Fleiri fréttir

Hjón fundu sjaldgæfa 6.000 ára gamla rafperlu

Hjón sem voru á gangi eftir ströndinni við Tårs á Lálandi fundu afar sjaldgæfa útskorna rafperlu þar. Rafið er skorið út í líki lítils gullfisks en það er talið vera um 6.000 ára gamalt.

Rigning á Titan á 1.000 ára fresti

Nýja rannsókn sem unnin hefur verið úr gögnum frá Cassini geimfarinu sýna að það rignir á Titan einu af tungli Satrúnusar.

Háværar kröfur um opinbera rannsókn á máli Merah

Háværar kröfur eru uppi í Frakklandi um opinbera rannsókn á því af hverju leyniþjónusta landsins kom ekki í veg fyrir morðin sem Mohammed Merah framdi í Toulouse áður en hann var sjálfur felldur eftir umsátur sérsveitar lögreglunnar í gærmorgun.

Kókaín fannst í blóði Whitney Houston

Andlát söngkonunnar Whitney Houston var slys. Dánarorsökin liggur ljós fyrir, Houston drukknaði í baðkari á herbergi sínu á Beverley Hilton hótelinu í Los Angeles.

Hitabylgja helgarinnar gerir vart við sig

Svokölluð hitabylgja, sem landsmenn vonast nú eftir, er farin að gera vart við sig og voru farnar á sjást tveggja stafa hitatölur strax á sjötta tímanum í morgun.

Tryggja meirihluta Rammaáætlunar

Unnið er að því að tryggja þingmeirihluta fyrir Rammaáætlun um verndun og nýtingu náttúrusvæða. Áætlunin hefur verið afgreidd úr ríkisstjórn og er nú í þingflokkum stjórnarflokkanna. Tillögu verkefnisstjórnar er breytt og virkjanakostir færðir úr nýtingarflokki yfir í biðflokk. Unnið er að því að tryggja meirihluta málsins.

Kvöð um 50 ára aldursmark óbreytt

Félagið FM-hús ehf. sem á íbúðablokkina Skipalón 10 til 14 fær ekki fellda niður kvöð sem er á húsinu og öðrum fjölbýlishúsum í næsta nágrenni í Skipalóni um að íbúar á svæðinu séu fimmtíu ára eða eldri. Erindi FM-húsa var tekið fyrir í skipulags- og byggingaráði Hafnarfjarðar á þriðjudag. Fjöldi athugasemda barst frá íbúum til beggja handa við Skipalón 10.

Olweus er samofinn skólastarfinu

Ingibjörg Jósefsdóttir, skólastjóri Hagaskóla, segir nauðsynlegt að allir skólar séu með einhvers konar eineltisáætlun. Eins og greint var frá í Fréttablaðinu í gær, hefur einelti í þeim skólum sem fylgja Olweusar-áætluninni dregist saman um þriðjung.

Romney þokast nær sigrinum

Mitt Romney er kominn langleiðina að því að tryggja sér útnefningu Repúblikanaflokksins fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum í nóvember næstkomandi. Forvali er nú lokið í helmingi ríkjanna. Slagur repúblikana hefur verið afar langur og óvæginn, en Romney hefur smátt og smátt verið að bæta við sig kjörmönnum á flokksþingið í ágúst. Þar verður frambjóðandi flokksins útnefndur til að takast á við Barack Obama forseta.

Herinn vildi fá öflugri vopn

Amadou Toumani Toure, forseti Malí, komst heilu og höldnu undan þegar herinn í landinu gerði þar valdarán í fyrrinótt. Herinn tók á sitt vald helstu valdastofnanir landsins.

Áhrif á kosningabaráttuna

Mánuður er til forsetakosninga í Frakklandi og margt bendir til þess að voðaverk Mohammeds Merah séu strax farin að hafa áhrif á þær.

