Skynsemi í kaupkröfum er mikilvæg 13. júní 2006 05:45 Hannes G. Sigurðsson Úr úrvalsdeild þjóða, segir Hannes G. Sigurðsson, hagfræðingur Samtaka atvinnulífsins.
Verðbólgan mælist átta prósent í júní, fyrst og fremst vegna hækkana á matarverði og húsnæði. Þetta er hærri verðbólga en gert hafði verið ráð fyrir. Verðbólgan hefur ekki mælst hærri frá því í mars og apríl árið 2002 þegar hún mældist 8,7 og 7,5 prósent. Verðbólguhraðinn er mikill, þriggja mánaða verðbólga mælist rúmlega sextán prósent. Hagfræðingar hjá aðilum vinnumarkaðarins segja að verðbólgan sé meiri en búist hafði verið við. Gengi krónunnar hafi fallið hratt og mikið. Það þýði að vextir verði hærri og líkur aukist á því að Seðlabankinn hækki stýrivexti sína meira en ella. Verðbólgutíðindin auka staðfestu okkar í því að reyna að afstýra þessari verðbólguþróun og reyna að ná henni niður. Ég held að þau geri það enn brýnna en ella að menn nái samkomulagi á vinnumarkaði, segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA. Verðbólga af þessari stærðargráðu má ekki verða varanleg. Við erum þá hreinlega að stimpla okkur út úr úrvalsdeild þjóða í efnahagsmálum og hættum að vera í fremstu röð. Það er ekkert háþróað efnahagslíf með verðbólgu af þessari stærðargráðu, segir hann. Ólafur Darri Andrason, hagfræðingur Alþýðusambands Íslands, segir að verðbólgumælingin í gær hafi verið vond tíðindi. Lánin hækki og afborganir og greiðslubyrði heimila þyngist. Kaupmáttur rýrni. Laun hækkuðu um 2,5 prósent um síðustu áramót en það vegi lítið upp á móti þessari verðbólgu. Við vonumst til að það fari að hægja á þegar líða tekur á árið eða á næsta ári. Það er algjörlega óviðunandi að hafa átta prósenta verðbólgu og við sjáum ekki að hún lækki á næstu mánuðum, segir hann. Verðbólga sem kemur vegna gengisfalls er ekki viðvarandi verðbólga. Hún getur hjaðnað mjög hratt, segir Bjarni Már Gylfason, hagfræðingur Samtaka iðnaðarins. Það gerðist sem betur fer 2001-2002 þegar við fengum samsvarandi verðbólguskot. Það er mikilvægt að vinnumarkaðurinn sé skynsamur í sínum kaupkröfum og aðilar vinnumarkaðarins nái vel saman. Öðruvísi næst verðbólgan ekki niður. Til lengri tíma getur verðbólgan líka verið skaðleg fyrir allt atvinnulíf. Hún hefur líka áhrif á samkeppnisstöðuna og útflutninginn.
Innlent Mest lesið Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Innlent Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Innlent Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Innlent „Það átti að taka mig í karphúsið“ Innlent Selenskí undir miklum þrýstingi Innlent „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Innlent Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka Erlent Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Erlent Játaði meira og meira eftir því sem á leið Innlent Árásarmaðurinn svartklæddi reyndist vera ættingi Innlent Fleiri fréttir Árásarmaðurinn svartklæddi reyndist vera ættingi Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Um 900 manns nú með lögheimili í Grindavík „Það átti að taka mig í karphúsið“ Selenskí undir miklum þrýstingi Tímamótaviðræður hafnar og ögurstund hjá Samfylkingunni Eldur í sendibíl á Miklubraut Arnar Grétarsson í stjórnmálin Gjörbreytt Langahlíð fyrir milljarð Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Endurtekin og alvarleg mál valda áhyggjum Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Samfylkingarmönnum í Reykjavík fjölgað um 72 prósent Heimilisofbeldismálin alvarlegri en áður og fundað um Úkraínu í Abu Dhabi Svona var Pallborðið með Heiðu Björgu og Pétri Játaði meira og meira eftir því sem á leið Fann innbrotsþjófinn sofandi á heimilinu Nú geta íbúar skráð sjálfir hvað megi betur fara í borginni „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Pétur vill leiða Viðreisn í Kópavogi Kom ekki á teppið Landsvirkjun hyggst bjóða út alla verkþætti Hvammsvirkjunar í ár Lilja sækist eftir því að leiða Framsókn Willum fer ekki fram og styður Lilju Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Magnea vill hækka sig um sæti Sjá meira