Fleiri fréttir

Lengd fingra skiptir máli

Þeir sem eru með lengri baugfingur en vísifingur eru líklegri til þess að þurfa gervilið í hné vegna slitgigtar. Þetta kom fram á rannsóknarráðstefnu Lyflækningasviðs LSH.

Sá eftirlýsti gaf sig fram við lögreglu

Ungur maður gaf sig fram við lögreglu í gærkvöldi eftir að lögregla hafði lýst eftir honum vegna sprengingarinnar við úra- og skartgripaverslun við Banakstræti fyrr í vikunni.

Hitamet kann að falla um helgina

Spáð er ört hlýnandi veðri í dag og næstu daga. Veðurstofan spáir allt að 15 stiga hita um helgina, hlýjast fyrir norðan.

Ofurölvi kona tekin úr umferð

Lögreglan á Suðurnesjum tók ofurölvi konu úr umferð um eitt leitið í nótt eftir að hún hafði ekið kantanna á milli eftir götunum.

NASA finnur vísbendingar um ís á Merkúr

Geimskip frá NASA, geimferðarstofnun Bandaríkjanna, hefur fundið vísbendingar um að ís sé að finna við norður- og suðurskaut pláneturnnar Merkúrs.

Grásleppuvertíðin hafin

Grásleppusjómenn eru farnir að vitja um í net sín sem þeir lögðu fyrr í vikunni, þegar vertíðin mátti hefjast.

Mikill verðmunur á fiski milli fiskverslana

Verðmunur á fiski reyndist hátt í 160 prósent milli fiskverslana á höfuðborgarsvæðinu þegar verðlagseftirlit ASÍ gerði könnun á fiskverði í 23 fiskbúðum um allt land fyrr í vikunni.

Jeb Bush styður Mitt Romney

Mitt Romney náði mikilvægum áfanga í gærdag í baráttu sinni um að verða forsetaefni Repúblikanaflokksins. Þá ákvað Jeb Bush hinn áhrifamikli ríkisstjóri Flórída að styðja Romney og hvatti jafnframt alla Repúblikana til að gera hið sama.

11 búnar í aðgerð

Samkvæmt upplýsingum frá landlæknisembættinu hafa 11 konur farið í aðgerð á Landspítalanum þar sem PIP-púðar voru fjarlægðir úr brjóstum þeirra. Á göngudeild hafa komið um 75 til 80 konur og búið er að bóka göngudeildartíma fram í apríl. Alls eru áætlaðar 32 aðgerðir í þessum mánuði.

Umsátrið í Toulouse stendur enn

Umsátrið um fjölbýlishúsið í Toulouse þar sem fjöldamorðinginn Mohammed Merah heldur sig stendur enn sólarhing eftir að það hófst.

Aðgengi að kössunum verði takmarkað

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segir brýnt að samræma það regluverk sem gildir um spilakassa og happdrætti. Einnig vill hann láta auka eftirlit gífurlega og takmarka aðgengi að spilakössum. Þá vill hann grípa til úrræða til að sporna gegn fjárhættuspilum á netinu.

Einelti hefur dregist saman um þriðjung á fimm árum

Á árunum 2007 til 2011 hefur einelti dregist saman á landsvísu um þriðjung, nemendum fækkar sem leggja í einelti og nemendur telja kennara og aðra starfsmenn beita sér meira. Þetta er meðal niðurstaðna eineltisrannsókna í grunnskólum á Íslandi sem fylgja Olweusar-áætluninni gegn einelti og andfélagslegu atferli.

150 hús og íbúðir handa 11.500

Orlofssjóður Kennarasambands Íslands (KÍ) hefur opnað nýjan bókunarvef og vefverslun fyrir orlofshús sín, hótel- og flugmiða auk veiðikorts.

Óráð að ráða bæjarfulltrúa

"Ég held að öllum finnist óeðlilegt að það sé ráðinn í þetta fyrrverandi bæjarfulltrúi. Þau tengsl eru óþægileg þegar hugsað er um vanhæfi og siðareglur,“ segir Hjálmar Hjálmarsson, bæjarfulltrúi Næst besta flokksins í Kópavogi.

