Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Búast við kæruflóði í Mýrarboltanum Evrópumeistaramótið í Mýrarbolta fer fram á Ísafirði um helgina. Jón Páll Hreinsson, mýrarfláki (hvorki drullusokkur né skíthæll) var gestur í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis í dag. Hann ræddi þar við þáttastjórnendur um mótið og þá athyglisverðu kæruhefð sem myndast hefur í kringum það. 3.8.2012 21:00
Tillaga Sivjar um forvirkar rannsóknarheimildar verður lögð fram á ný Frumvarp innanríkisráðherra um forvirkar rannsóknarheimildir dagaði uppi í þinginu en allir umsagnaraðilar lögðust gegn því, þar með talin lögreglan sjálf sem sagði frumvarpið í engu bæta við gildandi heimildir. Tillaga Sivjar Friðleifsdóttur um sama mál þótti betri en var ekki samþykkt vegna málþófs. 3.8.2012 20:30
Skortur á lagaheimildum - undirheimaforingjar ganga lausir Lögreglan getur ekki aðhafst gegn nokkrum stórum undirheimaforingjum vegna skorts á lagaheimildum en mennirnir eru allir taldir stýra umfangsmikilli skipulagðri glæpastarfsemi. Lögreglan telur sig geta beitt sér með forvirkum rannsóknarheimildum, eins og eftirliti og hlerunum án þess að til staðar sé grunur um afbrot. 3.8.2012 19:45
Sveigði frá fuglum og valt Bíll valt á Ólafsfjarðarvegi í morgun. Að sögn lögreglunnar á Akureyri var orsök óhappsins sú að ökumaður reyndi að sveigja hjá fuglum sem voru á veginum. 3.8.2012 18:13
Allsherjarþing fordæmir öryggisráð Fulltrúar á Allsherjarþingi Sameinuðu Þjóðanna samþykktu í dag ályktun þar sem öryggisráðið er fordæmt fyrir að bregðast ekki við óöldinni í Sýrlandi. 3.8.2012 17:25
Jón Bjarnason: Hvers vegna þessi feluleikur? Jón Bjarnason, fyrrverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, blandar sér í umræðuna um Huang Nubo og Grímsstaði á fjöllum á bloggi sínu í dag. Hann segist enn styðja ákvörðun Ögmundar Jónassonar, innanríkisráðherra, um að synja kínverjanum um undanþágu til kaupa á Grímsstaðajörðinni. 3.8.2012 17:08
Beyoncé leiðir herferð fyrir mannúðarstarf Beyoncé verður í broddi fylkingar í herferð sem Sameinuðu Þjóðirnar hófu í dag til að hvetja fólk til að vinna að velferð annarra. Á alþjóðlega degi mannúðarstarfs, sem verður 19. ágúst, er vonast til að herferðin hafi náð til eins milljarðs manna. 3.8.2012 16:45
Vikan sem var Veðrið hefur verið Íslendingum hliðhollt í vikunni sem nú tekur brátt enda. Fólk hefur nýtt það til ýmissa athafna og hafa ljósmyndarar Fréttablaðsins og Vísis fylgst með ýmsu af því sem fram fór. Þeir skelltu sér meðal annars í Gerðuberg og á Árbæjarsafn en fóru líka á landsmót á Selfossi. Smelltu hér til að sjá myndir frá liðinni viku. 3.8.2012 16:42
Fundu byssu í farangri farþega í Leifsstöð Byssa fannst í farangri farþega sem var að fara frá landinu seinni partinn í júlí. Byssan, sem reyndist síðar vera startbyssa, var í svokölluðum lestarfarangri og var taskan tekin til hliðar þegar hún fannst. Þá var haft samband við farþegann sem var kominn um borð í flugfar. 3.8.2012 16:03
Rannsaka hvort fullorðinn karlmaður hafi reynt að tæla telpur Foreldri barns í Kópavogi fullyrðir að karlmaður hafi lokkað sjö ára gamla telpu og vinkonu hennar frá Hörðuvallaskóla bak við íþróttahúsið Kórinn í gær þar sem hann sagðist ætla að gefa þeim rabbabara. Skilaboð þessa efnis ganga um á Facebook og Vísir hefur fengið staðfest að málið var tilkynnt til lögreglunnar. Þar á bæ eru menn með málið í rannsókn. 3.8.2012 15:28
