Framsóknarmenn fá tvö af sjö fagráðum 13. júní 2006 07:15 verðandi borgarstjóri og formaður borgarráðs Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Björn Ingi Hrafnsson verða kjörnir til æðstu embætta Reykjavíkurborgar á fundi borgarstjórnar í dag. MYND/pjetur
Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks tekur við völdum á borgarstjórnarfundi klukkan eitt. Á sama fundi lýkur formlega tólf ára setu Reykjavíkurlistans í meirihluta borgarstjórnar. Á fundinum í dag verður kosið til allra helstu pólitísku embætta borgarkerfisins, forseta borgarstjórnar og formennsku helstu fagráða og nefnda. Þá verður kosið í stjórnir Faxaflóahafna, Orkuveitu Reykjavíkur, Sorpu og Strætó. Og samkvæmt regluverki borgarinnar verður borgarstjóri kosinn sérstakri kosningu en löngu er orðið ljóst að það verður Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæðismanna. Að sama skapi er ljóst að Björn Ingi Hrafnsson, oddviti framsóknarmanna, verður formaður borgarráðs. Síðustu daga hafa oddvitarnir og helstu samverkamenn þeirra samið um og gengið frá skiptingu embætta milli flokkanna. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins fær Framsóknarflokkur formennsku í tveimur af sjö fagráðum borgarinnar, framkvæmdaráði og íþrótta- og tómstundaráði. Sjálfstæðismenn fá hins vegar formennsku í menningar- og ferðamálaráði, menntaráði, skipulagsráði, umhverfisráði og velferðarráði. Auk þessara starfa þarf að manna fjölmargar aðrar nefndir og ráð, til dæmis níu hverfisráð, barnaverndarnefnd, framtalsnefnd og nýja mannréttindanefnd sem tekur við verkefnum jafnréttisnefndar og fær útvíkkað hlutverk. Á kjörtímabilinu munu flokkarnir skipta með sér formennsku í stjórnum Orkuveitu Reykjavíkur og Faxaflóahafna. Fyrri helming þess munu sjálfstæðismenn fara með formennsku í Orkuveitunni og framsóknarmenn í Faxaflóahöfnum. Breytingar verða svo gerðar að tveimur árum liðnum. Oddvitar flokkanna tveggja funduðu með samflokksmönnum í gær og gerðu þeim grein fyrir sáttmála sínum um meirihlutasamstarfið næstu fjögur árin. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson verður sautjándi borgarstjóri Reykjavíkur en Páll Einarsson sýslumaður gegndi embættinu fyrstur manna. Vilhjálmur er sá borgarfulltrúi sem lengst hefur setið í borgarstjórn en hann var fyrst kjörinn 1982. Þrír taka sæti í borgarstjórn í dag sem ekki hafa setið þar áður, Björn Ingi Hrafnsson, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir Sjálfstæðisflokki og Svandís Svavarsdóttir, vinstri grænum. Þá verða sjálfstæðismennirnir Gísli Marteinn Baldursson og Jórunn Frímannsdóttir aðalmenn í borgarstjórn en þau voru varamenn á síðasta kjörtímabili. Júlíus Vífill Ingvarsson, Sjálfstæðisflokki, sest á ný í borgarstjórn og Björk Vilhelmsdóttir og Dagur B. Eggertsson sitja þar nú fyrir Samfylkinguna en Björk var fulltrúi vinstri grænna á Reykjavíkurlistanum og Dagur stóð utan flokka.
Innlent Mest lesið Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Innlent Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Innlent Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Innlent „Það átti að taka mig í karphúsið“ Innlent Selenskí undir miklum þrýstingi Innlent „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Innlent Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka Erlent Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Erlent Játaði meira og meira eftir því sem á leið Innlent Árásarmaðurinn svartklæddi reyndist vera ættingi Innlent Fleiri fréttir Árásarmaðurinn svartklæddi reyndist vera ættingi Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Um 900 manns nú með lögheimili í Grindavík „Það átti að taka mig í karphúsið“ Selenskí undir miklum þrýstingi Tímamótaviðræður hafnar og ögurstund hjá Samfylkingunni Eldur í sendibíl á Miklubraut Arnar Grétarsson í stjórnmálin Gjörbreytt Langahlíð fyrir milljarð Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Endurtekin og alvarleg mál valda áhyggjum Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Samfylkingarmönnum í Reykjavík fjölgað um 72 prósent Heimilisofbeldismálin alvarlegri en áður og fundað um Úkraínu í Abu Dhabi Svona var Pallborðið með Heiðu Björgu og Pétri Játaði meira og meira eftir því sem á leið Fann innbrotsþjófinn sofandi á heimilinu Nú geta íbúar skráð sjálfir hvað megi betur fara í borginni „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Pétur vill leiða Viðreisn í Kópavogi Kom ekki á teppið Landsvirkjun hyggst bjóða út alla verkþætti Hvammsvirkjunar í ár Lilja sækist eftir því að leiða Framsókn Willum fer ekki fram og styður Lilju Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Magnea vill hækka sig um sæti Sjá meira