Fleiri fréttir Alfreð skoraði tvö í sigri Heerenveen Alfreð Finnbogason var heldur betur á skotskónum þegar Heerenveen lagði Willem II, 3-2, í hollensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu en Alfreð skoraði tvö mörk í leiknum. 14.4.2013 13:20 Leitin að Önnu Kristínu engan árangur borið Leitin að Önnu Kristínu Ólafsdóttur sem hefur verið saknað frá því á fimmtudagskvöld hefur engan árangur borið. 14.4.2013 12:55 Nótan í Eldborgarsal Hörpu í dag Nótan - uppskeruhátíð tónlistarskólanna verður haldin í Eldborgarsal Hörpu í dag en hátíðin er þrískipt en þátttakendur koma af öllu landinu og eru á öllum aldri. 14.4.2013 11:38 Jóhanna og föruneyti komin til Kína Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra kom til Kína í gærkvöldi ásamt fríðu föruneyti. Í viðtali við kínversku fréttastofuna Xinhua segist Jóhanna bjartsýn á að skrifað verði undir fríverslunarsamning á milli ríkjanna á morgun. 14.4.2013 11:35 Fimm létust í rútuslysi Pólsk rúta ók út af á hraðbraut nærri belgísku borginni Antwerpen í morgun. Um borð voru ungmenni frá Rússlandi og létust fimm og eru aðrir fimm farþeganna alvarlega slasaðir. 14.4.2013 11:33 Fangar í Guantanamo gerðu uppreisn Fangar í fangabúðunum í Guantanamo-flóa gerðu nýlega uppreisn gegn fangavörðum þegar nokkrir fanganna sem eru í hungurverkfalli voru fluttir úr almennum fangaklefum. 14.4.2013 11:31 Tvö ný tilfelli af fuglaflensu í Kína Tvö ný tilfelli hafa verið greind af H7N9 fuglaflensu í Kína í Henan héraði. Samtals hefur fimmtíu og einn verið greindur með vírusinn samkvæmt tölum frá kínverskum yfirvöldum og ellefu hafa dáið af völdum hans. 14.4.2013 11:29 Kosið í Venesúela Íbúar Venesúela ganga til kosninga í dag til þess að velja eftirmann Hugo Chavez á forsetastóli, en Chavez lést í embætti fyrir nokkrum vikum. Varaforsetinn Nicolas Maduro er talinn líklegur til að tryggja sér embættið en Chavez hafði lýst því yfir fyrir dauða sinn að Maduro væri besti maðurinn í verkið. 14.4.2013 11:26 Jepplingur frá Citroën Hefur fengið nafnið Rubis og Citroen horfir helst til Kína með framleiðslu hans. 14.4.2013 11:15 Einstaklingsframboðin ógild í nær öllum kjördæmum Einstaklingsframboðin hafa verið úrskurðuð ógild í öllum kjördæmum landsins nema Reykjavíkurkjördæmunum í suðri og norðri þar sem enn á eftir að tilkynna hvaða framboð eru gild og hver ekki. 14.4.2013 11:04 Maður í vélhjólagengi handtekinn fyrir líkamsárás Karlmaður á fertugsaldri var handtekinn skömmu eftir klukkan þrjú í nótt eftir alvarlega líkamsárás á skemmtistað í borginni. 14.4.2013 09:21 GM sló við Volkswagen í Kína Sala Hyundai og Kia bíla jókst þó mest, eða um 41%. 14.4.2013 08:45 Tveir frambjóðendur hlotið dóma fyrir líkamsárás og fíkniefnalagabrot Tveir frambjóðendur Pírata, sem skipa fjórtánda sæti í Suðvestur og Norðausturkjördæmi, hafa hlotið dóma fyrir líkamsárás og vörslu fíkniefna. Annar þeirra hefur frá 1990 hlotið sautján refsidóma fyrir auðgunar- og umferðarlagabrot. 13.4.2013 18:46 John Kerry reynir að þrýsta á kínversk stjórnvöld vegna Norður-Kóreu Utanríkisráðherra Bandaríkjanna John Kerry er nú staddur í Kína til þess að reyna að þrýsta á kínversk stjórnvöld að þau beiti áhrifum sínum í Norður Kóreu til þess að lægja ófriðarbálið sem nú logar á Kóreuskaga. 