Fáeinir dagar eftir af vertíðinni

Loðnuvertíð er að ljúka en aðeins tuttugu þúsund tonn eru óveidd af 591 þúsund tonna aflamarki, samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Fiskistofu. Skip HB Granda áttu í gær óveidd um 1.500 tonn af kvóta fyrirtækisins og er vonast til þess að hægt verði að ná því magni í vikunni. Ingunn AK hefur lokið veiðum en hin skipin eru enn að.

Bretar lækka hátekjuskattinn

Hátekjuskattur í Bretlandi verður lækkaður úr 50 prósentum í 45 prósentum fyrir apríl á næsta ári. George Osborne, fjármálaráðherra Bretlands, greindi meðal annars frá þessu þegar hann kynnti fjárlagafrumvarpið í gær.

46 drepnir í árásum í Írak

Al-Kaída hefur lýst sprengjuárásum í átta borgum í Írak á hendur sér. Minnst 46 létust í árásunum í fyrradag, en þeim var beint gegn lögreglunni og sjíta-múslimum.

Eldur í bíl

Eldur kom upp í bil við Höfðabakka upp úr klukkan níu í kvöld. Mikill eldur var í bílnum en svo virðist sem eldsvoðinn hafi átt upptök sín í vél bílsins. Ekki er ljóst hvað kveikti eldinn. Bíllinn er gjörónýtur. Enginn í bílnum slasaðist. Slökkviliðið réði niðurlögum eldsins og voru fljótir að því.

Vill rannsaka lán Seðlabankans til Kaupþings skömmu fyrir hrun

Formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis, Helgi Hjörvar, vill láta kanna til hlítar hvers vegna Seðlabankinn tók ákvörðun um að lána Kaupþingi jafnvirði áttatíu og fjögurra milljarða króna hinn sjötta október 2008 en útlit er fyrir að hluti lánsins fáist aldrei endurgreiddur og milljarðar króna af skattfé séu því glataðir.

Varar við "bjórlánum“

"Ég vara náttúrulega stórlega við þessum lánum. Þau eru ein dýrstu lán sem þú getur nokkurntímann tekið,“ sagði Breki Karlsson í viðtali í Reykjavík síðdegis, spurður út í smálán sem nokkur fyrirtæki bjóða upp á á Íslandi í dag.

Þriðji maðurinn gaf sig fram

Þriðji karlmaðurinn hefur gefið sig fram eftir að lögreglan lýsti eftir honum í öllum fjölmiðlum í dag. Tveir karlmenn voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag á grundvelli rannsóknarhagsmuna.

Muamba var í hjartastoppi í 78 mínútur

Læknir breska fótboltaliðsins Bolton Wanderes sagði að Fabrice Muamba hafi í raun verið látinn í 78 mínútur áður en endurlífgunartilraunir báru árangur.

Merah ætlaði að myrða aftur

Innanríkisráðuneyti Frakklands tilkynnti fyrir stuttu að Mohammed Merah, sem grunaður er um hrynu ódæðisverka í suðurhluta Frakklands, hafi lagt á ráðin um að myrða tvö lögregluþjóna og hermann í borginni Toulouse.

CCP með fyrirlestur í Hörpu

Íslenski tölvuleikjaframleiðandinn CCP stendur fyrir opnum fyrirlestri og kynningu á starfsemi fyrirtækisins í Hörpunni á morgun. Rætt verður um fjölspilunarleikinn EVE Online og EVE Fanfest hátíðinni sem haldin verður í tónlistarhúsinu um helgina.

Ólafur er Dalai Lama norðurslóða

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, mun ávarpa fund Fletcher-skólans í Massachusetts á mánudaginn. Ólafur verður frummælandi á fundinum en fjallað verður um málefni norðurheimskautsins.

Fiskurinn dýrastur í Melabúðinni og Gallerý fiski

Verðlagseftirlit ASÍ gerði verðsamanburð á ferskum fiski í 23 verslunum vítt og breitt um landið síðastliðinn mánudag. Kannað var verð á 25 algengum tegundum af fiskmeti sem oft er á borðum landsmanna. Munur á hæsta og lægsta verði var oftast 25-75%. Lægsta verðið var oftast að finna hjá Litlu Fiskbúðinni Miðvangi í Hafnarfirði eða í 15 tilvikum af 25. Mikil dreifing var á hæsta verðinu á milli verslanna, en hæsta verðið var oftast hjá Melabúðinni Hagamel og Gallerý fiski í Nethyl eða í 5 tilvikum af 25. Fiskbúðin Bryggjuhúsið neitaði þátttöku í könnuninni.

