Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Persónuvernd vill takmarka aðgang Persónuvernd telur að rafræn sjúkraskrá Landspítalans og heilsugæslunnar sé komin fram úr lögum. Í vor fengu allir læknar Landspítalans aðgang að öllum sjúkraskrám, í svokölluðu Sögukerfi óháð því hvaða kvilla væri verið að meðhöndla. 5.7.2005 00:01
Siðferðisþrek Samfylkingar þrotið "Að mínu viti er þetta merki um að siðferðisþrek Samfylkingarinnar sé á þrotum og þeim sé nær að líta í eigin barm en reyna að klóra í bakkann með dylgjum á borð við þessar," segir Jónína Bjartmarz, þingmaður Framsóknarflokksins. 5.7.2005 00:01
Verðstríð enn í gangi Hægt er að ganga út með tvo fulla innkaupapoka á verði eins eftir því hvar fólk verslar í matinn. Verðmunur á einstökum vörutegundum milli matvöruverslana getur numið meira en þúsund prósentum. Þetta kemur fram í könnun sem verðlagseftirlits ASÍ gerði í matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu síðastliðinn laugardag. 5.7.2005 00:01
Niðurskurður hjá RÚV Um síðustu mánaðamót var ákveðið að skera niður kostnað hjá Ríkisútvarpinu til að ná jafnvægi í rekstri stofnunarinnar á árinu. Um er að ræða flatan tveggja prósenta niðurskurð sem leggst jafnt á bæði útvarp og sjónvarp og á að spara fimmtíu milljónir króna. 5.7.2005 00:01
Dráttur afsalsins ekki útskýrður Framkvæmd húsakaupa Framsóknarflokksins af Keri er óheppileg, en ekki óeðlileg, að mati framkvæmdastjóra flokksins. Fimm ár liðu frá því samið var um kaup á húsinu, sem nú hýsir höfuðstöðvar flokksins, og þar til afsal var gefið út, eða á sama tíma og Búnaðarbankinn var seldur. 5.7.2005 00:01
Kona fær réttargæslumann Hæstiréttur sneri í gær fyrri úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur og skipaði konu réttargæslumann vegna ætlaðs heimilisofbeldis. 5.7.2005 00:01
Svara spurningum í ágúst Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri og Jón H. Snorrason, yfirmaður efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra, eru báðir í sumarfríi fram í ágúst. Hjá embættinu fengust þau svör að trúlega gætu þeir einir svarað spurningum tengdum rannsókninni á Baugsmálinu svokallaða, en komið hefur fram alvarleg gagnrýni á hana og eins á skipulag embættisins. 5.7.2005 00:01
Dæmdur fyrir húsbrot og hasssmygl Rúmlega tvítugur maður var dæmdur í níu mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í gær fyrir að hafa í apríl og maí í fyrra staðið að innflutningi á rúmlega 2,5 kílóum af hassi frá Danmörku. Hassið var falið í leikfangatraktor sem sendur var í pósti. 5.7.2005 00:01
Málsgögnum var skilað í gær Embætti Ríkislögreglustjóra lét í gær af hendi rannsóknargögn í Baugsmálinu svokallaða. Ákærur voru gefnar út á föstudag, en rannsókn lögreglu hefur staðið í tæp þrjú ár. Sex sæta ákæru, þar á meðal fyrrverandi og núverandi forstjóri Baugs, stjórnarmenn og tveir endurskoðendur. 5.7.2005 00:01
Efla þarf réttindagæslu Meintur fjárdráttur konu sem stýrði sambýli fyrir fatlaða í Reykjavík er litinn mjög alvarlegum augum hjá svæðisskrifstofu fatlaðra, ekki síst þar sem um stjórnanda var að ræða. Þar mun nú hugað að endurskipulagi verkferla. 5.7.2005 00:01
Vændi á Íslandi Menn frá Vestur-Afríku og Eystrasaltsríkjunum eru taldir hafa komið sér upp söluneti fíkniefna hér á landi. Í fíkniefnaheiminum er sagt að þeir svífist einskis og séu hluti af enn stærra neti sem teygi sig um allan heim. Óttast er að heróín berist hingað til lands innan tíðar. 5.7.2005 00:01
