Fleiri fréttir

Tölvuþrjótar breyta aðferðum sínum

Tölvuþrjótar hafa í auknum mæli snúið sér frá því að ráðast á stýrikerfi tölva og kjósa frekar að ráðast á ýmis önnur forrit til þess að fá aðgang að netjónum sem og tölvum. Samkvæmt nýlegri rannsókn Bandaríska heimavarnarráðuneytisins og innra öryggiseftirlits bresku ríkisstjórnarinnar eru alls kyns afspilunarforit og vírusvarnarforrit meðal þeirra forrita sem þeir einbeita sér að í auknum mæli.

Fangar pakka inn jólakortum

Fangar í Hegningarhúsinu á Skólavörðustíg og Fangelsinu á Akureyri eru nú teknir til við hjálparstarf í þágu munaðarlausra barna í Úganda, Indlandi, Pakistan og á Filippseyjum.

SPRON hækkar íbúðalánavexti

SPRON hefur ákveðið að hækka vexti íbúðalána úr 4,15 prósentum í 4,35 prósent. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sparisjónunum í dag.

Fjörutíu milljarða jólahátíð

Viðbótarútgjöld fjögurra manna fjölskyldu vegna jólavertíðarinnar verða tæpar 80 þúsund krónur samkvæmt spám Rannsóknarseturs verslunarinnar. Velta verslana getur aukist um 20 prósent vegna jólanna.

Ellefu menn verði í nefnd um alþjóðlega fjármálastarfsemi

Ellefu menn verða í nefnd, sem á að fjalla um uppbyggingu alþjóðlegrar fjármálastarfssemi hér á landi, að því er Viðskiptablaðið greinir frá. Forsætisráðherra mun væntanlega skipa nefndina í dag en Sigurður Einarsson stjórnarformaður KB banka hefur þegar verið útnefndur formaður.

Ríkissaksóknari áfrýjar dómi yfir Ramsey

Ríkissaksóknari hefur áfrýjað dómi Héraðsdóms Reykjaness yfir Scott Ramsey til Hæstaréttar og krefst þyngri refsingar. Ramsey var í síðasta mánuði dæmdur í 18 mánaða fangelsi, þar af 15 skilorðsbundna, fyrir að slá danskan hermann í höfuðið með þeim afleiðingum að hann lét lífið.

Erum með tvo gjaldmiðla

Jón Magnússon hrl. segir að íslenska krónan hafi verið að styrkjast verulega gagnvart evrópsku gjaldmiðlunum ef þróunin fimm síðustu árin er skoðuð. Á sama tíma hafi vísitala neysluverðs til verðtryggingar hækkað enn meira, eða í raun um 20 prósent umfram krónuna.

Mildi að ekki fór verr þegar tundurdufl kom í veiðarfæri

Mikil mildi þykir að ekki skyldi fara verr þegar að þýskur togari fékk tundurdufl í veiðafæri sín. Áhöfn togarans kom með tundurduflið upp á bryggju á Eskifirði um í gær og voru sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar kvaddir á vettvang.

Notendaábyrgð ekki í frumvarpi

Ákvæði um að fyrirtæki sem nýti sér þjónustu starfsmannaleiga beri ábyrgð á kjörum starfsmanna er ekki í frumvarpi til laga um starfsmannaleigur. Ráðherra segir frumvarpið byggt á niðurstöðum starfshóps aðila vinnumarkaðar og séróskir þeirra muni ekki verða í frumvarpinu sem Alþingi eigi lokaorð um.

Fá tuttug og tvö þúsund krónur

Þeir öryrkjar sem sviptir voru öllum bótum frá Tryggingastofnun það sem eftir lifir árs, fá samkvæmt því sem heilbrigðisráðherra ákvað í dag, 22 þúsund krónur bæði í nóvember og desember. Formaður Öryrkjabandalagsins er þó ekki sáttur.