Whitney Houston drukknaði í baði

Krufning hefur leitt í ljós að dánarmein stórsöngkonunnar Whitney Houston var drukknun. Svo vriðist sem hún hafi drukknað í baðkarinu þar sem hún fannst þann 11. febrúar síðastliðinn. Það er BBC sem greinir frá þessu.

Merethe Lindstrøm fékk bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs

Það var rithöfundurinn Merethe Lindstrøm sem hlaut bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 2012. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í Háskóla Íslands um klukkan sjö í kvöld. Verðlaunin fær Lindstrøm fyrri bók sína, Dager i stillhetens historie, sem kom út á síðasta ári í Noregi.

Lækkaði verðið og var kosinn besti rekstrarstjórinn

Nú nýverið var haldinn árlegur fundur hjá rekstrarstjórnendum TGI Friday´s í heiminum og fór hann fram í Dallas í Texas samhliða heimsmeistarakeppni barþjóna hjá keðjunni, einnig voru menn heiðraðir fyrir fyrirmyndarárangur.

Grásleppan sendir fræðingunum "puttann“

Grásleppuvertíðin fer vel af stað fyrir norðan en þetta er í fyrsta sinn sem bannað er að henda grásleppunni í sjóinn eftir að búið er að hirða úr henni hrognin. Við Eyjafjörð byrjuðu flestir að leggja grásleppunetin fyrir viku og í Grenivíkurhöfn hitti Stöð 2 þá Þórð Ólafsson og Ingólf Björnsson sem voru að gera klárt fyrir róður á Elínu ÞH.

Fá ekki rafmagn fyrir fiskimjölsverksmiðjur

Hægt væri að spara hundruð milljóna í gjaldeyri með því að raforkuvæða íslenskar fiskimjölsverksmiðjur. Þetta segir rekstrarstjóri verksmiðju HB Granda á Akranesi. Rafmagnið hefur hins vegar ekki fengist.

Segir andstöðu gegn Vaðlaheiðargöngum með ólíkindum

Bæjarstjóri Akureyrar segir með ólíkindum hvernig allskyns hlutir séu leitaðir uppi gegn Vaðlaheiðargöngum og hvetur stjórnvöld til að drífa framkvæmdina af stað nú þegar. Fimm mánuðum eftir að tilboð voru opnuð í gerð Vaðlaheiðarganga situr verkefnið fast í meðförum ríkisstjórnar og Alþingis.

Ekki lengur hægt að senda nafnlaus smáskeyti

Gerðar hafa verið endurbætur á SMS-sendingum í gegnum vefsíðuna Já.is. Frá og með deginum í dag munu þeir sem senda SMS af Já.is þurfa að auðkenna sig áður en þeir geta sent SMS-skeyti í íslensk farsímanúmer. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Leyniskytta felldi Merah

Fjöldamorðinginn Mohammed Merah lést eftir að leyniskytta skaut hann í höfuðið. Saksóknari staðfesti þetta fyrir stuttu.

Ósannað að byssumennirnir hafi reynt að drepa fórnarlömbin

Axel Már Smith, sem var ákærður fyrir aðild að skotárás í Bryggjuhverfinu í nóvember síðastliðnum, var sýknaður af þeim ákærulið. Þetta kemur fram í dómnum sem Vísir hefur undir höndum. Þrír menn voru ákærðir í málinu. Auk Axels voru það þeir Kristján Halldór Jensson, sem var dæmdur í fjögurra ára fangelsi, og Tómas Pálsson Eyþórsson sem var dæmdur í eins og hálfs árs fangelsi. Skotið var á bíl við bílasöluna Höfðahöllin.

Olíudómi verður áfrýjað

Íslenska ríkið þarf að endurgreiða olíufélögunum sektargreiðslur vegna verðsamráðs upp á einn og hálfan milljarð króna samkvæmt niðurstöðu héraðsdóms Reykjavíkur. Félögin nutu að mati dómara ekki andmælaréttar í samræmi við lög.

