Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Alls kyns raftæki jólagjöfin í ár Jólaverslunin er nú hafin fyrir alvöru í Bandaríkjunum með hefðbundinni útsölu að lokinni þakkargjörðarhátíð. Raftæki eru í tísku í ár. 26.11.2005 16:30
Forval VG í Kópavogi Ólafur Þór Gunnarsson og Þorleifur Friðriksson börðust um fyrsta sætið í forvali Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Kópavogi í dag, en kjörfundi lauk klukkan fjögur. Kosið var um fjögur efstu sætin en kosningarétt í forvalinu hafa fullgildir flokksmenn í VGK. 26.11.2005 16:15
Bílastæðahúsið á Stjörnubíósreitnum opnað í dag Bílastæðahúsið á Stjörnubíósreitnum á Laugavegi var opnað nú í hádeginu.Það var Alfreð Þorsteinsson forseti borgarstjórnar sem það gerði. Húsið rúmar tæplega tvöhundruð bíla, en kostnaður við húsið er áætlaður tæplega sexhundruð milljónir króna. Bílastæðasjóður efnir nú til samkeppni um nafn á nýja bílahúsið að Laugavegi 86-94. Tillögum um nafn má skila til og með 23. desember 2005. Í verðlaun eru Miðborgargjafakort að verðmæti 50.000 krónur. 26.11.2005 16:15
Sex mánaða fangelsi fyrir illa meðferð á líki Bandaríkjamaður sem er í haldi dönsku lögreglunnar getur að hámarki verið dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir að sundurbúta lík af dönskum leigubílstjóra. Líkið fannst í miðborg Kaupmannahafnar um síðustu páska. Bandaríkjamaðurinn gaf sig sjálfur fram og hefur viðurkennt að hafa tekið þátt í því að búta líkið í sundur en neitar að hafa framið morðið. Lögreglan hefur árangurslaust leitað súdansks karlmanns, sem maðurinn segir hafa ógnað sér og skipað sér að aðstoða við að búta líkið í sundur. Lögregla getur ekki sannað að maðurinn hafi framið morðið og því verður hann ákærður fyrir ósæmilega meðferð á líki. 26.11.2005 15:54
Palestínumenn flykkjast til Egyptalands Hundruð Palestínumanna flykktust að landamærastöðinni við Egyptaland á fyrsta degi opnunar hennar undir stjórn Palestínumanna. Þeir Palestínumenn sem fóru yfir til Egyptalands í morgun létu vel af þessu nýja fyrirkomulagi. 26.11.2005 15:38
Flugmálafélag Íslands vill flugvöllinn áfram í Vatnsmýrinni Félagsmenn í Flugmálafélagi Íslands segja óviðunandi að leggja niður innanlandsflugvöll á höfuðborgarsvæðinu og enn fráleitara er að flytja starfsemi Reykjavíkurflugvallar til Keflavíkur. Þetta kemur fram í samþykkt félagsins frá síðasta ársfundi. Þeir benda einnig á að þrátt fyrir að flugstarfsemi Reykjavíkurflugvallar taki nokkurt landrými þá sé þjónustan og starfsemin sem flugvöllurinn veitir nauðsynleg höfuðborgarsvæðinu og ekki síður landsbyggðinni. 26.11.2005 14:00
Stórflótti úr sjómannastéttinni hafinn Umræður á nýafstöðnu þingi Farmanna og fiskimannasambandsins voru nær eingöngu lagðar undir það alvarlega ástand sem ríkir í sjávarútvegi. Stærsta dýfan í sjávarútvegi til þess segir endurkjörinn forseti sambands Farmanna og fiskimanna. 26.11.2005 13:34
Sveiflaði hnífi í samkvæmi í Árbænum Karlmaður var handtekinn Í Árbænum í gærkvöldi þar sem hann veifaði hnífi innandyra í samkvæmi. Hann var í annarlegu ástandi og gistir nú fangageymslur og verður yfirheyrður í dag. 26.11.2005 12:06
Ölvaður ökumaður bakkaði á lögreglubíl Einn ökumaður var handtekinn í miðbæ Reykjavíkur grunaður um ölvunarakstur. Ekki þurfti að stöðva þann ökumann eða há við hann eltingarleik þar sem hann bakkaði í ógáti á lögreglubílinn. Við nánari athugun reyndist hann ölvaður. 26.11.2005 10:30