Lánastarfsemi Íbúðalánasjóðs Engin takmörk eru fyrir því hversu mikið Íbúðalánasjóður má lána íslenskum bönkum og sparisjóðum eftir að ný stefna um áhættustýringu tók gildi. Fyrri stefna var aðeins í gildi í nokkra mánuði þar sem höfundar hennar sáu ekki fyrir gríðarlegar uppgreiðslur íbúðalána vegna samkeppni frá bönkunum en sú upphæð nemur eitt hundrað og fimmtíu milljörðum. 5.7.2005 00:01
Baugur enn í Somerfield viðræðum Breskir fjölmiðlar telja að ákærur á hendur forsvarsmönnum Baugs þýði að félagið neyðist til að draga sig út úr hópi fjárfesta sem hyggjast festa kaup á stórverslanakeðjunni Somerfield. Forstjóri Baugs, Jón Ásgeir Jóhannesson, reynir nú að draga úr þeim skaða sem Baugsmálið gæti valdið félaginu. 5.7.2005 00:01
Uppstilling á R-lista Framsóknarmenn og Vinstri grænir í samráðshópi R-listans segja boltann vera hjá Samfylkingunni hvað varðar framhald viðræðna um uppstillingu á framboðslista. Tillögur sem framsóknarmenn lögðu fram í gær fóru ekki vel í samfylkingarmenn. 5.7.2005 00:01
Úttekt á peningaþvætti Innan skamms verður gerð úttekt á því hvernig Íslendingar séu í stakk búnir að takast á við alþjóðlegt peningaþvætti. Iðnaðarráðherra mun í samráði við dómsmálaráðherra móta hugmyndir um hvernig best sé að standa að málum. Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra kynnti málið á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun 5.7.2005 00:01
Geitungar á sveimi Geitungar hafa verið á sveimi á höfuðborgarsvæðinu og er geitungabú víða að finna. Ástandið er þó aðeins svipur hjá þeirri sjón sem blasti við fyrir tveimur árum.Það er ekki fyrir hvern sem er að ráðast til atlögu þegar geitungabúin eru annars vegar. Þessi hvimleiðu skordýr geta verið árásargjörn og það er ekki gott að vera stunginn af þeim. 5.7.2005 00:01
Viðræður hefjast í dag Viðræður um kostnaðarskiptingu vegna framtíðarvarnarsamstarfs Íslands og Bandaríkjanna á Keflavíkurflugvelli hefjast í dag. Viðræðurnar fara fram í Washington. 5.7.2005 00:01
Líðan eftir atvikum góð Fólkið sem lenti í gassprengingunni í Reykhólasveit um helgina liggur á lýtalækningadeild Landspítala - háskólasjúkrahúss og verður þar áfram um óákveðinn tíma. 5.7.2005 00:01
Býður hús fyrir störf að sunnan Viðræður eru hafnar milli Kaupfélags Eyfirðinga og iðnaðar- og viðskiptaráðuneytisins um flutning opinberra verkefna til Akureyrar. Jafnframt á KEA í viðræðum við einkafyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu um opnun starfsstöðva á Akureyri. 5.7.2005 00:01
Þristinum flogið aftur til útlanda DC-3 flugvélin Páll Sveinsson heldur í dag af stað í hringflug til Bretlands og Norðurlanda þaðan sem hann snýr aftur til Íslands. Flugið er farið til að minnast þess að í ár eru sextíu ár liðin síðan farþegaflug hófst milli Íslands og annarra landa. 5.7.2005 00:01
Á forsíðu Berlingske Mynd af Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, forstjóra Baugs Group, birtist á forsíðu Berlingske Tidende í Danmörku í gær með fyrirsögninni: "Eigandi Magasin ákærður fyrir blekkingar og skattsvik." 5.7.2005 00:01
Gassprenging í tjaldvagni Roskin hjón brenndust á höndum og andliti þegar gaskútur sprakk inni í tjaldvagna, sem þau voru í skammt frá Bjarkarlundi í Reykhólasveit í gærkvöldi. Svo vel vildi til að hjúkrunafræðingur var í grenndinni og gat komið þeim strax til hjálpar og kallað var eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar til að flytja fólkið til Reykjavíkur. 4.7.2005 00:01
