Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Stefnir í öruggan sigur Romney í Illinois Allt stefnir í að Mitt Romney vinni öruggan sigur í prófkjöri Repúblikanaflokksins í Illinois ríki sem fer fram í dag. 20.3.2012 06:51
Norðmenn segja upp samningum við Færeyjar vegna makrílsdeilu Vefsíðan fishupdate greinir frá því að Norðmenn ætli að segja upp öllum tvíhliða fiskveiðisamningum sínum við Færeyjar vegna makríldeilunnar. Í frétt um málið er sagt áhugavert að sjá hvort Norðmenn leiki sama leikinn við Íslendinga. 20.3.2012 06:46
ESB flýtir ákvörðun um refsiaðgerðir gegn Íslandi og Færeyjum Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ætlar að flýta ákvörðun um refsiaðgerðir gegn Íslendingum og Færeyingum vegna makríldeilunnar svo málið verði útkljáð þegar viðræður um sjávarútvegskaflann í aðildarvilðræðum Íslands að sambandinu hefjast í næsta mánuði. 20.3.2012 06:43
Víða vandræði vegna illviðris og ófærðar Björgunarsveitarmenn í Búðardal voru kallaðir út í gærkvöldi til að aðstoða fólk í föstum bílum á Bröttubrekku, en þar var illviðri eins og víða um vestanvert landið í gærkvöldi. 20.3.2012 06:39
Gífurleg leit að árásarmanninum í Toulouse Einhver mesta lögregluleit í sögu Frakklands er nú gerð að árásarmanninum sem skaut fjóra til bana, þar af þrjú börn fyrir utan gyðingaskóla í borginni Toulouse í gærmorgun. 20.3.2012 06:35
Lögregla gagnrýnir innanríkisráðherra - fréttaskýring Hversu langt eiga stjórnvöld að ganga til að vinna gegn skipulagðri glæpastarfsemi hér á landi? Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur ekki trú á því að lagalegt bann við starfsemi alþjóðlegra glæpasamtaka hér á landi skili nokkru. 20.3.2012 06:00
Vilja að Rússar styðji vopnahlé í Sýrlandi Rauði krossinn hefur beðið Rússa um að hafa milligöngu um tveggja tíma vopnahlé daglega í Sýrlandi. Talsmenn Rauða krossins segja Rússa hafa tekið vel í málið. 20.3.2012 02:00
Romney vann stórisgur í Púertó Ríkó Mitt Romney vann stórsigur í forkosningum Repúblikanaflokksins í Púertó Ríkó á sunnudag. Romney hlaut yfir áttatíu prósent atkvæða og alla tuttugu kjörmennina. 20.3.2012 01:00
Fjöldamorðingja leitað í Frakklandi Fjórir eru látnir eftir að byssumaður á vespu eða mótorhjóli hóf skothríð við gyðingaskóla í borginni Toulouse í Frakklandi í gærmorgun. Þrjú börn létust og eitt er alvarlega sært. Viðtæk leit hefur verið gerð að manninum. 20.3.2012 00:00
Gandálfur kemur Hobbitanum til bjargar Kvikmyndafyrirtæki í Hollywood og lítil krá í Bretlandi eiga í harðvítugri deilu um notkun á persónum úr hugmyndaheimi J.R.R. Tolkiens, höfundi Hringadróttinssögu og The Hobbit. 19.3.2012 22:00
Hundurinn Adolf kostaði eiganda sinn fangelsisdóm Þýskur maður hefur verið dæmdur í fimm mánaða fangelsi fyrir að kenna hundinum sínum að heilsa að hætti nasista þegar „Heil Hitler!" er kallað. 19.3.2012 21:30
Ætla að telja allar kanínur í Reykjavík Fyrsta almenna kanínutalningin fer nú fram í Reykjavík. Með henni á að reyna að finna út hversu margar villtar kanínur er að finna innan borgarmarkanna. 19.3.2012 20:00
Lóan er komin - varað við ísingu og éljahryðjum Það er víst staðreynd, Lóan er komin. Allavega greinir Skessuhorn frá því á vef sínum að fyrsta heiðlóan sé sannanlega komin til landsins. Mynd náðist af henni á heimtúninu við bæinn Ytri Hólm í Hvalfjarðarsveit, skammt sunnan við Akranes. 19.3.2012 19:42
