Íslendingar gætu misst atkvæðarétt fyrir að virða ekki kynjakvóta María Lilja Þrastardóttir skrifar: skrifar 26. júní 2013 13:16 Nefndarmenn Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins; Ögmundur Jónasson, Karl Garðarsson og Brynjar Níelsson.
Í morgun var tillaga þingskapa og stofnananefndar Evrópuráðsþingsins, um refsiaðgerðir vegna samsetningu íslandsdeildarinnar kynnt og um hana verður svo kosið seinna í dag. Tillagan felur í sér hvort beri að taka af Íslandsdeild Evrópuráðsins atkvæðisrétt á næsta þingi, ef ekki verði búið að laga samsetningu nefndarinnar strax í haust. Þingmenn á Evrópuráðsþinginu, sem nú fundar í Strassborg, gerðu í vikunni alvarlegar athugasemdir við skipan íslensku sendinefndarinnar þar sem hún samræmist ekki reglum um kynjakvóta. Í nefndinni sitja þeir Brynjar Níelsson, Ögmundur Jónasson og Karl Garðarsson sem jafnframt er formaður íslandsdeildarinnar. „Þessi tillaga er í samræmi við það sem við bjuggumst við," segir Karl Garðarsson í samtali við fréttastofu. Hann segir nefndina sátta við niðurstöðuna og hún sé í samræmi við það sem þeir bjuggust við. "Þetta þýðir að við höfum atkvæðisrætt og setu á þessu þingi en þurfum að breyta nefndinni fyrir næsta fund í október,"segir Karl. Spurður hvort ekki verði örugglega stokkað upp í nefndinni fyrir það segir Karl: „Henni verður breytt það er alveg á hreinu." Brynjar Níelsson, einn nefndarmanna, virðist þó ekki sammála Karli að öllu leyti. Hann segir á facebook síðu sinni í morgun að þó enginn ágreiningur sé um að nefndin samrýmist ekki reglum Evrópuráðsins um kynjakvóta eigi hann bágt með að skilja hvernig þingið geti sett slíkar reglur. Með því séu lýðræðislegar kosningar hafðar að engu. Þar vísar Brynjar til þeirrar staðreyndar að nefndarmenn Evrópuráðsþingsins voru kosnir af stjórnmálaflokkunum.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sjá meira