Tafir byrjaðar að myndast við Selfoss Umferðin við Selfoss er farin að þyngjast og umferðartafir við Ölfusárbrú farnar að myndast. Landsmenn hugsa sér margir til hreyfings nú um helgina og fara þá fjölmargir um Selfoss á leið sinni í aðra hvora áttina. 3.8.2012 15:08
Tökur á Game of Thrones hefjast í nóvember Tökur á nýrri seríu af Game of Thrones munu hefjast um miðjan nóvember næstkomandi. Þetta staðfestir Snorri Þórisson, hjá kvikmyndaframleiðslufyrirtækinu Pegasus, í samtali við Vísi. "Þeir koma hérna í nóvember," segir Snorri. Tökurnar munu fara fram á svæði við Mývatn. 3.8.2012 15:02
Hungraðir þjóðhátíðargestir flykkjast í Krónuna "Þetta er bara geðveiki, en mjög gaman," segir Jane Yvonne Quirk, verslunarstjóri Krónunnar í Vestmannaeyjum, um starfsemina í versluninni þessa dagana. Krónan er stærsta matvöruverslun eyjanna og nú flykkjast hungraðir þjóðhátíðargestir í búðina. 3.8.2012 14:57
Fullyrt að Thor 2 verði tekin upp hér Hollywoodmyndin sem líklegt er að verði tekin upp hér á landi er myndin Thor:The Dark World. Þetta er fullyrt á kvikmyndavefnum Svarthöfða. 3.8.2012 13:51
Annie Mist segir stuðning þjóðarinnar skipta sköpum Annie Mist Þórisdóttir kom heim í dag eftir að hafa sigrað heimsmeistaramót í crossfit annað árið í röð. Hún ávarpaði aðdáendur sína í Skeifunni í dag fyrir utan húsnæði Crossfit Reykjavík. Múgur og margmenni var þar samankomið, m.a. ættingjar hennar og vinir. 3.8.2012 13:09
Mikil fækkun afbrota samhliða nýrri taktík lögreglu og auknum jöfnuði Afbrotum fækkaði verulega á síðasta ári og er breytingin samhliða lækkun á svokölluðum Gini-stuðli sem mælir ójöfnuð í skiptingu tekna. Fækkun afbrota skýrist af nýrri aðferðafræði lögreglunnar sem skilaði sér meðal annars í tilnefningu til nýsköpunarverðlauna. 3.8.2012 12:07
Óvenjuleg fyrirhyggja í vínkaupum fyrir helgina Veigamikill þáttur í tilstandi Íslendinga um verslunarmannahelgina er að drekka vín - mikið vín. Sala áfengis í vínbúðum landsins rýkur fram úr öllu valdi þannig að stundum hefur þurft að hleypa fólki inn í hollum. Venjulega er talað um að föstudagurinn fyrir verslunarmannahelgina sé einn af þremur stærstu dögum ársins í vínsölu. 3.8.2012 12:06
Fjórða Hollywoodmyndin líklegast tekin á Íslandi í haust Miklar líkur eru á að fjórða Hollywood myndin verði tekin upp hér á landi í október. "Það eru sterkar líkur á því," segir Leifur Dagfinnsson, hjá True North, í samtali við Vísi. Hann segir þó ekkert hafa verið ákveðið endanlega. Þess vegna sé ekki tímabært að tjá sig um það um hvaða mynd er að ræða. 3.8.2012 11:46
Slæmt ástand á malarvegum Ástand malarvega víða um land er með lakara móti samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Ástæðan er sú að lítið hefur verið hægt að hefla vegna langvarandi þurrka. 3.8.2012 10:51
Móðir Assange óttast að sonur sinn hljóti dauðarefsingu Móðir Julian Assange, stofnanda WikiLeaks, fullyrðir að málatilbúnaðurinn á hendur syni sínum séu pólitískar ofsóknir. Hún hefur áhyggjur af því að hann verði dæmdur til dauða ef hann verður framseldur til Bandaríkjanna. Hún hitti forseta Ekvador á miðvikudaginn, en Assange hefur sótt um pólitískt hæli í Ekvador. 3.8.2012 10:38