Fríhöfnin dýrari en Bónus Vörukarfa með sælgæti og hreinlætisvörum er ellefu prósentum ódýrari í Bónus en í Fríhöfninni. Þrátt fyrir þetta eru vörur í Fríhöfninni undanskildar virðisaukaskatti og aðflutningsgjöldum. 19.3.2012 19:30
Endurteknar yfirlýsingar ráðherra um uppbyggingu ekki enn ræst Samningi um kísilver á Suðurnesjum hefur verið rift en honum lýstu forystumenn ríkisstjórnarinnar sem mikilvægum skilaboðum um að menn hefðu trú á framtíðinni á Íslandi. Ítrekaðar yfirlýsingar ráðherra undanfarin tvö ár, um að Þingeyingar ættu að búa sig undir stórfellda atvinnuuppbyggingu, hafa heldur ekki ræst. 19.3.2012 18:53
Fjögur hundruð prósent aukning hjá björgunarsveitum Björgunarsveitir á landinu öllu fóru að meðaltali í fjögur útköll á dag í janúarmánuði. Þetta er um fjögurhundruð prósenta aukning frá fyrra ári. 19.3.2012 18:30
Mikill verðmunur á kirsuberjatómötum - vitlaus samanburður Bjarni Jónsson framkvæmdastjóri Samtaka garðyrkjubænda svaraði fyrir mikinn verðmun á innlendu og erlendu grænmeti í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Ástæðan var grein sem birtist á Pressunni þar sem því var haldið fram að verðmunur á kirsuberjatómötum væri gríðarlegur. 19.3.2012 17:33
Tveir létust í snjóflóðinu í Noregi Tveir ferðamenn létust í snjóflóði í Kaafjord í norðurhluta Noregs í dag. Björgunarmenn leita enn þriggja manna en einn fannst á lífi fyrir stuttu. 19.3.2012 16:59
Sama byssan notuð í árásum á hermenn Talið er að byssan sem notuð var í skotárás í skóla fyrir gyðinga í frönsku borginni Toulouse í morgun hafi verið notuð í tveimur eldri árásum. Sama er að segja um vélhjólið sem árásarmaðurinn notaði en hjólinu og byssunni var stolið fyrir nokkru. Fjórir létust í árásinni í morgun og sautján ára piltur særðist alvarlega. 19.3.2012 16:54
Reuters fjallar um gagnaver Verne Global Fjallað er um Verne Global gagnaverið að Ásbrú í Reykjanesbæ á heimasíðu Reuters í dag. Þar segir að gagnaverið sem opnaði nýverið, sé umhverfisvænasta gagnaver í heiminum. Meðal annars er talað við forstjóra Verne, Jeff Monroe, sem bendir á að stuðst sé við orku frá endurnýjanlegum orkugjöfum auk þess sem staðsetningin, mitt á milli Evrópu og Ameríku sé afar góð. 19.3.2012 16:30
Leita að sex ferðmönnum sem lentu í snjóflóði Björgunarmenn í Tromsø leita nú sex ferðamanna sem lentu í snjóflóði í Kaafjord í norðurhluta Noregs í dag. 19.3.2012 15:46
Hollendingur ætlaði að reykja hass á Íslandi - fékk 40 þúsund króna sekt Hollenskur karlmaður var stöðvaður við hefðbundið eftirlit í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á fimmta tímanum í gær. Fíkniefnahundurinn Nelson hafði gefið til kynna að hann væri með fíkniefni í fórum sínum og við leit fundust rúmlega þrjú grömm af meintu kannabisefni í sýnapoka. Þá reyndist hann vera með hasspípu í forum sínum, tvær hasskökur og lítinn poka með ætluðum kannabisfræjum. 19.3.2012 15:04
Fimmtán mánaða fangelsi fyrir vopnað rán Karlmaður um þrítugt var dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir vopnað rán og akstur undir áhrifum fíkniefna. Maðurinn fór inn í söluturn í Breiðholti í mars í fyrra, í félagi við konu, með andlitið á sér hulið og vopnaður hamri og hafnarboltakylfu. Hann krafðist þess að fá pening og hafði um tíu til fimmtán þúsund krónur með sér á brott. Þá ók hann einnig bifreið undir áhrifum amfetamíns og áfengis. Maðurinn játaði brot sín en hann rauf skilorð með brotunum. Þá var hann einnig sviptur ökuréttindum ævilangt. 19.3.2012 14:50
