Fleiri fréttir Anna Kristín ófundin - björgunarsveitarmenn ganga fjörur Leit stendur enn yfir að Önnu Kristínu Ólafsdóttur sem hefur verið saknað frá því í gærkvöldi. Fjölmargir björgunarsveitar- og lögreglumenn leita hennar í Vesturbænum og á Seltjarnarnesi og þá er einnig verið að ganga fjörur í Skerjafirði. 12.4.2013 15:34 Mercedes í Hofi Höldur mun þjónusta Mercedes-Benz á Akureyri og stækka verkstæðið. 12.4.2013 15:30
Sjá næstu 50 fréttir
Anna Kristín ófundin - björgunarsveitarmenn ganga fjörur Leit stendur enn yfir að Önnu Kristínu Ólafsdóttur sem hefur verið saknað frá því í gærkvöldi. Fjölmargir björgunarsveitar- og lögreglumenn leita hennar í Vesturbænum og á Seltjarnarnesi og þá er einnig verið að ganga fjörur í Skerjafirði. 12.4.2013 15:34
ASÍ mótmælir fríverslunarsamningi við Kína Alþýðusamband Íslands mótmælir því harðlega að til standi að gera fríverslunarsamning við Kína. Í yfirlýsingu frá ASÍ segir að kínversk stjórnvöld viðurkenni ekki mannréttindi og hafi áratugum saman hunsað grundvallarsamþykktir Alþjóðavinnumálastofnunarinnar og þannig meinað launafólki að stofna frjáls stéttarfélög til að semja um sín kjör. Það sé ótrúlegt að ríkisstjórn undir forystu jafnaðarmanna skuli ætla íslenskum fyrirtækjum og íslensku launafólki að keppa á jafnréttisgrundvelli við fyriræki í Kína. 12.4.2013 15:08
"Þetta er voðalega leiðinlegt" "Þetta kom mjög flatt upp á mig,“ segir Haukur Magnússon, stofnandi og eigandi Svarta-Hauks sem selur Lúpínuseyði. Heilbrigðiseftirlit Suðurlands innkallaði á dögunum seyðið þar sem það var framleitt við óheilnæmar aðstæður. 12.4.2013 14:51
Ungir sjálfstæðismenn styðja Bjarna Ungir sjálfstæðismenn lýsa yfir fullum stuðningi við Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins. Í ályktun sem stjórn SUS samþykkti í dag harma þeir það sem fram kom á RÚV í gærkvöldi um að Bjarni Benediktsson íhugi að segja af sér sem formaður Sjálfstæðisflokksins. 12.4.2013 14:27
Sérsveitamenn lærðu fallhlífarstökk Flugbjörgunarsveitin í Reykjavík bauð sérsveit ríkislögreglustjóra á námskeið í fallhlífarstökki á dögunum. Námskeiðið stóð yfir í viku og var um að ræða bæði bóklegt og verklegt nám. Landhelgisgæslan tók þátt í námskeiðinu og flugvélin TF-SIF var notuð við stökkin. Flugbjörgunarsveitin í Reykjavík hefur langa reynslu á þessu sviði og hefur stundað björgunarfallhlífarstökk eftir alþjóðlegum stöðlum til margra ára. 12.4.2013 14:13
Lúpínuseyði innkallað Í eftirliti Heilbrigðiseftirlits Suðurlands á dögunum kom í ljós að lúpínuseyði frá Svarta Hauki var framleitt við óheilnæmar aðstæður. Varan uppfyllir því ekki kröfur um öryggi matvæla og hefur því verið innkölluð af markaði og frá neytendum. Varan er ekki lengur í sölu í verslunum í Reykjavík. Þetta kemur fram á vefsíðu Matvælaeftirlits Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur. Þeir sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neita hennar ekki og farga. 12.4.2013 13:50
Safna fyrir skógum í Skorradal og á Austurlandi Almenningur er hvattur til að leggja sitt af mörkum í verkefninu Aprílskógar. Safnað er fyrir Bændaskóga á Austurlandi, til að grisja lerkiskóginn, og plöntun nýrra trjáa í Skorradal. Aprílskógar eru söfnunarverkefni átaksins Græns Apríl. 12.4.2013 13:45
