Fleiri fréttir

Fækkaði um 1.000 milli ára

Ríkisstarfsmönnum fækkaði um þúsund á árunum frá 2010 til 2011. Þetta kemur fram í svari fjármálaráðherra við fyrirspurn Unnar Brár Konráðsdóttur þingkonu Sjálfstæðisflokks.

Úthafsrækjan áfram í lægð

Ljóst er að úthafsrækjustofninn er áfram í mikilli lægð miðað við síðasta áratug. Þetta sýnir árleg stofnmæling Hafrannsóknastofnunar sem er nýlokið.

Viðurkennir ekki dóminn

„Dómsúrskurðurinn er ranglátur, pólitískur, ólöglegur og ég mun ekki viðurkenna hann,“ segir Tariq al Hashemi, varaforseti Íraks.

Lögregla leitar enn byssumanns

Lögreglan í Tulsa í Oklahoma í Bandaríkjunum hefur enn ekki fundið byssumanninn sem myrti Kristján Hinrik Þórsson fyrir utan verslun á laugardagsmorgun.

Fagna sigri en hafa samt misst völdin

Lýðræðissinnar í Hong Kong hafa misst meirihluta sinn á landsþingi í kosningum, þrátt fyrir að hafa fengið meirihluta atkvæða almennings.

Afganar taka við föngunum

Afgönsk stjórnvöld tóku í gær við umsjón hins umdeilda Bagram-fangelsis úr hendi Bandaríkjahers.

Skiptar skoðanir um Crossfit

Ólympískar lyftingar geta ekki hentað bæði eldri borgurum og keppnisfólki segir íþróttafræðingur sem gagnrýnir Crossfit þjálfun landans harðlega. Crossfit þjálfari segir að hægt sé að segja að allar íþróttir séu slæmar fyrir líkamann.

Bílstjórinn einnig látinn

John White, þrjátíu og sjö ára gamall Bandaríkjamaður, sem særðist lífshættulega í skotárásinni í Tulsa um helgina, er látinn. White var bílstjóri bifreiðarinnar sem Kristján Hinrik Þórsson, átján ára, var farþegi í þegar vegfarandi hóf skotárás á þá. Dave Walker, varðstjóri morðdeildarinnar í Tulsa í Bandaríkjunum, staðfesti þetta við fréttastofu í kvöld.

Kópavogsbær gaf Jóni Margeiri 500 þúsund

Bæjarstjórn Kópavogs færði í dag Jóni Margeiri Sverrissyni, Kópavogsbúa og Ólympíumeistara, 500.000 krónur að gjöf fyrir glæsilegan árangur á Ólympíumóti fatlaðra í London.

Seljalandsfoss umturnaðist í óveðrinu

„Þetta var alveg rosalega flott," segir Sólveig Pálmadóttir, íbúi í Fljótshlíð, sem náði hreint út sagt ótrúlegum myndum af Seljalandsfossi í dag. Mikill vindur var á svæðinu, líkt og sjá má á meðfylgjandi myndum.

Hækkaðir skattar í ferðaþjónustu skaða Ísland

Framkvæmdastjóri Samtaka evróskra ferðaskrifstofa segir boðaðar skattahækkanir í ferðaþjónustu hafa sett allt í uppnám. Ekki sé hægt að hækka verðið eftir að búið að er gera samninga sem miða við þrefalt lægri skatta.

Íslendingar í klakahöll undir Grænlandsjökli

Virkjun sem Ístak er að smíða á Grænlandi við Diskóflóa lengst norðan heimskautsbaugs er stærsta verkefni í fjörutíu ára sögu fyrirtækisins. Þar er sennilega sú Íslendinganýlenda sem fjærst er öðrum byggðum bólum í sannkallaðri klakahöll við bæinn Ilulissat. Fyrri reynsla Ístaksmanna af smíði virkjana á Grænlandi réð miklu þegar Orkustofnun Grænlands fól þeim einnig þetta tólf milljarða króna verk, þótt þeir ættu ekki lægsta boð.

Björguðu kind sem fennt hafði í kaf

Aðeins er farið að hægja á verkefnum björgunarsveita þrátt fyrir að bálhvasst sé víða um land ennþá. Alls hafa 24 björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar verið við störf í dag og milli 70 til 80 manns.