Smyglari tekinn með tugi lítra af áfengi Lögreglan og tollgæslan á Vestfjörðum lagði hald á 38 lítra af sterku áfengi og 37.000 sígarettur um borð í flutningaskipi sem kom til lestunar á Bíldudal síðastliðinn miðvikudag. Varningurinn fannst við leit í skipinu og var tilbúinn til hífingar frá borði. Talið er að hann hafi átt að fara til dreifingar hér á landi. Einn skipverji var handtekinn vegna málsins. Honum var sleppt í gærkveldi að lokinni yfirheyrslu. Samkvæmt upplýsingu frá lögreglu telst málið upplýst og er það komið til ákærumeðferðar. 3.8.2012 10:20
Þyrlan sótti veikan sjómann Skipverji á íslensku togveiðiskipi var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á spítala í morgun. Um hálfsjöleytið bað skipstjórinn um samband við lækni þyrlunnar vegna sjúklings um borð og var ákveðið að maðurinn yrði sóttur. Skipstjórinn fékk jafnframt fyrirmæli um að sigla í átt að landi. Maðurinn var svo kominn í þyrluna um hálfníuleytið og var þyrlan lent í flugskýli Landhelgisgæslunnar um níuleytið þar sem sjúkrabíll tók við sjúklingnum og flutti hann á Landsspíatlann. 3.8.2012 10:18
Ný stjórnmálaöfl komin með listabókstafi Innanríkisráðuneytið hefur úthlutað þremur nýjum stjórnmálaöflum listabókstafi fyrir næstu alþingiskosningar. 3.8.2012 10:10
Samlokurnar ódýrastar hjá Iceland Express Samlokur eru áberandi á matseðlum þeirra flugfélaga sem halda uppi millilandaflugi héðan frá Íslandi allt árið. Samkvæmt verðkönnun sem Túristi.is gerði eru þær ódýrastar hjá Iceland Express og kosta nærri því helmingi minna en brauðið hjá Norwegian, þar sem þær eru dýrastar. 3.8.2012 09:44
Emma Watson komin til Íslands Leikkonan Emma Watson, sem leikur ofurkláru galdrastelpuna Hermione Granger í Harry Potter myndunum, er á Íslandi. Um miðnætti í gærkvöldi tilkynnti hún heimsbyggðinni um komu sína á Twitter með orðunum "I'm in ICELAND!! Boo Ya!!!!!!" 3.8.2012 09:29
Keppni hafin á Unglingalandsmótinu Fyrstu keppnir á Unglingalandsmóti Ungmennafélags Íslands hófust klukkan átta í morgun. Keppt var í golfi, körfubolta, frjálsum íþróttum og knattspyrnu svo eitthvað sé nefnt. Stöðugur straumur fólks lagði inn á mótssvæðið í gær og hafa eigendur hundruða tjaldvagna, fellihýsa og tjalda komið sér fyrir. Á vefsíðu mótsins segir að aldrei hafi fleiri þátttakendur skráð sig til keppni en þeir eru um 2000. 3.8.2012 09:28
Allar skýrslur FBI um Marilyn Monroe eru horfnar Allar skýrslur bandarísku alríkislögreglunnar FBI um leikkonuna Marilyn Monroe eru horfnar. Það sama gildir um Þjóðskjalasafn Bandaríkjanna en þar finnst hvorki tangur né tetur af skjölum FBI. 3.8.2012 07:44
Björt framtíð eina af nýju framboðunum sem ekki tapar fylgi Þrjú af fjórum nýju framboðunum fyrir næstu Alþingiskosningar tapa fylgi frá fyrri mánuði, samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallups, en Björt framtíð þeirra Guðmundar Steingrímssonar og Heiðu Kristínar Helgadóttur vinnur á og mælist nú með 5,3 prósent. 3.8.2012 06:47
Putin vill væga dóma yfir Pussy Riot Vladimir Putin forseti Rússlands segir að stúkurnar þrjár í pönkhljómsveitinni Pussy Riot eigi ekki að hljóta þunga dóma fyrir mótmælaaðgerðir þeirra gegn sér. 3.8.2012 06:45
Stöðvuðu 17 ára stúlku á 146 km hraða Selfosslögreglan stöðvaði 17 ára stúlku á Eyrarbakkaveginum seint í gærkvöldi eftir að bíll hennar hafði mælst á 146 kílómetra hraða. 3.8.2012 06:39
Allsherjarþing SÞ ætlar að fordæma öryggisráðið Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna mun greiða atkvæði í dag um ályktun þar sem öryggisráð Sameinuðu þjóðanna er fordæmt fyrir að hafa ekki tekist að stöðva átökin í Sýrlandi. 3.8.2012 06:29