Suðurnesjamenn á hraðferð Sex ökumenn hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. 12.4.2013 13:41
Kynnti nýjan veflykil Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra kynnti í dag nýjan veflykil sem Þjóðskrá Íslands hefur þróað til að tryggja einfalda og örugga leið til auðkenningar inn á vefi. Lykillinn nefnist Íslykill og hann má nota til innskráningar á einstaklingsmiðaðar síður hjá stofnunum, sveitarfélögum, félagasamtökum og fyrirtækjum sem nýta sér innskráningarþjónustu Ísland.is. 12.4.2013 13:28
Númer klippt af 36 bílum Lögreglumenn í Hafnarfirði og í austurborginni tóku númer af þrjátíu og sex bifreiðum í nótt. Bifreiðarnar höfðu ekki verið færðar til skoðunar á réttum tíma eða tryggingarnar voru í ólagi. Þetta kemur fram í fréttaskeyti frá lögreglu. 12.4.2013 13:26
Þetta sagði Bjarni Ben í viðtalinu Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, ætlar að tilkynna það hvort að hann ætli að hætta sem formaður flokksins í dag eða um helgina. Í þættinum forystusætinu á RÚV í gærkvöldi sagði hann að hann væri að íhuga stöðu sína alvarlega. 12.4.2013 13:10
Bjarni finnur fyrir stuðningi Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segist hafa fengið mjög mikinn stuðning og hvatningu um að halda áfram eftir að hann tilkynnti í gær að hann íhugaði að segja af sér og hvort betra væri fyrir flokkinn að Hanna Birna Kristjánsdóttir tæki við. 12.4.2013 12:56
Lögreglan lýsir eftir Önnu Kristínu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Önnu Kristínu Ólafsdóttur, 47 ára. Anna er rúmlega 170 sentimetrar á hæð, grannvaxin, með dökkt stutt hár. Hún er talin vera í brúnum rússkinsjakka, gallabuxum , svörtum stígvélum og með grátt hliðar veski. 12.4.2013 12:25
Vilja frekar gott verð en nýjasta nýtt Aðalatriðið að þeir séu á viðráðanlegu verði en hönnun og tækni skipta minna máli. 12.4.2013 12:15
Konu á fimmtugsaldri leitað Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og björgunarsveitir eru nú að hefja leit að konu á fimmtugsaldri sem ekkert hefur spurst til síðan kl. 20 í gær. Konan var klædd í brúnan rúskinsjakka, bláar gallabuxur og svört leðurstígvél þegar hún fór að heiman í vesturbæ Reykjavíkur í gærkvöld. Björgunarsveitir hafa verið kallaðar út í vesturborginni. 12.4.2013 11:55
Spurning hvort að Bjarni hafi sagt of mikið "Þetta samtal hans í gær er eitthvað sem maður á við sína nánustu vini, en það fór fram fyrir framan alþjóð," segir Stefanía Óskarsdóttir, stjórnmálafræðingur. 12.4.2013 11:06
Húsasmiðjan verður að afhenda sérstökum saksóknara ráðningasamninga Hæstiréttur hefur staðfest kröfu sérstaks saksóknara um að Húsasmiðjunni verði gert að afhenda sérstökum saksóknara afrit af ráðningarsamningum nokkurra starfsmanna fyrirtækjanna. 12.4.2013 10:58
Stal síma og hringdi til Sýrlands Karlmaður tilkynnti á dögunum að farsíma sínum hefði verið stolið á skemmtistað í umdæminu. Síminn var nýlegur og hafði kostað 100 þúsund krónur. Maðurinn sagði símann hafa verið notaðan daginn eftir að honum var stolið og hefði verið hringt úr honum til útlanda, þar á meðal til Sýrlands, fyrir þrjátíu þúsund krónur. 12.4.2013 10:30
Audi quattro bílar á palli Audi A6 Allroad, A7 quattro, Q3 quattro, Q5 quattro og Q7 quattro sýndir. 12.4.2013 10:30