Framkvæmdastjóri smálánafyrirtækis: Umræðan einkennist af forsjáhyggju

"Við fögnum umræðunni og að það sé verið að taka á fjármálalæsi hjá fólki,“ segir Leifur Haraldsson, framkvæmdastjóri hjá Kredia, í viðtali við Reykjavík síðdegis í dag. Þar voru smálánin til umræðu en Reykjavík síðdegis ræddi við Breka Karlsson í gær, en hann hefur varað við smálánum auk þess sem hann kennir ungu fólki fjármálalæsi.

Fóðurbíll valt

Engin slys urðu á fólki þegar stór fóðurbíll valt á hliðina í hringtorgi á Suðurlandsvegi, austanmegin við Olís bensínstöðina, nú eftir hádegið. Samkvæmt upplýsingum frá árekstri.is var vegurinn lokaður um tíma.

Bíl stolið frá Suzuki bílaumboðinu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir ljósgráum Suzuki Swift með skráningarnúmerið SSA-91 en bílnum var stolið frá Suzuki bílaumboðinu í Skeifunni í síðustu viku. Þeir sem geta gefið upplýsingar um hvar bíllinn er niðurkominn eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000 eða senda tölvupóst á netfangið abending@lrh.is

Fyritækin skylduð til að gera öryggisáætlun

Allir sem bjóða ferðir innanlands verða skyldaðir til þess að útbúa öryggisáætlun, nái nýtt frumvarp um breytingu á lögum um skipan ferðamála fram að ganga. Þetta kom fram á aðalfundi Samtaka ferðaþjónustunnar sem fram fer í dag. Oddný Harðardóttir, ráðherra ferðamála, greindi frá því á fundinum, að hún bindi mestar vonir við þennan hluta frumvarpsins sem snýr að öryggi ferðamanna. „Í öryggisáætlun á að koma fram mat á áhættu viðkomandi ferðar og lýsing á því hvernig ferðaskipuleggjandi hyggist bregðast við beri vá að höndum í ferðinni,“ segir í tilkynningu.

Tölvuglæpir urðu að pólitísku andófi á síðasta ári

Aðgerðarsinnar stálu mun meira af gögnum frá stórfyrirtækjum á síðasta ári en tölvuþrjótar. Fjarskiptafyrirtækið Verizon hefur birt niðurstöður rannsóknar þar sem rýnt var í fjölda tölvuárása og skaðsemi þeirra.

Helmingur erlendra ferðamanna heimsækir sömu staðina

Rúmlega helmingur erlendra ferðamanna kemur til landsins á sumrin og flestir heimsækja sömu staðina, t.d. Þingvelli, Gullfoss, Geysi og Mývatnssveit, segir dr. Anna Dóra Sæþórsdóttir. Hún flytur erindi um þolmörk ferðamennskunnar á aðalfundi Samtaka ferðaþjónustunnar í dag sem fer fram á Nordica Hilton í Reykjavík.

Sigurður náði besta árangri Íslands í Bocuse d'Or

Sigurður Kristinn Laufdal Haraldsson matreiðslumaður náði í gær besta árangri Íslendinga til þessa í forkeppni einnar virtustu matreiðslukeppni heims, Bocuse d'Or. Sigurður og aðstoðarmenn hans lentu í fjórða sæti sem tryggir þeim sæti í úrslitum að ári.

Höfuðpaur í skotárásarmáli í fjögurra ára fangelsi

Kristján Halldór Jensson, höfuðpaurinn í skotárásarmálinu í Bryggjuhverfi, var dæmdur í fjögurra ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavikur í dag. Tómas Pálsson Eyþórsson var dæmdur í átján mánaða fangelsi fyrir aðild sína að málinu og Axel Smith var dæmdur til að greiða tæpar 70 þúsund krónur í sekt. Tómas var sá eini af sakborningunum sem var mættur við dómsuppkvaðningu. Mennirnir eru dæmdir fyrir hættubrot en ekki tilraun til manndráps.

