Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Finna flug með öðrum Finna á leiðir til að það fólk sem átti pantað flug með Iceland Express til Bandaríkjanna á morgun geti flogið með öðrum flugfélögum. Iceland Express ákvað á dögunum að hætta flugi til Bandaríkjanna. Heimir Már Pétursson, upplýsingafulltrúi Iceland Express, vill ekki gefa upp um hversu marga farþega er að ræða. "Við gefum það ekkert upp. Það er bara viðskiptamál," segir Heimir Már. 23.11.2011 15:37
Fleiri fórnarlömb stíga fram - lokaði sárum með lími Fleiri fórnarlömb konunnar sem stundaði lýtalækningar án leyfis í Miami í Bandaríkjunum hafa stigið fram. Konan er sögð hafa lofað lögulegum afturenda með því að fylla rasskinnar sjúklinga sinna með sementi og kítti. Í sumun tilfellum lokaði hún sárunum með lími. 23.11.2011 15:31
Sakaðir um hatursglæpi gagnvart Amish-samfélagi Sjö karlmenn hafa verið handteknir í Ohio í Bandaríkjunum fyrir hatursglæpi. Talið er að hinir grunuðu hafi ráðist á nokkra Amish-menn og klippt af þeim skeggið. 23.11.2011 16:38
Grunaðir um að hafa lokkað konu upp í bíl og nauðgað henni Tveir menn sitja í gæsluvarðhaldi, grunaðir um að hafa nauðgað konu við Reykjavíkurflugvöll þann 16. október síðastliðinn. Hæstiréttur staðfesti í dag framlengt gæsluvarðhald yfir mönnunum til 16. desember næstkomandi. 23.11.2011 16:33
Hæstiréttur staðfestir gæsluvarðhald yfir meintum skotmanni Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir manni sem grunaður er um að hafa átt aðild að skotárás í Bryggjuhverfi þann átjánda nóvember síðastliðinn. Tveir menn eru í haldi lögreglu vegna málsins en hinum þriðja hefur þegar verið sleppt. Lögregla segist hafa rökstuddan grun um að sá sem um ræðir tengist árásinni. Hann skal sæta varðhalds fram til næstkomandi föstudags. 23.11.2011 15:30
ESB leggst ekki gegn ríkissölu áfengis Evrópusambandið mun ekki leggjast gegn einkasölu ríkisins á áfengi og tóbaki eins og hún er stunduð á Íslandi. Þetta kom fram í máli Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra á opnum fundi utanríkismálanefndar Alþingis í dag. 23.11.2011 15:23
Kveikt á Oslóar-trénu á sunnudaginn Ljósin verða tendruð á Oslóar-jólatrénu á Austurvelli á sunnudaginn kemur. Nú eru sextíu ár liðin frá því íbúar Oslóar færðu Reykvíkingum fyrsta tréð en það hefur ævinlega verið sett upp á Austurvelli og kveikt á því við hátíðlega athöfn fyrsta sunnudag í aðventu. Engin undantekning verður á því í ár og kemur Gunnar Halle trompetleikari frá Noregi fram sem sérstakur gestur Aðventuhátíðar og leikur hann undir jólasöng Dómkirkjukórsins klukkan 16:00, að undangengnum jólatónlistarflutningi Lúðrasveitar Reykjavíkur sem hefst kl. 15.30. 23.11.2011 14:36
Hafnfirskir unglingar gátu keypt tóbak á fjórum stöðum Ný könnun sem gerð var á tóbakssölustöðum í Hafnarfirði leiddi í ljós að unglingar gátu keypt sér tóbak á fjórum stöðum af þeim nítján sem kannaðir voru eða á um 20 prósent staðanna. Forvarnafulltrúi Hafnarfjarðar stendur reglulega fyrir könnun af þessu tagi og nú fóru tveir unglingar úr 10. bekk á sölustaði undir eftirliti starfsmanna Hafnarfjarðarbæjar og reyndu að kaupa sígarettur. 23.11.2011 14:27
Peningaeiganda enn leitað Eigandi veskisins sem lögreglan auglýsti eftir í gær hafði enn ekki gefið sig fram fyrir hádegi í dag, samkvæmt upplýsingum Vísis. Fram kom á Vísi í gær að skilvís maður hefði komið með veskið á stöðina. 23.11.2011 14:17
Medvedev óánægður með áætlanir Bandaríkjanna Dmítry Medvedev, forseti Rússlands, hefur gefið til kynna að flugskeytum verði beint að ríkjum Evrópusambandsins ef yfirvöld í Bandaríkjunum láti ekki af áætlunum sínum varðandi flugskeytavarnir. 23.11.2011 13:43