Fjöldi nýliða á þingi Einungis fjórtán þingmenn af 63 sem sátu á Alþingi fyrir bankahrunið árið 2008 myndu sitja á þingi eftir kosningar 27. apríl næstkomandi verði niðurstöður kosninganna í takti við niðurstöður skoðanakannana sem hafa birst að undanförnu. 12.4.2013 10:12
Hraðaheimsmet blæjubíls Topplaus Bugatti Veyron náði 408 km hraða. Kostar ekki nema 310 milljónir. 12.4.2013 09:15
Djúpið frumsýnt í Noregi Djúpið, kvikmynd Baltasars Kormáks, verður frumsýndi í Noregi í dag og ríkir nokkur eftirvænting meðal þarlendra sem og aðstandenda kvikmyndarinnar. 12.4.2013 07:36
Elska gæludýrin meira en ættingjana Breskir gæludýraeigendur kjósa fremur að halla sér að gæludýri sínu en nánum ættingjum, ef þeim líður illa. 12.4.2013 07:27
Ærslagangur í Rússlandsforseta Vladimír Pútín Rússlandsforseti liggur nú undir ámæli fyrir meint mannréttindabrot, meðal annars fyrir að þrengja enn að samkynhneigðum þar í landi og einu sjálfstæðu kosningaeftirlitsstofnuninni. Mitt í þeirri umræðu sendi skrifstofa forsetans frá sér myndir af Pútín þar sem hann gantast með hundunum sínum, Buffy og Yume. 12.4.2013 07:00
Átta ár fyrir nauðgun og hrottalegt ofbeldi Jens Hjartarson nauðgaði konu og lúbarði fyrrverandi unnustu sína á meðan hún hélt á barninu sínu. 12.4.2013 07:00
Þarf að horfa til allra eigna við afnám gjaldeyrishafta Fulltrúar í þverpólitískri nefnd vara við einstökum aðgerðum varðandi erlendar eignir hérlendis. Ekki megi selja banka eða losa snjóhengju í sértækum aðgerðum. Fjárþörf úr krónueignum geti skert samningsstöðu. 12.4.2013 07:00
Tannlækningar fyrir börn verða ókeypis Langþráður samningur á milli tannlækna og velferðarráðuneytisins var undirritaður í gær. Samningurinn felur í sér stórbætta þjónustu við barnafjölskyldur. Nýtt kerfi verður innleitt í þrepum og fá 15-17 ára ungmenni þjónustuna fyrst. 12.4.2013 07:00
Útskúfuð Blönduóslögga í mál við ríkið Fyrrverandi lögregluvarðstjóri vill komast aftur til starfa á Blönduósi eftir að hann var sýknaður af kynferðisbroti. Hann segist vera "milli steins og sleggju tveggja stjórnvalda“ og kvartar undan því að lögreglustjórinn svari ekki erindum hans. 12.4.2013 07:00
Vopnuð íhlutun er alltaf sísti kosturinn Vopnuð íhlutun í þeim tilgangi að skipta um stjórnendur ríkis eða bylta stjórnskipan kann aldrei góðri lukku að stýra. Þetta segir John Prescott, fyrrverandi aðstoðarforsætisráherra Bretlands, í samtali við Fréttablaðið. 12.4.2013 07:00
13.200 fermetra vinnubúðir við Bjarnarflag Stefnt er að því að fyrirhugaðar vinnubúðir Bjarnarflagsvirkjunar verði reistar á lóð Kísiliðjunnar. Gert er ráð fyrir tólf byggingarreitum alls 13.200m². Þetta kemur fram í auglýsingu um deiliskipulag frá skipulags- og byggingarfulltrúa Skútustaðahrepps sem birt var í Mýflugunni í gær. 12.4.2013 07:00
Reyndi að stöðva birtingu stuðningslistans Lögmaður Guðnýjar Jónu Kristjánsdóttur, Berglind Svavarsdóttir, reyndi að koma í veg fyrir birtingu stuðningslista með 113 nöfnum í blaðinu Skránni á Húsavík árið 2000. 12.4.2013 07:00
Gunnar fundinn sekur um trúnaðarbrot Héraðsdómur Reykjavíkur sakfelldi í gær Gunnar Þ. Andersen, fyrrverandi forstjóra Fjármálaeftirlitsins, fyrir brot á þagnarskyldu með því að koma upplýsingum um viðskipti þingmannsins Guðlaugs Þórs Þórðarsonar til fjölmiðla í því skyni að koma á hann höggi. 12.4.2013 07:00
