Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ljósmyndarar semja við ráðuneyti vegna vegabréfa Ljósmyndarafélag Íslands hefur náð samkomulagi við dómsmálaráðuneytið um að fá áfram að taka myndir fyrir vegabréf, en til stóð að flytja slíka myndatöku alfarið til sýslumannsembættanna. Leyfi ljósmyndaranna er þó háð nokkrum skilyrðum um öryggi myndanna. 24.11.2005 15:04
Hálka og slæmt ferðaveður víða um land Óveður og slæmt ferðaveður er nú víða á fjallvegum á norðaustur- og Austurlandi. Þá er einnig óveður í Hvalnes- og Þvottárskriðum. Hálkublettir eru á Hellisheiði og hálka er á Holtavörðuheiði og á Bröttubrekku. Hálka er einnig víða á Vestfjörðum og á Norðurlandi. 24.11.2005 14:59
Laskar starfsemi vikum saman Hreinsunarbúnaður skemmdist mikið þegar eldur kom upp í Malbikunarstöð Suðurnesja um um hádegisbilið í dag. Eldurinn kviknaði í risastórri ryksugu í hreinsibúnaðinum sem sogar ryk úr því efni sem verið er að þurrka og skilur koltvísýring frá útblæstri áður en honum er hleypt út í andrúmsloftið. 24.11.2005 14:58
Annar drengjanna sem brenndist illa enn haldið sofandi Annar drengjanna sem brenndist illa þegar eldfimur vökvi skvettist yfir þá í Grafarvogi á sunnudagskvöldið liggur enn á gjörgæslu á Landspítala-háskólasjúkrahúsi. Honum er haldið sofandi en ástand hans er stöðugt. Hinn drengurinn brenndist minna og hefur hann verið fluttur á Barnadeild Hringsins. 24.11.2005 14:49
Útgáfan líklega yfir 200 milljarða Skuldabréfaútgáfa erlendra aðila í íslenskum krónum fer væntanlega yfir tvöhundruð milljarða króna markið snemma á næsta ári, segir í Morgunkornum Greiningardeildar Íslandbanka. Þýska ríkið gaf út skuldabréf í íslenskum krónum fyrir þrjá milljarða króna í morgun. 24.11.2005 13:30
Sýslumenn fluttir til í embætti Sýslumennirnir í Búðardal og á Hólmavík verða fluttir til í embætti um áramót samkvæmt ákvörðun dómsmálaráðherra. Anna Birna Þráinsdóttir, sýslumaður í Búðardal, verður flutt í embætti sýslumannsins í Vík og Áslaug Þórarinsdóttir, sýslumaður á Hólmavík, fer í embætti sýslumannsins í Búðardal. 24.11.2005 13:17
Jón og Guðrún algengust Jón og Guðrún eru sem fyrr algengustu nöfn landsmanna. 3,8 prósent karla hétu Jón 1. desember síðastliðinn og 3,6 prósent kvenna Guðrún samkvæmt tölum Hagstofunnar. Jón, Aron og Daníel eru algengustu nöfn sem piltum hafa verið gefin síðustu fjögur árin og Anna, Sara og Katrín algengustu nöfn stúlkna. 24.11.2005 13:15
Farmenn vilja frekar fastlaunakerfi Yfirmenn á fiskiskipum eru orðnir svo óánægðir með kaup og kjör að allt að sjötíu prósent þeirra vilja hrófla við hlutaskiptakerfinu. Þeir neituðu því harðlega í síðustu samningum en á tímum hækkandi gengis krónunnar kjósa þeir greinilega að fá föst mánaðarlaun. 24.11.2005 12:30
Bitnar á verði hinna bankanna Verðgildi á bréfum í Íslandsbanka og Landsbankanum hafa lækkað í verði á erlendum mörkuðum vegna neikvæðrar umræðu um KB banka ytra. Gagnrýni á KB banka er látin ganga yfir allt íslenska efnahagskerfið. 24.11.2005 12:05
Jólaþorpið opnað á laugardag Jólaþorpið á Thorsplani í Hafnarfirði opnar klukkan tólf á laugardag en þar hefur verið komið fyrir tuttugu litlum jólahúsum. Tveimur tímum síðar verður svo kveikt á jolatrénu frá vinabæ Hafnarfjarðar Frederiksberg. 24.11.2005 11:00
Sjúkraliðar kjósa um verkfall Sjúkraliðar sem starfa hjá sveitarfélögunum munu greiða atkvæði um hvort hefja eigi verkfall til að knýja á um nýjan kjarasamning. Fyrri samningur rann út fyrir tæpu ári og hefur ekki enn samist. Fyrst var beðið eftir að gengið yrði frá samningi við ríkið en því lauk júní. 24.11.2005 10:38
