Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Stólalyftan í Suðurgili opin í Bláfjöllum á morgun Á morgun verður Gosinn stólalyftan í Suðurgili í Bláfjöllum opin frá klukkan eitt eftir hádegi til klukkan fjögur. Snjór er í lágmarki og víða grunnt á grjót og því mun ekkert kosta inn á svæðið. 15.12.2006 13:31
Veiðiþjófur skotinn Þjóðgarðsverðir í Kenya skutu í gær til bana illræmdan veiðiþjóf frá Sómalíu, sem vitað er að hafði drepið sautján fíla og níu nashyrninga á síðustu fimm árum. Það er ekki óalgengt í Afríku að þjóðgarðisverðir lendi í skotbardögum við veiðiþjófa. 15.12.2006 13:25
Sjúkraliðar vilja leiðréttingu launa sinna Sjúkraliðar á Hrafnistu í Hafnarfirði skora á stjórnendur á Hrafnistu að leiðrétta laun þeirra. Sjúkraliðarnir benda á að mikil undirmönnun hafi verið um langt skeið og það valdi miklu álagi á starfsmenn. 15.12.2006 13:19
Umferðaróhapp undir Hafnarfjalli Umferðaróhapp varð fyrir um hádegi á Vesturlandsvegi í Hafnarskógi. Lögreglunni í Borgarnesi er ekki kunnugt um slys á fólki. 15.12.2006 12:41
Stefnir í að flug lamist um áramót Allt stefnir í að flug lamist hér á landi og á milli landa um áramót. Flugstoðir, sem taka við flugstjórninni um áramót, hafa sett flugumferðarstjórum skilyrði um að undirrita starfsmannasamninga fyrir klukkan þrjú í dag, ella sé félagið ekki bundið af neinum samningum við þá. Flugumferðarstjórar ætla ekki að að undirrita samninginn. 15.12.2006 12:30
Framboð til að vinna að velferðarmálum aldraðra Tillaga að framboði eldri borgara til Alþingis til að vinna að velferðarmálum aldraðra var samþykkt með miklum meirihluta atkvæða á fundi Félags eldri borgara í Reykjavík í gærkvöldi. 15.12.2006 12:21
Samkomulag um raforkusölu til Alcan kynnt á fundi Landsvirkjunar Samkomulag um raforkusölu til stækkunar álvers Alcan í Straumsvík var kynnt á síðasta stjórnarfundi sameignarfyrirtækis Reykjavíkurborgar, Akureyrarbæjar og ríkisins um Landsvirkjun, sem haldinn var í dag. 15.12.2006 12:07
Hjálmar vill standa í brúnni Hjálmar Árnason, þingmaður Framsóknarflokksins, segir engan eiga neitt í pólitík og því líti hann ekki á sem svo að hann sé að fara gegn Guðna í prófkjöri framsóknarmanna í Suðurkjördæmi. Hann sé búinn að vera fyrsti stýrimaður í tólf ár og vilji nú athuga hvort að fyrsti stýrimaður fái ekki að fara eins og einn róður. 15.12.2006 12:01
Nýr miðbæjarkjarni rís í Garðabæ Nýr miðbæjarkjarni rís í Garðabæ á næstu þremur til fjórum árum. Byggð verða þriggja hæða íbúðahús með risi og verslunum á jarðhæð, sem ásamt nýju Hönnunarsafni Íslands mynda hring umhverfis nýtt Garðatorg. Bílakjallari verður undir torginu. Samningur á milli Garðabæjar og Klasa hf. um uppbyggingu nýja miðbæjarins var undirritaður á Garðatorgi í hádeginu. 15.12.2006 11:48
Hjálmar Árnason fer gegn Guðna Ágústssyni Hjálmar Árnason þingflokksformaður Framsóknarflokksins ætlar að bjóða sig fram gegn Guðna Ágústssyni, varaformanni flokksins, í efsta sætið á lista flokksins í Suðurkjördæmi. Þetta kom fram á vef Víkurfrétta nú laust fyrir hádegi. 15.12.2006 11:43
Þrjú þúsund og sex hundruð ótryggð ökutæki í umferð Rúmlega þrjú þúsund og sex hundruð ótryggð ökutæki eru í umferð á Íslandi. Þar af eru um tvö þúsund og fimm hundruð þeirra fólksbifreiðar. Samkvæmt upplýsingum frá Umferðarstofu eru tæplega hundrað sjötíu og sjöþúsund fólksbílar í umferð á Íslandi en tæplega níu prósent þeirra eða um fimmtán þúsund eru óskoðaðir. 15.12.2006 11:28
