Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ósáttir við frumvarp um starfsmannaleigur Stjórnarandstæðingar fögnuðu frumvarpi félagsmálaráðherra um starfsmannaleigur á Alþingi, sem mælt var fyrir í dag, en töldu ekki nægilega langt gengið. Formaður vinstri - grænna sagðist ennfremur ekki sannfærður um að íslenska þjóðin þyrfti yfirhöfuð að sætta sig við slíkt fyrirbæri á íslenskum vinnumarkaði. 28.11.2005 21:28
Contalgin hið íslenska heróín Yfirmaður fíkniefnalögreglunnar í Reykjavík segir að kalla megi morfínlyfið Contalgin hið íslenska heróín - svo vinsælt er það orðið á fíkniefnamarkaðnum. Hann segir að fréttaskýring Kompáss í gær hafi ekki síst fært lögreglunni heim sanninn um að nauðsynlegt sé að huga betur að baráttunni gegn læknadópinu en áður. 28.11.2005 20:57
Lagagrein ofnotuð til óhagræðis fyrir starfsmenn Forstjórar ríkisstofnana ofnota í æ ríkara mæli 19. grein laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Þar er kveðið á um að leyfilegt sé að breyta vinnutíma og verksviði og að starfsmönnum beri að hlíta því. Stéttarfélög eiga erfitt með að bregðast við þar sem oft er um mál einstakra starfsmanna að ræða. 28.11.2005 20:23
Tveir milljarðar á fjáraukalög Fjárlaganefnd hefur gert tillögur um rúmlega tveggja milljarða króna hækkun á fjáraukalögum fyrir þriðju umræðu um frumvarpið. 28.11.2005 18:04
Fær 500 milljónir á ári hverju Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Hjálmar H. Ragnarsson, rektor Listaháskólans, undirrituðu í dag nýjan samning um rekstur listmenntunar á háskólastigi og uppbyggingu þekkingar á sviðum lista. Samningurinn gildir til fjögurra ára og samkvæmt honum greiðir ráðuneytið um 500 milljónir á ári til reksturs Listaháskólans. 28.11.2005 18:04
Hefur hækkað um tvo þriðju Árlegt framlag ríkissjóðs vegna hvers nemanda á framhaldsskólastigi hefur hækkað um 65 prósent síðasta áratuginn. Árið 1995 voru greiddar 400 þúsund krónur á hvern nemanda að núvirði en í dag er upphæðin komin í 665 þúsund krónur. 28.11.2005 17:13
Frumvarp um starfsmannaleigur þarf að vinna betur Frumvarp að lögum um starfsmannaleigur sætti harðri gagnrýnir sjórnarandstöðunnar í dag. Þingmenn gerðu miklar athugasemdir við flestar greinar frumvarpsins, sem Árni Magnússon félagsmálaráðherra lagði fram í dag. Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, fullyrti að verkalýðshreyfiingin væri óánægð með ýmis atriði frumvarpsins og hann vildi láta fara betur yfir það. Aðrir þingmenn tóku í sama streng og Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, sagði margt í frumvarpinu bæði kauðskt og óskiljanlegt, til að mynda elleftu grein frumvarpsins þar sem fjallað er um hugsanleg lögbrot starfsmannaleiga. Steingrímur sagði vanta skýrari laga- og refsiramma í þá grein. 28.11.2005 16:00
Heilsuverndarstöðin á tæpan milljarð Reykajvíkurborg hefur tekið tilboði Mark-húss ehf. í Heilsuverndarstöðina við Barónsstíg. Tilboðið hljóðar upp á rétt tæpan milljarð króna. Alls buðu átta aðilar í húseignina. Kauptilboðinu hefur verið tekið með fyrirvara um samþykki borgarráðs og framkvæmdaráðs, en framkvæmdaráð samþykkti tilboðið í morgun. 28.11.2005 14:15