Jólagjafirnar í ár í Bandaríkjunum Jólaverslunin er nú hafin fyrir alvöru í Bandaríkjunum með hefðbundinni útsölu að lokinni þakkargjörðarhátíð. MP3 spilarar, fartölvur og flatskjársjónvarpstæki eru ofarlega á óskalistanum í ár. Raftækjaverslanir voru yfirfullar daginn eftir þakkargjörðarhátíðina á fimmtudag, enda stórlækkað verð á ýmsum varningi. 26.11.2005 10:13
Hægt að spara í raforkukaupum Svo virðist sem lítil sem engin lækkun verði á raforku þegar samkeppni í sölu raforku til heimilanna verður gefin frjáls um áramót. Svigrúm til lækkunar er aðeins örfá prósent. Talið er að samkeppnin komi ekki fram í verðlækkunum fyrr en í fyrsta lagi árið 2007. Þó er hægt að spara með því að flytja viðskipti sín annað. 26.11.2005 10:00
Bíll valt í Hvalfirði Bíll valt í Hvalfirði á þriðja tímanum í nótt. Bílinn var mikið skemmdur og þurfti að fjarlægja hann með kranabíl. Fjórir farþegar voru í bílnum og sakaði engan. 26.11.2005 10:00
Hálka víða um land Ökumönnum ber að vara sig á hálku víða um land. Samkvæmt Vegagerðinni er hálka á Hellisheiði og flughált á kafla á Vesturlandi. Þá er einnig hálka á Holtavörðuheiði, á Bröttubrekku og víða á Vestfjörðum, Norðurlandi og Norðausturlandi. 26.11.2005 09:34
Gæti veitt 25 manns atvinnu Athafnamenn í Vík í Mýrdal vinna að undirbúningi verksmiðju þar sem meðal annars yrði unnið byggingaefni úr Kötluvikri. Það eru eigendur jarðanna Hjörleifshöfða, Reynisbrekku og Höfðabrekku sem standa að þessu verkefni en rannsóknir á vikrinum gefa mjög góðar vísbendingar um að verksmiðja af þessu tagi verði arðbær. 26.11.2005 09:00
32.000 jólatré flutt til landsins Af þeim fjörutíu þúsund jólatrjám sem íslenskur markaður þarfnast fyrir hver jól koma átta þúsund úr íslenskum skógum. 32 þúsund tré eru innflutt og eru flest þeirra danskur Nordmannsþinur. Þröstur Eysteinsson, fagmálastjóri Skógræktar ríkisins, segir jólatré háð tískusveiflum eins og annað. 26.11.2005 08:30
Hugleiða flutning til útlanda Hátæknifyrirtækið CCP er við það að gefast upp á rekstrarumhverfinu hér. Eyjan Mön hefur boðið fyrirtækinu aðstöðu. Víða reyna lönd að lokka til sín fyrirtæki í hátækniiðnaði. Í húfi eru 80 störf og milljarður í veltu. 26.11.2005 08:15
Kynbundið ofbeldi lítið rætt Palestínskar konur sem verða fyrir heimilisofbeldi greina sjaldan frá því. Rannsóknar- og þróunarsetrið Bisan í Palestínu vinnur að því að opna umræðuna um kynbundið ofbeldi í landinu. 26.11.2005 08:15
Færri bækur fyrir þessi jól Færri bækur eru gefnar út nú fyrir jólin en á sama tíma í fyrra. Í könnun sem Bókasamband Íslands gerði kemur fram að heildarfjöldi titla í Bókatíðindum er nú 608 en var 651 í fyrra. 26.11.2005 07:30
Um 100 brot gegn börnum tilkynnt á þremur mánuðum Nær 100 tilkynningar um brot gegn börnum hafa borist til Neyðarlínunnar, 112, á tæplega þremur síðustu mánuðum. Einkum er um að ræða vanrækslu og ofbeldisbrot. Í sumum tilvikum hringja börnin sjálf. Neyðarlínan hefur kallað út lögreglu, sjúkrabifreið og lækni í einstökum tilvikum. 26.11.2005 07:00
Handtekinn í Kringlunni Átján ára unglingur var handtekinn í Kringlunni seinnipartinn í gær (föstudag) þar sem hann fór um veifandi loftskammbyssu. Hann hafði einnig skotið stúlku í fótinn með plastkúlu. Hann var yfirheyrður og honum gert grein fyrir alvarleika málsins en lögreglan í Reykjavík segir að þar sé ekki tekið á því af neinni lindkind séu menn með einhverskonar skotvopn eða eftirlíkingar af slíku á almannafæri. 26.11.2005 07:00
