Fleiri fréttir

Þjóðkirkjuprestar á bak við Hátíð vonar

Tveir prestar úr Þjóðkirkjunni eru í forsvari fyrir samtökin sem bjóða Franklin Graham á Hátíð vonar. Umdeild ummæli hans um samkynhneigð hafa vakið reiði á Íslandi. Agnes biskup átti að halda erindi á hátíðinni en íhugar nú að hætta við.

Flugvél brotlenti í íbúðahverfi í Connecticut

Tveir eru látnir eftir að lítil flugvél brotlenti í íbúðahverfi í New Haven, Connecticut, í kvöld með þeim afleiðingum að tveir létust. Lögreglan telur að tala látinna muni hækka.

Obama bregst við njósnahneykslinu

Bandaríkjaforseti boðar breytingar á njósnum bandarískra leyniþjónustumanna í beinu framhaldi af uppljóstrunum Edwards Snowdens. Boðar strangara eftirlit þingsins með njósnunum og meira gagnsæi.

Brotið á samkynhneigðum: "Eitt skal yfir alla ganga"

Þjóðskrá krefst ítarlegri gagna af samkynhneigðu pari sem sótti um fæðingarvottorð en gert er af gagnkynhneigðum pörum. Dæmi eru um svipuð vinnubrögð annars staðar í kerfinu. Óásættanlegt brot á jafnræðisreglu, segir nýbökuð móðir.

Íhugar að hætta við

Biskup Íslands segir það slæmt að til séu kristnir menn sem standi ekki með fólki í réttindabaráttu. Hún íhugar nú hvort hún eigi að hætta við erindi sitt á kristilegu samkomunni Hátíð Vonar.

Helmingi færri innbrot

Helmingi færri innbrot voru framin á höfuðborgarsvæðinu um verslunarmannahelgina í ár en í fyrra. Lögregla segir það meðal annars almenningi að þakka að mörg innbrota hafi uppljóstrast.

Kennarasambandið hefur áhyggjur af sparnaði í menntamálum

Kennarasamband Íslands mótmælir fullyrðingum Alþjóða gjaldeyrissjóðsins þar sem fullyrt er að hægt sé að spara tugi milljarða króna í grunn- og framhaldsskólum landsins án þess að það komi niður á gæðum námsins.Kennarasambandið og fulltrúar þess mótmæla þessum fullyrðingum og segja þær forsendurnar sem AGS gefur sér í besta falli hæpnar og í versta falli galnar.

Sást þú hjólbarða lenda á bíl?

Lögreglan á Selfossi leitar vitna að því þegar sólaður hjólbarði á vörubifreið gaf sig þannig að sólinn þeyttist af þar sem bifreiðinni var ekið til austurs Suðurlandsveg á Sandskeiði um klukkan 14:20 þann 6. ágúst síðastliðinn.

Harpa tilnefnd til tvennra verðlauna

"Við erum agalega montin,“ segir Helga Thors, markaðsstjóri Hörpu, tónlistar og ráðstefnuhúss en Harpa hefur verið tilnefnd til tveggja verðalauna, LEAF verðlaunanna og WAN verðlaunanna. "Þetta er bara enn ein fjöðrin í hnappagat Hörpu. Við erum búin að fá svo margar tilnefningar og mörg verðlaun, en í vor hlaut Harpa evrópsku arkítektúraverðlaunin Mies van der Rohe sem eru stærstu arkitektarverðalunin .“

Virðist hafa verið á röngum vegarhelmingi

Svo virðist sem maðurinn sem lést í umferðarslysi á Suðurlandsvegi þann sjöunda ágúst síðastliðinn hafi verið á öfugum vegarhelmingi þegar sendibíll hans lenti í í árekstri við vörubifreið.

Vel viðrar á hátíðaglaða

"Mér heyrist og sýnist á þeim atriðum sem þegar eru skráð í gönguna að gangan verði hugsanlega nokkuð pólitísk í ár. Veðrið hefur alltaf einhver áhrif, það mættu til dæmis hátt í 100 þúsund í gleðigönguna árið 2011 þegar veðrið var gott,“ segir Eva María Þórarinsdóttir Lange, formaður Hinsegin daga í Reykjavík.

Hugsanlega lík í sjónum

Um tuttugu lögreglu- og björgunarsveitarmenn leita nú að hugsanlegu líki í sjónum fyrir utan Hofsós.

Tekið á móti skipbrotsmönnum með eggjum og beikoni

"Það var gleðilegt að geta tekið á móti þeim með eggjum og beikoni og gefið þeim góðan morgunmat eftir volkið,“ segir Þórir Guðmundsson, sviðstjóri hjálparstarfssviðs Rauða krossins á Íslandi. Þetta er mikil svaðilför sem þau eiga að baki. Skútan sökk um fimm í nótt en þá var áhöfn skútunnar komin um borð í skip Landsbjargar.

