Bíða allt að ár eftir greiningu á ADHD Hanna Ruth Ólafsdóttir skrifar 13. apríl 2013 07:00 Ellen Calmon
Fullorðnum einstaklingum sem leita sér aðstoðar vegna athyglisbrests hefur fjölgað mikið á undanförnum misserum og er biðtími eftir að komast í greiningarviðtal hjá geðlækni allt að eitt ár. Ástæða biðtímans helgast aðalega af skorti á geðlæknum auk þess sem ekki taka allir starfandi geðlæknar að sér meðferð einstaklinga með ADHD-röskun. Kristófer Þorleifsson geðlæknir segir neikvæða umræðu um ADHD og lyfjameðferð hluta ástæðunnar. Margir læknar vilji fyrra sig óþægindum. „Sumir treysta sér ekki til að vinna greiningar- og meðferðarvinnu í kringum ADHD og svo eru aðrir sem hafa tekið þá ákvörðun að firra sig óþægindum og þurfa þá ekki að liggja undir ámælum um að vera ávísa einhverju sem ekki á að ávísa,“ segir Kristinn. Hann segir mikilvægt að styrkja grunnstoðir heilsugæslunnar og létta þannig á sérfræðingum. Hann bendir á að nú sé búið að mynda teymi á göngudeild geðdeildar Landspítalans þar sem heimilislæknar geta vísa einstaklingum í greiningu. „Þar fer þá fram kembileit og greinist einstaklingurinn með kvillann er honum vísað aftur til aðilans sem vísaði honum í greininguna og meðferðin þá í hans höndum. Það á hins vegar eftir að leysa praktísk mál í því eins og að heimila heimilislæknum að sækja um lyfjakort.“ Kristófer segir að þessi þjónusta verði vonandi til mikilla bóta en óttast þó að mikil eftirspurn verði til þess að biðtíminn eftir greiningu þar verði einnig langur. Ellen Calmon, framkvæmdastjóri ADHD samtakanna, segir samtökin fá fjölda fyrirspurna á degi hverjum frá einstaklingum sem viti ekki hvert þeir eigi að snúa sér til að fá greiningu og komist ekki að hjá geðlækni. Margir líða fyrir ástandið en Ellen segir mikilvægt að greina ADHD fljótt til að koma í veg fyrir mögulegar afleiðingar af ómeðhöndluðu ADHD. „Ef einstaklingur fær ekki einhvers konar meðferð er hætta á að hann þrói með sér kvíða, sem leiðir af sér depurð, sem getur leitt tilþunglyndis,“ segir Ellen. Hún segir nauðsynlegt að ríkið komi að niðurgreiðslu á sálfræðiþjónustu og komi að fjölbreyttari meðferðarúrræðum. „Það er til fullt af öðrum meðferðarúrræðum en bara lyf og má þá nefna hópatferlismeðferð, hugræn atferlismeðferð og markþjálfun. Þessar meðferðir eru vegum sálfræðinga og einkaaðila en ríkið niðurgreiðir einungis lyfjameðferð.“
Mest lesið Fimm ríki fordæma ísraelsk stjórnvöld Erlent Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Innlent Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík Innlent Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Innlent Stillir sér upp með gálga og skreytti afmæliskökuna snöru Erlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Innlent Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Innlent Gestum komið fyrir á öðru hóteli Innlent Fleiri fréttir Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík „Ég elska að vera hér“ Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Sjá meira