Fleiri fréttir

Samkynhneigðir fagna úrskurði

Hæstiréttur Bandaríkjanna hafnaði rétt í þessu lögum frá 1996 sem neita samkynhneigðum hjónum um sömu réttindi og gagnkynhneigðum hjónum.

Skammbyssa, hnífar og hnúajárn fundust í fjölbýlishúsi

Skotvopn og fíkniefni fundust við húsleit í íbúð í fjölbýlishúsi í austurborginni í gær. Um var að ræða haglabyssu, lofthaglabyssu, skammbyssu og rafbyssu, en í íbúðinni var einnig að finna skotfæri í áðurnefnd vopn.

Íslendingar gætu misst atkvæðarétt fyrir að virða ekki kynjakvóta

Í morgun var tillaga þingsskapa og stofnananefndar Evrópuráðsþingsins, um refsiaðgerðir vegna samsetningu íslandsdeildarinnar, kynnt. Íslenska nefndin var við upphaf þingsins áminnt fyrir brot á kynjakvóta. Til greina kemur að taka atkvæðisrétt af íslendingum á næsta þingi.

Merkel lofaði árangur Íslands

Angela Merkel, kanslari Þýskalands fór lofsamlegum orðum um endurreisn íslensks efnahagslífs á fundi med Ólafi Ragnari Grímssyni forseta Íslands í morgun. Merkel lýsti yfir áhuga á að sækja Íslands heim.

Félagsmálaráðherra ræðir við umboðsmann skuldara um kröfur Dróma

Drómi, slitastjórn SPRON og Frjálsa fjárfestingabankans, hefur hætt við endurútreikning lána hjá um 160 lántakendum, og mun á næstunni senda þeim kröfu upp á samanlagt einn og hálfan milljarð króna. Eygló Harðardóttir, félagsmálaráðherra, kemur til með að ræða við umboðsmann skuldara í dag.

150.000 óleyst dómsmál bíða Róberts Spanó

Róbert Spanó, nýkjörinn dómari við Mannréttindadómstól Evrópu segir stór verkefni blasa við honum sem dómara við dómstólinn, enda liggi 150.000 óleyst mál fyrir dóminum.

Háskólar fá minna fé en grunnskólar

Ísland er eina ríki OECD sem ver hlutfallslega meiri fjármunum til grunnskóla en háskóla. Þá útskrifast Íslendingar elstir allra OECD-þjóða úr háskóla og næstelstir úr menntaskóla. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri skýrslu OECD.

Krefur Breta um svör

Viviane Reding, sem fer með dómsmál í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, hefur sent breskum stjórnvöldum bréf þar sem hún krefst skýrra svara um persónunjósnir.

Mönnunum sleppt úr haldi

Tveimur mönnum, sem voru handteknir í tengslum við stungumál í Gnoðarvogi í gær, hefur verið sleppt úr haldi. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er rannsókn málsins enn í fullum gangi.

Segist hafa nauðgað konu í svefni

Breskur kaupsýslumaður, sem segist hafa gengið í svefni þegar hann nauðgaði konu, hefur verið dæmdur í tólf ára fangelsi.

Rudd kosinn leiðtogi

Julia Gillard, forsætisráðherra Ástralíu, tapaði í leiðtogakjöri Verkamannaflokksins gegn Kevin Rudd, sem hún sjálf steypti af stóli fyrir þremur árum. Þingkosningar verða í haust.

Fann skilaboð frá skipverja í fjörunni

Draumur ferðalangs rættist er hann gerði óvænta uppgötvun í fjöru á Vesturlandi. Þar leyndist flöskuskeyti sem gæti reynst fyrirboði, að sögn finnandans.

Matarkarfan fimmtungi dýrari en í ESB

Samkvæmt úttekt Eurostat er matarkarfan tæpum fimmtungi dýrari hér á landi en sem nemur meðaltali í ESB-ríkjunum. Einnig er áfengi meira en tvöfalt dýrara hér á landi. Þessar tölur taka þó ekki mismunandi kaupmátt með í reikninginn.

Grefur skurð í gegnum Níkaragva

Forsvarsmaður HKND, kínverska fyrirtækisins sem stefnir að því að grafa skipaskurð í gegnum Níkaragva, segist bjartsýnn um að framkvæmdir hefjist á næsta ári.