Rafmagn komið á á Akureyri

"Við náðum að koma aðallínunni inn til Akureyrar til fyrir skömmu. Rafmagnið er því komið á þar, sem og á Eyjafjarðarsvæðinu. Kópasker er þó enn rafmagnslaust því eina línan sem þangað liggur er skemmd. Við erum að fara í það að laga hana núna,“ segir Guðlaugur Sigurgeirsson, deildarstjóri netrekstrar hjá Landsneti.

"Ég vil ekki deyja lengur, ég vil lifa"

Ung kona sem reyndi endurtekið að fremja sjálfsmorð segist ekki vilja deyja lengur, og að það sé gott að finna aftur lífslöngunina. Tveir til þrír Íslendingar fremja sjálfsvíg í hverjum mánuði.

Síðasta ferð Herjólfs fellur niður

Vegna veðurs og sjólags á milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar fellur niður síðasta ferð Herjólfs frá Vestmannaeyjum klukkan 20:30 og frá Landeyjahöfn klukkan 22:00.

Hinrik saklaust fórnarlamb fólskuverks

Varðstjóri morðdeildar lögreglunnar í Tulsa í er enn að fara yfir upptökur úr eftirlitsmyndavélum af svæðinu þar sem Hinrik Þórsson var myrtur aðfaranótt laugardagsins.

Ófært um Vatnsskarðið

Lögreglan á Sauðárkróki vill koma því á framfæri við vegfarendur að sé búið að loka Vatnsskarðinu vegna ófærðar en Þverárfjallsvegur verður mokaður til klukkan 20 í kvöld en þá verður honum einnig lokað.

Eldri kona tókst á loft í vindhviðu

Um klukkan hálf tólf í dag var tilkynnt um eldri konu sem hafði tekist á loft í vindhviðu við Hamraborg í Kópavogi. Að sögn lögreglu féll konan illa til jarðar og meiddist á vinstri öxl og hendi. Hún var flutt á slysadeild en ekki er vitað nánar um líðan hennar.

Fatlaðir fengu 4 milljónir frá ríkisstjórninni

Ríkisstjórnin færði í dag Íþróttasambandi fatlaðra fjórar milljónir króna að gjöf í viðurkenningarskyni fyrir glæsileg afrek íslensku þátttakendanna í Ólympíuleikum fatlaðra sem nýlokið er í Lundúnum.

Allt Norðurland án rafmagns

"Það er mjög óvenjulegt, sérstaklega svona í seinni tíð að svona stór hluti af landinu verði rafmagnslaus vegna veðurs,“ segir Guðlaugur Sigurgeirsson, rafmagnsverkfræðingur og deildarstjóri netrekstrar hjá Landsneti. Rafmagnslaust er nánast á öllu Norðurlandi, frá Blönduósi og að Kópaskeri, og þá er stórhluti Austurlands keyrði áfram á varaafli.

Malbikið stenst ekki veðurofsann

Það er hasar á Íslandi í dag og víða hafa menn lent í kröppum dansi vegna veðurofsa. Tugir björgunarsveitamanna hafa farið í hvert útkallið á fætur öðru og smalar hafa setið fastir í leitarmannakofum. Nú síðast stóðst malbikið við Skaftafellsá ekki veðurofsann og flettist af veginum við brúna.

Sambíóin loka á Selfossi

"Já, við ætlum að loka 1. nóvember nk. og höfum sagt upp öllu okkar starfsfólki á Selfossi, 10 manns. Ástæðan er fyrst og fremst gömul tæki á Selfossi, við erum með 35 mm vélar þar en nú er allt meira og minna komið í digital. Við treystum okkur ekki í að endurnýja tækin á Selfossi og ætlum því að loka,“ sagði Alfreð Árnason hjá Sambíóunum í samtali við fréttavefinn dfs.is, en Sambíó hefur verið á Selfossi síðan 2006.

Íslendingur tekinn með kíló af hassi í Þrándheimi

Norska lögreglan handtók á miðvikudag íslenskan mann á þrítugsaldri með kíló af hassi í tösku á Værnesflugvelli í Þrándheimi í Noregi. Maðurinn var að koma með flugi frá Kaupmannahöfn. Maðurinn ætlaði að láta efnið af hendi í Noregi, eftir því sem fram kemur á vef bladed.no.