13.4.2013 17:59 Sjö ára með fuglaflensuna Sjö ára stúlka í Pekíng í Kína hefur greinst með fuglaflensu H7N9 og er þetta fyrsta tilfellið af flensunni sem kemur upp í höfuðborginni. 13.4.2013 17:57 Hrannar nýr formaður Geðhjálpar Á fjölmennum aðalfundi Geðhjálpar laugardaginn 13. apríl var Hrannar Jónsson kjörinn nýr formaður félagsins. 13.4.2013 16:53 Alræmdur ræningi og rithöfundur sprengdi sig út úr fangelsi Redoine Faid, alræmdur franskur ræningi, strauk úr fangelsi í Norður-Frakklandi í dag en erlendir fjölmiðlar segja flóttann ótrúlega vel skipulagðan. 13.4.2013 16:17 Útstilling verslunar fór fyrir brjóstið á vegfaranda Fátítt er að lögreglu berist kvartanir vegna útstillinga í gluggum verslana. 13.4.2013 15:34 Segir af sér eftir að hafa hvatt Bjarna til þess að láta af formennsku Friðrik Friðriksson hefur sagt af sér sem formaður kosningastjórnar Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi. 13.4.2013 15:05 Allir komust lífs af í alvarlegu flugslysi Farþegaþota frá indónesísku flugfélagi lenti í sjónum undan ströndum Balí þegar lending mistókst þar í morgun. 13.4.2013 13:51 Utanríkisráðherra segir Sjálfstæðisflokkinn ekki stjórntækan „Þetta eru hjaðningarvíg og þess vegna tel ég að Sjálfstæðisflokkurinn sé ekki stjórntækur í bili,“ segir Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra Samfylkingarinnar, um atburðarrásina innan Sjálfstæðisflokksins síðustu daga. 13.4.2013 13:37 Birti síðustu orð sonarins Vill með því vekja fólk til umhugsunar um hve hættulegt er að senda textaskilaboð í akstri. 13.4.2013 12:45 Vill að ráðherra skipi dómara í Hæstarétt „Hæstiréttur Íslands er veikburða,“ segir Jón Steinar Gunnlaugsson, hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi hæstaréttardómari, í lokaorðum nýrrar ritgerðar sem út kom á bók í gær. 13.4.2013 12:00 Bjarni heldur áfram sem formaður Bjarni Benediktsson ætlar að halda áfram sem formaður flokksins. Þetta tilkynnti hann á gríðarlega fjölmennum fundi með sjálfstæðismönnum í Fjölbrautarskólanum í Garðabæ. Þar sagði hann að Sjálfstæðisflokkurinn væri einn flokkur með einn formann. 13.4.2013 11:43 Um 700 manns á fundi með Bjarna Benediktssyni Um 700 manns eru mættir á fund frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ þar sem Bjarni Benediktsson er ásamt Hönnu Birnu Kristjánsdóttur. 13.4.2013 11:34 Gjósandi hver á bílastæði Bilun í heitavatnslögn kemur af stað tilkomumiklu gosi. 13.4.2013 11:15 Enn leitað að Önnu Kristínu Björgunarsveitir hafa verið að störfum síðan kl: 11:00 á föstudagsmorgun við leit að Önnu Krisínu Ólafsdóttur. Umfangsmikil leit fer nú fram í vesturbæ Reykjavíkur á landi, sjó og úr lofti og hefur enn ekki borið árangur. 13.4.2013 11:00 Fjórir strokkar hjá Porsche Margir Porsche bílar fortíðarinnar voru með fjögurra strokka vélar, en enginn nú. 13.4.2013 10:00 Eldur í nýuppgerðum Pontiac Eldur kviknaði í glæsilegri Pontiac bifreið í Hveragerði í gærkvöldi. Eigandinn hafði keypt bílinn notaðan en samkvæmt lögreglu var bíllinn bilaður þegar eigandinn keypti hann. 13.4.2013 09:35 Koma kjarnorkusprengju í flaug Sennilegt þykir að Norður-Kórea hafi yfir að ráða kjarnaoddum sem hægt er að skjóta með eldflaugum. 