Íslandsdeild SPES samtakanna stofnuð Íslandsdeild alþjóðlegu SPES samtakanna var stofnuð nýverið. Samtökin vinna að uppbyggingu barnaþorps fyrir munaðarlaus börn í höfuðborg Togo í Afríku. Njörður P. Njarðvík er forseti alþjóðasamtakanna en hann var jafnframt frumkvöðull að stofnun þeirra og stofnun íslensku deildarinnar. 28.11.2005 13:05
Niðurstaðan áhyggjuefni segir menntamálaráðherra Menntamálaráðherra segir það áhyggjuefni að einn af hverjum fimm framhaldsskólanemendum sem þreyttu samræmt stúdentspróf í stærðfræði síðastliðið vor skiluðu auðum eða alröngum úrlausnum. 28.11.2005 12:46
Ingimundur Birnir nýr forstjóri Íslenska járnblendifélagsins Ingimundir Birnir hefur tekið við starfi forstjóra Íslenska járnblendifélagsins. Ingimundur er menntaður efnafræðingur frá Háskóla Íslands og efnaverkfræðingur frá Lund Tekniska Högskola. 28.11.2005 12:45
Fjórir handteknir í tengslum við morð á ungum manni á hótelherbergi í Kaupmannahöfn Fjórir hafa verið handteknir í tengslum við morð á 17 ára gömlum karlmanni sem fannst látinn á hótelherbergi Continent hótelsins á Nørrebrograde í Kaupmannahöfn í nótt. Maðurinn, sem er af afrískum uppruna, var með mikla áverka á höfði en hann hafði verið skorinn með hníf. 28.11.2005 12:18
Báðu Tryggva afsökunar á árás Andri Jóhannesson og tveir félagar hans sem réðust á Tryggva Gunnlaugsson, fyrrum útigangsmann og öryrkja, og tóku upp á myndband, hittu Tryggva í gær og báðu hann afsökunar. Tryggvi segist feginn. 28.11.2005 12:17
Stefna öryrkja þingfest á morgun Mál Öryrkjabandalags Íslands á hendur ríkisstjórn Íslands vegna meintra brota á samkomulagi um hækkun grunnlífeyris frá árinu 2003, verður þingfest í héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Forysta Öryrkjabandalagsins segir að enn vanti fimm hundruð milljónir í sjóði öryrkja svo samkomulag sem þáverandi formaður Öryrkjabandalagsins og heilbrigðisráðherra undirrituðu fyrir síðustu kosningar 28.11.2005 12:14
Öðrum drengjanna sem brenndist illa er enn haldið sofandi Öðrum drengjanna sem brenndist illa fyrir rúmri viku síðan er enn haldið sofandi á gjörgæslu Landspítalans-háskólasjúkrahúss. Líðan hans er óbreytt. Hinn drengurinn, sem brenndist ekki eins mikið, er á Barnadeild Hringsins en þangað var hann fluttur frá gjörgæslu um miðja síðustu viku. 28.11.2005 11:44
Lítið í forvarnir Íslendingar eyða hlutfallslega mun minna í forvarnir í heilbrigðismálum en flestar þjóðir innan OECD. Aðeins rúmlega eitt og hálft prósent allra útgjalda Íslendinga í heilbrigðismálum fer í forvarnir, en meðaltalið innan OECD er um þrjú prósent. 28.11.2005 11:24
Vill rannsóknarnefnd Hægt verður að skipa sérstakar rannsóknarnefndir á vegum Alþingis sem falið verður að rannsaka eða kanna betur einstaka ákvarðanir eða athafnir stjórnvalda eða einstaka mál á þeirra vegum betur, nái tillaga Ágústs Ólafs Ágústssonar og fleiri samflokksmanna hans fram að ganga. Ágúst segir mýmörg ný dæmi sýna fram á nauðsyn slíkrar nefndar. 28.11.2005 11:15