Handteknir með 100 grömm af amfetamíni

Lögreglan stöðvaði tvo karlmenn á þrítugsaldri í Reykjavík fyrir helgina en þeir voru með 100 grömm af amfetamíni í fórum sínum. Þeir voru báðir handteknir. Lögreglan lagði hald á amfetamínið og sömuleiðis hnúajárn sem fannst í bifreið mannanna. Þeir hafa báðir komið áður við sögu hjá lögreglu, m.a. vegna fíkniefnamála.

Kornið að skemmast á Norðurlandi

Talsverðar líkur eru á að korn á Norðurlandi hafi skemmst vegna veðurs í nótt og í dag. Ekki liggur fyrir hve umfangsmiklar skemmdirnar eru.

Mögulega salmonella í kjúklingi frá Matfugli

Komið hefur upp grunur um salmonellusmit í ferskum kjúklingi framleiddum af Matfugli ehf. Frekari rannsókna er þörf til þess að staðfesta gruninn en þangað til þykir fyrirtækinu rétt að innkalla vöruna.

Boða til tunnumótmæla á miðvikudaginn

Boðað hefur verið til tunnumótmæla þegar stjórnmálaflokkar halda stefnuræður á Alþingi næstkomandi miðvikudag. Í tilkynningu frá hópi sem kallar sig Tunnurnar er almenningur hvattur til þess að mæta fyrir utan Alþingi klukkan hálf átta en stefnuræður flokkanna hefjast 19:50.

Engir smalar á ferð á Norðurlandi

Smalar á Norðurlandi hafa ekki lent í vandræðum vegna veðurs samkvæmt upplýsingum frá Bændasamtökum Íslands. Ástæðan er einfaldlega sú að þeir eru ekki á ferðinni sem stendur.

Jón Gnarr hvetur borgarstjórann í Moskvu til að leyfa gleðigöngur

Jón Gnarr borgarstjóri í Reykjavík hefur skrifað bréf til Sergey Sobyanin borgarstjóra í Moskvu. Í bréfinu lýsir Jón Gnarr því yfir að hann vilji deila því með borgarstjóranum hversu jákvæð áhrif Hinsegin dagar og gleðigangan hafi haft á ímynd Reykjavíkur og viðhorf almennings til samkynhneigðra, tvíkynhneigðra og transfólks. Orðið hafi mikil viðhorfsbreyting til batnaðar á Íslandi vegna hátíðarinnar sem sé nú ein stærsta útihátíðin í Reykjavík.

Tæplega 90% lögreglumanna eru karlmenn

Um 88% starfsmanna lögregluembættanna eru karlmenn. Þetta kemur fram í ársskýrslu Ríkislögreglustjóra. Þar kemur fram að á meðal starfandi óbreyttra lögreglumanna eru um 85% karlar en tæp 15% konur. Hæst er hlutfall kvenna meðal afleysingamanna, en þar eru konur um 20%, og næsthæst meðal rannsóknarlögreglumanna, en þar er hlutfalla kvenna tæp 18%. Af 35 aðalvarstjórum er ein kona. Engin kona gegnir stöðu yfirlögregluþjóns eða aðstoðarvarðstjóra.

Þakplötur fjúka af húsum

Þakplötur eru byrjaðar að fjúka af húsum í miðborginni. Auk þess er búið að kalla út björgunarsveitir til aðstoðar ferðamönnum á Kaldadal, í Vatnsskarði, við Mývatn, á Hólasandi, við Varmahlíð og í Víkurskarði. Björgunarsveitir hafa einnig verið kallaðar út vegna foks í Aðaldal, í Skagafirði, á Bolungarvík, í Vestmannaeyjum, á Mývatni og eins og fyrr sagði á höfuborgarsvæðinu. Slysavarnafélagið Landsbjörg ítrekar að lítið ferðaveður er á landinu í dag og í kvöld víðast hvar um landið.

Ánægð með ákvörðun Ögmundar - samningaviðræður ekki hafnar

"Umbjóðandi minn er mjög ánægður með þessa ákvörðun," segir Áslaug Árnadóttir hæstaréttarlögmaður og lögmaður Höllu Bergþóru Björnsdóttur, sýslumanns á Akranesi, út af ákvörðun Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra um að kæra ekki úrskurð kærunefndar jafnréttismála til Héraðsdóms Reykjavíkur.