100 hafa sótt starfstengt íslenskunám á Landspítalanum Um hundrað erlendir starfsmenn á Landspítalanum hafa á þessu ári sótt starfstengd íslenskunámskeið á spítalanum, en alls vinna um 250 erlendir ríkisborgarar á spítalanum. 15.12.2006 11:24
Ísland tekur upp stjórnmálasamband við Búrúndí Búrúndí hefur nú bæst hóp þeirra ríkja sem eru í stjórnmálasambandi við Íslands. fastafulltrúar landanna hjá Sameinuðu þjóðunum undirrituðu í New York í gær yfirlýsingu þar um. Þetta kemur fram á vef utanríkisráðuneytisins. 15.12.2006 11:10
Stærsta Vodafone-verslun í heimi opnuð Vodafone á Íslandi opnaði verslun í Skútuvogi í morgun sem fyrirtækið segir stærstu Vodafone verslun í heimi. Verslunin er um 400 fermetrar að stærð og sú eina sinnar tegundar hér á landi sem býður alvöru símtæki til þess að prófa og skoða. 15.12.2006 10:55
Stjórnarkreppa hugsanleg í Danmörku Stjórnarkreppa gæti verið í aðsigi í Danmörku. Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra segist hafa reynt að halda Lars Barfoed inni sem ráðherra en sá sagði af sér í gærkvöldi eftir að Danski þjóðarflokkurinn dró til baka stuðning sinn við hann. Rasmussen hvatti þó alla til stillingar. 14.12.2006 23:21
Allt öryggiseftirlit í endurskoðun á Kárahnjúkum Vinnuöryggi á Kárahnjúkum er nú í gagngerri endurskoðun að sögn Sigurðar Arnalds, talsmanns Landsvirkjunar á Kárahnjúkum. Hann segir endurskoðun á öryggisreglum ekki hafa leitt í ljós að þeim hafi verið ábótavant, slysin megi rekja fyrst og fremst til verkamannanna sjálfra, verktakar þurfi að ná betur til starfsmannanna. 14.12.2006 22:31
Flokkur eldri borgara líklega stofnaður bráðlega Nýr stjórnmálaflokkur eldri borgara verður að öllum líkindum stofnaður á sunnudaginn klukkan þrjú. Þetta kom fram í fréttum Ríkissjónvarpsins. Mikill hiti var á fundi eldri borgara í kvöld og sögðu þeir þarft að einhver berðist fyrir réttindum eldri borgara en ekki væri hægt að bjóða fram undir merkjum Félags eldri borgara. 14.12.2006 22:02
Tveir ölvaðir og tveir sviptir á klukkutíma Lögreglan í Reykjavík setti upp farartálma á Sæbraut til móts við Kalkofnsveg og stöðvaði alla ökumenn sem fóru þar hjá. Á klukkutíma, frá 20:15 til 21:15, fóru þar hjá tveir ölvaðir ökumenn, tveir sem höfðu áður verið sviptir ökuréttindum og fimm sem voru með útrunnin skírteini. Sams konar átök verða tíð í desember að sögn lögreglu. 14.12.2006 21:55
Alþjóðleg gagnrýni á öryggið á Kárahnjúkum Stíflusérfræðingar gagnrýna öryggiskröfur við framkvæmdirnar við Kárahnjúkastífluna. Varaforseti Alþjóðaráðsins um stórar stíflur segist hafa unnið við stífluframkvæmdir um allan heim en aldrei hafi orðið dauðsfall við stífluframkvæmdir þar sem hann hafi unnið. Þetta kemur fram í blaði samtaka breskra byggingarverkfræðinga. 14.12.2006 21:05
Hæstaréttarlögmaður gagnrýnir seinagang nauðgunarrannsókna Siv Konráðsdóttir, hæstaréttarlögmaður, gagnrýnir að lögreglurannsóknir taki of langan tíma þegar nauðgunarmál eigi í hlut. Þetta kom fram í viðtali við hana í Íslandi í dag í kvöld. Hún segir allt of langan tíma líða frá því að mál er kært þar til rannsókn lýkur, of mikið sé um óútskýrð hlé í málum sem eigi að njóta forgangs. 14.12.2006 19:41
Eysteinn kominn í leitirnar Eysteinn Gunnarsson, sem lögreglan í Keflavík lýsti eftir í kvöld er kominn í leitirnar. 14.12.2006 19:38
Segir ákæruna vonbrigði Geir Magnússon, fyrrverandi forstjóri Essó, segir það hafa verið sér mikil vonbrigði að hafa verið ákærður vegna olíumálsins. Honum, fyrrverandi forstjóra Skeljungs og núverandi forstjóra Olís voru birtar ákærur í gær. 14.12.2006 18:48
