Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Karlar leita frekar að tilbreytingu Í sjálfu sér koma niðurstöðurnar mér ekki á óvart. Það er ljóst að fjölskylduábyrgðin er ennþá að mestu á herðum kvenna, sagði Fanný Gunnarsdóttir, formaður Jafnréttisráðs, í samtali við Fréttablaðið, um nýja könnun Gallup á tíðni og ástæðum vinnuskipta karla og kvenna. 27.6.2006 07:00
Ósamið við ríkisstarfsmenn Ósamið er við ríkisstarfsmenn eftir að samkomulag náðist á hinum almenna vinnumarkaði um að framlengja kjarasamninga. Starfsmannafélag ríkisstarfsmanna hefur óskað eftir launaviðræðum við fjármálaráðuneytið. Önnur aðildarfélög munu að líkindum gera það sama. Opinberir starfsmenn gerðu ekki ráð fyrir neinum viðræðum við hið opinbera fyrr en seint í haust en vilja nú fá þeim flýtt þar sem ASÍ hefur náð samkomulagi um að framlengja kjarasamninga. 27.6.2006 07:00
Freyja Amble efst á Krumma "Þrátt fyrir að skýjað sé í kring, skín sólin beint á keppnisvöllinn eins og geislabaugur," sagði Hulda Geirsdóttir þar sem hún sat í áhorfendabrekkunni á Landsmóti hestamanna á Vindheimamelum í Skagafirði í gær. Þá voru þegar mætt norður um þrjú þúsund manns sem er nokkuð meira en búist var við á fyrsta degi. 27.6.2006 06:45
Tuttugu prósenta hækkun Í nýlegri verðlagskönnun verðlagseftirlits Alþýðusambands Íslands kemur fram að verð á lyfseðilsskyldum lyfjum hefur hækkað um allt að tuttugu prósent hjá markaðsráðandi lyfsölukeðjum frá því í apríl í fyrra. 27.6.2006 06:45
Flytjum helst út lyf til Suður-Afríku Fríverslunarsamningur við Tollabandalag Suður-Afríkuríkja var undirritaður í gær. Valgerður Sverrisdóttir segir samninginn mikilvægan fyrir Íslendinga. 27.6.2006 06:30
Áherslan á slysavarnir Forvarnahús Sjóvá var opnað á föstudag en markmið þess er að efla og samræma forvarnir í landinu. 27.6.2006 06:15
Samkomulag um hert eftirlit Akureyrarbær, sýslumannsembættið og fulltrúar veitinga- og skemmtistaða á Akureyri hafa ritað undir samkomulag um hert eftirlit með ungmennum á skemmtistöðum bæjarins. 27.6.2006 06:15
Hafnar frestun skattalækkana Félag launþega í Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík, Óðinn, hafnar öllum hugmyndum þess efnis að dregið verði úr eða frestað fyrirhuguðum skattalækkunum ríkisstjórnarinnar. 27.6.2006 05:45
Hittir forsetann í dag Varaforseti kínverska ráðgjafarþingsins, Zhang Meiying, ásamt sjö manna sendinefnd, kom í heimsókn til Íslands á sunnudag en hún verður hér fram til miðvikudags. Ekki er um opinbera heimsókn að ræða heldur er varaforsetinn að endurgjalda heimsókn íslensku sendinefndarinnar sem fór til Kína í fyrra að heimsækja ráðgjafarþingið. 27.6.2006 05:45
Forsvar hlýtur verðlaunin Stjórn samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra afhenti Forsvari ehf. hvatningarverðlaun samtakanna fyrir helgi. Verðlaunin eru nú afhend í áttunda sinn, en markmið þeirra er að hvetja til nýsköpunar og vekja athygli á því sem vel er gert í landshlutanum. Forsvar fékk verðlaunin fyrir dugnað og áræðni sem starfsmenn og eigendur fyrirtækisins hafa sýnt við uppbyggingu þess. 27.6.2006 05:45
Mikil aukning í Nordjob Aldrei hafa jafn margir tekið þátt í Nordjob verkefninu og í ár. Von er á um 150 ungmennum frá Norðurlöndunum til að starfa á Íslandi í sumar. 26.6.2006 23:45
Fátæk börn í boltagerð Alþjóðleg barnaverndarsamtök reyna nú að beina athygli heimsbyggðarinnar frá heimsmeistarakeppninni í fótbolta og að fátækum börnum í Indlandi sem strita við að handsauma boltana við hörmuleg vinnuskilyrði. 26.6.2006 22:13
