Fleiri fréttir

Sýknaður af líkamsárásarkæru

Karlmaður var í gær sýknaður af ákærum um líkamsárás á konu á skemmtistaðnum Players í Kópavogi í nóvember síðastliðnum. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa veist að konunni inni á klósetti þannig að hún hlaut eymsli og bólgur hægra megin í andliti, glóðarauga og sprungu eða brot í augnbotni. Þar sem framburður vitna var misvísandi þótti sekt mannsins ekki hafin yfir allan vafa og var hann því sýknaður.

Borgarbúar muni finna þegar nýr meirihluti tekur við

Sjálfstæðismenn eru fullir tilhlökkunar yfir meirihlutassamstarfi sínu við Framsóknarmenn í borginni. Oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík segir að borgarbúar muni stax á næstu dögum sjá að nýr meirihluti sé tekinn við borginni.

Slökkvistarf í fallgöngum Kárahnjúkavirkjunar

Slökkviliðsmenn á Héraði unnu afrek þegar þeir slökktu eld, sem logaði á vinnupöllum inni í lóðréttum fallgöngum Kárahnjúkavirkjunar undir kvöld í gær. Eldsins varð vart laust fyrir klukkan fimm og voru öll nálæg vinnusvæði rýmd þar sem reyk lagði frá eldinum.

Kaup Barcelona á Eiði Smára frágengin?

Samkvæmt nýjustu fréttum hefur verið gengið frá kaupum spænska knattspyrnurisans Barcelona á Eiði Smára Guðjohnsen frá Chelsea. Frá þessu er greint á vefsíðunni Goal.com og segir að kaupverðið sé 12 milljónir evra, eða rúmlega 1,1 milljarður króna. Almanntengslafulltrúi Eiðs segir þetta ekki rétt

Eldur í sportvöruverslun í Grafarvogi

Töluvert tjón varð í verslanamiðstöðinni Hverafold í Grafarvogi, þegar eldur kom þar upp í sportvöruverslun í nótt og reykur barst um allt húsið. Þegar slökkvilið kom á vettvang var svo mikill reykur að erfitt var að finna upptök eldsins og munaði minnstu að eldur næði að læsa sig í þak hússins, en eftir að reykkafarar fundu eldinn, gekk slökkvistarf vel. Tjón varð mest í sportvöruversluninni en víða urðu skemmdir af reyk. Slökkviliðsmenn voru fram á morgun að reykræsta húsið. Eldsupptök eru ókunn.

Þyrluæfing skaðar æðarvarp

Lýður Jónsson, sem annast hefur æðarvarpið í Engey í nokkur ár, segir æðarvarpið í molum eftir æfingu Slysavarnaskólans nú fyrir helgi.

Mönnum bjargað úr Seley

Björgunarsveitarmenn voru sendir á björgunarskipi Landsbjargar frá Neskaupstað í gærkvöldi til að aðstoða tvo menn sem voru í erfiðleikum við Seley, sem er lítil eyja austur af Reyðarfirði, en þá var farið að brima við eynna.

Bruni í Brautarholti

Allt tiltækt lið slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins var kallað að gamla Hampiðjuhúsinu við Brautarholt um klukkan sex í morgun eftir að elds varð vart á efstu hæð hússins. Tilkynning um brunann kom klukkan átta mínútur í sex í morgun.

Er ekki að kaupa Fróða

Sigurður G. Guðjónsson lögmaður er ekki að kaupa tímarit Fróða og kveðst heldur ekki sjá um kaupin fyrir einhvern annan. "Ég var einfaldlega að veita framkvæmdastjóranum lögfræðilega ráðgjöf. Hún vann hjá mér í mörg ár uppi á Stöð 2 og ég rek bara mína lögfræðistofu," segir hann.

Úrskurður kærður til Hæstaréttar

Verjendur Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Tryggva Jónssonar hafa kært úrskurð héraðsdóms, að Sigurður Tómas Magnússon og Helgi I. Jónsson þurfi ekki að bera vitni. Verjendur krefjast svara um aðdraganda endurákæru í Baugsmálinu.

Framsóknarmenn fá tvö af sjö fagráðum

Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur taka við stjórn Reykjavíkur í dag. Framsóknarmenn fá forræði í tveimur af sjö fagráðum, auk formennsku í borgar­ráði. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson verður sautjándi borgarstjóri Reykjavíkur.

Segir uppsagnirnar ofsóknir

Öllum starfsmönnum sundlaugar og íþróttahúss á Ólafsvík, sex talsins, var sagt upp störfum af bæjarstjóra Snæfellsbæjar, Kristni Jónassyni, í byrjun mánaðar. Oddviti minnihlutans í bænum kallar uppsagnirnar pólitískar ofsóknir.

Helmingur rekinn án leyfis

Elías Gíslason, forstöðumaður upplýsinga- og þróunarsviðs Ferðamálastofu, telur um 150 tjaldsvæði starfrækt í landinu en einungis 68 þeirra hafi tilskilinn leyfi.