Ungmennafélagshöll við Tryggvagötu Sex þúsund fermetra ungmennafélagshöll rís á bílastæðinu við Borgarbókasafnið í Tryggvagötu á næsta ári. Húsið mun kosta um einn milljarð króna en formaðurinn vill ekki gefa upp hver borgar - aðeins að fjárfestarnir hugsi á ungmennafélagsnótum. 14.12.2006 18:40
Keflavíkurflugvöllur auðveldari eftir að herinn fór Íslenskir aðilar eiga mun auðveldar með að athafna sig á Keflavíkurflugvelli eftir að herinn fór. Samgönguyfirvöld taka endanlega yfir rekstur flugvallarins af utanríkisráðuneytinu snemma á næsta ári. Flugmenn leggja áherslu á að flugbraut sem herinn lét loka verði opnuð á nýjan leik. 14.12.2006 18:30
Verkfræðinemi leiðbeinir um sprengjugerð Ítarlegur leiðarvísir á íslensku um sprengjugerð og kveikibúnað hefur verið öllum aðgengilegur á heimasíðu verkfræðinema í Háskóla Íslands. Sprengjusérfræðingur Landhelgisgæslunnar segir ótrúlegt að til sé fólk sem birti svo háskalegar upplýsingar. 14.12.2006 18:30
Lögreglan í Keflavík lýsir eftir manni Lögreglan í Keflavík lýsir eftir Eysteini Gunnari Davíðssyni til heimilis í Keflavík. Eysteinn er tvítugur, 180 sm. á hæð, grannvaxinn og með brúnt hár og brún augu. Ekki er vitað með klæðnað en hann sást seinast í dökkum gallabuxum. Eysteinn sást seinast við söluturn í Keflavík þann 11.12.2006 eftir klukkan 20. Eysteinn gæti mögulega verið á bifreiðinni YD-939. Ef til Eysteins spyrst hafið þá vinsamlega samband við lögregluna í Keflavík í síma 420-2450. 14.12.2006 17:32
Fjögurra bíla árekstur á Vesturlandsvegi Fjögurra bíla aftanákeyrsla varð um fimm-leytið á Vesturlandsvegi til móts við Select á leiðinni í Mosfellsbæ. Engin slys urðu á fólki og litlar skemmdir á bílum. Umferð tafðist hins vegar nokkuð meðan lögregla athafnaði sig á staðnum. Að sögn lögreglu er ekki hálka á þessum stað núna, frekar en öðrum stofnbrautum, en gott að hafa í huga bilið á milli bílanna. 14.12.2006 17:01
Uppsögn á Landspítala ekki ólögmæt Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað Landspítalann af kröfu Salmanns Tamimi, formanns Félags múslíma á Íslandi, um að ákvörðun Landspítalans að segja honum upp störfum í lok septemer í ár verði felld úr gildi. 14.12.2006 16:46
Lögreglumaður segir hleranir hafa verið umfangsmiklar Fyrrverandi lögreglumaður segir að umfangsmiklar hleranir hafi átt sér stað á einstaklingum og fyrirtækjum hérlendis á árunum 1970 til 1980, samkvæmt Fréttastofu úvarpsins. Maðurinn, sem ekki vill láta nafns sín getið, en starfaði sem lögreglumaður um árabil, segir að alkunna hafi verið að Lögreglan í Reykjavík hafi hlerað síma ef grunur lék á að skoðanir eða athafnir fólks væru taldar meint ógn við öryggi ríkisins. 14.12.2006 16:37
Ríkið sýknað af kröfu um skaðabætur vegna gæsluvarðhalds Íslenska ríkið var í dag í Hæstarétti Íslands sýknað af kröfum manns um skaðabætur vegna gæsluvarðhalds sem hann sat í. Maðurinn krafðist þess að fá ellefu milljónir króna í bætur þar sem hann hafi saklaus verið látinn sæta gæsluvarðhaldi frá 21. febrúar 2004 til 27. febrúar sama ár. 14.12.2006 16:34
Nýr miðbæjarkjarni í Garðabæ á næstu þremur til fjórum árum Nýr miðbæjarkjarni rís í Garðabæ á næstu þremur til fjórum árum samkvæmt samkomulagi sem Garðabær og Klasi hf. hafa gert og verður undirritað á morgun. 14.12.2006 15:54
Ók bíl undir áhrifum lyfja frá Reykjavík til Húnaþings vestra Héraðsdómur Norðurlands eystra dæmdi í dag karl til greiðslu 100 þúsund króna í sekt fyrir bílstuld, akstur undir áhrifum lyfja og fyrir vörslu fíkniefna. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa stolið bíl í Reykjavík snemma á árinu og ekið honum undir áhrifum örvandi og deyfandi lyfja eftir þjóðvegi eitt sem leið lá í Húnaþing vestra þar sem hann ók út af veginum. 14.12.2006 15:45