Nýtt varðskip væntanlega á árinu 2008 Tilboða verður leitað í nýtt varðskip fyrir Landhelgisgæsluna eftir áramót, að sögn Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra, en yngsta varðskipið sem nú er í notkun, er komið á fertugsaldur. Nokkrar skipasmíðastöðvar á Evrópska efnahagssvæðinu fá að bjóða í verkið, að uppfylltum vissum skilyrðum og gangi allt eftir, ætti skipið að komast í þjónustu Gæslunnar árið 2008. 24.11.2005 09:30
ÖBÍ segir vinnureglur Tryggingastofnunar stangast á við lög Forystumenn Öryrkjabandalagsins hyggjast leita á náðir dómsstóla varðandi skerðingu bóta um áttatíu öryrkja hætti Tryggingastofnun ekki við aðgerðir sínar. Þeir segja nýjar vinnureglur stofnunarinnar stangast á við lög. Engin ástæða sé til þess að grípa til jafn harkalegra innheimtuaðgerða og nú er beitt gagnvart fársjúku fólki. 24.11.2005 09:30
Skuldabréfaútgáfa erlendra aðila í íslenskum krónum nemur 10% af landsframleiðslu Skuldabréfaútgáfa erlendra aðila í íslenskum krónum nemur nú 10% af landsframleiðslu. Deutsche Bank gaf í vikunni út skuldabréf í íslenskum krónum fyrir um einn milljarð króna en nokkurt hlé hafði verið á útgáfunni. Á seinni hluta næsta árs koma um fjörtíu milljarðar króna til greiðslu. 24.11.2005 09:15
Umfjöllun um Baug í Bretlandi Reuter fréttastofan greindi frá kaupum Baugs á skartgripafyrirtækinu Mappin og Webb. Þar eru reifaðar afleiðingar Baugsmálisins fyrir fyrirtækið. Þar eru taldar upp eignir Baugs í Bretlandi og sagt að Baugur sé nú viðurkennt viskiptaafl þar í landi. Þess er jafnframt getið að vegna Baugsmálsins hafi fyrirtækið þurft að hverfa frá samningum um kaup á Somerfield. Í framhaldinu er sagt að flestum ákærunum hafi verið hafnað af Hæstarétti. 24.11.2005 09:15
Hlaut fangelsisdóm fyrir að selja of mikið áfengi Norskur barþjónn hlaut sex mánaða fangelsisdóm fyrir að selja drukknum gesti of mikið áfengi. Gesturinn, sem var á fertugsaldri keypti nítján tekíla drykki á níutíu mínútum á síðasta þjóðhátíðardegi Norðmanna. Hann lést fimm dögum síðar af völdum heilaskaða sem rakinn var til ofdrykkjunnar. 24.11.2005 09:00
Vilja ekki að lögreglan heyri undir Borgarnes Verkalýðsfélag Akranes leggst gegn hugmyndum um að draga úr vægi lögreglunnar á Akranesi en samkvæmt áformum í dómsmálaráðuneytinu á að fella embættið undir lögregluna í Borgarnesi. 24.11.2005 08:45
Slippurinn fer hugsanlega ekki Það kemur til greina að endurskoða áform borgaryfirvalda um að flytja slippinn úr Reykjavík og hefja byggingu íbúðabyggðar á slippssvæðinu, sagði Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti Sjálfstæðismanna í borgarstjórn, á fundi með útvegsmönnum í gær. 24.11.2005 08:15
Þjóðkirkjan þarf tvö ár til að afgreiða málið Tvö ár eru þangað til þjóðkirkjan sér fram á að afgreiða af sinni hálfu þá ósk að hún komi að hjúskaparstofnun samkynhneigðra. 24.11.2005 08:00
Lyfjaverð lækkar ekki sem skyldi Samningar ríkisvaldsins við lyfjaframleiðendur og innflytjendur um lækkun lyfjaverðs hefur ekki skilað sér til neytenda að því er fram kemur í könnun Alþýðusambands Íslands. Hlutur sjúklinga í lyfjakostnaði hefur hækkað í einhverjum tilfellum þar sem hlutur ríkisins hefur lækkað. 24.11.2005 07:45
Varað við hálku og hálkublettum Hálkublettir eru á Hellisheiði samkvæmt Vegagerðinni. Hálka er á Holtavörðuheiði og á Bröttubrekku og víða á Vestfjörðum og á Norðulandi. Hálka og skafrenningur er á Norðausturlandi og hálkublettir á fjallvegum á Austurlandi. 24.11.2005 07:42
Slasaðist þegar bíll valt í Þrengslunum Ökumaður slasaðist þegar bíll hans valt á gatnamótum Þorlákshafnarvegar og Þrengslavegar í gærkvöldi. Hann var fluttur á Slysadeild Landsspítalans, en er ekki í lífshættu. Hann var einn í bílnum og er ekki vitað um tildrög slyssins. 24.11.2005 07:15