Ný lög um réttarstöðu samkynhneigðra Ný lög um réttarstöðu samkynhneigðra sem samþykkt voru í byrjun mánaðarins munu taka gildi á morgun. Af því tilefni munu samtökin ' 78 efna til hátíðarsamkomu í Listasafni Reykjavíkur á morgun. 26.6.2006 22:11
Kennsla á skyndihjálp bjargar Átta ára drengur bjargaði móður sinni með snarræði þegar hann sprautaði hana meðvitundarlausa með adrenalíni á örlagastundu. Fræðsla í skyndihjálp skipti sköpum um líf eða dauða. 26.6.2006 22:08
Fríverslunarsamningur við Suður-Afríkuríki undirritaður í dag Ráðherrar EFTA-ríkjanna undirrituðu í dag fríverslunarsamning sem við tollabandalag Suður-Afríkuríkja. Einnig er fyrirhuguð gildistaka fríverslunarsamninga við Lýðveldið Kóreu og Líbanon á næstu mánuðum. 26.6.2006 19:53
Tap vegna Straumsvíkur hálfur milljarður Landsvirkjun verður að líkindum af um hálfum milljarði króna í sölutekjum frá álverinu í Straumsvík vegna óhappsins á dögunum. Stjórn fyrirtækisins felldi í dag tillögur um að svipta leyndinni af orkusölusamningunum til Alcoa. 26.6.2006 19:14
Rússneski flotinn kemur í haust Rússneski flotinn verður með umfangsmikla flotaæfingu rétt við strönd Íslands í haust, skömmu eftir að bandaríski herinn fer af landinu. Hér á landi hafa menn áhyggjur á mengunarhættu kjarnorkuknúinna skipa og kafbáta flotans sem ekki eru talin vera í sem bestu ástandi. Verið er að ganga frá samningum um leigu á fjórðu þyrlunni í þyrlubjörgunarsveit Gæslunnar. 26.6.2006 19:11
Sundabraut og hátæknisjúkrahúsi verði slegið á frest Starfandi formaður fjárlaganefndar vill að byggingu hátæknisjúkrahúss og Sundabrautar verði slegið á frest og öllu söluandvirði Símans verði varið í að viðhalda stöðugleika. 26.6.2006 19:00
Ný lög um réttarstöðu samkynhneigðra Nýju lögin um réttarstöðu samkynhneigðra sem samþykkt voru í byrjun mánaðarins munu taka gildi á morgun. Af því tilefni munu samtökin ' 78 efna til hátíðarsamkomu í Listasafni Reykjavíkur á morgun. 26.6.2006 18:45
Flugmaður í átökum Persónuvernd hefur úrskurðað að sýslumanninum á Keflavíkurflugvelli hafi verið óheimilt að senda yfirmanni flugmanns hjá Icelandair skýrslu um meint átök hans og starfsmanns IGS síðast liðið sumar. 26.6.2006 18:13
George Bush eldri á leiðinni til Íslands George H. W. Bush, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur þekkst boð forseta Íslands Ólafs Ragnars Grímssonar um að koma í heimsókn til Íslands 4.-7. júlí næstkomandi. 26.6.2006 18:01
Þjónar best hagsmunum fyrirtækisins að gefa ekki upp orkuverð Stjórn Landsvirkjunar ákvað á fundi sínum í dag að raforkuverð til Alcoa verði ekki gert opinbert. Stjórnin telur það þjóna best hagsmunum fyrirtækisins að orkuverð fáist ekki gefið upp. Helgi Hjörvar ætlar að taka málið upp á Alþingi. 26.6.2006 17:50
20.000 undirskriftir safnast í undirskriftarsöfnun Yfir 20 þúsund undirskriftir hafa safnast í undirskriftarsöfnun samtakanna Blátt áfram þar sem alþingismenn eru hvattir til að samþykkja lagafrumvarp Ágústs Ólafs Ágústsonar, þingmanns Samfylkingarinnar, um afnám fyrningarfresta í kynferðisbrotum gegn börnum. 26.6.2006 16:19
Reykhólahreppur dæmdur til greiðslu bóta Héraðsdómur Reykjavíkur staðfesti í dag að ekki sé leyfilegt að ráða aðra en sjúkraliða til sérhæfðra umönnunar og eða hjúkrunarstarfa nema að undangengin auglýsing hafi ekki borið árangur. 26.6.2006 15:43
Hagvöxtur meiri á Norðurlöndunum en á evrusvæðinu Hagvöxtur er meiri á Norðurlöndunum en að meðaltali í löndum á evrusvæðinu og almennt nokkuð mikill, þótt hann sé hvergi eins mikill og á Íslandi. 26.6.2006 15:31
