Fleiri fréttir

Tveggja manna ákvörðun segir Guðni

Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins, segir ákvörðunina um veru Íslands á lista hinna staðföstu þjóða orka tvímælis. Tveir menn hafi tekið þá ákvörðun. Kristinn H. Gunnarsson alþingismaður segir að ráðherrann sé með ummælum sínum að treysta stöðu sína fyrir flokksþing Framsóknarflokksins í febrúar.

Geðröskun eitt stærsta vandamálið

Vaxandi fjöldi barna með geðræn vandamál er einn stærsti vandi skólanna í dag þrátt fyrir að íslensk börn noti geðlyf í mun meira mæli en jafnaldrar þeirra annars staðar á Norðurlöndunum. Arthúr Morthens, sviðsstjóri hjá Fræðslumiðstöð Reykjavíkur, segir að líffræðilegir og félagslegir þættir valdi mestu um þessa fjölgun en heimilin séu í veikari stöðu en áður.

Sjónvarpsmenn með auglýsingabónus

Starfsmenn auglýsingadeildar Ríkisútvarpsins skipta með sér hluta af tekjum stofnunarinnar þegar ákveðnu og fyrirfram ákveðnu marki í auglýsingasölu hefur verið náð. Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri sér ekkert athugavert við þennan bónus ríkisstarfsmannanna og Lárus Guðmundsson auglýsingastjóri segir þetta bara vera tíkalla.

Kókaínkafteinn með hreint vottorð

Ómar Örvarsson, skipstjórinn á dópskipinu Hauki ÍS, framvísaði hreinu sakavottorði stuttu eftir fangelsisvist fyrir að reyna að smygla 14 kílóum af kókaíni. Kristinn Sigurðsson hjá Sendibílastöðinni, þar sem Ómar vann um skamma hríð, segir vinnuveitendur berskjaldaða fyrir því ef menn hafa brotið af sér í útlöndum án þess að það sjáist á sakaskrá.

Minningin lifir alltaf

Uppbyggingarstarfi í Súðavík er að mestu lokið, nú þegar tíu ár eru liðin upp á dag frá því að snjóflóð tætti byggðina í sundur í ofsaveðri árið 1995. Byggðin hefur verið flutt á öruggt svæði og samheldni einkennir bæjarbraginn. Berglind Kristjánsdóttir, sem missti þrjú börn í flóðinu, segir að minning þeirra fylgi henni alltaf og hún reyni stöðugt að finna sér tilefni til að hlakka til.

Yfirlýsingin bíður birtingar

Yfirlýsing Þjóðarhreyfingarinnar þar sem framgöngu íslenskra stjórnvalda í Íraksmálinu er mótmælt mun birtast í vikunni í bandaríska dagblaðinu New York Times.

Heimsmeistarar í dýrauppstoppun?

Íslendingar gætu eignast heimsmeistara í uppstoppun dýra á næstunni. Tveir hamskerar halda utan bráðlega með glæsilegan smyril og toppskarf í farteskinu í þeirri von að sigra heiminn. Stöð 2 tók hús á öðrum þeirra og kynntist undraveröld uppstoppaðra dýra.

Samhugur sem á vart sinn líka

Landssöfnunin Neyðarhjálp úr norðri gekk vonum framar en alls voru gefnar um 110 milljónir króna. Aldrei hefur jafn mikið fé safnast hérlendis ef safnanir vegna snjóflóðanna á Vestfjörðum eru undanskildar.

Látinna minnst í gær

Guðsþjónustur voru haldnar í íþróttahúsinu í Súðavík og í Lágafellskirkju í gær til minningar um þá sem létust í snjóflóðinu fyrir tíu árum.

Tannhirða ungs fólks misjöfn

Rúmur þriðjungur fólks á aldrinum 19 til 24 ára fer sjaldan til tannlæknis, meðan 60,8 prósent fara árlega, að því er fram kemur í könnun Tannlækningastofnunar Háskólans. 2,1 prósent segjast hins vegar aldrei heimsækja tannlækninn.

Gamalt gen ræður frjósemi fólks

Vísindamenn Íslenskrar erfðagreiningar lýsa uppgötvun á 3 milljóna ára gamalli umhverfu á litningi 17 í grein sem birtist í gær á vef virts erfðafræðitímarits, Nature genetics. Þeir sem umhverfuna bera í erfðamengi sínu eignast að meðaltali fleiri börn en aðrir.

