Fleiri fréttir

Skemmdarvargarnir handteknir strax í nótt

Ungu mönnunum sem lögðu Ingólfstorg í rúst var sleppt eftir yfirheyrslur hjá lögreglu. Þeir segjast óánægðir með yfirgang borgaryfirvalda gegn brettafólki en brettafólk vill ekki láta bendla þá menningu við skemmdarverkin.

Kastað út úr flugvél læstur ofan í kistu

Bandarískur ofurhugi lenti heilu á höldnu eftir að hafa verið kastað út úr flugvél í rúmlega 4 kílómetra hæð, læstur ofan í kistu og járnaður á höndum.

Bæjarhátíðir um land allt

Bæjarhátíð á Selfossi, Aldamótahátíð og Stokkseyri og einleikshátíðin Act Alone voru meðal sumarhátíða sem haldnar voru um helgina.

Hinsegin dögum lýkur í kvöld

Hinsegin dagar náðu hápunkti sínum með árlegri gleðigöngu í gær, en dagskrá hátíðarinnar lýkur formlega í kvöld. Dagskrá Hinsegin daga teygir anga sína til Viðeyjar í dag, en þar hófst regnbogahátíð fjölskyldunnar klukkan tólf og stendur til klukkan fimm.

Íslendingur í Noregi játar morð

Íslendingurinn sem talið var að hefði myrt þekktan útvarpsmann í Noregi hefur játað á sig morðið. Hann stakk fórnarlambið með pylsuhníf í eigu milljarðamærings en sá er jafnframt lykilvitni í málinu.

Fiskidagurinn mikli gekk framar vonum

Þúsundir sóttu Dalvík heim í gær en þar var Fiskidagurinn mikli haldinn hátíðlegur. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu gekk hátíðin vonum framar.

Bandaríska þjóðin ætti að þakka Snowden

Forseti Bandaríkjanna, Barack Obama, lýsti því yfir í vikunni að hann hyggist endurskoða og laga starfsemi eftirlitsstofnana Bandaríkjanna sem og leyniþjónustunnar.

Sex flóttamenn fórust við Sikiley

Sex manns drukknuðu þegar fiskibátur með flóttamönnum á leið til Evrópu frá Afríku strandaði við ítölsku eyjuna Sikiley. Líkin fundust á fjölmennri baðströnd, þangað sem þau hafði rekið.

Ölvaður skemmdi eigin bíl

Það var töluverður erill hjá lögreglunni í Reykjavík í nótt. Ellefu gistu fangageymslur, þrír að eigin ósk og þá voru mörg útköll vegna ölvunar og hávaða í heimahúsum.

Ölvaður undir stýri

Töluverður erill var hjá lögreglunni á Selfossi í nótt en hátíðarnar Sumar á Selfossi og Aldamótahátíðin á Eyrarbakka fara fram um helgina. Að sögn varðstjóra fór allt saman vel fram en þó var eitthvað um pústra hjá gestum hátíðanna. Enginn gisti í fangaklefa. Einn var tekinn grunaður um ölvunarakstur í umdæminu í nótt.

Banaslys á Suðurlandsvegi

Slysið sem varð þegar rúta og fólksbifreið skullu saman á Suðurlandsvegi við Rauðavatn fyrr í dag var banaslys.

Hinsegin dagar með pólitísku sniði

Fjöldi fólks fylgdist með Gleðigöngu Hinsegin daga í miðbæ Reykjavíkur í dag. Sendiherrar Kanada og Bandaríkjana á Íslandi tóku þátt í göngunni að ógleymdum Jóni Gnarr borgarstjóra.

Sérfræðingar þjálfa starfsmenn á bráðageðdeild

Þrír erlendir sérfræðingar í bráðageðhjúkrun hafa að undanförnu þjálfað starfsfólk á deild 32C á Landspítalanum áður en ný bráðageðdeild opnar eftir rúma viku. Einn af þeim segir að deildin eigi eftir að bæta þjónustu við geðsjúka.

Tölvupóstur fyrir breytta tíma

Nýstárleg tölvupóstþjónusta sem runnin er undan rifjum tveggja íslenskra hugbúnaðarverkfræðinga hefur nú safnað um safnað sex milljónum í alþjóðlegri styrktarsöfnun.

25 þýskir ferðamenn í rútunni

Þýskir ferðamenn voru um borð í rútunni sem lenti í umferðarslysi við Rauðavatn fyrr í dag. Viðbragðshópur Rauða krossins mun ræða við farþegana og veita þeim áfallahjálp.

Gekk til stuðnings Bradley Manning

Kristinn Hrafnsson, talsmaður Wikileaks, vakti athygli á málstað uppljóstrararns Bradley Manning í Gleðigöngunni í dag.

Heimilislausum fjölgar í Danmörku

Heimilislausum í Danmörku hefur fjölgað jafnt og þétt síðustu árin. Ástandið er slæmt í Kaupmannahöfn og í Árósum.

Ekkert lík fundist

"Menn eru að taka síðasta tékk núna og ef ekkert finnst þá á ég von á því að leitinni verði hætt núna seinni partinn," segir Stefán Vagn Stefánsson, yfirlögregluþjónn á Sauðárkróki.

Tugir handteknir grunaðir um mansal

Spænska lögreglan hefur handtekið tugi manna á Spáni og í Frakklandi sem grunaðir eru um að starfrækja mansalshring sem teygir anga sína um þrjár heimsálfur.

Telja að brögð hafi verið í tafli

Andstæðingar, Roberts Mugabe, forseta Zimbabwe, hafa kært nýlegar kosningar í landinu á þeim forsendum að brögð hafi verið í tafli. Ólíklegt er talið að dómstólar taki mark á kærunni.

Gastrukkur springur 36 sinnum

Flutningabíll í Rússlandi fullur af própangashylkjum lendir í óhappi og hylkin springa hvert af öðru í miklu sjónarspili.

Gleðigangan fer fram í dag

Hinsegin dagar standa nú yfir í fimmtánda sinn. Sem fyrr nær hátíðin hámarki sínu með árlegri gleðigöngu sem hefst klukkan tvö í dag.

Opna sendiráðin á ný

Bandaríkjastjórn hefur tilkynnt um að 18 af þeim 19 sendiráðum, sem lokað var vegna hryðjuverkahótana á dögunum, verði opnuð aftur á morgun.

Loka ekki Deildu fyrr en eftir tilmæli frá yfirvöldum

Sérfræðingur í höfundarétti telur að vænlegasta leiðin til að stöðva starfsemi Deildu.net sé að fjarskiptafyrirtækin í landinu loki fyrir aðgang að síðunni. Síminn og Vodafone telja lagaheimild til þess hins vegar óljósa.

Sveitabrúðkaup af bestu gerð

Guðrún Arna Kristjánsdóttir var í sambúð með karlmanni í tíu ár og átti tvo syni þegar hún áttaði sig til fulls á að hún væri lesbía. Fljótlega féll hún fyrir Ólöfu Þorsteinsdóttur. Nú búa þær með drengjunum og geisla af gleði, enda nýgiftar.

Sextán ára sló lögreglumann

Töluverður erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt og gistu þrír fangageymslur vegna ölvunar- eða fíkniefnaaksturs.

Sjá næstu 50 fréttir