Raforkuverð Alcoa ekki gert opinbert Stjórn Landsvirkjunar ákvað á fundi sínum í dag að það raforkuverð sem Alcoa greiðir til Landsvirkjunar verði ekki gert opinbert. Helgi Hjörvar, stjórnarmaður í stjórn Landsvirkjunar, lagði tillöguna fram eftir að forstjóri Alcoa sagði fyrirtækið greiða helmingi hærra verð fyrir raforku til álvers í Brasilíu. Hann hefur síðan sagt að hann hafi farið með rangt mál. 26.6.2006 15:00
GPS-tæki fræðir farþegana Avis-bílaleigan á Íslandi býður nú upp á nýja tækni sem hefur verið þróuð þar sem rödd fararstjóra hefur verið tengd við GPS-tæki. Tækið virkar þannig að þegar bíllinn er við sögufrægan stað hefur tækið upp raust sína og segir farþegum allt það helsta frá viðkomandi stað 26.6.2006 14:30
Þróa nýtt lyf við astma Allt útlit er fyrir að nýtt lyf við astma komi á markað innan fárra ára. Þróun lyfsins er komin langt á veg en lyfið hefur jákvæð áhrif á bólguþátt sem tengist astma en er þó ekki steralyf. Íslensk erfðagreining hóf lyfjaprófanir á tilraunalyfi við astma í maí 2005 í samstarfi við erlent lyfjafyrirtæki sem upphaflega þróaði lyfið við öðrum sjúkdómi. 26.6.2006 12:30
Stjórnendur Baugs vildu semja við Jón Gerald Stjórnendur Baugs vildu semja við Jón Gerald Sullenberger, fyrrverandi viðskiptafélaga sinn, um uppgjör á öllum skuldum og skuldbindingum við hann eftir að Baugur höfðaði mál á hendur Jóni Gerald í Flórída á sínum tíma. Þetta kemur fram í viðtali við Jón í Morgunblaðinu í morgun. 26.6.2006 12:15
Ósamið við alla ríkisstarfsmenn Ósamið er við alla ríkisstarfsmenn eftir að samkomulag náðist á hinum almenna vinnumarkaði um að framlengja kjarasamninga. Starfsmannafélag ríkisstarfsmanna hefur óskað eftir launaviðræðum við fjármálaráðuneytið. 26.6.2006 12:00
Ætlar að bæta viðskiptavinum sínum upp álagninguna Eigandi Bæjarins bestu hyggst bæta viðskiptavinum sínum upp óvænta og stórfellda verðhækkun á pylsu og kók aðfaranótt sunnudags. Starfsmaður í afleysingum ákvað upp á sitt einsdæmi að setja næturálagningu á þennan þjóðarrétt Íslendinga umrædda nótt. 26.6.2006 11:54
Fleiri karlar í atvinnuleit Heldur fleiri karlar en konur voru að leita sér að starfi hér á landi í apríl og maí sl., eða 12% karla og 8% kvenna. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunar sem Gallup gerði fyrir Jafnréttisráð. Ekki er marktækur munur milli kynja á því hvort skipt hafi verið um vinnuveitanda á síðastliðnum tveimur árum. 26.6.2006 11:31
Jákvæðar niðurstöður nýrra lyfjaprófana Íslensk erfðagreining kynnti í dag fyrstu niðurstöður fyrirtækisins á tilraunalyfi meðal astmasjúklinga. Lyfið reyndist hafa jákvæð áhrif á ýmsa þætti lungnastarfsemi og án þess að nokkrar alvarlegar aukaverkanir kæmu fram. 26.6.2006 09:43
Landsmót hestamanna hefst í dag Búist er við allt að 12 þúsund tvífættum gestum á Landsmót hestamanna, sem hefst á Vindheimamelum í Skagafirði í dag og stendur í viku. Þar munu hestamenn og hestaræktendur leiða saman um þúsund hesta sína, allt gæðinga. 26.6.2006 09:30
Sumar hálendisleiðir enn lokaðar fyrir umferð Enn eru nokkrar hálendisleiðir lokaðar fyrir allri umferð meðan frost er að fara úr jörð en annars er færð víðast hvar með eðlilegu móti miðað við árstíma. Næstkomandi fimmtudag verður gefið út kort um leyfðan akstur á vegum í óbyggðum. 26.6.2006 09:18
200 laxar veiðst í Norðurá Um 200 laxar hafa veiðst í Norðurá, það sem af er veiðitímabilinu sem mun vera meiri veiði en í nokkurri annarri á. Rétt er að taka fram að þar hefst veiðinn fyrr en í mörgum öðurm ám og þar veiða fleiri í einu en víða annarsstaðar. 26.6.2006 09:15
