Innlent

Tveggja manna ákvörðun segir Guðni

Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins, segir ákvörðunina um veru Íslands á lista hinna staðföstu þjóða orka tvímælis. Tveir menn hafi tekið þá ákvörðun. Kristinn H. Gunnarsson alþingismaður segir að ráðherrann sé með ummælum sínum að treysta stöðu sína fyrir flokksþing Framsóknarflokksins í febrúar. Guðni sagði við Fréttablaðið í dag að ákvörðunin um að Ísland yrði á lista hinna staðföstu þjóða sem styddu innrásina í Írak hefði verið tekin af tveimur mönnum, það er formönnum stjórnarflokkanna. Hann bætti svo um betur í viðtali í Sunnudagsþættinum á Skjá einum í dag og sagðist ekki vita af hverju þeir hafi tekið þessa ákvörðun. „Þeir verða bara að verja sig í því,“ sagði Guðni og bætti við að að sínu mati orkaði hún tvímælis. Hins vegar væri ljóst að Saddam Hussein væri enginn gæðadrengur. Guðni sagðist styðja innrásina í viðtali við Fréttablaðið þann 26. mars 2003. Orðrétt sagði Guðni: „Framsóknarmenn eru eins og allir Íslendingar andvígir stríði og manndrápum. Ég styð þetta stríð á hendur Saddam Hussein en ber harm í brjósti þegar til slíkrar orustu er lagt.“ Þá segir blaðið: „Guðni segist styðja Halldór Ásgrímsson, formann sinn, í þessu máli og hann telur að rétt hafi verið af Íslendingum að skipa sér á bekk með þeim þjóðum sem standa með bandamönnum í stað þess að leita samkomulags innan Sameinuðu þjóðanna um aðgerðir gegn Írak.“ Kristinn H. Gunnarsson alþingismaður, sem hefur lýst andstöðu við stuðning Íslands frá upphafi, segir að yfirlýsingar Guðna Ágústssonar nú, skömmu fyrir flokksþing Framsóknarflokksins, beri ekki vott um mikið pólitískt hugrekki. Það sé dapurlegt að hann hafi kosið að þegja í tvö ár en tala nú þegar hann þurfi endurnýjað umboð til starfa. Kristinn kveðst spyrja sig hvernig jafn valdamikill maður og varaformaður flokksins geti leyft sér að þegja allan þennan tíma og beita sér ekki til að fylgja eftir þeim sjónarmiðum sem hann var kosinn sérstaklega til að vera fulltrúi fyrir.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×