Innlent

Bjarni heldur áfram sem formaður

Sagði aðeins einn formann í flokknum.
Sagði aðeins einn formann í flokknum.
Bjarni Benediktsson ætlar að halda áfram sem formaður flokksins. Þetta tilkynnti hann á gríðarlega fjölmennum fundi með sjálfstæðismönnum í Fjölbrautarskólanum í Garðabæ. Þar sagði hann að Sjálfstæðisflokkurinn væri einn flokkur með einn formann.

Þessi yfirlýsing kemur í kjölfar viðtals á RÚV þar sem Bjarni sagðist íhuga að stíga til hliðar sem formaður flokksins í ljósi könnunar í Viðskiptablaðinu. Ekki er ljóst hvort þetta veiki stöðu flokksins en hann hefur verið að mælast með mjög lágt fylgi í skoðanakönnunum síðustu vikur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×