Öryrkjar ætla alla leið með skerðingarmál Forystumenn Öryrkjabandalagsins hyggjast leita á náðir dómsstóla varðandi skerðingu bóta um áttatíu öryrkja. Þeir segja nýjar vinnureglur Tryggingastofnunar stangast á við lög. Enginn ástæða sé til þess að grípa til jafn harkalegra aðgerða og nú er beitt gagnvart fársjúku fólki. 24.11.2005 07:00
Fangar pakka inn jólakortum Fangar í Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg og í Fangelsinu á Akureyri hafa unnið að því að pakka inn jólakortum fyrir ABC barnahjálp síðustu daga. Um tímabundið verkefni er að ræða en vinnumöguleikar fyrir fangana eru takmarkaðir í þessum fangelsum sökum aðstöðuleysis. 23.11.2005 22:40
Núverand hækkun vaxta á íbúðalánum leiðir ekki til lækkunar húsnæðisverðs Íbúðalánasjóður og allir bankarnir fyrir utan KB banka hafa hækkað vexti sína af íbúðalánum. Sérfræðingar telja þó að þessi hækkun vaxta muni ekki leiða af sér lækkun húsnæðisverðs. 23.11.2005 22:11
Skráir ættir allra Íslendinga Allir Íslendingar, fyrr og síðar, sem og afkomendur þeirra í útlöndum, eru að eignast samastað. Sá er í Skerjafirði. Þetta varanlega heimili Íslendinga er hjá Ættfræðiþjónustu Odds Helgasonar. 23.11.2005 21:28
20.000 manns eiga inneign hjá Tryggingastofnun ríkisins Ástæða hárra bakreikninga til öryrkja frá Tryggingastofnun er í flestum tilvikum sú að þeir hafa vantalið tekjur sínar. Það eru hins vegar ekki bara sendir út bakreikningar, 20.000 manns eiga inneign hjá TR sem greidd verður út fyrir jól. 23.11.2005 21:16
Dómsmálaráðherra ráðstafar einn átta milljónum til mannréttindamála Dómsmálaráðherra verður nú einn að ráðstafa átta milljónum til mannréttindamála eftir breytingar á fjárlagafrumvarpinu í meðförum fjárlaganefndar. Fjórar milljónir á forræði utanríkisráðherra færast á hendur Björns Bjarnasonar. Þingmaður Samfylkingarinnar segir þetta ekki djarfmannlegt af nýjum formanni Sjálfstæðisflokksins. 23.11.2005 21:05
Telur að vextir á íbúðalánum muni lækka þegar nær dregur áramótum Vextir á íbúðalánum lækka aftur þegar nær dregur áramótum, að mati framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs, en sjóðurinn hækkaði vexti sína í morgun. Landsbankinn var fyrstur til að hækka vexti í þessari hrinu fyrir hálfum mánuði, en Sparisjóðirnir og Íslandsbanki fylgdu í kjölfarið í dag. KB-banki er að skoða málið. 23.11.2005 21:03
Ráðherrar sakaðir um að forðasta að svara spurningum um Kárahnjúkavirkjun Ráðherrar voru sakaðir á Alþingi í dag um að svara óþægilegum fyrirspurnum um Kárahnjúkavirkjun ýmist með þvættingi eða alls engu. 23.11.2005 20:45
Vill að Fiskistofa svari Fiskistofa þverbrýtur allar stjórnsýslureglur þegar hún neitar að upplýsa um leigukvótaviðskipti síðasta árs sem námu 9 milljörðum króna. Þetta segir Sigurjón Þórðarson þingmaður Frjálslynda flokksins sem hefur óskað eftir því að Sjávarútvegsráðherra reki á eftir stofnuninni að svara. 23.11.2005 20:24
Kertasníkir á leið til Finnlands Kertasníkir millilenti á Reykjavíkurflugvelli í dag en hann er á leið frá Mývatni til Finnlands á jólasýningu. Kertasníkir var í sínu fínasta pússi en íslensku jólasveinarnir eru komnir í nýja búninga. 23.11.2005 20:15
Eitthvað rortið við íslenkt bankaveldi? Er eitthvað rotið í íslensku bankaveldi spyr Skotlandsbanki í nýlegri greiningu sinni á KB banka. Bankinn taki óþarfa áhættu og spurningar vakni varðandi fjármögnun og eignatengsl. Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch Radings gaf hins vegar KB banka hæstu einkunn í dag og segir horfur í rekstrinum stöðugar. 23.11.2005 19:30
Konukot opið allan sólarhringinn Konukot verður framvegis opið allan sólarhringinn. Velferðarráð Reykjavíkur hefur ákveðið að veita Rauða kross Íslands fé til að svo geti orðið. 23.11.2005 19:10