Útboð Íbúðalánasjóðs

Íbúðalánasjóður efndi í dag til útboðs á íbúðabréfum sem nema allt að þremur milljörðum króna að nafnverði. Sjóðurinn sendi tilkynningu þessa efnis til Kauphallar Íslands í dag. Áskilur sjóðurinn sér rétt til að hækka útboðsfjárhæðina eða að hafna öllum tilboðum. Lágmarkstilboð er að fjárhæð tvöhundruð milljónir fyrir hvern flokk.

Enn óvissa um starfsemi nýrnadeildar

Enn ríkir óvissa um starfsemi nýrnadeildar Landspítala-Háskólasjúkrahús. Helmingur af hjúkrunarfræðingum deildarinnar hættir störfum á deildinni um árámótin að óbreyttu. Hjúkrunarforstjóri spítalans fundaði með hjúkrunarfræðingunum í dag.

Úrslitakeppni Skekks sýnd á Netinu

Úrslitakeppni Skrekks, hæfileikakeppni grunnskólanna hófst klukkan átta. Alls eru það sex grunnskólar sem keppa í úrslitunum en þau verða kynnt síðar í kvöld. Hægt er að fylgjast með keppninni á Netinu en þaðan er keppnin sýnt beint.

Ný stjórn Árvakurs

Ragnhildur Geirsdóttir og Skúli Valberg Ólafsson eru ný í stjórn Árvakurs hf. útgáfufélags Morgunblaðsins en þau eru fulltrúar nýrra hluthafa. Á hluthafafundi félagsins í dag var ný stjórn skipuð og var hún sjálfkjörin.

KEA félagar fá sexþúsund króna inneign

Átta þúsund félagar KEA fá senda inneignarmiða upp á sexþúsund krónur senda heim á næstunni. Í ljósi góðs gengis félagsins á árinu 2004 ákvað stjórn félagsins síðastliðið vor að fjármunirnir yrðu notaðir til að leita viðskiptakjara fyrir félagsmenn.

Byggðastofnun ekki forystuafl

Byggðastofnun er ekki það forystuafl í uppbyggingu atvinnustarfssemi á landsbyggðinni sem ætla mætti og sinnir ýmsum grundvallarhlutverkum ekki nægilega vel.

Æðstu stjórnendur enn í lykilstöðum

Ríkislögreglustjóri segir um rannsókn sína á ólöglegu verðsamráði stóru olíufélaganna að ætluð brotatilvik skipti hundruðum, en sjö æðstu stjórnendur félaganna þriggja, sem hvað oftast komu við sögu við rannsókn samkeppnisyfirvalda á sama máli, gegna enn lykilstjórnunarstöðum í olíufélögunum.

Árás á Líbanon

Ísraelskar herþotur gerðu loftárásir á Líbanon í dag, þær stærstu sem beinst hafa gegn skæruliðum á síðastliðnum fimm árum. Loftárásirnar komu í kjölfar þess að menn úr röðum Hezbollah skæruliða skutu með sprengjuvörpum og loftskeytum í átt að húsum við landamæri Ísraels og Líbanon með þeim afleiðingum að 11 ísraelskir hermenn særðust og hús skemmdust.

Velti bíl sínum á Miklubraut

Ökumaður fólksbíls slapp furðu vel þegar hann missti stjórn á bifreið sinni á Miklubraut í Reykjavík um tólfleitið með þeim afleiðingum að bifreiðin valt á hliðina. Ökumanninum var mjög brugðið en virtist ekki alvarlega slasaður, í það minnsta gekk hann frá bifreið sinni. Þaðan var hann fluttur á slysadeild til athugunar.

Tollar lækka verulega

Útflytjendur íslenskra vara til Rússlands hafa ástæðu til að fagna því tollar á þær lækka verulega í kjölfar þess að Rússland fær ástæða að Alþjóða viðskiptastofnuninni. Samningur milli Íslands og Rússlands þessa efnis var undirritaður í Moskvu á dögunum.