Sprengdu þakskyggni

Þrír tvítugir piltar voru handteknir í Reykjavík klukkan kortér fyrir eitt í fyrrinótt eftir að hafa sprengt rakettu fyrir utan veitingastaðinn American Style í Skipholti.

Bílvelta í Ásahreppi

Ökumaður jeppa meiddist lítillega í fyrrinótt í bílveltu á Suðurlandsvegi, rétt austan við afleggarann að Ásmundarstöðum í Ásahreppi.

Hnúfubakur á miðunum

Loðnuveiðar hafa gengið vel síðustu sólarhringa, þrátt fyrir að leiðindaveður hafi verið á miðunum austur af Langanesi, og er loðnu nú landað allt frá Siglufirði, austur um land og suður til Vestmannaeyja.

Keyrði næstum undir flutningavagn

Litlu mátti muna að alvarlegt umferðarslys yrði á Selfossi á hádegi í gær þegar malarflutningavagn rann þvert á móti umferð.

Lög flokksins heimila vorþing

Vaxandi líkur eru á vorþingi Samfylkingar. Össur og Ingibjörg sætta sig bæði við að landsfundi verði flýtt. Tímasetningin var rædd í framkvæmdastjórn flokksins. Formaður er kosinn í póstkosningu og úrslit tilkynnt á landsfundi.

Ný þjónusta við börn í vanda

Tekin hefur verið ákvörðun af Heilbrigðis- og tryggingaráðuneytinu um að ný þjónusta við börn sem stríða við geðrænan vanda verði hluti af heilsugæslunni í Grafarvogi sem er fjölmennasta barnahverfi landsins.

Svamla í söltum sjó fyrir söfnun

Félagar í Sjósundfélagi Íslands efna í dag til sjósundsmaraþons en framtakið er liður í landssöfnuninni Neyðarhjálp úr norðri. Að sögn Benedikts Lafleur, formanns Sjósundfélagsins, ætla sundmennirnir að skiptast á að vera í sjónum í stutta stund í einu þar sem sjávarhiti er afar lágur á þessum árstíma, aðeins um tvær gráður.

Sjónvarpssafnanir víða um heim

Belgar luku í gær þriggja vikna söfnunarátaki til hjálpar þeim sem eiga um sárt að binda eftir hamfarirnar í Asíu og á austurströnd Afríku. Í gærmorgun höfðu safnast 1,7 milljarðar króna og sú tala hækkaði jafnt og þétt eftir því sem leið á daginn og fór yfir tvo milljarða.

Hvítasunnumenn gegn R-listanum

Ásakanir Alfreðs Þorsteinssonar á hendur hvítasunnumönnum vekja spurningar hvort fámennir hópar geti náð tangarhaldi á stjórnmálaflokkum. </font /></b />

Og fjallið það öskrar

Það var dimmt yfir Álftafirði fyrri part viku. Kalt í veðri og strekkingsvindur. Alhvítur snjórinn hafði ekki aðeins lagst af þunga yfir byggðina heldur líka á sálir fólksins. Það minntist hamfaranna ógurlegu 1995. Hafði ekki séð annan eins snjó síðan þá.

Allir gerðu miklu meira en þeir gátu

Sigríður Hrönn Elíasdóttir var sveitarstjóri í Súðavík þegar snjóflóðin féllu 1995. Áður hafði hún, í samráði við sýslumann og sérfræðinga Veðurstofunnar, látið rýma nokkur hús í þorpinu enda vofði snjóflóðahættan yfir. Það dugði ekki til. Flóðið féll annars staðar en reiknað var með og varð stærra og ógurlegra en áður hafði sést í Álftafirði. </font /></b />

Tíminn læknar ekki öll sár

Súðvíkingurinn Ómar Már Jónsson hefur verið sveitarstjóri Súðavíkurhrepps í rúm tvö ár. Hann var skipverji á Bessanum þegar flóðin féllu fyrir áratug. Ómar er bjartsýnn á framtíð Súðavíkur og segir stemninguna einstaka, sérstaklega yfir sumartímann, þegar íbúafjöldinn margfaldast. Gamla byggðin iðar þá af lífi og fjöri.