Clooney og Ronaldo gætu borið vitni í sakamáli Berlusconi Það gæti farið svo að leikarinn George Clooney og fótboltastjarnan Cristiano Ronaldo verði beðnir um að bera vitni í kynferðisafbrotamáli Silvio Berlusconis, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu. 23.11.2011 12:38
Árni Johnsen: Byggingu Þorláksbúðar haldið áfram Haldið verður áfram við byggingu Þorláksbúðar í Skálholti en skyndifriðun húsafriðunarnefndar á Skálholti var synjað af menntamálaráðherra í gær. Úrskurðarnefnd skipulags- og byggingamála hefur borist kæra vegna byggingaleyfis Þorláksbúðarfélagsins. 23.11.2011 12:10
Ljóðskáld gagnrýnir rafbókavæðingu Ljóðskáldið Simon Armitage gagnrýndi rafvæðingu bókmennta í gær. Hann sagði að rétt eins og tónlist og kvikmyndum sé nú dreift ólöglega um internetið þá sé það óumflýjanlegt að bækur mæti sömu örlögum. 23.11.2011 12:06
Mikill meirihluti á móti lögleiðingu kannabisefna Rösklega 87% Íslendinga eru frekar eða mjög andvíg því að neysla kannabisefna verði gerð lögleg á Íslandi. Um 12,7% eru frekar eða mjög fylgjandi. Samkvæmt könuninni fjölgar þeim sem eru andvígir lögleiðingu á neyslu kannabisefna á Íslandi frá fyrri könnun MMR. Í nóvember í fyrra voru 83% andvígir lögleiðingu. Um þrefalt fleiri karlar eru hlynntir lögleiðingu fíkniefna en konur, eða 18% á móti 6%. 23.11.2011 11:53
Tölvupóstar loftslagsvísindamanna birtir á ný Tölvupóstar frá háskólanum í Austur-Anglíu hafa verið birtir á rússneskri vefsíður. Í skeytunum koma fram upplýsingar úr rannsóknum háskólans á loftslagi jarðar. 23.11.2011 11:44
Ólöglega staðið að ráðningu læknanema Heilbrigðisstofnun Suðurlands var óheimilt að ráða læknanema í sumarstarf fyrir milligöngu Félags læknanema. Læknanemi, sem ekki var í félaginu, kvartaði til Umboðsmanns eftir að ráðning hans var dregin til baka árið 2009 á þeirri forsendu að nemar yrðu einungis ráðnir fyrir milligöngu félagsins. 23.11.2011 11:33
Tuttugu ára fangelsi fyrir dónalegt SMS Dómstóll í Tælandi hefur dæmt sextugan mann til tuttugu ára fangelsisvistar fyrir að senda SMS skeyti sem þóttu móðgandi í garð drottningar landsins. 23.11.2011 11:33
Fordæmir ofbeldið á Tahrir torgi Mannréttindafulltrúi Sameinuðu Þjóðanna, Navanethem Pillay, hefur fordæmt meðhöndlun öryggissveita Egyptalands á mótmælunum sem hófust á Tharir torgi um helgina. 23.11.2011 11:16
Veðrið gengið niður á Hellisheiði Veður hefur nú gengið niður á Hellisheiði en öngþveiti skapaðist þar í morgun vegna óveðurs. Björgunarsveit var björgunarsveit kölluð út til að aðstoða ökumenn, sem lent höfðu í vandræðum, því lögreglumenn höfðu ekki undan. 23.11.2011 10:56
Jónas Jónasson látinn Jónas Jónasson útvarpsmaður lést í gær á líknadeild Landspítalans í Kópavogi. Hann var í faðmi allrar fjölskyldu sinnar þegar hann lést. Jónas starfaði hjá Ríkisútvarpinu um áratugaskeið og síðustu ár naut þáttur hans Kvöldgestir mikilla vinsælda. 23.11.2011 10:34
Ergelsi hundaeiganda vekur athygli Myndband af ógæfusömum hundaeiganda nýtur gríðarlegra vinsælda á internetinu. Rúmlega hálf milljón manna hefur horft á myndbandið síðan það birtist á vefsíðunni YouTube 13. nóvember síðastliðinn. 23.11.2011 10:32
Gagnrýna díoxínmælingar vegna sorpbrennslu í Funa Bæjarráð Ísafjarðar gerir alvarlegar athugasemdir við niðurstöður Umhverfisstofnunar (UMST) og Matvælastofnunar (MAST) hvað varðar díoxínmælingar á jarðvegi í Engidal í Skutulsfirði. Ísfirðingar segja ósamræmi í niðurstöðum sem þurfi að skýra. Stofnanirnar segja að mælingar þeirra lúti ekki að sömu atriðum og því sé ekki um ósamræmi að ræða. 23.11.2011 10:15
Ríkisendurskoðun vill selja ESÍ Ríkisendurskoðun telur að rekstur Eignasafns Seðlabanka Íslands (ESÍ) samrýmist illa dagbundnum og lögbundnu verkefni Seðlabankans. Stofnunin telur að endurmeta þurfi tilvist ESÍ. Þetta er ein þeirra athugasemd sem Ríkisendurskoðun setur fram í skýrslu sinni um endurskoðun ríkisreiknings ársins 2010. Þar er lagt til „að Seðlabankinn íhugi hvort það væri ekki þágu hagsmuna hans að selja eignir félagsins eða félagið í heild til aðila sem sérhæfa sig í slíkri eignaumsýslu“. 23.11.2011 10:00