Mikilvægt mál fyrir homma og lesbíur

Hæstiréttur Bandaríkjanna mun væntanlega fella úrskurð í tveimur málum í dag skipta miklu um hvort samkynhneigðir geti gengið í hjónaband í Bandaríkjunum.

Tvíbentur andreykingaáróður

Ný rannsókn sýnir að auglýsingar gegn reykingum geta hæglega snúist upp í andhverfu sína og vakið upp löngun í sígarettur.

Útskrifumst úr grunnnámi á fertugsaldri

Nemendur í íslenskum háskólum útskrifast fjórum árum seinna að meðaltali úr grunnnámi en nemendur ríkja OECD. Þá verja Íslendingar einir þjóða hlutfallslega minni fjármunum til háskóla en grunnskóla.

Hættumat vantar en viðbragðsáætlun klár

Hættumat vegna jarðskjálfta í Þingeyjarsýslum hefur ekki verið unnið sérstaklega. Hins vegar er mikið af upplýsingum fyrirliggjandi og góð viðbragðsáætlun á þeim byggð, að mati Almannavarna. Iðnaðaruppbygging á Bakka áfram í sama farvegi.

Stofnanir bjartsýnar á að milljónastyrkir skili sér

Matís og Veðurstofan eiga von á hundraða milljóna fjárveitingu frá ESB í formi IPA-styrkja. Báðar stofnanir eru bjartsýnar á að verkefnin fari í gegn hjá ráðuneytinu. Ekki liggur fyrir hvenær ráðuneytið gefur grænt ljós.

Veðjaðu á afdrif Snowden

Veðmálasíður á netinu eru nú farnar að taka við veðmálum um það hvar Edward Snowden kemur til enda undanför sína frá bandarískum stjórnvöldum.

Drómi innheimtir 1,6 milljarða af lántakendum

Drómi, slitastjórn SPRON og Frjálsa fjárfestingabankans, hyggst á næstunni rukka um 160 lántakendur um samtals 1,6 milljarð vegna gengislána sem hætt hefur verið við að endurreikna.

Mál handaþegans leysast

Guðmundur Felix Grétarsson, sem bíður þess í Frakklandi að fá hendur, var í vandræðum; gat ekki fengið íbúð nema hafa pening og ekki pening nema hafa íbúð, vegna gjaldeyrislaga. Seðlabankinn hefur gripið inn í málið.

Guðmundur Felix á flæðiskeri staddur

Guðmundur Felix Grétarsson, sem missti báða handleggi í hörmulegu vinnuslysi fyrir fimmtán árum, er á flæðiskeri staddur í Frakklandi þar sem hann bíður eftir handaágræðslu.

Löng bið eftir meðferð við átröskunum

Átröskunarsjúklingar þurfa að bíða allt að fjórfalt lengur eftir aðstoð en á síðasta ári og nú eru 27 mál á bið hjá Hvítabandinu, sem heyrir undir geðsvið Landspítalans. Ung kona með átröskun segir úrræðið í sumum tilfellum lífsnauðsynlegt.

Vilja að Illugi skýri málið

Stjórn Vöku hefur farið þess á leit að Illugi Gunnarson, menntamálaráðherra, skýri nánar áform sín um minnkuð fjárútlát til LÍN.

Fleiri fá rétt á greiðslum

Verði nýtt frumvarp félagsmálaráðherra að lögum myndu tekjur sjö þúsund lífeyrisþega hækka. Þá mun frítekjumark ellilífeyrisþega hækka ríflega.

Bátur í bobba

Tveir björgunarbátar af höfuðborgarsvæðinu voru kallaðir um fjögur í dag vegna báts í vandræðum rétt sunnan við Gróttu.

Ekki lífshættulega slösuð

Konan sem hlaut stunguáverka í Gnoðarvogi í dag er ekki lífshættulega slösuð, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

Mikill reykur frá Hvalstöðinni

Svo virðist sem eldur hafi komið upp í Hvalstöðinni í Hvalfirði eftir hádegi í dag en gífurlega mikinn reyk lagði frá einu vinnuhúsinu, eins og sést á meðfylgjandi myndum.

Sjá næstu 50 fréttir