13.4.2013 07:00 Símhleranir sérstaks enn til rannsóknar Sérstakur saksóknari eyddi ekki upptökum af símtölum Hreiðars Más Sigurðssonar og verjanda hans. Þetta fullyrðir verjandinn í kæru til Ríkissaksóknara, sem rannsakar málið. Lög segja að eyða skuli upptökum af slíkum samtölum þegar í stað. 13.4.2013 07:00 Bíða allt að ár eftir greiningu á ADHD Allt að árs bið er fyrir fullorðna eftir greiningarviðtali hjá geðlækni vegna ADHD. Margir geðlæknar meðhöndla ekki kvillann vegna neikvæðrar umræðu um lyfjameðferð. Mikil aukning fyrirspurna varðandi meðferð hjá ADHD-samtökunum. 13.4.2013 07:00 Fluguveiði yfirvarp fávísra einstaklinga Guttormur Einarsson, sem veitt hefur í Þingvallavatni í hálfa öld, segir breytingar á lífríki vatnsins vekja ugg. Fólk „af erlendum uppruna“ veiði á fjölda stanga með beitu en þykist á fluguveiðum. Menn herji á urriða sem gangi aflvana úr Öxará. 13.4.2013 07:00 Undrast að sjá loðnu fyrir öllu Suðurlandi Fréttir af miðunum fyrir Suðurlandi greina frá því að þar sé allnokkuð af loðnu. Óvenjulegt ástand á þessum tíma árs, segir skipstjóri með 40 ára reynslu. Sérfræðingur Hafró telur að eftirhreytur stóru loðnugöngunnar geti verið skýringin. 13.4.2013 07:00 15 listar í framboði til Alþingis Ellefu listar bjóða fram til Alþingis í öllum kjördæmum í komandi þingkosningum. 13.4.2013 07:00 Fá bæði að ættleiða og giftast Öldungadeild franska þingsins samþykkti í gær frumvarp um að leyfa hjónabönd og ættleiðingar samkynhneigðra. 13.4.2013 07:00 Ársfangelsi fyrir fíkniefnasmygl Dómsmál Héraðsdómur Reykjaness dæmdi á miðvikudag 36 ára Pólverja í eins árs fangelsi fyrir að flytja til landsins tæpt kíló af amfetamíni í tveimur niðursuðudósum. 13.4.2013 07:00 Íbúakosningu í Reykjavík lokið Reykjavík Rafrænni íbúakosningu um framkvæmdaverkefni í hverfum Reykjavíkur er lokið. Niðurstöðurnar lágu fyrir í gær en alls kusu 6.076 Reykvíkingar og voru þar af 5.732 atkvæði gild. Þetta jafngildir 6,3% kjörsókn. 13.4.2013 07:00 Hvetja til útstrikana á eigin frambjóðanda Píratar senda frá sér tilkynningu vegna ummæla Inga Karls Sigríðarsonar um Hildi Lilliendahl 13.4.2013 00:53 Handteknir fyrir kynferðisárás eftir að þolandi framdi sjálfsvíg Þrír piltar grunaðir um kynferðisárás á fimmtán ára stúlku í Kaliforníu, en hún framdi sjálfsvíg þegar ljósmyndir af árásinni fóru í umferð. Málinu svipar til máls Rehtaeh Parsons frá Halifax. 12.4.2013 22:55 Djarfar auglýsingar sagðar brot á reglum Fataframleiðandinn American Apparel hneykslar enn á ný. 12.4.2013 21:27 Veikburða Hæstarétti fagnað í Eymundsson Úgáfuhóf nýúkominnar bókar Jóns Steinars Gunnlaugssonar, fyrrverandi hæstaréttardómara, var haldið í Eymundsson Skólavörðustíg í dag. Ljósmyndarinn Gunnar V. Andrésson var á staðnum. 12.4.2013 20:57 Finnst afsökunarbeiðnin ekki sannfærandi Hildi Lilliendahl barst afsökunarbeiðni frá Inga Karli Sigríðarsyni, frambjóðanda Pírata í norðausturkjördæmi vegna ógeðfelldra skrifa. 12.4.2013 19:59 Stendur klár þegar borpallurinn kemur Steingrímur Erlingsson, sem er að láta smíða dýrasta skip Íslendinga, segist vilja standa klár þegar borpallarnir mæta á Drekasvæðið. Næstu árin hefur hann þó tryggt skipinu sjö milljarða verkefni á Svalbarða, eða sem nemur kaupverðinu að stórum hluta. Hann er 43 ára Hafnfirðingur, vélfræðingur og flugvirki að mennt, var lengi útgerðarstjóri í Þorlákshöfn, en hefur síðasta áratug stundað útgerð á norðurslóðum Kanada. 12.4.2013 19:22 Hefur tvívegis hvatt Bjarna til að segja af sér Friðrik Friðriksson, formaður kosningarstjórnar Sjálfstæðisflokksins í suðvesturkjördæmi, sendi Bjarna Benediktsson bréf þar sem hann hvatti hann til að segja af sér. 12.4.2013 19:00 Sjá næstu 50 fréttir
