar næst á eftir. Minnstu fé eyddi Vinstri hreyfingin Grænt framboð eða rúmri sautján og hálfri milljón. Þetta má lesa úr nýrri samantekt sem Capacent Gallup birti í dag.

Blés lífi í tveggja ára stelpu

Litlu munaði að tveggja ára telpa drukknaði í sundlauginni að Lágafelli í Mosfellsbæ í gærkvöldi. Sundlaugarvörður blés í hana lífi eftir að hún hafði verið dregin meðvitundarlaus upp úr lauginni þar sem hún kom niður úr rennibraut.

EFTA dómstóll leyfir auglýsingabann á netspilavítum

Með dómi EFTA dómstólsins er ríkisvaldinu óheimilt að beita markaðshindunum með einkaleyfum í peningahappdrættum, lottói og spilakössum nema með þau skýru markmið að draga úr spilafíkn. Páll Hreinsson, lagaprófessor og stjórnarmaður í Happadrætti Háskólans telur ekki að þessi dómur hrófli við núverandi skipan. Aftur á móti vekji athygli að dómurinn heimili ríkinu að banna auglýsingar á peningaspili á netinu.

Reyk lagði yfir Seláshverfi

Mikinn reyk lagði yfir íbúahverfi í Selási í Reykjavík í dag frá sinueldi á bökkum Elliðaánna. Eldurinn logaði skammt norðan hesthúsahverfisins í Víðidal. Það tók slökkvilið um 45 mínútur að slökkva bálið en eftir situr svartur gróður og eyðilagt fuglavarp á svæðinu en þarna verpa margar tegundir mófugla.

Álversáhugi í Ölfusi

Bæjaryfirvöld Þorlákshafnar eru mjög jákvæð gagnvart því að fá til sín nýtt álver Alcan. Fulltrúar Alcan voru í Þorlákshöfn í gær og ræddu möguleika þess að reisa 280 þúsund tonna álver á staðnum. Forgangur Alcan að orku hjá Landsvirkjun, sem tryggð var vegna stækkunarhugmynda í Straumsvík, rennur úr gildi eftir mánuð.

Sigrún ekki vanhæf

Hæstiréttur hafnaði í dag kröfu olíufélagana þriggja, Kers, Olíuverslunar Íslands og Skeljungs þess efnis að skipaður dómari í máli félaganna gegn Samkeppniseftirlitinu og íslenska ríkinu, Sigrún Guðmundsdóttir, víki sæti vegna vanhæfis.

Hæstiréttur snýr við úrskurði héraðsdóms

Hæstiréttur féllst í dag á kröfu Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu þess efnis að maður skyldi sæta gæsluvarðhaldi fyrir rán og ölvunarakstur til 25. júní. Héraðsdómur Reykjaness hafði áður synjað sömu kröfu.

Vatnajokull.is á kínversku

Ferðamálafrömuðurinn Guðbrandur Jóhannsson sem á og rekur fyrirtækið Vatnajökul Travel hefur látið þýða heimasíðu sína vatnajokull.is <http://www.vatnajokull.is/> á kínversku. Ekki er algengt að íslenskir vefir séu þýddir á það mál, en Guðbrandur segir að þetta sé gert vegna vaxandi áhuga Kínverja á landinu og þá sérstaklega á S-Austur horninu.

Ný frumvörp boða breytingar á reglum fjármálamarkaðar

Viðskiptaráðherra hefur kynnt í ríkisstjórn þrjú frumvörp til sem munu hafa töluverð áhrif á fjármálamarkað hér á landi nái þau fram að ganga. Þetta kemur fram Vegvísi greiningar Landsbankans. Frumvörpin fela meðal annars í sér margvíslegar breytingar á fjárfestingarráðgjöf og að fyllri ákvæði verði sett um hæfi stjórnarmanna og framkvæmdastjóra fjármálafyrirtækja.

EFTA dómur hefur ekki áhrif á fjárhættustarfsemi á Íslandi

Ólíkleg er að dómur EFTA dómstólsins í tengslum við rekstur fjárhættustarfsemi í Noregi muni hafa áhrif hér á landi að mati framkvæmdastjóra Íslenskrar getspár. Hann segir dóminn undirstrika það sem áður hefur komið fram og málið sé í höndum stjórnvalda líkt og áður fyrr. Framkvæmdastjóri Íslandsspila, sem rekur spilakassa Rauða krossins, segir dóminn engin áhrif hafa á sinn rekstur.