Vilja ríkislóðir fyrir leiguíbúðir „Þetta er ekki það eina sem þarf að gera til að efla leigumarkaðinn en væri að okkar mati mjög áhugavert og mikilvægt verkefni til að byggja upp öruggan leigumarkað,“ segir Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, sem vill samstarf við ríkið um uppbyggingu öruggari leigumarkaðar í Reykjavík. 12.4.2013 07:00
Fá veiðikortið fyrir nætureftirlit „Meirihlutinn í nefndinni er sammála því að gera þetta svona,“ segir Álfheiður Ingadóttir, formaður Þingvallanefndar, um samkomulag sem felur í sér að ekkert verður af banni við næturveiði í Þingvallavatni. 12.4.2013 07:00
Víða mikið frost á landinu Frostið fór niður í 17 gráður á Hveravöllum í nótt og yfir 19 gráður á Mörðuvöllum. Víða um land var sex til átta stiga frost á láglendi. Þá voru smá él á Ísafirði, Akureyri og Egilsstöðum, og þar í grennd í nótt, þannig að vetarrríki er víða um land. 12.4.2013 06:46
Töluverð skjálftavirkni er enn við Grímsey Töluverð skjálftavirkni er enn austur af Grímsey, en heldur virðist draga úr styrk skjálftanna. Þannig mældust aðeins tveir skjálftar á svæðinu yfir tvö stig í gær. 12.4.2013 06:44
Tekinn á 130 km hraða í Þrengslunum Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann upp úr miðnætti, eftir að bíll hans hafði mælst á 130 kílómetra hraða í Þrengslunum. Sektin við bortinu nemur 70 þúsund krónum, en þar sem hann greiddi sektina á staðnum fékk hann afslátt og greiddi 52,500 krónur. 12.4.2013 06:42
Fölsuð könnun Hans Kristján Árnason, einn stofnenda Stöðvar 2, segir fyrirtæki hafa falsað niðurstöður áhorfskannana. 12.4.2013 06:39
Kona játar að hafa kveikt í timburhúsahverfinu í Björgvin Kona á fimmtugsaldri gaf sig fram við lögregluna í Björgvin í Noregi í gærkvöldi og kvaðst hafa kveikt í á þremur stöðum í timburhúsahverfi í miðbæ Björgvinjar. 12.4.2013 06:39
Mikil snjóflóahætta á Tröllaskaga Mikil snjóflóðahætta er á utanverðum Tröllaskaga, eða í Fjallabyggð, að mati Veðurstofunnar. 12.4.2013 06:35
Telja að Norður Kórea geti skotið kjarnorkusprengjum með eldflaugum Í óbirtri skýrslu sem unnin hefur verið á vegum bandaríska varnarmálaráðumeytisins kemur fram að Norður Kóreumenn hafi þróað kjarnorkusprengjur og tækni til að skjóta þeim milli landa með langdrægum eldflugum. 12.4.2013 06:31
Gömul skinkupressa reyndist vera sjaldgæfur loftsteinn Spænski bóndinn Faustino Lopez er óvænt orðinn yfir 600 milljónum króna ríkari. Í ljós kom að áratuga gömul skinkupressa hans var í raun sjaldgæfur loftsteinn. 12.4.2013 06:22
Bjarni Ben íhugar afsögn "Ég er bara mannlegur," sagði Bjarni Benediktsson í viðtali á RÚV í kvöld þar sem hann tilkynnti að hann íhugaði að segja af sér sem formaður flokksins. Tíðindin koma í kjölfar könnunar Viðskiptablaðsins sem sýndi að flokkurinn nyti mun meira fylgis tæki varaformaður flokksins, Hanna Birna Kristjánsdóttir, við stjórnartaumunum. 11.4.2013 22:59
„Síðasta ríkisstjórn skapaði vandann, núverandi ríkisstjórn hefur ekki leyst hann“ Fulltrúar tólf framboða til Alþingis ræddu velferðar- og menntamál í málefnaþætti RÚV fyrr í kvöld. Deilt var um byggingu nýs sjúkrahúss og kjör starfsmanna í heilbrigðisstéttinni. 11.4.2013 22:32