Ráðherrafundur EFTA hefst í dag Ráðherrafundur EFTA ríkjanna hefst á Höfn í Hornafirði í dag og lýkur á morgun. Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra stýrir fundinum en Ísland fer nú með formennsku í EFTA. 26.6.2006 08:58
Botninn dottinn úr síldveiði í bili Botninn virðist vera dottinn úr síldveiðunum í bili og eru nú öll síldveiðiskipin að leita úti fyrir norðanverðu Ausutrlandi, samkvæmt fregnum af miðunum í morgun. 26.6.2006 08:30
Sinueldur við Fossatún Slökkvilið og lögregla í Borgarnesi brugðust skjótt við þegar tilkynnt var um sinueld við Fossatún, skammt frá bænum um miðjan dag í gær, enda björgunarmenn minnugir stórbrunanna á Mýrum í vor. Tókst björgunarmönnum að slökkva eldinn á rúmri klukkustund en slökkviliðsmenn vöktuðu svæðið lengur. 26.6.2006 08:15
Steytti á skeri í Berufirði Betur fór en á horfðist þegar hraðfiskibáturinn Anna var að koma úr róðri í gær og steytti á skeri í Berufirði, með þeim afleiðingum að mikill leki kom að bátnum. Skipstjórinn ákvað að sigla honum upp í fjöru og kalla eftir aðstoð björgunarsveitar, slökkviliðs og lögreglu, sem komu á vettvang. 26.6.2006 07:45
Mínúturnar á milljónir króna Það eru Íslendingar sem framleiða það efni sem selst hraðast í heiminum í dag. Í grein danska blaðsins Politiken er fjallað ítarlega um Latabæjarþættina og sagt að það kosti sextíu og tvær milljónir að framleiða hvern þátt, eða tvær komma sex milljón krónur mínútan. 25.6.2006 19:19
Hefur heyrt að starfsfólki hafi verið hótað Trúnaðarmaður starfsfólks Flugþjónustunnar á Keflavíkurflugvelli hefur heyrt að erlendum starfsmönnum hafi verið hótað brottvísun úr landi ef þeir tækju þátt í mótmælaaðgerðum starfsfólksins í dag. Litlar tafir urðu á millilandaflugi frá Keflavíkurflugvelli í morgun þrátt fyrir aðgerðir starfsfólks Flugþjónustunnnar. 25.6.2006 19:14
Hætta við skólagöngu vegna langra biðlista Dæmi eru um að nýbúar hafi hreinlega gefist upp á að fara í nám á efri skólastigum hér á landi þar sem biðin til að komast á þéttsetna bekki framhaldsskólanna er hreinlega of löng. 25.6.2006 19:00
Bíða eftir framlengingu dvalarleyfis Hjón með tvö ung börn,sem dvalið hafa hér á landi í þrjú ár, bíða nú eftir framlengingu dvalarleyfis. Börnin þeirra þekkja ekkert annað land en Ísland og segir móðir þeirra ekki geta hugsað til þess að þau fái ekki að dvelja hér áfram. Yana frá Úsbekistan og Ramin Sana frá Afganistan voru meðal hælisleitenda árið 2003. Þeim fæddist sonur á meðan þau biðu eftir úrskurði um hæli hér á landi og mál þeirra vakti athygli á þeim tíma. Dvalarleyfi þeirra er nú runnið út en þau bíða eftir svari um hvort þau fái að dveljast hér til ársins 2007. Eldri sonur þeirra Thomas verður þriggja ára í nóvember. Hann þekkir ekkert annað land en Ísland og það gerir yngri sonurinn Daniel ekki heldur en hann er reyndar nýorðinn mánaðar gamall og þekkir því fátt annað en mjúkan móðurfaðminn. Jana og Ramin hafa bæði stundað nám hér á landi þó Jana sé nú frá námi af skiljanlegum ástæðum. Hana dreymir um að fá að komast í Kennaraháskólann. Þau hafa komið sér vel fyrir á Íslandi og vona að fá að vera áfram enda vill Jana ekki einu sinni hugsa um hvað yrði ef dvalarleyfi þeirra verður ekki framlengt. Þau segja Íslendinga hafa verið þeim hjónum afar góð. 25.6.2006 18:42
Fjórbrotnaði á ökkla við lundaskoðun Bandarísk kona fótbrotnaði illa í Stórhöfða síðdegis í gær. Læknisskoðun leiddi í ljós, að konan var fjórbrotin við ökkla og var hún flutt með sjúkraflugvél til Reykjavíkur þar sem gert var að brotinu. 25.6.2006 12:13