Alfreð skoraði tvö í sigri Heerenveen Alfreð Finnbogason var heldur betur á skotskónum þegar Heerenveen lagði Willem II, 3-2, í hollensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu en Alfreð skoraði tvö mörk í leiknum. 14.4.2013 13:20
Leitin að Önnu Kristínu engan árangur borið Leitin að Önnu Kristínu Ólafsdóttur sem hefur verið saknað frá því á fimmtudagskvöld hefur engan árangur borið. 14.4.2013 12:55
Nótan í Eldborgarsal Hörpu í dag Nótan - uppskeruhátíð tónlistarskólanna verður haldin í Eldborgarsal Hörpu í dag en hátíðin er þrískipt en þátttakendur koma af öllu landinu og eru á öllum aldri. 14.4.2013 11:38
Jóhanna og föruneyti komin til Kína Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra kom til Kína í gærkvöldi ásamt fríðu föruneyti. Í viðtali við kínversku fréttastofuna Xinhua segist Jóhanna bjartsýn á að skrifað verði undir fríverslunarsamning á milli ríkjanna á morgun. 14.4.2013 11:35
Fimm létust í rútuslysi Pólsk rúta ók út af á hraðbraut nærri belgísku borginni Antwerpen í morgun. Um borð voru ungmenni frá Rússlandi og létust fimm og eru aðrir fimm farþeganna alvarlega slasaðir. 14.4.2013 11:33
Fangar í Guantanamo gerðu uppreisn Fangar í fangabúðunum í Guantanamo-flóa gerðu nýlega uppreisn gegn fangavörðum þegar nokkrir fanganna sem eru í hungurverkfalli voru fluttir úr almennum fangaklefum. 14.4.2013 11:31
Tvö ný tilfelli af fuglaflensu í Kína Tvö ný tilfelli hafa verið greind af H7N9 fuglaflensu í Kína í Henan héraði. Samtals hefur fimmtíu og einn verið greindur með vírusinn samkvæmt tölum frá kínverskum yfirvöldum og ellefu hafa dáið af völdum hans. 14.4.2013 11:29
Kosið í Venesúela Íbúar Venesúela ganga til kosninga í dag til þess að velja eftirmann Hugo Chavez á forsetastóli, en Chavez lést í embætti fyrir nokkrum vikum. Varaforsetinn Nicolas Maduro er talinn líklegur til að tryggja sér embættið en Chavez hafði lýst því yfir fyrir dauða sinn að Maduro væri besti maðurinn í verkið. 14.4.2013 11:26
Jepplingur frá Citroën Hefur fengið nafnið Rubis og Citroen horfir helst til Kína með framleiðslu hans. 14.4.2013 11:15
Einstaklingsframboðin ógild í nær öllum kjördæmum Einstaklingsframboðin hafa verið úrskurðuð ógild í öllum kjördæmum landsins nema Reykjavíkurkjördæmunum í suðri og norðri þar sem enn á eftir að tilkynna hvaða framboð eru gild og hver ekki. 14.4.2013 11:04
Maður í vélhjólagengi handtekinn fyrir líkamsárás Karlmaður á fertugsaldri var handtekinn skömmu eftir klukkan þrjú í nótt eftir alvarlega líkamsárás á skemmtistað í borginni. 14.4.2013 09:21
Tveir frambjóðendur hlotið dóma fyrir líkamsárás og fíkniefnalagabrot Tveir frambjóðendur Pírata, sem skipa fjórtánda sæti í Suðvestur og Norðausturkjördæmi, hafa hlotið dóma fyrir líkamsárás og vörslu fíkniefna. Annar þeirra hefur frá 1990 hlotið sautján refsidóma fyrir auðgunar- og umferðarlagabrot. 13.4.2013 18:46
John Kerry reynir að þrýsta á kínversk stjórnvöld vegna Norður-Kóreu Utanríkisráðherra Bandaríkjanna John Kerry er nú staddur í Kína til þess að reyna að þrýsta á kínversk stjórnvöld að þau beiti áhrifum sínum í Norður Kóreu til þess að lægja ófriðarbálið sem nú logar á Kóreuskaga. 13.4.2013 17:59