Ástþór segist ekki borga 150 krónur fyrir hverja undirskrift

"Nei þetta er bara bull,“ segir Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi, spurður hvort að hann borgi fólki, sem safnar meðmælum fyrir framboð hans, 150 krónur fyrir hverja undirskrift. Á Smugunni og DV hefur komið fram að Ástþór borgi 100 til 150 krónur fyrir hverja undirskrift. Ástþór vísar þessu á bug, en segist vissulega borgi hann fólki sem starfi fyrir hann.

Umsátursástand ríkir enn í Toulouse

Innanríkisráðherra Frakklands sagði fyrir stuttu að meintur fjöldamorðingi hafi ekki verið handsamaður af lögreglu í Toulouse. Umsátursástand ríkir enn við fjölbýlishús þar sem maðurinn heldur til.

Íbúar ósáttir við svalirnar á Prikinu

Íbúar í grennd við skemmtistaðinn Prikið eru ósáttir við að byggingafulltrúi borgarinnar hafi ekki leitað lögboðins álits húsafriðunarnefndar áður en veitt var leyfi fyrir svölum, sem reistar voru í lokuðu porti við skemmtistaðinn fyrir nokkrum árum. Íbúasamtök borgarinnar velta því fyrir sér hvort að byggingafulltrúinn telji sér ekki skylt lögum samkvæmt að kynna sér grenndaráhrif bygginga, er lúta að hávaða og truflun í nærumhverfinu.

Spilafíkn vandi hjá 4 til 7 þúsund

Um 2,5% Íslendinga þjást af spilafíkn samkvæmt rannsóknarniðurstöðum dósents við sálfræðideild Háskóla Íslands. Niðurstöðurnar voru kynntar í dag. Þar kemur fram að 4.000 til 7.000 manns hér landinu á aldrinum 18 ára til sjötugs eigi í verulegum vanda.

Megintenging innan Vestfjarða ófær í fjóra mánuði

Vegagerðin hefur frestað því að opna Hrafnseyrarheiði og Dynjandisheiði en þær hafa báðar verið meira og minna lokaðar undanfarna fjóra mánuði. Ráðamenn á Vestfjörðum segja ástand vegamála þar ömurlegt. Dynjandisheiði og Hrafnseyrarheiði eru á miðhluta Vestfjarða en þær hafa verið meira og minna verið lokaðar frá því í nóvember og alfarið frá 12. desember.

Rannsókn á bankahruninu lýkur í lok árs

Fimmtíu og þrjú mál sem Fjármálaeftirlitið hefur haft til rannsóknar eftir bankahrun hafa verið kærð til efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra eða saksóknara. Þetta kemur fram í vefriti FME.

Fjöldamorðinginn ætlar að birta myndbönd af morðunum í dag

Meintur fjöldamorðingi sem nú hefur verið króaður af í fjölbýlishúsi í borginni Toulouse í Frakklandi hafði samband við fréttastofuna France 24 í nótt. Maðurinn lýsti yfir ábyrgð á morðunum við blaðamann og sagðist hafa myndað ódæðin.

Plássin oftast fullnýtt

Reykjavíkurborg býður gistipláss og búsetuúrræði fyrir 60 til 64 einstaklinga sem eru í mikilli vímuefnaneyslu og eiga í engin hús að venda. Sigtryggur Jónsson, framkvæmdastjóri Þjónustumiðstöðvar Miðborgar og Hlíða, segir plássin oftast fullnýtt.

Banaslys í íslenskum togara

Banaslys varð um borð í íslenskum togara á Ísafjarðardjúpi snemma í morgun. Þyrla Landhelgisgæslunnar var send með lækni, sem seig um borð í togarann, og úrskurðaði hann manninn látinn. Togarinn kom með lík mannsins til hafnar á Ísafirði um ellefu leitið og er lögregla að taka skýrslur af skipverjum.

Gréta og Jónsi númer tvö á sviðið í Bakú

Yfirstjórn Eurovision tilkynnti í gær röð keppenda í undankeppnum Eurovision. Gréta Salóme og Jónsi syngja lag sitt, Never Forget, á fyrra undanúrslitakvöldinu, 21. maí. Atriði þeirra er annað atriði kvöldsins af þeim 18 sem taka þátt það kvöld.

Sjá næstu 50 fréttir