Innlent

Geðröskun eitt stærsta vandamálið

Vaxandi fjöldi barna með geðræn vandamál er einn stærsti vandi skólanna í dag þrátt fyrir að íslensk börn noti geðlyf í mun meira mæli en jafnaldrar þeirra annars staðar á Norðurlöndunum. Arthúr Morthens, sviðsstjóri hjá Fræðslumiðstöð Reykjavíkur, segir að líffræðilegir og félagslegir þættir valdi mestu um þessa fjölgun en heimilin séu í veikari stöðu en áður. 4400 íslensk börn fá fjárhagslegan stuðning vegna fötlunar eða hegðunarraskana. Fjöldi þeirra hefur tvöfaldast á sjö árum en fjölgunin er að mestu rakin til barna með ofvirkni. Þá hefur einn af hverjum fimm unglingum í níunda og tíunda bekk grunnskóla alvarleg þunglyndiseinkenni samkvæmt nýrri rannsókn. Talið er að vandamálið sé jafnvel enn útbreiddara. Þrátt fyrir þetta nota íslensk börn bæði miklu meira af geðlyfjum en jafnaldrar þeirra á Norðurlöndum, og eins af rítalíni en það er notað við ofvirkni. Þetta er eitt stærsta vandamál skólanna í dag sem eru hugsaðir fyrir börn sem geta setið kyrr í fjörutíu mínútur, eða jafnvel áttatíu mínútur eins og er farið að gera kröfur um í dag. Arthúr segir ekki fara á milli mála að þetta sé eitt af stóru vandamálunum því börn með verulega miklar geðraskanir séu oft njög truflandi í tímum. Skólakerfið þurfi að bregðast við, t.d. með þjálfun kennara og móta aðstæður til að skólakerfinu sé kleift að mæta þessum hópi barna. Arthúr segir að líffræðilegir og félagslegir þættir valdi mestu um þessa fjölgun. Fyrir fimm árum kom í ljós að fleiri börn í ákveðnum hverfum borgarinnar, þar sem voru tíðari félagsleg vandamál meðal íbúanna, fengu rítalín við ofvirkni. Spurður hvort brögð séu að því að verið sé að leysa félagslegan vanda með lyfjum segir Arthúr að svo geti verið í einhverjum tilvikum. Hugsanlegir veikleikar á heimilum barnanna hafi hins vegar mikið að segja hvað þetta varðar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×