Sjö ára með fuglaflensuna Sjö ára stúlka í Pekíng í Kína hefur greinst með fuglaflensu H7N9 og er þetta fyrsta tilfellið af flensunni sem kemur upp í höfuðborginni. 13.4.2013 17:57
Hrannar nýr formaður Geðhjálpar Á fjölmennum aðalfundi Geðhjálpar laugardaginn 13. apríl var Hrannar Jónsson kjörinn nýr formaður félagsins. 13.4.2013 16:53
Alræmdur ræningi og rithöfundur sprengdi sig út úr fangelsi Redoine Faid, alræmdur franskur ræningi, strauk úr fangelsi í Norður-Frakklandi í dag en erlendir fjölmiðlar segja flóttann ótrúlega vel skipulagðan. 13.4.2013 16:17
Útstilling verslunar fór fyrir brjóstið á vegfaranda Fátítt er að lögreglu berist kvartanir vegna útstillinga í gluggum verslana. 13.4.2013 15:34
Segir af sér eftir að hafa hvatt Bjarna til þess að láta af formennsku Friðrik Friðriksson hefur sagt af sér sem formaður kosningastjórnar Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi. 13.4.2013 15:05
Allir komust lífs af í alvarlegu flugslysi Farþegaþota frá indónesísku flugfélagi lenti í sjónum undan ströndum Balí þegar lending mistókst þar í morgun. 13.4.2013 13:51
Utanríkisráðherra segir Sjálfstæðisflokkinn ekki stjórntækan „Þetta eru hjaðningarvíg og þess vegna tel ég að Sjálfstæðisflokkurinn sé ekki stjórntækur í bili,“ segir Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra Samfylkingarinnar, um atburðarrásina innan Sjálfstæðisflokksins síðustu daga. 13.4.2013 13:37
Birti síðustu orð sonarins Vill með því vekja fólk til umhugsunar um hve hættulegt er að senda textaskilaboð í akstri. 13.4.2013 12:45
Vill að ráðherra skipi dómara í Hæstarétt „Hæstiréttur Íslands er veikburða,“ segir Jón Steinar Gunnlaugsson, hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi hæstaréttardómari, í lokaorðum nýrrar ritgerðar sem út kom á bók í gær. 13.4.2013 12:00
Bjarni heldur áfram sem formaður Bjarni Benediktsson ætlar að halda áfram sem formaður flokksins. Þetta tilkynnti hann á gríðarlega fjölmennum fundi með sjálfstæðismönnum í Fjölbrautarskólanum í Garðabæ. Þar sagði hann að Sjálfstæðisflokkurinn væri einn flokkur með einn formann. 13.4.2013 11:43
Um 700 manns á fundi með Bjarna Benediktssyni Um 700 manns eru mættir á fund frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ þar sem Bjarni Benediktsson er ásamt Hönnu Birnu Kristjánsdóttur. 13.4.2013 11:34
Enn leitað að Önnu Kristínu Björgunarsveitir hafa verið að störfum síðan kl: 11:00 á föstudagsmorgun við leit að Önnu Krisínu Ólafsdóttur. Umfangsmikil leit fer nú fram í vesturbæ Reykjavíkur á landi, sjó og úr lofti og hefur enn ekki borið árangur. 13.4.2013 11:00
Fjórir strokkar hjá Porsche Margir Porsche bílar fortíðarinnar voru með fjögurra strokka vélar, en enginn nú. 13.4.2013 10:00
Eldur í nýuppgerðum Pontiac Eldur kviknaði í glæsilegri Pontiac bifreið í Hveragerði í gærkvöldi. Eigandinn hafði keypt bílinn notaðan en samkvæmt lögreglu var bíllinn bilaður þegar eigandinn keypti hann. 13.4.2013 09:35
Koma kjarnorkusprengju í flaug Sennilegt þykir að Norður-Kórea hafi yfir að ráða kjarnaoddum sem hægt er að skjóta með eldflaugum. 13.4.2013 07:00
Símhleranir sérstaks enn til rannsóknar Sérstakur saksóknari eyddi ekki upptökum af símtölum Hreiðars Más Sigurðssonar og verjanda hans. Þetta fullyrðir verjandinn í kæru til Ríkissaksóknara, sem rannsakar málið. Lög segja að eyða skuli upptökum af slíkum samtölum þegar í stað. 13.4.2013 07:00