Enn hungurdauði svartfugla

Hungurdauði svartfugla er farinn að gera vart við sig fjórða veturinn í röð segir í Morgunblaðinu. Hafa veiðimenn tilkynnt um dauðan eða deyjandi svartfugl við Þórshöfn á Langanesi, í Eyjafirði, Skagafirði og Vestmannaeyjum og úti fyrir Hofsósi hafa sjómenn séð svartfugl á reki.

Á slysadeild með reykeitrun

Slökkvilið á Akureyri var kallað út í bruna í íbúðarhúsi við Hafnarstræti laust fyrir klukkan ellefu í gærkvöld. Íbúi á efri hæð hússins hafði orðið var við eld á neðstu hæðinni þar sem áður var skemmtistaðurinn H-100. Ung stúlka var flutt á slysadeild með reykeitrun.

Flughálka í uppsveitum Árnessýslu

Flughálka er víða í uppsveitum Árnessýslu. Hálka er á Hellisheiði og í Þrengslum. Snjóþekja er á Holtavörðuheiði og snjóþekja og éljagangur á Vatnsskarði. Hálka er á Öxnadalsheiði og snjóþekja á Mývatnsheiði, Mývatnsöræfum og Fjarðarheiði. Verið er að moka Vatnsskarð eystra og Breiðdalsheiði. Öxi er ófær.

Krefur Impregilo um 3 milljónir

Viðskiptafræðingur sem starfaði fyrir Impregilo hefur stefnt fyrirtækinu og krafist rúmra þriggja milljóna króna vegna vangoldinna laun og uppsagnarfrests. Fleiri dómsmál kunna að vera í undirbúningi vegna skrifstofustarfa fyrir fyrirtækið. 

Skíðasvæði opin víða um land

Opið er á skíðasvæðum víða um land, þ.á m. á Akureyri, Siglufirði, við Sauðárkrók, í Bláfjöllum, Skálafelli og í Hengli. Færið er víðast hvar mjög gott.

Heilbrigðisþjónusta við börn bætt

Heilbrigðisráðherra segir áríðandi að bæta heilbrigðisþjónustu við börn sem stríða við þunglyndi og aðrar geðraskanir. Vandamálið stafar að hluta til af örum samfélagsbreytingum, að mati heilsugæslulæknis, sem segir að of fá börn séu meðhöndluð.

60 milljóna skaðabótakrafa

Hæstiréttur fyrirskipaði í gær Héraðsdómi Vesturlands að taka til meðferðar sextíu milljóna króna skaðabótakröfu Sigurjóns Sighvatssonar á hendur Hótel Búðum og fleirum.

Söfnunin í fullum gangi

Landssöfnunin Neyðarhjálp úr norðri fyrir fórnarlömb flóðbylgjunnar í Asíu er í fullum gangi og nær hámarki með sameiginlegri útsendingu þriggja sjónvarpsstöðva í kvöld. Elín Þ. Þorsteinsdóttir, verkefnisstjóri söfnunarinnar, segir dagskrá verða í Kringlunni, Smáralindinni og á Glerártorgi á Akureyri í dag þar sem landsþekkt fólk mun koma fram.

Úrræði vegna heimilisofbeldis fá

Úrræði vegna heimilisofbeldis eru af skornum skammti úti á landi samanborið við höfuðborgarsvæðið. Á þetta bendir Sif Konráðsdóttir hæstaréttarlögmaður í tengslum við fréttir Stöðvar 2 um að nálgunarbann, sem sett var á ofbeldisfullan sambýlismann konu í Vestmannaeyjum, hafði lítið að segja.

Skemmdarverk unnin á níu bílum

Unnin voru skemmdarverk á níu bifreiðum í Keflavík í nótt. Brotnir voru speglar á þremur þeirra, hægra afturljós var brotið á tveimur, hliðarrúða brotin í einum bíl, framrúða í einum og afturrúður voru brotnar í tveimur bílum. Bílarnir stóðu allir við Hátún og Sóltún í Keflavík.

Annað útkallið á hálfum sólarhring

Slökkviliðið á Akureyri var kallað út rétt fyrir hádegi í dag vegna elds sem logaði í húsi við Svalbarðseyri. Húsið er stórt gamalt steinhús sem ekki er búið í að staðaldri og var mannlaust þegar eldurinn kviknaði. Þetta var annað útkallið hjá slökkviliðinu á Akureyri á hálfum sólarhring.