Stradivarius fiðla lenti meðal óskilamuna á lögreglustöð Sá einstæði atburður átti sér stað í vikunni að Stradivarius fiðla lenti meðal óskilamuna á lögreglustöð í borginni Bern í Sviss. 3.8.2012 06:21
Vindátt og viðbúnaður hindruðu náttúruspjöll í Elliðavatni Hagstæð vindátt og mikill viðbúnaður slökkviliðsins eru talin hafa komið í veg fyrir náttúruspjöll í Elliðavatni, þegar sjö lítrar af smurolíu láku af vél jeppa, sem rann mannlaus út í vatnið um átta leitið í gærkvöldi. 3.8.2012 06:16
Hópslagsmál í Vestmannaeyjum í nótt Hópslagsmál brutust út í Vestmannaeyjabæ um fjögur leitið í nótt, eftir að karlmaður réðst á unga konu og veitti henni áverka. 3.8.2012 06:12
Björgunarskólinn á Gufuskálum lagður niður Slysavarnafélagið Landsbjörg ætlar að hætta rekstri almannavarna- og björgunarskólans á Gufuskálum á Snæfellsnesi og hefur sagt upp starfsfólki sínu þar. 3.8.2012 08:53
Féll af hestbaki og meiddist Kona meiddist þegar hún féll af hestbaki í grennd við Hvanneyri í Borgarfirði undir miðnætti. Hún var flutt á heilsugæsluna í Borgarnesi til aðhlynningar. 3.8.2012 08:51
Kostnaður vegna hælisleitenda þrefaldast á fjórum árum Kostnaður danska ríkisins vegna hælisleitenda hefur þrefaldast á undanförnum fjórum árum. 3.8.2012 06:38
Þrjár farþegavélar rákust nær saman yfir Washington Flugmálayfirvöld í Bandaríkjunum rannsaka nú hvernig á því stóð að þrjár farþegavélar næstum því rákust saman á flugi skammt frá Ronald Reagan flugvellinum í Washington á þriðjudaginn var. 3.8.2012 06:34
Ölvaðir bílstjórar gerst sekir um manndráp Ökumenn sem aka undir áhrifum áfengis eða annarra vímugjafa og verða valdir að dauða annars hafa verið ákærðir fyrir manndráp, og fangelsisdómar hafa fallið vegna slíkra mála. Umferðarstofa hvetur aðstandendur ökumanna sem ætla af stað ölvaðir til að grípa í taumana. 3.8.2012 06:30
Elsti flóðhestur heimsins er dáinn Elsti flóðhestur heimsins er allur. Um var að ræða flóðhestinn Donnu sem verið hafði til sýnis í dýragarðinum í bænum Evansville í Indíana í Bandaríkjunum frá árinu 1956. 3.8.2012 06:26
Þarf að loka til að hagræða í rekstri Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur sagt upp starfsmönnum sínum í Björgunarskólanum á Gufuskálum á Snæfellsnesi, þar sem haldin hafa verið námskeið fyrir björgunarfólk um árabil. 3.8.2012 06:00
Segir fleiri í arnarvarpsskoðun Páll Kr. Pálsson stjórnarformaður Sæferða segir að það verði forvitnilegt að sjá hvernig yfirvöld taki á öðrum sjófarendum sem sigli um sömu svæði og þeir um Breiðafjörðinn. 3.8.2012 05:30
Rannsaka hegðun hvala við Ísland Háskóli Íslands (HÍ) kynnti í gær samstarfsverkefni um hvalarannsóknir með Alþjóðadýraverndunarsjóðnum (IFAW). Verkefnið er til sex vikna og mun beinast að rannsóknum á hegðun hvala við Ísland. 3.8.2012 05:30
Hvalaskoðarar fengu áfallahjálp eftir strand „Báturinn var við Lundey að skoða fugla í blíðu veðri þegar hann strandaði,“ segir Þorsteinn Jóhannesson, framkvæmdastjóri hvalaskoðunarfyrirtækisins Norðursiglingar, sem gerir meðal annars út bátinn Hauk. Haukur strandaði með 37 farþega innanborðs við Lundey á Skjálfanda í gær. 3.8.2012 05:00
Guðjón Már eignast OZ-nafnið á ný Jón Stephenson von Tetzchner, stofnandi og fyrrum forstjóri norska hugbúnaðarfyrirtækisins Opera, hefur fjárfest í íslenska sprotafyrirtækinu Medizza. 3.8.2012 05:00