Ölvaðir bílstjórar gerst sekir um manndráp 3. ágúst 2012 06:30 Farþegi eða ökumaður sem er ekki í bílbelti getur lent á öðrum í bílnum með höggþunga tveggja Afríkufíla í árekstri á miklum hraða. Fréttablaðið/Rósa
Ökumenn sem aka undir áhrifum áfengis eða annarra vímugjafa og verða valdir að dauða annars hafa verið ákærðir fyrir manndráp, og fangelsisdómar hafa fallið vegna slíkra mála. Umferðarstofa hvetur aðstandendur ökumanna sem ætla af stað ölvaðir til að grípa í taumana. Í samantekt Umferðarstofu kemur fram að ölvaðir ökumenn valda fimmta hverju banaslysi í umferðinni hér á landi. Þó áfengis-áhrifin séu oft ekki mikil geti afleiðingarnar verið hræðilegar. Þá er bent á að allt tjón sem ölvaðir ökumenn valda getur lent á þeim sjálfum, enda eiga tryggingafélögin endurkröfurétt á ökumenn sem aka undir áhrifum vímugjafa. Umferðarstofa minnir einnig á bílbeltanotkun. Lítill hluti ökumanna og farþega notar enn í dag ekki öryggisbelti. Ekki aðeins eru þeir sjálfir í meiri hættu lendi þeir í árekstri heldur geta þeir valdið öðrum mikilli hættu þegar þeir kastast til í bílnum. Samkvæmt útreikningum Umferðarstofu getur 75 kílóa einstaklingur sem kastast til í bíl sem lendir í árekstri á 90 kílómetra hraða lent á samferðamanni sínum með um 10 tonna höggþunga. Það er sambærilegt við að lenda undir tveimur fullvöxnum Afríkufílum, segir í tilkynningu Umferðarstofu. Þar er einnig áréttað að bílar með tengivagna mega ekki aka hraðar en á 80 kílómetra hraða á klukkustund, og brýnt fyrir ökumönnum að haga akstri þannig að sem auðveldast sé að taka fram úr þeim. - bj
Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Fleiri fréttir Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Sjá meira