Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fjögur ungmenni handtekin Tvö minni háttar fíkniefnamál komu upp á Selfossi aðfaranótt laugardags. 15.1.2005 00:01
Tíu ár frá snjóflóðinu í Súðavík Á morgun eru tíu ár liðin frá snjóflóðunum í Súðavík sem hrifu með sér fjórtán mannslíf. Tólf slösuðust en þrjátíu og fjórir björguðust. 15.1.2005 00:01
Margir brutu bein Mikið var um beinbrot og önnur meiðsl vegna hálku í gær, að sögn vakthafandi læknis á slysadeild Landspítala. 15.1.2005 00:01
Líkamshitinn kominn niður í 34° Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti mann sem hrapaði í hlíðum Esjunnar í dag. Maðurinn var orðinn kaldur og hrakinn og líkamshiti hans kominn niður í 34 gráður þegar vegfarendur komu að honum.</font /> 15.1.2005 00:01
110 milljónir króna söfnuðust Nú fyrir stundu höfðu safnast 110 milljónir króna í landssöfnuninni "Neyðarhjálp úr norðri". Beinni útsendingu Stöðvar 2, Sjónvarpsins og Skjás eins lauk fyrir stundu og sátu tugir manna við símann og tóku á móti framlögum. <strong>Síminn er 755 -5000</strong> og er enn hægt að hringja inn framlög. Einnig er hægt að hringja í síma <strong>901- 1000, 3000 og 5000</strong> og skuldfærist þá samsvarandi upphæð af símreikningi. 15.1.2005 00:01
Aldrei safnast meira "Þetta er fram úr okkar björtustu vonum," segir Elín Þ. Þorsteinsdóttir verkefnisstjóri um viðbrögð almennings við söfnuninni Neyðarhjálp úr norðri. "Ég held að þetta séu þau bestu viðbrögð sem við höfum upplifað í söfnun." 15.1.2005 00:01
Ríkið niðurgreiðir rafmagnið Garðyrkjubændur og fiskvinnslufyrirtæki eru uggandi vegna hækkunar á raforkuverði til þeirra. Ný raforkulög heimila ekki að dreifingarkostnaði til þerra sé velt yfir á aðra notendur. Útlit er fyrir að ríkið taki á sig niðurgreiðsluna. 15.1.2005 00:01
Meiri sala eftir erlenda umfjöllun Mikil umfjöllun um Ísland erlendis gerir ferðaskrifstofum auðveldara fyrir að selja ferðir til landsins, segir Þráinn Vigfússon, framkvæmdastjóri Kynnisferða. Hann segir stöðugt fjölga erlendu ferðafólki sem kjósi að sækja landið heim að vetri til. 15.1.2005 00:01
Stærsti skjálftinn 3,7 Snörp jarðskjálftahrina varð 5 til 10 kílómetra suðvestur af Reykjanesi í gærmorgun. Stærsti skjálftinn sem mældist var 3,7 á Richter-kvarða og sá næststærsti 3,3 stig. Þá varð einn skjálfti sem mældist 2,9 á Richter. Hrinunni fylgdi fjöldi eftirskjálfta, en til muna hefur dregið úr virkni að sögn Veðurstofunnar. 15.1.2005 00:01
Guðni segir slag óheppilegan Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins, segir að átök um embættið á flokksþingi í næsta mánuði væru óheppileg. Hann segist þó ekki óttast mótframboð. 15.1.2005 00:01
Fljúgandi hálka víða um land Fljúgandi hálka er víða um land eftir að rigna tók á svellbunka og hafa nokkur umferðaróhöpp þegar orðið en hvergi alvarleg slys. Bíll valt í gærkvöldi á þjóðveginum austan við Selfoss og annar í Þrengslum án þess að nokkurn sakaði alvarlega. 14.1.2005 00:01
ÍÚ og Frétt heita nú 365 Íslenska útvarpsfélagið og Frétt hafa fengið ný nöfn, 365 - ljósvakamiðlar og 365 - prentmiðlar. Nýju nöfnin eru liður í samþættingu rekstrar félaganna. Nýtt skipurit var kynnt á starfsmannafundi í morgun og er því ætlað að tryggja sjálfstæði og fjölbreytileika fjölmiðla en sækja styrk í samþættingu rekstrar, markaðs- og sölustarfs. 14.1.2005 00:01