Játaði að eiga barnaklám

Hafnfirðingur var í gær dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness í þrjátíu daga fangelsi fyrir vörslu barnakláms.

Hiti og selta yfir meðallagi

Nú er lokið árlegum vorleiðangri Hafrannsóknar­stofnunar sem farinn var á rannsóknaskipinu Bjarna Sæmundssyni. Leiðangurinn var hluti af langtímavöktun á ástandi sjávar, næringarefnum, gróðri og átu á hafsvæðunum við Ísland.

Verðhrun á hrognum

Verð á grá­sleppuhrognum er 30 prósentum lægra nú í fyrra segir Elías Helgason, framkvæmdastjóri útgerðarinnar og fiskverkunarinnar Hraungerðis á Bakkafirði. "Við fáum um 34.000 krónur fyrir tunnuna núna en fengum um 50.000 krónur í fyrra," segir Elías.

Engar nýjar spólur leigðar út

Glöggir gestir myndbandaleiga landsins hafa líklega tekið eftir því að nýjustu myndirnar á leigunum eru ekki gefnar út á gömlu VHS-myndbandsspólunum lengur eins og verið hefur, heldur eingöngu á DVD-mynddiskum. Ennþá verður hægt að fá gömlu myndirnar á spólum, þó að maður þurfi DVD-spilara til að horfa á þær nýju.

Fjölda kvenna í stjórn fagnað

Framkvæmdastjórn Landssambands framsóknarkvenna fagnar því að þrjár konur skuli gegna ráðherraembættum fyrir flokkinn, jafn margar og karlar. Í ályktun stjórnarinnar segir að þessi skipan mála sé í samræmi við lög, reglur og stefnu flokksins.

Aðeins Engeyin var úti

Langflest skip voru stödd í höfn á sjómannadaginn eins og lög gera ráð fyrir. Alls voru 44 skip skráð á sjó um miðjan dag í gær en aðeins eitt þeirra var fiskiskip af stærri gerðinni, Engey RE í eigu HB Granda.

Skynsemi í kaupkröfum er mikilvæg

Verðbólgan er átta prósent og hefur ekki verið jafn há frá 2002. Hagfræðingur segir að verði verðbólgan varanleg séu Íslendingar að stimpla sig út úr úrvalsdeild þjóða í efnahagsmálum. "Við hættum að vera í fremstu röð," segir hann.

Engar kvartanir borist Nettó

Þröstur Karlsson, verslunarstjóri verslunarinnar Nettó í Mjódd, segir það hafa verið mannleg mistök sem urðu til þess að erlendir tómatar voru settir í kassa merktum íslenskum tómötum og að aldrei hafi verið ætlunin að villa um fyrir neytendum.

Sex dauðaslys vegna ölvunar

Rannsóknarnefnd umferðarslysa hvetur fólk til að láta vita ef það veit af ölvuðum ökumanni. Talið er að koma hefði mátt í veg fyrir tvö slík slys ef lögreglu hefði verið gert viðvart um ölvunarakstur.

Fer vonandi hraðar í gegn

Árni Mathiesen fjármálaráðherra segir að verðbólgan sé í takt við það sem búist hafi verið við eða kannski heldur hærri. "Vonandi er það frekar merki um að þetta verðbólguskot fari hraðar í gegn en búist var við."

Sakaður um kynferðisbrot

Íslenskur karlmaður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir kynferðisbrot gagnvart fjórtán ára gamalli breskri stúlku. Maðurinn kynntist stúlkunni á spjallrás á vefnum en stúlkan er búsett í bænum Burnley á Englandi.

Borgarbúar munu sjá breytingar á næstu dögum og vikum

Málefni fjölskyldunnar og eldri borgara verða í forgrunni hjá Framsóknarmönnum í Reykjavík í meirihlutasamstarfi þeirra með Sjálfstæðisflokki. Framsóknarmenn í Reykjavík eru ánægðir með komandi meirihlutasamstarf í borginni.

Tafir á umferð vegna tónleika Waters

Allnokkrar tafir urðu á umferð á Vesturlandsvegi á áttunda tímanum í kvöld vegna tónleika Rogers Waters, forsprakka hljómsveitarinnar Pink Floyd, sem nú standa yfir í Egilshöll.

Aðstoðuðu menn vegna hrakninga við Seley

Björgunarsveitarmenn frá Neskaupstað komu tveimur mönnum til aðstoðar í kvöld sem farið höfðu út í Seley úti fyrir mynni Reyðarfjarðar en lent í hrakningum vegna veðurs. Beiðni um aðstoð barst á sjötta tímanum frá öðrum mannanna sem var litlum Zodiac-gúmmíbát og hraktist frá eynni vegna slæms veðurs.

Nýr meirihluti í Dalabyggð

H-listi og N-listi í Dalabyggð hafa náð samkomulagi um myndun meirihluta í sveitarstjórn sameinaðs sveitarfélags Dalabyggðar og Saurbæjarhrepps. Þetta kemur fram á fréttavef Skessuhorns. Samkvæmt heimildum miðilsins verður skrifað undir málefnasamning á morgun.