Bíða allt að ár eftir greiningu á ADHD Allt að árs bið er fyrir fullorðna eftir greiningarviðtali hjá geðlækni vegna ADHD. Margir geðlæknar meðhöndla ekki kvillann vegna neikvæðrar umræðu um lyfjameðferð. Mikil aukning fyrirspurna varðandi meðferð hjá ADHD-samtökunum. 13.4.2013 07:00
Fluguveiði yfirvarp fávísra einstaklinga Guttormur Einarsson, sem veitt hefur í Þingvallavatni í hálfa öld, segir breytingar á lífríki vatnsins vekja ugg. Fólk „af erlendum uppruna“ veiði á fjölda stanga með beitu en þykist á fluguveiðum. Menn herji á urriða sem gangi aflvana úr Öxará. 13.4.2013 07:00
Undrast að sjá loðnu fyrir öllu Suðurlandi Fréttir af miðunum fyrir Suðurlandi greina frá því að þar sé allnokkuð af loðnu. Óvenjulegt ástand á þessum tíma árs, segir skipstjóri með 40 ára reynslu. Sérfræðingur Hafró telur að eftirhreytur stóru loðnugöngunnar geti verið skýringin. 13.4.2013 07:00
15 listar í framboði til Alþingis Ellefu listar bjóða fram til Alþingis í öllum kjördæmum í komandi þingkosningum. 13.4.2013 07:00
Fá bæði að ættleiða og giftast Öldungadeild franska þingsins samþykkti í gær frumvarp um að leyfa hjónabönd og ættleiðingar samkynhneigðra. 13.4.2013 07:00
Ársfangelsi fyrir fíkniefnasmygl Dómsmál Héraðsdómur Reykjaness dæmdi á miðvikudag 36 ára Pólverja í eins árs fangelsi fyrir að flytja til landsins tæpt kíló af amfetamíni í tveimur niðursuðudósum. 13.4.2013 07:00
Íbúakosningu í Reykjavík lokið Reykjavík Rafrænni íbúakosningu um framkvæmdaverkefni í hverfum Reykjavíkur er lokið. Niðurstöðurnar lágu fyrir í gær en alls kusu 6.076 Reykvíkingar og voru þar af 5.732 atkvæði gild. Þetta jafngildir 6,3% kjörsókn. 13.4.2013 07:00
Hvetja til útstrikana á eigin frambjóðanda Píratar senda frá sér tilkynningu vegna ummæla Inga Karls Sigríðarsonar um Hildi Lilliendahl 13.4.2013 00:53
Handteknir fyrir kynferðisárás eftir að þolandi framdi sjálfsvíg Þrír piltar grunaðir um kynferðisárás á fimmtán ára stúlku í Kaliforníu, en hún framdi sjálfsvíg þegar ljósmyndir af árásinni fóru í umferð. Málinu svipar til máls Rehtaeh Parsons frá Halifax. 12.4.2013 22:55
Djarfar auglýsingar sagðar brot á reglum Fataframleiðandinn American Apparel hneykslar enn á ný. 12.4.2013 21:27
Veikburða Hæstarétti fagnað í Eymundsson Úgáfuhóf nýúkominnar bókar Jóns Steinars Gunnlaugssonar, fyrrverandi hæstaréttardómara, var haldið í Eymundsson Skólavörðustíg í dag. Ljósmyndarinn Gunnar V. Andrésson var á staðnum. 12.4.2013 20:57
Finnst afsökunarbeiðnin ekki sannfærandi Hildi Lilliendahl barst afsökunarbeiðni frá Inga Karli Sigríðarsyni, frambjóðanda Pírata í norðausturkjördæmi vegna ógeðfelldra skrifa. 12.4.2013 19:59
Stendur klár þegar borpallurinn kemur Steingrímur Erlingsson, sem er að láta smíða dýrasta skip Íslendinga, segist vilja standa klár þegar borpallarnir mæta á Drekasvæðið. Næstu árin hefur hann þó tryggt skipinu sjö milljarða verkefni á Svalbarða, eða sem nemur kaupverðinu að stórum hluta. Hann er 43 ára Hafnfirðingur, vélfræðingur og flugvirki að mennt, var lengi útgerðarstjóri í Þorlákshöfn, en hefur síðasta áratug stundað útgerð á norðurslóðum Kanada. 12.4.2013 19:22
Hefur tvívegis hvatt Bjarna til að segja af sér Friðrik Friðriksson, formaður kosningarstjórnar Sjálfstæðisflokksins í suðvesturkjördæmi, sendi Bjarna Benediktsson bréf þar sem hann hvatti hann til að segja af sér. 12.4.2013 19:00