Fok víða um land Björgunarsveitarmenn voru kallaðir út í Grindavík í nótt til að hemja fok af þaki fjárhúss í svonefndu Bakkalá fjárhúsahverfi. Þeir náðu að hefta frekara fok, eftir því sem best er vitað, og mun enga kind hafa sakað. 14.1.2005 00:01
Ekið á hross og hreindýr Fjögur hross drápust en ökumaður og farþegi sluppu ómeiddir þegar stórum sendibíl var ekið á hrossahóp á þjóðveginum í Víðidal í Austur-Húnavatnssýslu í gær. Bíllinn skemmdist mikið. 14.1.2005 00:01
Snjóflóðahætta á Patreksfirði Sex íbúðarhús voru rýmd á Patreksfirði nú fyrir hádegið vegna snjóflóðahættu en flóð féll úr hlíðinni fyrir ofan bæinn í morgun og niður á götuna Mýrar. Engin hús eða mannvirki eru þar sem flóðið féll þótt það sé innan byggðarinnar. 14.1.2005 00:01
Sjúkrarúmum fjölgað vegna flensu Starfsfólk Landspítalans vinnur nú hörðum höndum að því að fylla hvern krók og kima í húsnæði spítalans af sjúkrarúmum til að geta hýst þá sjúklinga sem streyma inn vegna flensu og annarra pesta. 14.1.2005 00:01
Engin beiðni frá þýsku lögreglunni Engin beiðni hefur enn borist frá þýsku fíkniefnalögreglunni um aðstoð starfsbræðra hennar á Íslandi við að upplýsa smyglmálið sem tengist togaranum Hauki. Fíkniefnadeild Lögreglunnar í Reykjavík hefst því ekkert sérstakt að í málinu að svo komnu. 14.1.2005 00:01
Álagningarhlutfall verði lækkað F-listinn í borgarstjórn vill að álagningarhlutfall fasteignagjalda í Reykjavík verði lækkað þannig að raunhækkun fasteignagjalda verði ekki umfram hækkun launavísitölu. Fasteignamat á sérbýli hækkaði um áramót um 20% og um 14% í fjölbýli og ákvað borgarstjórnarmeirihlutinn í ljósi þess að hækka ekki sjálft álagningarhlutfall fasteignagjalda. 14.1.2005 00:01
Andvirði æfingagjalda í söfnun Stjórn Knattspyrnufélags Siglufjarðar hefur ákveðið að innheimta ekki æfingagjöld yngri flokka vegna vorannar 2005 og hvetur þess í stað foreldra barna hjá félaginu að hringja í söfnunarsíma og láta andvirði æfingagjalda renna til landssöfnunarinnar “Neyðarhjálp úr Norðri” vegna hamfaranna í Asíu. 14.1.2005 00:01
Impregilo vildi ekki funda með ASÍ Fundur var haldinn í félagsmálanefnd Alþingis í morgun til þess m.a. að fjalla um ágreining ASÍ og Impregilo. Gert var ráð fyrir að fulltrúar ASÍ og Impregilo yrðu samtímis á fundinum en þegar til kastanna kom neituðu fulltrúar Impregilo með öllu að sá háttur yrði hafður á og fengu það í gegn. 14.1.2005 00:01
Nær til átta milljón heimila Tveir íslenskir athafnamenn hafa tryggt sér dreifingarrétt á nýrri sjónvarpsstöð sem áformað er að muni ná til átta milljóna heimila í Skandinavíu fyrir árslok 2006. Áætlaður heildarkostnaður við verkefnið er 750 milljónir króna á fimm árum. 14.1.2005 00:01
Samstarf við Norðurljós skilyrði Hallgrímur Thorsteinsson segir fimm milljóna króna lán sem Arnþrúður Karlsdóttir fékk hjá Jóhannesi Jónssyni hafa verið bundið skilyrðum um að Útvarp Saga færi í samstarf við Norðurljós. Arnþrúður segir lánið hins vegar engum skilyrðum hafa verið bundið. 14.1.2005 00:01
