Úrskurður kærður til Hæstaréttar 13. júní 2006 07:15 Gestur Jónsson og Jakob Möller Verjendur Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Tryggva Jónssonar hafa kært úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur til Hæstaréttar. Þeir vilja fá það á hreint hvernig samskiptum Sigurðar Tómasar Magnússonar, setts saksóknara í málinu, við dómstjóra héraðsdóms var háttað. MYND/gva
Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði í gær kröfu Gests Jónssonar og Jakobs Möller um að Sigurður Tómas Magnússon, settur ríkissaksóknari í Baugsmálinu, og Helgi I. Jónsson, dómstjóri Héraðsdómur Reykjavíkur, beri vitni fyrir dómi. Gestur, verjandi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, og Jakob Möller, verjandi Tryggva Jónssonar, vildu kalla Sigurð Tómas og Helga fyrir dóminn sem vitni til þess upplýsa um samskipti sín í aðdraganda þess að aftur væri ákært í málinu vegna ákæruliða sem þegar hafði verið vísað frá. Gestur Jónsson sagði fyrir dómi að það væri nauðsynlegt fyrir framgang málsins að fá skýr svör við því, "hvernig það mætti vera að settur ríkissaksóknari hafi haft samskipti við dómstjóra um skipan dómara, áður en ákæra var gefin út", eins og Gestur sagði fyrir dómi. Gestur vildi einnig fá svör við því "hvers vegna verjendur sakborninga hefðu ekki verið hafðir með í ráðum", þegar þessi mál voru rædd. Áður en ný ákæra var gefin út átti Sigurður Tómas samskipti við dómstjóra í málinu og gerði grein fyrir því að dómari í fyrra Baugsmálinu, Pétur Guðgeirsson, væri hugsanlega vanhæfur til þess að dæma í málinu þar sem hann væri tengdur einu vitnanna fjölskylduböndum. Dómstjóri í málinu féllst á það að Pétur væri vanhæfur til þess að dæma í málinu og var Arnaldur Ísberg skipaður dómari í hans stað. Sigurður Tómas vísaði því á bug að hann hefði haft afskipti af því hver hefði verið skipaður dómari í málinu. Hann hefði einungis bent á tengsl Péturs, dómara í fyrra Baugsmálinu, við eitt þeirra vitna sem hann teldi mikilvægt að kalla fyrir málinu. Sigurður Tómas hafnaði því einnig að samskipti hans og dómstjóra í málinu hefðu verið með einhverjum hætti óeðlileg. Sakborningar í Baugsmálinu hafa krafist þess að nýrri ákæru verið vísað frá dómi. Í fyrri ákærunni var 32 af 40 liðum vísað frá en dómurinn tók fyrir átta ákæruliði. Ákærendur er við komu í liðunum átta voru allir sýknaðir. Málflutningur vegna frávísunarkröfu var á dagskrá héraðsdóms á fimmtudaginn en honum hefur verið frestað þar til niðurstaða Hæstaréttar vegna kærunnar liggur fyrir.
Innlent Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Fleiri fréttir Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Sjá meira