Tvisvar tekinn fyrir hnupl á klukkutíma Unglingspiltur var staðinn að verki í gær þegar hann reyndi að stela síma úr verslun í Reykjavík. Hann skilaði símanum en innan við klukkustund síðar var hann aftur staðinn að þjófnaði í annarri verslun á svipuðum slóðum. Hann reyndi þá í félagi við annan ungling að ræna matvælum. 14.12.2006 15:38
Nokkuð um slys í borginni í gær Lögreglunni í Reykjavík bárust nokkrar tilkynningar um slys á fólki í gær eftir því sem segir á vef lögreglunnar. Um miðjan dag datt karlmaður á áttræðisaldri í Mosfellsbæ. Óttast var að hann væri fótbrotinn en maðurinn var fluttur á slysadeild. 14.12.2006 15:29
Fjölga þarf sjúkraliðum og hjúkrunarfræðingum verulega Fjölga þarf sjúkraliðum og hjúkrunarfræðingum verulega á næstu árum til að mæta vaxandi þörf fyrir heilbrigðisstarfsmenn. Þetta er meðal þess sem fram kemur í rannsókn sem Hagfræðistofnun Háskóla Íslands gerði fyrir heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti og kynnt var í dag. 14.12.2006 15:22
Mótmæla lokun póstafgreiðslu á Bakkafirði Byggðaráð Langanesbyggðar leggst eindregið gegn því að dregið verði úr póstþjónustu á Bakkafirði. Íslandspóstur ætlar að loka afgreiðslu sinni á Bakkafirði um næstu áramót. 14.12.2006 15:10
Dýr hefði sopinn orðið Hópur danskra hermanna í Írak sleppur við sekt fyrir bjórdrykkju með breskum starfsbræðrum sínum vegna mistaka í meðferð málsins. 14.12.2006 14:53
Tók að sér umferðarstjórn óumbeðinn Karlmaður á fertugsaldri taldi sig knúinn til að taka að sér umferðarstjórn í Austurstræti í gærkvöldi Lögreglan mætti á svæðið og handtók manninn en hann var talsvert ölvaður. 14.12.2006 14:45
Dæmdar bætur vegna gæsluvarðhalds Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í dag að íslenska ríkið skyldi greiða karlmanni 250 þúsund krónur í miskabætur vegna gæsluvarðhalds sem hann sætti í byrjun árs 2005, en hæstiréttur vísaði gæsluvarðhaldsúrskurði yfir manninum frá dómi. 14.12.2006 14:29
Jólaköttur týndur í Skerjafirði Eigandi skógarkattarins Grímu hefur síðustu vikuna staðið í örvæntingarfullri leit að henni eftir að hún týndist á Reykjarvíkurflugvelli. Hún var á leið í flug. 14.12.2006 14:02
Olíusamráðsdómur hafi fordæmisgildi fyrir Vestmannaeyjabæ Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segir fyrirliggjandi að dómur Héraðsdóms Reykjavíkur í gær í máli Reykjavíkurborgar og Strætós á hendur stóru olíufélögunum vegna samráðs þeirra hafi fordæmisgildi fyrir Vestmannaeyjabæ enda séu málin keimlík. 14.12.2006 13:55
Fundi vegna hugsanlegs stíflurofs frestað Almannavarnir hafa frestað borgarfundi sem fyrirhugaður var á Brúarási á Jökuldal í kvöld. Þar átti að kynna nýja rýmingaráætlun fyrir íbúum vegna hugsanlegs stíflurofs við Hálslón. Vegna veðurs var ákveðið að fresta fundinum og verður nýr fundartími auglýstur síðar. 14.12.2006 13:15
Ekki jarðskjálftar á Vesturöræfum Veðurstofu Íslands hafa borist fyrispurnir varðandi meinta jarðskjálfta síðastliðna nótt með stærðir yfir 4 á Richter-kvarða og staðsetningu á Vesturöræfum. 14.12.2006 13:00
Átta bækur á ódýrasta staðnum fyrir fimm á þeim dýrasta Hægt er að kaupa sjö vinsælustu íslensku jólabækurnar þar sem þær eru ódýrastar, fyrir sömu upphæð og aðeins fimm bækur fást fyrir þar sem þær eru dýrastar. 14.12.2006 12:45
Fullt út úr dyrum á fundi um Kársnesið Fullt var út úr dyrum á kynningarfundi um uppbyggingu á Kársnesi í gærkvöldi. Fjölmargir íbúar gagnrýndu tillögur bæjaryfirvalda. 14.12.2006 12:30