520 þúsund safnað í Grundarfirði Rúmlega 520 þúsund krónur söfnuðust þegar söfnunarfólk frá „Neyðarhjálp í norðri“ gekk í hús í Grundarfirði í gærkvöldi og á skemmtun sem haldin var í veitingahúsinu Krákunni. Þykir þetta góður árangur í ljósi þess að fjölmargir höfðu áður gefið í símasöfnunina en bættu við það framlag. 14.1.2005 00:01
65 milljónum veitt til smáeyja Ríkisstjórn Íslands mun á næstu þremur árum verja um 65 milljónum króna, jafnvirði einni milljón dollara, til verkefna á sviði sjálfbærrar nýtingar náttúruauðlinda í smáeyþróunarríkjum. 14.1.2005 00:01
20 milljónir vegna ópíumfíkla Samkomulag hefur náðst á milli SÁÁ og heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins um greiðslur vegna lyfjakostnaðar við meðferð ópíumfíkla sem SÁÁ sinnir. Samkvæmt því greiðir ráðuneytið SÁÁ 20 milljónir króna á tveimur árum vegna þrjátíu fíkla. 14.1.2005 00:01
Í sjálfheldu á Gjábakkavegi Björgunarsveitir voru kallaðar út með skömmu millibili upp úr hádegi til að aðstoða fólk sem sat í sjálfheldu í bílum sínum á Gjábakkavegi og komst ekkert vegna hálku. Útlendingar voru í öðrum jeppanum en jeppinn sem var sendur þeim til hjálpar lenti líka í vandræðum. Ekkert amaði að fólkinu. 14.1.2005 00:01
Hættustigi aflýst á Patreksfirði Aflýst hefur verið hættustigi vegna snjóflóðahættu við Urðargötu á Patreksfirði og er íbúum sem þurftu að rýma heimili sín í morgun heimilt að fara heim á ný. Snjóeftirliti verður þó haldið áfram og fylgst grannt með snjóalögum. 14.1.2005 00:01
Jón skipaður slökkviliðsstjóri Stjórn slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins skipaði í morgun Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóra svæðisins. Hann var settur í starfið þegar Hrólfur Jónsson, fyrrverandi slökkviliðsstjóri, varð yfirmaður framkvæmdasviðs Reykjavíkurborgar. Jón Viðar, sem var svo skipaður í morgun, hefur verið varaslökkviliðsstjóri síðan í desember árið 1991. 14.1.2005 00:01
Mikið álag á spítölum Fresta hefur þurft skurðaðgerðum á Landspítala-háskólasjúkrahúsi vegna mikils álags þar um þessar mundir. Mikið hefur verið um veikindi undanfarna daga og inflúensan sem gengið hefur yfir landsmenn er nú í hámarki. Á fimmtudag þurfti að leggja 50 sjúklinga inn á bráðadeildir Landspítalans umfram skráð rúm. 14.1.2005 00:01
Snjóflóðahætta á Patreksfirði 17 íbúum í sex íbúðarhúsum við Mýrar og Urðargötu á Patreksfirði var gert að rýma heimili sín í gær vegna snjóflóðahættu. 14.1.2005 00:01
Neituðu að mæta ASÍ Fulltrúar Impregilo höfnuðu því að mæta fulltrúum verkalýðshreyfingarinnar fyrir félagsmálanefnd Alþingis í gærmorgun og bað nefndin því fulltrúa ASÍ því um að koma frekar á þriðjudaginn. 14.1.2005 00:01
365 heitir það heillin Íslenska útvarpsfélagið og Frétt hafa verið sameinuð undir nýju nafni, 365, sem skiptist í 365 - ljósvakamiðla og 365 - prentmiðla. 14.1.2005 00:01
Sinfó spilar undir hjá Domingo Samkomulag hefur tekist við Sinfóníuhljómsveit Íslands um að leika undir hjá hinum heimsþekkta óperusöngvara, Placido Domingo, í Egilshöll í mars. Þar með telja tónleikahaldarar að þeir hafi rutt síðustu tálmunum úr vegi fyrir því að halda stórtónleikana eins og áætlað var. 14.1.2005 00:01
Lög um fóstureyðingar brotin Farið verður yfir verkferla á kvennadeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri vegna konu sem gagnrýnir skort á eftirfylgni með líðan þeirra sem gangast undir fóstureyðingu. Hún fullyrðir ennfremur að lög um fóstureyðingar séu brotin hér á landi. 14.1.2005 00:01