Viðgerð hafin á ljósleiðara Viðgerðarmenn símans eru byrjaðir að gera við ljósleiðarann, sem rofnaði á milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar í gær vegna skriðufalla. Útsendingar ríkissjónvarpsins hafa legið niðri á sunnanverðum Austfjörðum vegna þessa. 4.7.2005 00:01
Gefa lóðir og greiða styrk Gjaldfrjáls leikskóli frá næsta hausti, fríar byggingarlóðir og byggingarframlag að upphæð 17.500 krónur á fermetrann er lausn sveitarstjórnarinnar í Súðavík til að fjölga íbúum bæjarins um fjörutíu næstu fimm árin. 4.7.2005 00:01
Vatnsveður og umferð um helgina Ljóst er að tjón sem varð í vatnsveðrinu á Austfjörðum í gær nemur mörgum milljónum króna. Þó nokkuð af vegfarendum um Vesturland sluppu án meiriháttar meiðsla í slysum, sem rakin eru til óveðursins. 4.7.2005 00:01
Nauðganir um helgina Beðið er eftir rannsóknargögnum í báðum nauðgunarmálunum sem komu upp um helgina. Maður er grunaður um nauðgun á Höfn í Hornafirði, en enginn hefur verið handtekinn vegna nauðgunar í Ólafsvík. 4.7.2005 00:01
Krefjast skattalækkunar á bensín Félag íslenskra bifreiðaeigenda ætlar að fara fram á við íslensk stjórnvöld að dregið verði úr skattlagningu á eldsneyti í ljósi síhækkandi heimsmarkaðsverðs. 4.7.2005 00:01
KPMG ver endurskoðanda Baugs Það er mat KPMG endurskoðunar, að endurskoðandi félagsins, sem áritaði ársreikninga Baugs fyrir árin 2000 og 2001 hafi sinnt starfsskyldum í samræmi við lög, en hann hefur verið ákærður fyrir lögbrot. 4.7.2005 00:01
Fólk veit lítið um ráðherra Um það bil helmingur landsmanna hefur ekki hugmynd um hvaða ráðherra gegnir hvaða ráðherraembætti, samkvæmt könnun, sem Morgunblaðið greinir frá. Vitneskja fólks er greinilega mismunandi eftir aldri og menntun. Þannig veit fleira roskið fólk og menntað fólk hvaða ráðherra gegnir hvaða embætti og fleiri karlar hafa það á hreinu en konur. 4.7.2005 00:01
Hlutabréf greidd í dag Bjarni Ármannsson, forstjóri Íslandsbanka, og aðrir lykilstjórnendur sem keyptu nýverið hlutabréf í bankanum fyrir þrjá komma tvo milljarða króna eiga að greiða fyrir kaupin í dag. 4.7.2005 00:01
Kortafyrirtæki styrkir sendiráð Bandaríkjamenn halda upp á þjóðhátíðardag sinn, fjórða júlí, í dag, og af því tilefni bjóða sendiherrar Bandaríkjanna um allan heim, völdum mönnum úr hópi innfæddra til teitis í sendiráðum sínum síðdegis. 4.7.2005 00:01
Stálpípuverksmiðja í Helguvík? Forsvarsmönnum Stálpípuverksmiðjunnar í Helguvík hefur verið gefinn lokafrestur út mánuðinn til að klára fjármögnun verksmiðjunnar. Liðin eru rúm þrjú ár frá því forsvarsmenn International Pipe and Tube og Ellert Eiríksson þáverandi bæjarstjóri skrifuðu undir samninga um byggingu verksmiðjunnar í Helguvík. 4.7.2005 00:01
Óheimilt að gera verðkönnun Fréttablaðinu er óheimilt að framkvæma verðkönnun í fríhafnarverslunum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og ganga þannig úr skugga um að yfirlýsingar forsvarsmanna hennar um verðlag og samkeppnishæfi stöðvarinnar séu réttar. 4.7.2005 00:01
Allt fyrir Clint Tugir ungra manna fylgdu eftir ameríska draumnum og mættu í áheyrnarprurfur í Keflavík í gærkvöldi fyrir stórmynd Clint Eastwood, Flags of our fathers. Leitað var að aukaleikurum í myndina og þeir sem verða valdir munu leika hermenn í myndinni. 4.7.2005 00:01