Heildartekjur kúabúa og sauðfjárbúa aukast milli ára Heildartekjur á sérhæfðum kúabúum og sauðfjárbúum jókst nokkuð á síðasta ári frá árinu 2003. Sama má segja um innlögn afurða, þrátt fyrir að bústofn haldist nánast óbreyttur. 28.11.2005 11:11
Krefjast notendaábyrgðar í lögum Forsvarsmenn Samiðnar hafa beint þeim tilmælum til félagsmálaráðherra að í frumvarpi að fyrirhuguðum lögum um starfsmannaleigur verði að vera ákvæði um ábyrgð fyrirtækja sem norfæri sér þjónustu starfsmannaleigna. Félagsmálaráðherra hafði áður fengið samskonar tillögu frá ASÍ en allt kom fyrir ekki. 28.11.2005 10:11
22% skiluðu auðum eða alröngum úrlausnum Tuttugu og tvö prósent þeirra sem tóku samræmt stúdentspróf í stærðfræði síðastliðið vor skiluðu auðum eða alröngum úrlausnum. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. Af þeim 653 sem þreyttu prófið skiluðu 83 nemendur auðum prófheftum og 148 fengu lægstu mögulegu einkunn. 28.11.2005 07:46
Mannskæð sprenging í kolanámu í Kína Meira en fimmtíu manns létust og rúmlega hundrað eru innilokaðir eftir öfluga sprengingu í kolanámu í Kína í gær. Rúmlega tvö hundruð starfsmenn voru inni í námunni þegar sprengingin varð, en aðeins fjörutíu komust strax út. 28.11.2005 07:45
Þjóðkirkjan nýtur sérstöðu "Framsetning Hjartar Magna veldur ákveðnum misskilningi," segir Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, upplýsingafulltrúi hjá Þjóðkirkjunni. Hjörtur Magni Jóhannsson fríkirkjuprestur sagði það hróplega mismunun að þjóðkirkjan fengi hátt á fjórða milljarð frá ríkinu meðan trúfélög fengju aðeins sóknargjöld. 28.11.2005 07:45
Fjórir handteknir fyrir vörslu fíkniefna í nótt Lögreglan í Reykjavík handtók fjóra menn í nótt, eftir að hafa stöðvað bíl þeirra á Sæbraut, en rétt áður en til þess kom, flugu fíkniefnaskammtar út úr bílnum á ferð. 28.11.2005 07:29
KB banki ætlar að stofna banka í Noregi KB banki ætlar að stofna banka í Noregi undir eigin nafni í náinni framtíð, að því er Hreiðar Már Sigurðsson segir í viðtali við Aftenposten. Hann segir það vænlegri kost en að kaupa einhvern norskan banka til að auka umsvið KB banka í Noregi, því vænleg kauptækifæri liggi ekki fyrir. 28.11.2005 07:28
Vegagerðin bótaskyld vegna Héðinsfjarðaganga Vegagerðin stendur frammi fyrir því að þurfa að greiða Íslenskum aðalverktökum og erlendnu verktakafyrirtæki, sem áttu saman lægsta tilboð í Héðinsfjarðargöng, nokkur hundruð milljónir króna í skaðabætur vegna þess að ákveðið var að hætta við verkið. 28.11.2005 07:27
Hugsanlega á leið í framboð Ásthildur Helgadóttir, fyrirliði kvennalandsliðsins í knattspyrnu, mun hugsanlega taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í Kópavogi í vor. 28.11.2005 07:00
Búið að finna nafn mannsins Lögreglunni í Reykjavík tókst í gærkvöldi að komast að nafni mannsins, sem stór slasaðist þegar ekið var á hann á Miklubraut í fyrrinótt. Hann er 51 árs og einhleypur. Honum hefur verið haldið sofandi á gjörgæsludeild frá því að slysið varð, en verður væntanlega vakinn í dag. Læknum tókst fljótt að stöðva alvarlegar innvortis blæðingar en ljóst er að hann verður að dvelja á sjúkrahúsi í nokkrar vikur, því hann er meðal annars mjaðmargrindarbrotinn. 28.11.2005 06:48