Kaþólikkar á Vestfjörðum ósáttir - undirskriftalisti sendur á biskup Kaþólskir á Patreksfirði, Tálknafirði og Bíldudal kvarta undan því að ekki séu haldnar kaþólskar messur á sunnanverðum Vestfjörðum og vilja að skoðað verði að byggja kaþólska kirkju á Patreksfirði. 19.3.2012 14:34
Ofurölvi maður með amfetamín í sokknum Lögreglunni á Suðurnesjum barst tilkynning aðfararnótt sunnudagsins um einstakling sem væri grunaður um að vera með amfetamín í fórum sínum. Lögreglumenn fundu fljótlega einstakling sem passaði við þá lýsingu sem gefin hafði verið. 19.3.2012 14:17
Tæmdi 6 kíló slökkvitæki yfir gesti á skemmtistað Gestur á skemmtistaðnum Paddýs í Reykjanesbæ tæmdi úr sex kílóa slökkvitæki yfir staðinn og gesti þar aðfararnótt sunnudags. 19.3.2012 14:15
Margfaldur munur á gjaldtöku banka Margfaldur munur er á gjaldtöku banka við skuldaraskipti á íbúðalánum, Landsbankinn rukkar minnst en Frjálsi fjárfestingarbankinn og Íslandsbanki innheimta prósentu af lánsupphæð. Talsmaður neytenda telur óeðlilegt að innheimta hlutfallsgjald af slíkri skjalagerð. 19.3.2012 19:00
Clarissa fann kannabis Tveir karlmenn voru handteknir í kjölfar húsleitar sem lögreglan á Suðurnesjum gerði í umdæminu um helgina. Leitað var í íbúðarhúsnæði að fengnum dómsúrskurði. Við húsleitina fannst marijuana í tösku í stofu íbúðarinnar. Jafnframt voru í töskunni bíllyklar af bifreið sem stóð fyrir utan húsnæðið. Fíkniefnahundurinn Clarissa leitaði í bifreiðinni og fundust tvær pakkningar milli framsæta bílsins af meintu marijuana. Annar hinna handteknu játaði að eiga ofangreind efni. Í herbergi hins mannsins sem handtekinn var fundusr marijuana, sveppir og tvær e-pillur. Sá maður viðurkenndi einnig eign sína á þeim efnum. Eftir yfirheyrslur á lögreglustöð voru mennirnir látnir lausir og teljast málin upplýst. 19.3.2012 14:19
Skrifar bók um líf dóttur sinnar - leitar eftir aðstoð almennings Jóhannes Kr. Kristjánsson blaðamaður vinnur nú að bók um Sigrúnu Mjöll dóttur sína sem lést fyrir nokkrum misserum. Á bloggsíðu sinni segir Jóhannes að bókin verði blanda af hennar sögu og hvernig baráttan við það að koma henni til aðstoðar hafi gengið fyrir sig. Hann biðlar nú til almennings og lýsir eftir sögum og myndum af Sigrúnu, eða Sissu, eins og hún var kölluð. 19.3.2012 13:19
Fordæma aftökur í Hvíta Rússlandi Leiðtogar Evrópusambandsins hafa fordæmt ákvörðun stjórnvalda í Hvíta Rússlandi þess efnis að taka af lífi tvo menn sem sakfelldir voru fyrir mannskæðar sprengjuárásir í neðanjarðarlestarstöð í höfuðborginni Minsk í fyrra. 19.3.2012 13:46
Fréttaskýring: Litla ávöxtun að hafa sé sparnaður ekki bundinn Þegar sparifjáreigendur meta á hvers konar innlánsreikningum skynsamlegast er að geyma sparnað þurfa þeir fyrst að ákveða hvað binda má sparnaðinn lengi. Litla raunávöxtun er að fá á óbundnum reikningum. 19.3.2012 13:00
Myndband við framlag Bretlands í Eurovision opinberað Myndband við lagið Love Will Set You Free, sem er framlag Bretlands í Eurovision í ár, hefur verið opinberað. Það er Engelbert Humperdinck sem flytur lagið. 19.3.2012 12:47
Fjórir látnir eftir skotárás í Frakklandi Fjórir eru látnir eftir að maður hóf skotárás á gyðingaskóla í borginni Toulouse í Frakklandi í morgun. Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands segir árásina vera þjóðarharmleik. 19.3.2012 12:18