Selja húsmuni úr dánarbúi

„Við fengum dánarbú í hús og hugsuðum með okkur að við þyrftum einhvern veginn að koma því í pening,“ segir Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjölskylduhjálpar Íslands.

Vilja lækkun vatnsskatts

Sóknarnefndir Kársness-, Digraness, Hjalla-, og Lindasóknar óska eftir því að bæjarráðið í Kópavogi lækki verulega vatnsskatt og holræsagjald á kirkjur bæjarins.

Komst undan með klinkhaug

Grímuklæddur ræningi komst undan á hjóli eftir að hafa rænt kjörbúð í Vissenberg á Fjóni í fyrrakvöld. Hann bar þungar klyfjar á flóttanum enda var meginþorri ránsfengsins, 30 þúsund danskra króna, í smámynt.

Vigdís um kvenréttindabaráttuna: Öfgar geta eyðilagt góðan málstað

"Ég vil ekki að karlar þurfi að upplifa það sem konur þurftu að upplifa áður, að konur séu orðnar það sterkar að karlar þurfi að hafa sig alla við til að viðhalda jafnrétti," segir Vigdís Finnbogadóttir, fyrrum forseti Íslands. Hún segir það mikil forréttindi að fá að fæðast á Íslandi.

Frönsk sérsveit felldi fjöldamorðingjann í Toulouse

Fjöldamorðinginn Mohammed Merah féll í árás sérsveitar frönsku lögreglunnar inn í íbúð hans í borginni Toulouse fyrir nokkrum mínútum. Þar með lauk yfir 30 klukkustunda umsátri lögreglunnar um íbúðina.

Eignarhald á orku verði óskert

Íslensk stjórnvöld munu fara fram á sérlausnir í aðildarviðræðum við ESB um orkumál til að tryggt verði að eignarhald Íslands á orkuauðlindum verði ekki skert á nokkurn hátt, né heldur rétturinn til þess að þess að stjórna auðlindum.

Hrefna Sætran segir fyrrverandi starfsmenn stela uppskriftum

Hrefna Rós Sætran veitingamaður biðlar til kollega sinna um að kynna sér vel hvern þeir ráða í vinnu. Hún segist tvívegis hafa lent í því að starfsfólk sem hún hefur þurft að láta fara, vegna lélegra vinnubragða og slælegrar mætingar, hafi stolið frá henni uppskriftum. Þetta fólk hafi síðan verið ráðið annars staðar þar sem það hafi boðið upp á nákvæmlega sömu rétti og Hrefna hafi haft á boðstólum.

Forsetinn launahæstur

Forseti Íslands er launahæstur þeirra sem heyra undir kjararáð. Hann er með 1916 þúsund krónur í mánaðalaun. Launalægstur þeirra sem heyra undir ráðið er aftur á móti forstöðumaður Listasafns Einars Jónssonar. Sá er með 458 þúsund krónur í mánaðalaun. Þetta kemur fram í svari Oddnýar Harðardóttur fjármálaráðherra við fyrirspurn Eyglóar Harðardóttur, þingmanns Framsóknarflokksins, á Alþingi.

Verðlaun afhent í HÍ í kvöld

Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs verða afhent við hátíðlega athöfn í Háskóla Íslands klukkan 19 í dag. Þetta er í 50. skipti sem verðlaunin verða veitt, og í fyrsta skipti sem ekki er tilkynnt um verðlaunahafana fyrir verðlaunaathöfnina.

Hafði verið látinn í 3 mánuði

62 ára enskur maður sem bjó á Írlandi fannst látinn í íbúð sinni í gær. Hann hafði verið látinn frá því um jól án þess að nokkur gerði sér grein fyrir því.

Sjá næstu 50 fréttir