Thelma er maður ársins Thelma Ásdísardóttir er maður ársins að mati Karls Sigurbjörnssonar, biskups Íslands. Karl gerði hugrekki Thelmu að umtalsefni í predikun í Hallgrímskirkju í gær, á fyrsta degi aðventu. Thelma Ásdísardóttir ætti að vera maður ársins vegna hugrekkis síns að segja sögu sína, sögu af ólýsanlegum hryllingi bernsku sinnar, misnotkun og ofbeldi, sagði Karl. 28.11.2005 06:30
Ókunnur maður á gjörgæslu Ekið var á gangandi vegfaranda á Miklubraut um hálf þrjú leytið í fyrrinótt. Slysið varð rétt austan við gatnamótin á Rauðarárstíg. Bíll á vesturleið keyrði á vegfaranda sem slasaðist alvarlega og var fluttur á sjúkrahús. Maðurinn er meðvitundarlaus og liggur nú á gjörgæslu. Sá slasaði hafi engin skilríki á sér og því er ekki vitað hvert nafn mannsins er eða hvar hann er búsettur. 28.11.2005 06:45
Nafn manns sem ekið var á í nótt á huldu Enn er nafn gangandi vegfaranda sem ekið var á í nótt á huldu. Maðurinn, sem er á miðjum aldri, liggur mikið slasaður og meðvitundarlaus á gjörgæsludeild Landspítala Háskólasjúkrahúss. Atvikið átti sér stað á Miklubraut um hálf þrjú leytið í nótt. Maðurinn var skilríkjalaus og biður lögreglan þá sem telja sig geta veitt einhverjar upplýsingar um manninn að hafa samband. 27.11.2005 16:23
BSRB vill að ríkisstjórn Íslands stöðvi GATS samninginn BSRB mun beita sér fyrir því að ríkisstjórn Íslands stöðvi GATS samninginn, segir Ögmundur Jónasson, formaður BSRB. Á fundi Alþjóðlegra samtaka launafólks í almannaþjónustu, PSI, í síðustu viku var rætt um vaxandi áherslu Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar á einkavæðingu almannaþjónustu. 27.11.2005 14:30
Útboð á nýju varðskipi er að hefjast Útboð á nýju varðskipi fyrir Landhelgisgæsluna er að hefjast. Ákveðið hefur verið að útboðið verði lokað. Frestur til að taka þátt í lokuðu útboði er til 12. janúar, en útboðsgögn verða síðan afhent rúmum mánuði síðar. 27.11.2005 14:15
Sænskur hermaður þungt haldinn eftir árás í Afganistan Sænskur hermaður er enn þungt haldinn eftir árás á friðargæsluliða í Afganistan. Annar hermaður lést í árásinni en tveir til viðbótar, auk tveggja óbreyttra borgara, hlutu minniháttar meiðsl. Aukinn þungi hefur verið að færast í mótspyrnu gegn erlendum herjum í landinu en á sama tíma búa evrópskar sveitir sig undir að taka við hlutverki bandarísku herjanna í landinu. 27.11.2005 14:15
Biskup leggur til að Thelma Ásdísardóttir verði valin maður ársins Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, þakkaði popptónlistarfólki og lagði til að Thelma Ásdísardóttir yrði valin maður ársins í predikun í dag. Messan í dag markar upphaf jólaaðventunnar og jólasöfnunar Hjálparstarfs kirkjunnar. 27.11.2005 14:01
