Ekki lengur hægt að senda nafnlaus smáskeyti 22. mars 2012 17:55 Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri ja.is.
Gerðar hafa verið endurbætur á SMS-sendingum í gegnum vefsíðuna Já.is. Frá og með deginum í dag munu þeir sem senda SMS af Já.is þurfa að auðkenna sig áður en þeir geta sent SMS-skeyti í íslensk farsímanúmer. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Þar segir að ókeypis SMS-sendingar í gegnum vefinn hafi staðið íslenskum netnotendum til boða í áraraðir. Brögð hafa verið að því í gegnum tíðina að þjónustan hafi verið notuð til að senda nafnlaus skilaboð í farsíma fólks. Héðan í frá munu notendur þjónustunnar auðkenna sig með innskráningu og svokölluðu „SMS handartaki". SMS-skeytin sem send verða af Já.is verða auðkennd og þau munu birtast móttakandanum á sama hátt og ef væru send úr farsíma sendanda. Þessi breyting felur það jafnframt í sér að hægt verður að svara þeim sem sendi skeytið beint. Önnur breyting er að SMS skeyti af Já.is verða héðan í frá gjaldfærð. Verð fyrir sendingu hvers skeytis verður á bilinu 6-8 kr sem er um 30% ódýrara en það kostar í gjaldskrá símafyrirtækjanna. Hingað til hafa SMS skeytin verið ókeypis en þeim hafa í staðinn fylgt auglýsingar. Póst- og fjarskiptastofnun vakti hins vegar athygli Já á því undir lok síðasta árs að auglýsingar mætti einungis senda með SMS-skeytum þegar móttakandi skeytisins hefði veitt samþykki sitt fyrir þeim fyrirfram. „Við vildum finna leið til að þurfa ekki hætta að bjóða SMS-sendingar af Já.is þegar þessi ábending Póst- og fjarskiptastofnunar barst. Við ákváðum frekar að líta á þetta sem tækifæri og höfum því unnið að því að geta áfram veitt þessa þjónustu þó með breyttum og vonandi bættum hætti sé," segir Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Já. „SMS-sendingar af netinu verða nú auðkenndar, þeim verður hægt að svara og farsímanotendur allra stærstu símafyrirtækjanna munu geta nýtt þessa þjónustu."
Mest lesið Bein útsending: Lilja formaður eftir spennandi flokksþing Innlent Sinueldur við Framheimilið Innlent „Við erum áratugum of sein“ Innlent Lilja Alfreðsdóttir er nýr formaður Framsóknarflokksins Innlent Veiktist er hann reyndi að afsanna Havana-heilkennið Erlent „Ég er heppin að hafa ekki brotnað“ Innlent „Eins og handboltaþjálfari sem er á bekknum“ Innlent „Það gekk alls konar á en ég er sátt við mína kosningabaráttu“ Innlent „Framsókn styður ekki bókun 35“ Innlent Ritari og varaformaður kjörnir: Báðar Liljur utan þings Innlent Fleiri fréttir Happdræti Háskólans varar við svikurum Íhugar að leggja á sykurskatt „Framsókn styður ekki bókun 35“ Meiri hætta á ferðum vegna rýrnunar jökla Sinueldur við Framheimilið Ritari og varaformaður kjörnir: Báðar Liljur utan þings Gómaður með hamar, hnífa og þýfi „Eins og handboltaþjálfari sem er á bekknum“ „Það gekk alls konar á en ég er sátt við mína kosningabaráttu“ Lilja Alfreðsdóttir er nýr formaður Framsóknarflokksins Áþreifanleg eftirvænting eftir nýja formanninum Formaður Bændasamtakanna hefur aldrei orðið hræddur við tré „Erfitt fyrir formann að taka við sitjandi utan þings“ Bein útsending: Lilja formaður eftir spennandi flokksþing „Við erum áratugum of sein“ „Margt jákvætt að gerast en allir á tánum“ Mikil spenna fyrir formannskjör Framsóknarflokksins „Ég er heppin að hafa ekki brotnað“ Öryggi, heilbrigðismál, Evrópa og efnahagur á Sprengisandi Tölvuárás á Grund: Afrituðu gögn um tugi þúsunda manns Rósin segir sig úr fulltrúaráði Samfylkingarinnar Ný samræmd próf lögð fyrir Framsókn þurfi að þora að svara rangfærslum og hálfsannleik popúlista „Hrækjandi drullu eins og maður sé að steypa án grímu“ Kjartan er kominn heim til Íslands Aldrei fleiri útskrifast frá Bifröst Gagnrýnir hversu seint og illa endurreisn Grindavíkur gengur Íslendingar stemmningsfólk sem taki öllum gleðidögum fagnandi Bein útsending: Sigurður Ingi ávarpar Framsóknarmenn í síðasta sinn sem formaður Segir einkaðila ekki hafa fengið svör í marga mánuði Sjá meira