Fjármálaeftirlitið samþykkir kaup Fjármálaeftirlitið hefur samþykkt kaup eignarhaldsfélagsins Milestone á 66,6 prósenta hlut í Sjóvá af Íslandsbanka. Samkeppnisstofnun hefur einnig samþykkt kaupin og verður Sjóvá því ekki hluti af samstæðureikningi Íslandsbanka á öðrum ársfjórðungi heldur bókað sem hlutdeildarfélag. 4.7.2005 00:01
Íslenska vinsæl hjá útlendingum Í dag, mánudaginn 4. júlí hefst fjögurra vikna alþjóðlegt sumarnámskeið í íslensku í Háskóla Íslands. Námskeiðið er einkum ætlað erlendum háskólastúdentum. Stofnun Sigurðar Nordals gengst fyrir námskeiðinu í samvinnu við hugvísindadeild Háskóla Íslands og annast skipulagningu þess. 4.7.2005 00:01
Hagnaðaraukning í Kauphöllinni Hagnaður 18 félaga í Kauphöll Íslands verður rúmir 40 milljarðar króna á öðrum ársfjórðungi þessar árs og er það 237 prósent meiri hagnaður en á sama tíma í fyrra. Þessu spáir greiningardeild KB banka í riti um þróun og horfur á hlutabréfamarkaðnum. 4.7.2005 00:01
24 sækja um forstjórastöðu Tuttugu og fjórir sóttu um embætti forstjóra nýrrar landbúnaðarstofnunar sem tekur til starfa á Selfossi um næstu áramót. Forstjórinn verður skipaður frá 1. ágúst og mun hann ráða allt starfsfólk stofnunarinnar. Um 50 manns munu starfa hjá stofnuninni. 4.7.2005 00:01
Mesta úrkoma í þrjá áratugi 33 ár eru síðan Akureyringar máttu þola vætusamari júnímánuð en þann sem er nýbúinn. Úrkoman mældist 55 millímetrar í síðasta mánuði og er það tvöfalt meira en meðalúrkoman á þessum árstíma. Fara þarf aftur til ársins 1972 til að finna dæmi um meiri úrkomu á Akureyri í júní, þá var úrkoman 112 millímetrar. 4.7.2005 00:01
Ökumaður pallbíls lést í árekstri Ökumaður pallbíls lést er hann lenti í árekstri við rútu á Biskupstungnabraut við Minni Borg í Grímsnesi rétt fyrir klukkan tvö í dag. Ökumaðurinn er talinn hafa látist samstundis. Fjörtíu og fjórir erlendir ferðamenn voru í rútunni og voru þrír þeirra fluttir á slysadeild Landspítala Háskólasjúkrahúss í Fossvogi. 4.7.2005 00:01
Samskip kaupir Seawheel Samskip hafa keypt breska skipafélagið Seawheel og verður rekstur þess sameinaður gámaflutningastarfsemi Samskipa í Evrópu. Fyrr á árinu keyptu Samskip hollenska flutningafyrirtækið Geest North Sea Line og varð félagið þar með eitt stærsta gámaflutningafélag í siglingum innan Evrópu. 4.7.2005 00:01
Sólarstundir í Reykjavík í júlí Sólarstundir í Reykjavík í júní voru 208 og er það 40 stundum meira en í meðalári. Þá var júnímánuður einni og hálfri gráðu hlýrri en í meðalári, en meðalhitinn var tíu og hálf gráða, að því er kemur fram í tíðarfarsyfirliti frá Veðurstofunni. 4.7.2005 00:01
Þorkell forstöðumaður Þorkell Ágústsson hefur verið skipaður forstöðumaður Rannsóknarnefndar flugslysa frá 1. september 2005. 4.7.2005 00:01
Sólheimakirkja vígð Sólheimakirkja var vígð á sunnudag en bygging hennar hófst í ágúst 2002. 4.7.2005 00:01
Sótt um lóðir í Þingahverfi Á milli tvö og þrjú þúsund manns sóttu um lóðir fyrir rúmlega 200 íbúðir í landi Kópavogs, svokölluðu Þingahverfi á Vatnsenda. Byrjað var að úthluta gögnum vegna lóðanna fyrir þremur vikum, en frestur til að skila inn gögnum rann út klukkan þrjú í dag. Að sögn fulltrúa á skrifstofu bæjarskipulags Kópavogs er gert ráð fyrir að niðurstða liggi fyrir í ágúst. 4.7.2005 00:01