Sex ungmenni slösuð eftir árekstur í nótt Sex ungmenni á aldrinum fimmtán til átján ára slösuðust þegar fólksbíll keyrði útaf vegi í hálku fyrir ofan Laugavatn í nótt. Þrír voru fluttir beint á Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi en þrír til aðhlynnslu á heilsugæslustöðinni á Selfossi. Ekki er grunur um ölvun og eru farþegarnir ekki taldir í lífshættu. 27.11.2005 13:00
Sjávarsíki að danskri fyrirmynd Miðbæ Akureyrar verður umbylt á næstu árum í því augnamiði að glæða hann lífi. Verkefnið í heild mun taka mörg ár en fyrstu sýnilegu framkvæmdirnar verða við sjávarsíki sem ekki á sér hliðstæðu á Íslandi. 27.11.2005 10:00
Lognið í auga Stormsins Sigurður Þórður Ragnarsson veðurfræðingur eða Siggi Stormur eins og hann er stundum kallaður er ekki maður sem gustar af; hann stormar ekki gegnum lífið með bægslagangi. Hann er þvert á móti rólegur og yfirvegaður. Samt er engin lognmolla kringum hann því maðurinn er glettinn og glaðsinna og það er stutt í brosið. 27.11.2005 09:30
Ungir karlar löghlýðnari Ungum ökumönnum á aldrinum 17-18 ára, sem eiga aðild að slysum, hefur fækkað mjög mikið á síðustu sex árum, um tæp 27 prósent. Ungar konur eiga hins vegar jafn oft aðild að slysum og áður. 27.11.2005 09:15
Í eina sæng eftir árs aðlögun "Markmiðið er að félögin sameinist eftir eins árs trúlofunartímabil. Þetta er þó þannig að það er hægt að bakka út ef mönnum líkar ekki sambúðin, ef svo má að orði komast," segir Gunnar Páll Pálsson, formaður Verslunarmannafélags Reykjavíkur, um fyrirhugaða sameiningu VR og Verslunarmannafélags Hafnarfjarðar. 27.11.2005 09:15
Betri vinnukraftar Um 140 starfsmenn í landvinnslu Brims á Akureyri hafa undanfarna daga tekið þátt í sérstöku heilsuátaki með það að markmiði að efla heilsuvitund starfsfólksins og stuðla að bættri líðan. 27.11.2005 09:00
Þjóðkirkjan nýtur sérstöðu "Framsetning Hjartar Magna veldur ákveðnum misskilningi," segir Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir upplýsingafulltrúi hjá Þjóðkirkjunni. Hjörtur Magni Jóhannsson fríkirkjuprestur sagði það hróplega mismunun að þjókirkjan fengi hátt á fjórða milljarð frá ríkinu meðan trúfélög fengju aðeins sóknargjöld. 27.11.2005 08:45
Nefndarmaður sat báðum megin borðs Nefndarmaður í skipulagsnefnd Garðabæjar gæti hafa verið vanhæfur til að taka þátt í breytingu á aðalskipulagi í Urriðaholti, sem er í eigu sjóðs Oddfellow-reglunnar. Um það er þó ekki hægt að fullyrða, þó hann sitji í stjórn sjóðsins. 27.11.2005 08:30
Yfir 200 eldri borgarar funda Fimm Alþingismenn sátu undir kraftmiklum ádeilum eldri borgara á afar fjölmennum fundi um kjara- og hagsmunamál eftirlaunaþega í Reykjavík gær. 27.11.2005 08:00
Vikið frá hundabanni Hundar viðruðu mannfólkið sitt í gær þegar Hundaræktarfélag Íslands stóð fyrir árlegri gönguferð niður Laugaveginn. Hundar eru yfirleitt bannaðir á Laugaveginum en einu sinni á ári fá þeir undanþágu til að skoða jólaljósin. 27.11.2005 07:00
Einfalt að minnka svifryk Með því að þrífa götur borgarinnar oftar væri hægt að koma í veg fyrir að dögum saman sé mengun í Reykjavík langt yfir mörkum, eins og nú er. 26.11.2005 21:43