Drap eiginkonu sína og setti mynd af líkinu á Facebook

"Núna bíður mín fangelsisvist eða dauðarefsing eftir að ég drap eiginkonu mína. Elska ykkur og sakna ykkar. Farið vel með ykkur Facebook-vinir. Þið munuð sjá mig í fréttunum,“ sagði Derek Medina, þrjátíu og eins árs maður frá Flórída, á Facebook-síðu sinni á dögunum.

Allir geislafræðingarnir drógu uppsagnir sínar til baka

Allir geislafræðingarnir sem sögðu upp störfum sínum á Landspítalanum og gengu þaðan út í síðustu viku, hafa ákveðið að snúa aftur til starfa. Þeim hafði verið gefinn frestur til miðnættis í gær til að draga uppsagnir sínar til baka.

Ómögulegt að fá fólk til starfa

Svo mikið er að gera í kvikmyndageiranum hér á landi að ómögulegt er að fá fólk til starfa. Lúxusvandamál, segir formaður félags íslenskra kvikmyndagerðarmanna.

Segir plan B ekki gæfulegt

Sjávarútvegs- og landbúnaðaráðherra hefur ekki valdheimild til þess að úthluta aflahlutdeild og aflamagni í úthafsrækju miðað við aflareynslu síðustu þriggja ára. Þetta segir í lögfræðiáliti sem lögfræðistofan Land lögmenn vann fyrir atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið.

Vilja komast inn á innri markað ESB

Stjórnvöld í Færeyjum stefna að því að verða hluti af innri markaði ESB. Markmiðið er að geta notið þeirra möguleika sem sterkt markaðssvæði, eins og ESB, býður upp á.

Sigmundur Davíð vildi Egil Helgason í framboð

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins, vildi fá sjónvarpsmanninn Egil Helgason í framboð fyrir flokkinn í alþingiskosningunum árið 2009.

Þýsk skúta sökk út af Garðskaga

Tólf þýskum ungmennum var bjargað hröktum um borð í björgunarskip Björgunarsveitar Hafnarfjarðar í nótt. Oddur Arnar Halldórsson skipstjóri segir skipverja hrakta og skelkaða en heila.

Umferðarþungi á Látrum

"Þetta hefði hljómað eins og skrýtla fyrir nokkrum árum,“ segir Gísli Már Gíslason, formaður Bjargtanga sem er félag landeigenda á Látrum, um þá þungu bílaumferð sem fer gegnum sumar­bústaðabyggðina á Látrum.

Lögreglan rannsakar Deildu

Ákvörðun Deildu.net um að leyfa niðurhal á íslensku myndefni hefur sett kæru gegn eigendum síðunnar í forgang hjá lögreglu. Baltasar Kormákur segir að niðurhalið muni á endanum eyðileggja íslenska kvikmyndagerð.

Óvissa um þróunarverkefni

Eftir að ESB lokaði á frekari IPA-styrki til verkefna á Íslandi ríkir óvissa um 13 tilraunaverkefni um allt land, meðal annars á sviðum atvinnu- og byggðamála. Óvíst er hvort hægt verði að halda áfram með mörg þeirra.

Skógareldar í Kaliforníu

Skógareldar hafa geisað í fjalllendi í sunnanverðri Kaliforníu og versnaði ástandið verulega í gær.

Þátttaka Þjóðkirkjunnar að Hátíð vonar stendur

Biskup segir Þjóðkirkjuna ekki ætla að endurskoða aðkomu sína að Hátíð vonar, þar sem predikarinn Franklin Graham mun flytja boðskap sinn. Prestur Þjóðkirkjunnar og formaður Samtakanna "78 eru mjög ósáttir við þátttöku kirkjunnar.

Assad sagður hafa sloppið

Sýrlensk stjórnvöld sögðu í gær ekkert hæft í fullyrðingum uppreisnarmanna um að þeir hefðu gert árás á bílalest Bashars al Assad forseta.

Fólki sem þiggur sérstakar bætur hefur fjölgað mikið

Árið 2008 hófu sveitarfélög að greiða sérstakar húsaleigubætur til þeirra sem búa við erfiðar aðstæður. Bótaþegum sem þiggja slíkar bætur hefur nú fjölgað um rúmlega 3.200 manns frá árinu 2009 og eru nú um 4500.

Stórslasaði keppnishesta og ók á braut

Um tuttugu hestar fældust og fimm slösuðust alvarlega þegar ökumaður keyrði inn í mitt hestastóð sem verið var að rekja yfir tvíbreiða brú við Hrúteyjarkvísl í Þingeyjarsveit í kvöld.

Sjá næstu 50 fréttir