Innlent

Samhugur sem á vart sinn líka

Landssöfnunin vegna hamfaranna í Asíu, Neyðarhjálp úr norðri, sem náði hápunkti á laugardagskvöldið, gekk vonum framar. 110 milljónir króna söfnuðust í átakinu. Aldrei hefur svo miklum fjármunum verið safnað hérlendis handa þeim sem eiga um sárt að binda erlendis. Alls létu Íslendingar því 225 milljónir króna af hendi rakna til viðbótar við milljónirnar 150 sem ríkisstjórnin leggur fram. "Þetta kom öllum þeim sem að þessu stóðu algerlega í opna skjöldu, þetta fór fram úr björtustu vonum," segir Elín Þ. Þorsteinsdóttir verkefnisstjóri um þessi sterku viðbrögð. "Það sem er efst í huga er mikið þakklæti til allra sem lögðu sitt af mörkum, fyrir örlæti og hlýhug. Við vitum að þúsundir manna eiga um sárt að binda og við lögðum okkar af mörkum til að bæta líðan þessa fólks." 22.500 manns hringdu í söfnunarnúmerin þrjú og gáfu 49 milljónir. Fyrirtæki, félagasamtök og sveitarfélög gáfu sömuleiðis af miklum myndarskap, auk einstaklinga sem hringdu í 755-5000 og reiddu fram stærri framlög. Segir Elín dæmi um fjölskyldur sem gáfu allt að 100.000 krónur. Jónas Þórisson, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar, segir að aldrei hafi jafn mikið fé safnast hér á landi handa bágstöddum erlendis, einna helst sé hægt að bera þessa söfnun saman við Samhug í verki, landssöfnun sem efnt var til vegna snjóflóðanna á Súðavík og Flateyri árið 1995. Þá safnaðist tæpur hálfur milljarður króna í tveimur söfnunarlotum. "Samhugurinn nú er svipaður og náðist í þessum söfnunum þegar þjóðin sjálf varð fyrir hörmungum. Mér finnst afskaplega ánægjulegt að upplifa að við getum líka sýnt þennan samhug þegar fólk í fjarlægum löndum lendir í slíkum hamförum," segir Jónas en hann var einn forsvarsmanna Samhugar í verki á sínum tíma. Búist er við að ráðstöfun fjárins hefjist strax í þessari viku, fyrst til neyðaraðstoðar en síðan til uppbyggingarstarfs á hamfarasvæðunum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×