Greiddi lækniskostnaðinn "Við förum eftir öllum stöðlum og þessi efni sem við notum hafa verið margrannsökuð og eiga ekki að geta verið hættuleg enda eru þau notuð í stórborgum úti um allan heim og hafa verið svo í 30 ár," segir Jón Guðni Kristinsson, eigandi Hreinsibíla. 26.11.2005 06:15
DV stendur við fréttaflutning "Það stendur ekkert annað til en að standa við þessa frétt. Við eigum þetta allt á segulbandi," segir Jónas Kristjánsson, annar ritstjóra DV. 26.11.2005 06:15
Ker vill kalla til matsmenn Ker, eignarhaldsfélag Esso, hefur farið fram á að dómkvaddir verði matsmenn til að meta ávinning félagsins af ólöglegu samráði olíufélaganna. Mál félagsins á hendur Samkeppniseftirlitinu var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í gærmorgun. 26.11.2005 06:15
Ólafur Þór Gunnarsson leiðir listann Ólafur Þór Gunnarsson öldrunarlæknir verður í fyrsta sæti Vinstri Grænna í Kópavogi í sveitarstjórnarkosningum í vor. 26.11.2005 22:04
Brotið gegn þeim sem aðhyllast lífsskoðunarfélög Stórlega er brotið gegn þeim sem aðhyllast lífsskoðunarfélög í landinu, segir Sigurður Hólm Gunnarsson, talsmaður Siðmenntar sem vill fá sömu réttarstöðu og trúfélög líkt og gerist í Noregi. Lífsskoðunarfélög eru félagsskapur sem veita þá félagslegu þjónustu sem trúfélög veita, til að mynda borgaralegar fermingar og giftingar, en án trúarbragða. 26.11.2005 16:44
Segir stöðu Íbúðalánasjóðs sterka Íbúðalánasjóður stendur styrkum fótum og fær hæstu einkunn hjá alþjóðlegum matsfyrirtækjum. Þetta segir Guðmundur Bjarnason framkvæmdastjóri sjóðsins. 25.11.2005 23:39
Sluppu með skrekkinn Mildi þykir að engan skyldi saka þegar bíll keyrði út af og valt ofaní vatnsfylltan skurð í Gaulverjabæjarhreppi í nótt. 25.11.2005 23:11
Hart tekist á um fjárlög næsta árs á Alþingi Stjórnarliðar hrósuðu sér af meiri fjárlagaafgangi en flestar Evrópuþjóðir gætu státað af meðan stjórnarandstæðingar sögðu væntanleg fjárlög þýða útgjaldaþenslu og aukið misrétti í samfélaginu. 25.11.2005 23:06
Mikil svifryksmengun í Reykjavík undanfarna daga Svifryk hefur mælst allt að tífalt meira síðustu daga en á meðal degi. Þegar veður er þurrt og stillt eykst rykmengunun verulega við helstu umferðaræðar í Reykjavík. Fólk sem er viðkvæmt í öndunarfærum getur fundið fyrir svifrykinu þegar umferð er sem mest og þar með svifrykið. 25.11.2005 22:55
Hannes verst bótakröfu Jóns Ólafssonar Hannes Hólmsteinn Gissurarson segist aldrei hafa kallað Jón Ólafsson dópsala eða skattsvikara. Hann hafi aðeins bent á að aðrir hafi gert það og þess vegna eigi ekki að dæma sig fyrir meiðyrði. 25.11.2005 22:30
Stórt nýtt hverfi í Mosfellsbæ Þúsund íbúða hverfi mun rísa innan tíðar undir hlíðum Helgafells í Mosfellsbæ. Ljúka á vinnu við fyrsta áfanga deiliskipulags í mars á næsta ári. Bæjaryfirvöld í Mosfellsbæ og landeigendur undirrituðu viljayfirlýsingu um uppbyggingu hverfisins í dag. 25.11.2005 19:27
Verða að endurgreiða ríkisaðstoð EFTA-dómstóllinn segir að stjórnvöld verði að endurgreiða ólögmæta ríkisaðstoð sem var veitt erlendum fyrirtækjum sem fluttu starfsemi sína hingað til lands. 25.11.2005 19:24
Undrast seinagang fjármálaráðherra Stjórnarandstæðingar undrast seinagang fjármálaráðherra í hagsmunagæslu vegna samráðs olíufélaganna en ráðherrann segir að vanda verði undirbúning, verði niðurstaðan sú að mál verði höfðað. 25.11.2005 19:22
Bíll valt í Dalsá í Víðidal Bílvelta varð við Dalsá í Víðidal í dag. Fjórir voru í bílnum en enginn slasaðist. Ökumaður missti stjórn á bíl sínum í hálku og endaði bíllinn í Dalsá en ökumanður og farþegar komust út úr bílnum að sjálfsdáðum. 25.11.2005 17:47