Birkir Jón líklega formaður fjárlaganefndar

Framsóknarþingmaðurinn, Birkir Jón Jónsson, tekur að öllum líkindum við formennsku í fjárlaganefnd Alþingis í haust. Jón Sigurðsson, verðandi ráðherra, fer í launalaust leyfi frá Seðlabankanum en á meðan gefst ráðamönnum svigrúm til að finna nýjan seðlabankastjóra.

Hafnar ásökunum um afskipti dómsmálaráðherra

Þorsteinn Pálsson, ritstjóri Fréttablaðsins, segir ekkert hæft í því að Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, hafi með beinum eða óbeinum hætti áhrif á innri málefni ritstjórnar Fréttablaðsins. Í yfirlýsingu sem Þorsteinn sendi frá sér í dag rekur hann ástæður þess að Jóhanni Haukssyni hafi verið vikið úr stjórnmálafréttaskrifum á Fréttablaðinu.

Eldur í fallgöngum 2 í Fljótsdal

Slökkvilið frá Egilsstöðum var sent inn í Fljótsdal nú síðla dags vegna elds sem kom upp inni í fallgöngum tvö á Kárahnjúkum. Enginn maður mun vera í hættu en lögregla er þegar komin á vettvang og er búist við að slökkvilið fari inn í gegnum stöðvarhúsið í Fljótsdal. Ekki liggur fyrir hversu mikill eldurinn er eða hver upptök hans eru.

Heildarafli hefur dregist saman um 460 þúsund tonn

Heildarafli þar sem af er þessu fiskveiðiári hefur dregist saman um 460 þúsund tonn miðað við sama tíma á síðasta fiskveiðiári. Nýjar mælingar á ástandi sjávar við Ísland sýna hins vegar að uppvaxtarskilyrði fyrir sunnan, vestan og norðan land eru með betra móti.

Stúlkan útskrifuð af gjörgæsludeild

Fjórtán ára stúlka, sem slasaðist í alvarlegu umferðarslysi í Ártúnsbrekku í fyrrinótt, hefur verið útskrifuð af gjörgæsludeild. Stúlkunni var haldið sofandi í öndunarvél fyrst eftir slysið en samkvæmt vakthafandi lækni voru áverkarnir á höfði en ekki heila og því minni en talið var í fyrstu.

Framsóknarkonur fagna ráðherraskipan

Framkvæmdastjórn Landssambands Framsóknarkvenna fagnar því að jafn margar konur og karlar skipa ráðherraembætti á vegum flokksins. Í ályktun sem framkvæmdastjórnin sendi frá sér í dag segir að þetta sé í samræmi við lög, reglur og stefnu flokksins.

37 þúsund tonna aukning fiskaflans

Heildarafli íslenskra fiskiskipa í maí var tæplega 179 þúsund tonn samkvæmt bráðabirgðatölum Fiskistofu. Það er þrjátíu og sjö þúsund tonna aukning miðað við sama tíma í fyrra.

Alþjóðlegt þing um loftslagsbreytingar á Nordica

Ísland er fyrirmyndarland í orkumálum, sagði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, í opnunarræðu sinni á þingi um loftslagsbreytingar sem nú stendur yfir á Hótel Nordica. Ólafur Ragnar fjallaði um mikilvægi umræðu um loftslagsbreytingar. Hann sagði Íslendinga sanna það að hægt væri að breyta hratt venjum hvað varðar orkuneyslu. Íslendingar hefðu kynt hús sín með kolum fyrir rúmlega hálfri öld en nú væri Ísland orðið fyrirmyndarland í orkumálum.

Kröfu verjenda hafnað

Kröfu verjenda tveggja sakborninga í Baugsmálinu um að settur saksóknari í málinu, Sigurður Tómas Magnússon, og Helgi I. Jónsson, dómstjóri Héraðsdóms Reykjavíkur, beri vitni í málinu, var hafnað í Héraðsdómi í dag.

Ölvunarakstur og hraðakstur helsta orsök banaslysa

Rannsóknarnefnd umferðarslysa birti í dag skýrslu sína um umferðarslys árið 2005. 19 manns létust í umferðarslysum í fyrra. Algengustu orsakir slysa voru ölvunarakstur og hraðakstur. Rannsóknarnefnd umferðarslysa birti í dag skýrslu sína um umferðarslys árið 2005.

Rannsókn á meintu landhelgisbroti færeysks togara

Ríkissaksóknari hefur nú til athugunar rökstuðning Landhelgisgæslunnar fyrir því að halda áfram rannsókn á meintu landhelgisbroti færeysks togara á Íslandsmiðum fyrr á árinu, en togarinn slapp í land í Færeyjum.

Skilorðsbundið fangelsi fyrir vörslu barnakláms

Karlmaður var dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í morgun fyrir vörslu á barnaklámi. Maðurinn var sakfelldur fyrir að hafa tæplega 400 myndir, bæði ljósmyndir og myndir á tölvutæku formi, sem sýna börn á kynferðislegan eða klámfenginn hátt.

Sjá næstu 50 fréttir