Kornið sleppur ennþá í rokinu á Suðurlandi

„Það er allt í lagi hjá okkur og kornið er ekki að skemmast þrátt fyrir rokið. Ég hef meiri áhyggjur af korninu fyrir norðan, það hlýtur að fara mjög illa í þessu veðri," sagði Björgvin Þór Harðarson, svína- og kornbóndi í Laxárdal í Skeiða og Gnúpverjahreppi. Hann ræktar korn á um 200 hekturum í Gunnarsholti á Rangárvöllum. „Það besta er að það rignir ekki eða snjóar hjá okkur í þessu vonda veðri, það munar öllu, það er alveg þurrt þrátt fyrir mikið hvassviðri, það bjargar korninu hér á Suðurlandi," bætti Björgvin Þór við.

Smala ekkert í dag

Leitarmenn á Suðurlandi munu ekki smala mikið í dag vegna veðurs. 16 manna hópur á afrétt Gnúpverja, Flóa- og Skeiðamanna heldur nú til í leitarmannakofa í Bjarnalækjarbotnum og bíður veðrið af sér.

Íslenskt sprotafyrirtæki þykir best

Íslenska sprotafyrirtækið Cloud Engineering var í dag valið besta sprotafyrirtækið á Norður- og Eystrasaltslöndunum í flokki viðskiptahugbúnaðar. Valið fór fram fyrir hina árlegu Arctic 15 ráðstefnu sem haldin verður 16. október næstkomandi.

Skattahækkanirnar í ferðaþjónustu áfall

Boðaðar skattahækkanir í ferðaþjónustu á Íslandi eru áfall fyrir alla þá sem hafa ákveðið að kynna og fjárfesta í ferðaþjónustu á landinu. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Samtökum evrópskra ferðaskrifstofa sem send var fjölmiðlum í morgun.

Segir forvörnum gegn sjálfsvígum sérlega ábótavant

Faðir pilts sem framdi sjálfsvíg þegar hann var 22ja ára segir forvörnum gegn sjálfsvígum verulega ábótavant á Íslandi. Á Íslandi fremja tveir til þrír sjálfsvíg í hverjum mánuði. Alþjóðlegur dagur tileinkaður forvörnum vegna sjálfsvíga er í dag. Talið er að í heiminum öllum verði sjálfsvíg á 40 sekúntna fresti. Á Íslandi eru að jafnaði 33 til 37 sjálfsvíg á ári. Á síðasta ári voru þau 40.

Ögmundur unir úrskurði kærunefndar jafnréttismála

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra ætlar ekki að láta reyna á það fyrir dómstólum hvort hann hafi brotið jafnréttislög. Þetta kemur fram í hádegisfréttum RÚV. Þar segir að úrskurður Kærunefndar jafnréttismála muni standa.

Ákærður fyrir umfangsmikla kannabisræktun

Ungur maður hefur verið ákærður fyrir ýmiss konar fíkniefna- og ofbeldisbrot, m.a. að rækta 120 kannabisplöntur á heimili sínu. Ferliðuð ákæra var þingfest fyrir héraðsdómi Reykjavíkur í dag þar sem krafist er viðeigandi refsingar.

40 krossar til minningar um þá sem sem létust í sjálfsvígum

Snemma í morgun voru settir upp 40 krossar við Austurvöll framan við Dómkirkjuna til að minna á hversu margir látast í sjálfsvígum. Samkvæmt bráðabirgðatölum létust 40 í sjálfsvígum árið 2010 en síðustu ár hefur fjöldinn verið í kringum 33-37 sjálfsvíg á ári. Hæst fóru sjálfsvíg árið 2000 en þá féll 51 fyrir eigin hendi.

Bretar hreykja sér af ólympíumóti fatlaðra

Ólympíumót fatlaðra endaði formlega í gær þegar ólympíueldurinn slokknaði. Þar með lauk hinu breska ólympíska sumri sem Bretar telja sjálfir til allra glæsilegustu ólympíuleika fyrr og síðar.

Sprengjusérfræðingar á heimili bresku fjölskyldunnar

Sprengjusérfræðingar breska hersins voru í dag sendir að heimili bresku hjónanna sem skotin voru til bana í frönsku Ölpunum í síðustu viku. Talið er sprengja hafi fundist á heimilinu. Húsin í nágrenninu hafa verið rýmd og svæðinu umhverfis lokað fyrir umferð.

Sjá næstu 50 fréttir