Keyrði útaf veginum til að forðast árekstur Bíll fór útaf Reykjanesbraut, skammt austan við gatnamót Vogavegar, áttunda tímanum í morgun. Ökumaðurinn var að taka framúr bifreið en sá þá hvar ljóslítill bíll kom á móti. 25.11.2005 17:28
Stílkeppni Samfés haldin á morgun Rusl er þema stílkeppni Samfés sem haldin verður á morgun. Þetta er í fimmta sinn sem keppnin er haldin en keppt er í fatahönnun, hárgreiðslu og förðun. 25.11.2005 17:07
Mikil fækkun á umferðarslysum meðal ungra ökumanna Mikil fækkun hefur orðið á umferðarslysum meðal ungra ökumanna á undanförnum sex árum. Ljóst er að löghlýðni ungra karla hefur aukist frá árinu 2000. 25.11.2005 16:14
Ósáttir við breytingar á umdæmum Akurnesingar eru ósáttir við hugmyndir um að færa lögregluembætti bæjarins undir lögregluna í Borgarnesi. Guðmundur Páll Jónsson bæjarstjóri segist segist afar undrandi á hugmyndunum, lögreglan á Akranesi sé sú fjölmennasta á Vesturlandi og sú eina með sólarhringsvakt. Hann óttast að þjónusta lögreglunnar skerðist verði af breytingunni. 25.11.2005 15:55
Sjúkraliðar á Akureyri fá greidda desember- og orlofsuppbót Sjúkraliðar á Akureyri fá greidda desemberuppbót í desember, líkt og aðrir starfsmenn Akureyrarbæjar. Þá mun þeim einnig verða greidd orlofsuppbót, þrátt fyrir að ekki hafi verið samið um hana ennþá. 25.11.2005 15:53
Fimm hafsvæði friðuð fyrir veiðum Fimm hafsvæði fyrir Suðurlandi verða friðuð fyrir öllum veiðum nema uppsjávarveiðum í hringnót og flottroll. Sjávarútvegsráðherra tilkynnti um þessa ákvörðun á þingi Farmanna og fiskimannasambandsins í dag. 25.11.2005 15:02
Lögsókn úr launsátri Hannes Hólmsteinn Gissurarson hélt nú klukkan tvö blaðamannafund undir yfirskriftinni „Lögsókn úr launsátri", þar sem hann kynnti greinargerð sína vegna meiðyrðadóms sem féll yfir honum í Bretlandi vegna ummæla um athafnamanninn Jón Ólafsson. Á fundinum rakti Hannes hvers vegna hann teldi að bresk lögsaga gilti ekki um ummælin sem hann var dæmdur fyrir auk þess sem hann varði ummælin og sagði þau bæði sönn og eðlileg í því samhengi sem þau voru sett fram í. 25.11.2005 14:51
Varnarliðið segir fimm upp Varnarliðið á Keflavíkurflugvelli segir fimm íslenskum starfsmönnum upp störfum frá og með næstu mánaðamótum að því er fréttavefur Víkurfrétta greinir frá. Í það minnsta fjórar konur eru í hópi þeirra sem verður sagt upp og flestar í stjórnunarstöðum. 25.11.2005 14:45
Hannes skilar inn greinargerð Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor, hefur skilað Héraðsdómi Reykjavíkur greinargerð til að fá því hnekkt að hann þurfi að greiða Jóni Ólafssyni, athafnamanni, bætur vegna meiðyrðadóms í Englandi. 25.11.2005 14:27
Íhuga nýtt framboð í Eyjum Nýtt framboð gæti bæst í flóruna í Vestmannaeyjum fyrir bæjarstjórnarkosningar næsta vor. Fréttavefurinn Eyjar.net greinir frá því að um tíu manns hafi komið saman til fundar í gær til að ræða framtíðarsýn Vestmannaeyja og hugsanlegt framboð við næstu bæjarstjórnarkosningar. 25.11.2005 14:20
Allar tillögur meirihlutans samþykktar Þingmenn samþykktu allar breytingartillögur meirihluta fjárlaganefndar við fjárlagafrumvarp næsta árs á þingfundi í dag en öllum tillögum stjórnarandstöðunnar var hafnað. Eins og fjárlagafrumvarpið lítur út núna verður nær tuttugu milljarða króna afgangur á rekstri ríkissjóðs á næsta ári. 25.11.2005 13:19