Leggst gegn hlutlausri úttekt Félagsmálaráðuneyti leggst gegn hlutlausri úttekt á fjárhagslegri stöðu Íbúðalánasjóðs sem ákveðið var að ráðast í í júní og ber við kostnaði. Ríkisábyrgðarsjóður getur ekki mælt með frekari ríkisábyrgðum vegna sjóðsins meðan engin úttekt liggur fyrir. Skýrsla ríkisendurskoðunar um sjóðinn er væntanleg í næstu viku. 23.11.2005 19:00
Enn eykst skuldabréfaútgáfa erlendra aðila Skuldabréfaútgáfa erlendra aðila í íslenskum krónum er nú komin yfir hundrað og fimmtán milljarða króna. Deutsche Bank gaf í gær út skuldabréf fyrir um einn milljarð króna og verða þau innleysanleg í september á næsta ári. Hlé hafði verið á útgáfunni síðan ellefta þessa mánaðar. 23.11.2005 15:13
Allir bankarnir nema KB banki hafa hækkað íbúðalánavexti Íslandsbanki hefur hækkað vexti íbúðalána úr 4,15% í 4,35%. Í tilkynningu frá bankanum segir að þetta sé gert vegna hækkana Íbúðalánasjóðs á íbúðalánum sínum. Hækkanirnar taka strax gildi. Þá hafa allir bankarnir nema KB-banki tilkynnt hækkun á vöxtum íbúðalána. Í morgun hækkaði SPRON vexti sína í 4,35% og fyrir nokkru hækkað Landsbankinn sína vexti í 4,45%. 23.11.2005 15:10
Annar drengjanna sem brenndust enn á gjörgæslu Annar drengjanna sem brenndust illa þegar þeir voru að fikta með eldfiman vökva í Grafarvogi á sunndagskvöld er enn á gjörgæsludeild Landspítalans og óvíst hvenær hann losnar þaðan. Honum er haldið sofandi í öndunarvél en hann brann á um 30 prósentum líkamans. 23.11.2005 14:37
5-10 aðilar fá að bjóða í smíði nýs varðskips Farið verður í forval á skipasmíðastöðvum sem uppfylltu ákveðin skilyrði m.t.t. rekstrarstöðu og reynslu af sambærilegum verkefnum vegna smíði nýs varðskips fyrir Landhelgisgæslu Íslands. Þetta tilkynnti Björn Bjarnason á ríkisstjórnarfundi í morgun. Í kjölfar forvals verða valdir 5-10 aðilar sem síðan fá að bjóða í smíði á nýju fjölnota varðskipi. 23.11.2005 14:15
Skilyrðum símapeninga við lagningu Sundabrautar aflétt Vegagerðin er tilbúin að aflétta skilyrðum sem fylgdu símapeningunum við fyrirhugaðar framkvæmdir á Sundabraut. Vegagerðin telur nauðsynlegt að skoða allt málið í heild sinni í ljósi ákafra mótmæla íbúasamtaka Grafarvogs og Laugardals. 23.11.2005 14:00
Heiðurslaun til 27 listamanna á næsta ári 27 listamenn munu fá heiðurslaun á næsta ári samkvæmt tillögu menntamálanefndar sem lögð hefur verið fram. Hver listamaður fær 1,6 milljónir króna og því nema launin samtals 43,2 milljónum. 23.11.2005 13:45
Ekið á unglinsstúlku við Suðurlandsbraut Ekið var á unglingsstúlku þar sem hún var á gangi við Suðurlandsbraut á tíunda tímanum í morgun. Ekki er ljóst hver aðdragandi slyssins varð en stúlkan slapp vel að sögn lögreglu. Hún var þó flutt með sjúkrabíl á slysadeild en meiðsli hennar reyndust minni háttar. 23.11.2005 13:00
Enn einu sinni bilun á Farice-streng Farice-strengurinn hefur enn einu sinni farið í sundur við Skotland, nú á milli Elgin og Inverness. Bilanaleit er þegar hafin en bilunin hefur áhrif á netumferð til útlanda og gæti einnig valdið truflunum á símasambandi við útlönd. 23.11.2005 12:13
Orðalagið ekki við hæfi Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, gagnrýnir Morgunblaðið fyrir umfjöllun blaðsins um veru forsetans við embættistöku furstans af Mónakó, í athugasemdum við skrif blaðsins sem birtust í Staksteinum í Morgunblaðinu í gær. 23.11.2005 12:04
Vaxtahækkun getur leitt af sér lækkun á húsnæðisverði Sérfræðingar á fjármálamarkaði segja að ef ámóta hækkanir verði hjá öllum þýði það að minnsta kosti átta prósenta hækkun fjármagnskostnaðar vegna íbúðakaupa og að hækkunin geti leitt af sér lækkun á húsnæðisverði. 23.11.2005 12:00