Yfir 300 milljónir fyrir umbúðirnar

Fyrirtæki landsins hefja um næstu áramót greiðslu úrvinnslugjald fyrir allar, plast-, pappa- og pappírsumbúðir utan um vörur þeirra. Búist er við að gjaldið nemi um 320 til 340 milljónum króna á ári.

Fjallar ekki um ákæruliðina átta

Sérstakur saksóknari sem Björn Bjarnason dómsmálaráðherra skipaði í Baugsmálinu hefur aðeins vald í þeim 32 ákæruliðum Baugsmálsins sem vísað var frá dómi en ekki þeim átta sem eftir standa af 40 upphaflegum ákæruliðum.. Bogi Nilsen ríkissaksóknari fer með ákæruvald í þeim liðum. Þetta er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur sem kveðinn var upp rétt rúmlega níu.

Minnst traust til Halldórs

Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, er sá stjórmálamaður sem mests trausts nýtur meðal almennings samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins. Alls sögðust 22,4 prósent treysta honum best. Geir er afskaplega traustur stjórnmálamaður og sýnir það í störfum sínum. Því koma þessar niðurstöður lítið á óvart segir Arnbjörg Sveinsdóttir, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins.

Tundurdufl á bryggjunni á Eskifirði

Óskað hefur verið eftir aðstoð sprengjusérfræðinga Landhelgisgæslunnar vegna tundurdufls sem áhöfn þýsks togara setti upp á bryggjunni á Eskifirði.  TF-SYN, flugvél Landhelgisgæslunnar, er nú á leið þangað með tvo sprengjusérfræðinga um borð.

Nýrnasjúklingar óttast framtíð blóðskilunardeildar

Nýrnasjúklingar sem þurfa að leita til blóðskilunardeildar eru uggandi yfir þeirri stöðu sem komin er upp á blóðskilunardeild. Þeir óttast að allt stefni í óefni en allar líkur eru á að átta af sextán starfsmönnum deildarinnar láti af störfum um áramótin.

Skera úr um hæfi dómsmálaráðherra á morgun

Pétur Guðgeirsson héraðsdómari og tveir meðdómendur hans munu kveða upp úr um hæfi Björn Bjarnasonar dómsmálaráðherra við skipun sérstaks saksóknara í Baugsmálinu svokallaða fyrir hádegi á morgun. Verjendur sakborninga fóru fram á það við þinghald í málinu nýverið að dómarar skæru úr um hæfi Björns.

Tekið verður harðar á þeim starfsmannaleigum sem brjóta af sér

Fyrirtæki sem nýta sér starfsmannaleigur þurfa ekki að svara til ábyrgðar reynist brotið á starfsmönnum. Þetta er niðurstaða starfshóps um lagasetningu á starfsemi starfsmannaleiga. ASÍ hefur skorað á ráðherra að sú ábyrgð verði engu að síður í væntanlegum lögum.

Rækjustofnar á grunnslóð í algjöru lágmarki

Lítið er af rækju á hefðbundnum miðum samkvæmt niðurstöðum haustkönnunar Hafrannsóknarstofnunar. Rækjustofnar á grunnslóð mældust í algjöru lágmarki og 2005 árgangur þorks mældist sá minnsti á grunnslóð síðan árið 1991.

Talið að kviknað hafi í út frá eldavélahellu

Talið er að kviknað hafi í út frá eldavélahellu í heimahúsi á Ísafirði í dag. Slökkvilið á Ísafirði var kallað út rétt fyrir klukkan sex síðdegis. Íbúi í húsinu hringdi á slökkvilið sem kom á staðin og slökkti eldinn. Um minniháttar bruna var að ræða en kviknað hafi lítillega í klæðningu og í eldhúsi.