Taka á sig krók vegna framkvæmda við Alþingishús

Þingmenn, ráðherrar, forseti og biskup landsins þurfa að taka á sig krók að lokinni þingsetningarathöfn í Dómkirkjunni á morgun þegar gengið verður til þinghússins. Það er vegna viðgerða á Alþingishúsinu.

Slökkvistarfi lokið í Víðidal

Slökkviliðið hefur lokið við að slökkva sinuelda sem kviknuðu í Víðidal fyrr í dag. Það var lögregla sem tilkynnti slökkviliði um eldinn en hann logaði rétt ofan við vatnsveitubrúna, neðan við hesthúsahverfið í dalnum.

Bann gegn einkarekinni fjárhættustarfsemi mögulega ólögleg

Vafasamt er að meina einkaaðilum að bjóða upp á happdrætti og fjárhættuspil á meðan slíkur rekstur er leyfður án hindrana í góðgerðarskyni. Þetta kemur fram í dómi EFTA dómstólsins varðandi norska löggjöf um happdrætti, veðmál og fjárhættuspil. Dómurinn gerir þá kröfu að löggjöf sem byggir á markaðshindrunum í þessum efnum endurspegli raunverulegan vilja til að fækka tækifærum til spilamennsku.

Sinueldar á bökkum Elliðaánna -varpsvæði í hættu

Slökkviliðið berst nú við sinuelda í Víðidal. Eldarnir loga rétt ofan við vatnsveitubrúna, neðan við hesthúsahverfið. Reyk leggur yfir íbúðarhús í Seláshverfi. Talið er nokkuð víst þarna hafi verið kveikt í. Það getur verið hættulegur leikur svona nálægt mannabyggð. Þarna er til dæmis leiksvæði barna.

Vanskil aukast hjá fyrirtækjum

Vanskil fyrirtækja hafa aukist um tæplegan helming á síðastliðnum tveimur árum samkvæmt samantekt Fjármálaeftirlitsins. Vanskil fyrirtækja jukust um 0,2 prósent á fyrsta ársfjórðungi þessa árs miðað við sama tímabil í fyrra. Á sama tíma lækka vanskil einstaklinga á milli ára. Aukning í vanskilum fyrirtækja tengist fyrst og fremst yfirdráttarlánum.

Ávextir síðustu Ástarviku líta dagsins ljós

Bolvíkingar geta glaðst þessa dagana því ávextir síðustu Ástarviku, tvö börn, litu dagsins ljós í mánuðinum. Markmið ástarvikunnar er meðal annars að fjölga íbúum í sveitarfélaginu og er óhætt að segja að heimturnar í ár hafi verið betri en í fyrra en þá kom ekkert barn í heiminn.

Kambur selur Halla Eggerts

Kambur á Flateyri hefur handsalað sölu á tveimur af bátum sínum til fyrirtækja á norðanverðurm Vestjföðrum. Eftir því sem fram kemur á vef Bæjarins besta á Ísafirði er um að ræða bátana Halla Eggerts ÍS og Kristján ÍS.

Lítið borið á geitungum í vor

Minna hefur borið á geitungum í vor miðað sama tímabil í fyrra og lítið um útköll vegna geitungabúa að sögn meindýraeyða. Þeir segja kuldakastið í byrjun maímánaðar hugsanlega haft áhrif á geitungastofninn hér á landi en alls ekki útilokað að hann muni taka við sér seinna í sumar.

Segir vinnubrögð við neðri hluta Þjórsár hefðbundin

Landsvirkjun segir það eðileg vinnubrögð að semja við landeigendur við neðri hluta Þjórsár samhliða því að að hanna virkjanir á staðnum. Þessi vinnubrögð séu í samræmi við starfshætti fyrirtækisins á öðrum virkjanasvæðum í gegnum tíðina.

Áfengisauglýsingar sífellt fyrirferðarmeiri á netsíðum unglinga

Áfengisauglýsingar á netinu verða sífellt fyrirferðameiri á netsíðum unglinga. Þær geta skekkt mynd þeirra af því hvað telst hófleg áfengisneysla. Auk þess eru auglýsingarnar oftast kyngerðar og byggja upp kvenfjandsamlega ímynd. Þetta kom fram á morgunverðarfundi í Neskirkju um netið og siðferði.

Sjá næstu 50 fréttir