Jarðskjálftahrina við Reykjanes

Jarðskjálftahrina varð í morgun um 5-10 kílómetra suðvestur af Reykjanesi. Stærsti skjálftinn var 3,7 á richter og sá næsti 3,3 stig. Þá var einn 2,9 en aðrir til mun minni. Nú hefur dregið úr hrinunni en um tuttugu skjálftar hafa mælst.

Tíu ár liðin frá snjóflóðinu

Á morgun verða tíu ár liðin frá því snjóflóð féll á byggðina í Súðavík með þeim afleiðingum að fjórtán manns fórust. Í tilefni þess verður haldin minningarguðsþjónusta í íþróttahúsinu í Súðavík og hefst hún klukkan 14. Kirkjugestum er boðið að tendra á kertum við athöfnina til minningar um hina látnu.

Þyrla sækir mann á Esjuna

Þyrla Landhelgisgæslunnar var að leggja af stað til að ná í slasaðan mann á Esjunni. Maðurinn féll ofarlega í fjallinu og slasaðist en ekki er vitað hversu alvarleg meiðslin eru.

Helstu þjóðvegir færir

Allir helstu þjóðvegir landsins eru færir. Nokkur snjókoma eða éljagangur er á Holtavörðuheiði, Bröttubrekku og á Norðurlandi vestra. Hálka er á vegum um allt land og flughálka í uppsveitum Árnes- og Rangárvallasýslu.

Samskip opna nýjar höfuðstöðvar

Samskip taka í notkun nýjar höfuðstöðvar með athöfn í kvöld. Þær verða í 28 þúsund fermetra nýbyggingu við Kjalarvog. Þar verður undir einu þaki öll starfsemi Samskipa á höfuðborgarsvæðinu. Fyrsta skóflustungan var tekin síðsumars 2003.

Lá bjargarlaus í klukkustund

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út til að ná í slasaðan mann á Esjunni fyrr í dag. Maðurinn, sem var einn á ferð, hrapaði í klettabeltinu við Þverfellshorn og hafði legið í um klukkustund að því er talið er þegar fólk gekk fram á hann og kallaði á aðstoð. Tilkynningin barst neyðarlínunni klukkan 13.45 og lagði sjúkralið þegar af stað.

Eldur í Mosfellsbæ

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út vegna elds að Tröllateigi í Mosfellsbæ í gærkvöldi. Þar logaði eldur í nýbyggingu. Ekki var um mikinn eld að ræða og ekki urðu miklar skemmdir. Eldurinn náði að læsa sig í einangrun þannig að hætta var á eitruðum reyk en vel gekk að slökkva eldinn og varð engum meint af.

Kosningin styrkir Samfylkinguna

Formaður Ungra jafnaðarmanna segir að formannskosning milli Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur og Össurar Skarphéðinssonar styrki Samfylkinguna þegar fram í sækir. Flokkurinn sé stærri en þau bæði en uppgjör sé óumflýjanlegt. Hann vill að næsti varaformaður komi úr hópi unga fólksins.

Þriggja daga spáin var vitlaus

Þriggja daga veðurspá fyrir Norðurlöndin, áður en óveðrið mikla skall á fyrir rúmri viku, var arfavitlaus. Veðurskilyrðin suðvestur af Íslandi voru önnur en komu fram á reiknilíkani Evrópsku veðurstofunnar, sem staðsett er í Englandi.

Eðlilegt að spár breytist

"Veðurspáin fyrir illviðrið í Skandinavíu stóðst ótrúlega vel og allar viðvaranir í sambandi við það voru góðar. Mér finnst það ekki frétt þó að þriggja daga spáin hafi ekki skilað sér," segir Magnús Jónsson veðurstofustjóri og segir spár oft breytast ótrúlega mikið frá degi til dags.

Þyrla kom til hjálpar

55 ára karlmaður hlaut skurði á höfði og brotið hné er honum varð fótaskortur í klettabelti í Esjunni í gær og hrapaði um 20 metra. Hann var sóttur á þyrlu.

Sjá næstu 50 fréttir