Heilbrigð skynsemi fyrir farsímanotendur

Og Vodafone ætlar á næstu dögum að hefja sölu á Simply farsímum frá Vodafone Global Plc. Simply símtæki eru sérstaklega hönnuð með þarfir viðskiptavina í huga, þeirra sem vilja einföld símtæki sem einskorðast að mestu leyti við tal og SMS. Jafnframt er í boði sérstök gjaldskrá fyrir Simply notendur.

Ekki ljóst hvernig slæm staða Byggðarstofnunar verði leyst

Byggðastofnun, sem á að tryggja jafnan aðgang landsbyggðafyrirtækja að fjármagni á við fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu, er lömuð vegna fjárskorts. Hún er hætt að lána og fyrr á árinu var styrkveitingum og hlutafjárkaupum hætt. Valgerður Sverrisdóttir vill ekkert segja um hvernig staða stofnunarinnar verði leyst.

Kaupmáttur eldri borgara minnkað um 1,6% frá 1988

Kaupmáttur eldri borgara hefur minnkað um 1,6% ef litið er aftur til 1988. Sé miðað við síðustu tíu ár hefur kaupmáttur eldri borgara vaxið lítillega en þó aðeins um einn sjötta af kaupmáttaraukningu ráðstöfunartekja í landinu.

Byggðasafn Vestmannaeyja er á móti byggingu landnámsskála í Herjólfsdal

yggðasafn Vestmannaeyja er mótfallið byggingu Landnámsbæjar í Herjólfsdal á meðan endurmat á mögulegum fornleifum á svæðinu hefur ekki farið fram. Hlíf Gylfadóttir, safnvörður, tekur þó fram að málið snúist ekki um að byggðasafnið sé á móti byggingu landnámsskála út af fyrir sig, heldur um verndun dalsins og hættu á skemmdum á mögulegum fornleifum.

Ný starfsstöð fyrir fólk með geðraskanir tekin í notkun á morgun

Jón Kristjánsson, heilbrigðisráðherra, tekur nýja starfsstöð fyrir fólk með geðraskanir í notkun á morgun. Starfsstöðin verður í Bolholti í Reykjavík og starfrækt af heilsugæslunni og Hugarafli. Þjónustan mun byggja á samstarfi fagfólks, þeirra sem njóta þjónustunnar og aðstandendum þeirra.

Ófærar vegna élja og hálku

Hrafnseyrarheiði og Eyrarfjall eru ófær vegna éljagangs og hálku. Él og hálka gera ökumönnum víða erfitt fyrir á Vesturlandi og á Vestfjörðum auk þess sem hálka og éljagangur er í Þrengslum og hálkublettir á Hellisheiði.

Nokkur hálka og hálkublettir um allt land

Nokkur hálka og hálkublettir eru víða um land. Hálka og éljagangur er í Þrengslum og hálkublettir á Hellisheiði. Þá er einnig hálka og éljagangur víða á Vesturlandi og á Vestfjörðum. Ófært er á Hrafnseyrarheiði og Eyrarfjalli og óveður er á Steingrímsfjarðarheiði.

Verðbólga fer undir þolmörk

Verðbólga fer niður fyrir efri þolmörk verðbólgumarkmiða Seðlabankans í næsta mánuði ef verðbólguspá Greiningardeildar KB-banka gengur eftir.

Unglingspiltur keypti gas til að sniffa

Lögreglan á Selfossi fékk í síðustu viku ábendingu um unglingspilt sem keypti gas í verslun á Selfossi í þeim tilgangi að sniffa gasið. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni er vitað hver pilturinn er og hafa foreldrar hans verið látnir vita.

Lést í umferðarslysi

Maðurinn sem lést í alvarlegu umferðarslysi í Norðurárdal í Borgarfirði í gær hét Sigurður Jóhann Hendriksson. Sigurður Jóhann var fæddur í mars árið 1946 og lætur hann eftir sig eiginkonu og tvö uppkomin börn. Sigurður Jóhann var til heimilis að Reyrengi 32 í Reykjavík.

Sjá næstu 50 fréttir