Fimmtungur með þunglyndiseinkenni Einn af hverjum fimm unglingum í 9. og 10. bekk hefur alvarleg þunglyndiseinkenni. Þetta sýnir ný íslensk rannsókn. Skilnaðarbörn og börn sem búa í dreifbýli hafa meiri þunglyndiseinkenni en önnur börn. 14.1.2005 00:01
Í fullu starfi og á eftirlaunum Sjö fyrrverandi ráðherrar fengu samtals rúmar sautján milljónir króna í eftirlaun á liðnu ári þrátt fyrir að vera enn í fullu starfi á vegum hins opinbera. Með lögum um eftirlaun þingmanna og ráðherra, sem voru samþykkt á Alþingi í desember árið 2003, voru heimildir til töku eftirlauna rýmkaðar og aðeins einn þeirra sjö sem nú þiggja eftirlaun hafði öðlast réttindi til þeirra fyrir gildistöku nýju laganna. 14.1.2005 00:01
Alcan vill bætur frá olíufélögunum Forsvarsmenn Alcan, áður Ísal, hafa ákveðið að sækjast eftir bótum frá olíufélögunum vegna verðsamráðs þeirra. Samkvæmt lögfræðiáliti sem unnið var fyrir fyrirtækið bera olíufélögin ótvíræða skaðabótaskyldu vegna þess. Ekki hefur verið ákveðið hvort beðið verði um viðræður við félögin áður en höfðað verður skaðabótamál. 14.1.2005 00:01
Í lífshættu vegna sambýlismanns Nálgunarbann sem sett var á ofbeldisfullan sambýlismann konu hafði lítið að segja og var hún í lífshættu af hans völdum. Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum gleymdi kæru sem hún lagði fram eftir að maðurinn beitti hana alvarlegu ofbeldi. 14.1.2005 00:01
Neituðu að sitja fyrir svörum Fulltrúar Impregilo neituðu að sitja fyrir svörum hjá Félagsmálanefnd Alþingis í morgun ef fulltrúar frá verkalýðshreyfingunni yrðu viðstaddir. Gert hafði verið ráð fyrir því að þeir sætu samtímis fyrir svörum en horfið frá því að kröfu ítalska verktakafyrirtækisins. 14.1.2005 00:01
Landsfundur Samfylkingar í vor Allar líkur eru á því að landsfundur Samfylkingarinnar verði haldinn strax í vor. Þá verður komið í ljós hvort Össur Skarphéðinsson eða Ingibjörg Sólrún Gísladóttir verður formaður flokksins. 14.1.2005 00:01
Nemendur Ölduselsskóla safna Landssöfnunin „Neyðarhjálp úr norðri“ fékk öflugan stuðning frá sex til níu ára börnum í dag. Til dæmis söfnuðu börn á frístundaheimili ÍTR í Ölduselsskóla tæpum sextán þúsund krónum með sölu á bleikum pönnukökum og súkkulaðismákökum. 14.1.2005 00:01
Fróði flutti fyrirvaralaust Starfsmenn Fróða þurftu að pakka saman og flytja fyrirvaralaust í dag af Seljavegi upp á Höfðabakka. Ósamkomulag er á milli Fróða og Eikar Fasteignafélags um leigutíma núverandi húsnæðis. 14.1.2005 00:01
Eðlilegt að klára byrgðir Davíð Egilsson, forstjóri Umhverfisstofnunar, fundar með forsvarsmönnum Mjallar-Friggjar á mánudaginn, en fyrirtækið framleiðir klór í Kópavogi án þess að hafa til þess tilskilin leyfi. 14.1.2005 00:01
Netbankinn styrkir fatlaða Þjónustumiðstöð Sjálfsbjargarheimilisins hefur endurnýjað tölvubúnað sinn fyrir styrk sem Netbankinn veitti. Styrkurinn kom að góðum notum þar sem tölvukennsla og tölvunotkun er orðin vaxandi þáttur í endurhæfingarstarfi þjónustumiðstöðvarinnar. 14.1.2005 00:01
Sundabraut bíður enn Frestað var á fundi borgarráðs Reykjavíkur í vikunni afgreiðslu á tillögu borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks um Sundabraut. 14.1.2005 00:01