Laus úr öndunarvél en er haldið sofandi Framkvæmdastjóri Lagastoðar, Skúli Sigurz, sem slasaðist lífshættulega í hnífaárás fyrir tveimur vikum er kominn úr öndunarvél. Hann dvelur þó enn á gjörgæslu og er haldið sofandi. Árásarmaðurinn, Guðgeir Guðmundsson, situr í gæsluvarðhaldi og gengst hann nú undir geðrannsókn. Hann hefur játað verknaðinn. 19.3.2012 12:10
Leyft að rannsaka virkjanakosti á ný Orkustofnun hefur veitt Landsvirkjun rannsóknarleyfi vegna Skrokkölduvirkjunar, þrátt fyrir ósk Landverndar til iðnaðarráðherra um að útgáfa rannsóknarleyfa yrði áfram bönnuð meðan rammaáætlun væri óafgreidd frá Alþingi. Þetta er fyrsta rannsóknarleyfið sem Orkustofnun veitir eftir að tímabundið bann rann út þann 1. febrúar síðastliðinn. 19.3.2012 12:08
Hafa þurft að bjarga flestum sem ætla yfir jökulinn Björgunarsveitir hafa þurft að sækja flesta þá sem ætla yfir Vatnajökul í vetur enda tíðin verið óvenju slæm. Belgísku ferðamennirnir tveir sem var bjargað um helgina eru brattir, og ætla að ferðast áfram um landið næstu daga. 19.3.2012 12:00
Borgarverðir aðstoði útigangsfólk Borgarverðir eru færanlegt vettvangsteymi sérfræðinga sem mun þjónusta utangarðsfólk í Reykjavík. Í frétt á vef Reykjavíkurborgar segir að þeim sé ætlað að aðstoða fólk sem á í erfiðleikum vegna vímuefnafíknar og/eða geðsjúkdóma og sem stöðu sinnar vegna lendir í aðstæðum á almannafæri sem það ræður ekki við eða veldur öðrum ónæði. 19.3.2012 11:46
Eurovison-myndbandið frumsýnt klukkan 12 Myndbandið við Mundu eftir mér sem er Eurovision-framlag okkar Íslendinga í ár verður frumsýnt á vefsíðu Vodafone klukkan 12 á hádegi í dag. 19.3.2012 11:41
Ný samtök nefnast Dögun Dögun – samtök um réttlæti, sanngirni og lýðræði er nafn nýrra stjórnmálasamtaka. Þetta var ákveðið á öðrum stofnfundi samtakanna sem fram fór í gær. Um hundrað manns sátu fundinn. 19.3.2012 11:00
Barist á götum Damaskus Harður bardagi geisar nú í höfuðborg Sýrlands, Damaskus. Vitni segja að vélbyssugelt heyrist og sprengjur springi með reglulegu millibili í hverfi þar sem öryggissveitir Al-Assads forseta eru með höfuðstöðvar sínar. Ekkert hefur verið staðfest með mannfall en talsmaður mannréttindasamtaka sem starfa í landinu fullyrðir að átján stjórnarhermenn hafi særst. 19.3.2012 10:53
Ómar Ragnarsson: Þjófurinn er í vanda "Þeir sem tóku þetta eru áreiðanlega í vandræðum því það er enginn sem vill kaupa svona vél. Ég bara bíð og vona," segir skemmtikrafturinn Ómar Ragnarsson. Fyrir rúmlega tveimur vikum var stolið frá honum tveimur kvikmyndatökuvélum og einu magabelti með veski sem hann hafði lagt frá sér við innganginn á blokkinni sinni. 19.3.2012 10:51
Grunaðir um morð á sextán sjúklingum Tveir karlkyns hjúkrunarfræðingar í Uruguay hafa verið ákærðir grunaðir um samtals sextán morð. Annar þeirra er sagður hafa myrt ellefu sjúklinga sína og hinn fimm. 19.3.2012 10:35
Þriðjungur er andvígur meiri virkjun Afstaða fólks til aukinna virkjanaframkvæmda á Hellisheiði er önnur en til almennrar nýtingar jarðvarma. Þetta kemur í ljós þegar bornar eru saman tvær nýlegar kannanir. 19.3.2012 09:00
Farfuglaheimili fyrir 250 manns við Hlemm Farfuglaheimili með herbergjum fyrir 250 gesti verður innréttað gegnt Hlemmtorgi ef áform eigenda hússins ganga eftir. 19.3.2012 09:00
Þrír féllu í skotárás á skóla í Toulouse Þrír féllu, þar af tvö börn, þegar maður á skellinörðu hóf skothríð á gyðingaskóla í borginni Toulouse í Frakklandi í morgun. 19.3.2012 08:57