Algert öngþveiti á Hellisheiði Öngþveiti er orðið á Hellisheiði vegna óveðurs og er búið að kalla út björgunarsveit til að aðstoða ökumenn, sem lent hafa í vandræðum. Þónokkrir bílar hafa hafnað utan vegar, eru stopp í köntunum eða jafnvel út á miðjum vegi, en skyggni er afleitt, mjög hvasst í hviðum og vegurinn er flug háll. Þrátt fyrir mörg óhöpp hafa ekki borist fréttir af slysum, heldur ekki úr þrengslunum, þar sem tveir bílar ultu í morgun. Í athugun er að loka Hellisheiðinni á meðan veðrið gengur yfir. 23.11.2011 09:50
Óttast atvinnuleysi eftir útskrift Danskir háskólanemar í lögfræði og hagfræði á meistarastigi óttast að fá hvergi vinnu eftir að námi lýkur. 23.11.2011 09:45
Kína gagnrýnir refsiaðgerðir vesturlanda Utanríkisráðuneyti Kína fordæmir einhliða refsiaðgerðir vesturlanda gegn Íran. Bandaríkin, Bretland og Kanada hafa nú þegar tilkynnt um aðgerðir gegn Íran - er þetta gert í kjölfarið á skýrslu Alþjóðakjarnorkumálastofnunnar en þar er kjarnorkuáætlun Írans gagnrýnd. 23.11.2011 09:42
Þingmenn fræðast um eldvarnir Slökkviliðsmenn ætla að fræða alþingismenn og starfsfólk Alþingis um eldvarnir í hádeginu í dag. Fræðslan fer fram við þinghúsið og er liður í Eldvarnaátaki Landssambands slökkviliðsmanna sem nú stendur yfir. Þingmenn fá fræðslu um mikilvægi reykskynjara og annars eldvarnabúnaðar og fá að spreyta sig á að slökkva elda undir leiðsögn slökkviliðsmanna. 23.11.2011 09:18
Vísindamenn ná sambandi við rússneska könnunarflaug Loks hefur náðst samband við könnunarflaug Rússlands. Hún hefur verið föst á sporbraut um jörðu síðastliðnar vikur. 23.11.2011 09:15
Fleiri kettir verða fyrir bíl Kattholti hafa borist óvenjumargar tilkynningar um ketti sem hafa orðið fyrir bíl og drepist það sem af er nóvembermánuði. Þegar hafa tólf kettir fundist dauðir án þess að hægt hafi verið að rekja þá til eigenda sinna. Til samanburðar voru slík tilvik fjögur talsins í október. 23.11.2011 09:15
Ungbarnadauði síst vandamál á Íslandi Tíðni ungbarnadauða var lægst á Íslandi af öllum ríkjum árið 2009. Þetta kemur fram í nýju riti Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD). Hér á landi lést sem samsvarar 1,8 af 1.000 fæddum börnum. Meðaltal OECD landa var 4,4 börn en var 30 árið 1970. Börn með lága fæðingarþyngd (undir 2.500 grömmum) voru einnig hlutfallslega fæst hér á landi árið 2009 en 4,1 % nýfæddra barna voru í þeim hópi samanborið við 6,7% að meðaltali í OECD-ríkjum. 23.11.2011 09:13
Skotmenn voru með óeirðakylfu Bíll mannanna, sem stóðu að skotárás á bifreið í austurborginni síðastliðið föstudagskvöld er nú kominn í hendur lögreglunar á höfuðborgarsvæðinu. Lagt var hald á hann og við leit fannst í honum stór kylfa, ekki ósvipuð óeirðakylfum. Haglabyssan sem notuð var við árásina er hins vegar ófundin. 23.11.2011 09:00
Mestu endurbætur í 43 ára sögu laugarinnar Bakkar Laugardalslaugar eru nú sundurgrafnir og gestir þurfa að leggja lykkju á leið sína til að komast frá einum potti til annars. Þetta tímabundna óhagræði stafar af langmestu endurbótum í 43 ára sögu laugarinnar. 23.11.2011 08:30
Facebook-leikir eru skýrt brot á reglum Mikið hefur borið á svokölluðum Facebook-leikjum undanfarið þar sem íslensk fyrirtæki gefa notendum færi á að vinna vörur fyrir „kvitt“ og „like“. Slíkt er brot á reglum Facebook. Verslunin Karen Millen fékk 2.500 „like“ á einum degi. 23.11.2011 08:00
Opnar stofur í fimm löndum „Ég hef haft í svo ofboðslega miklu að snúast við að sinna verkefnum um víða veröld að mér þótti orðið skynsamlegast að færa út kvíarnar,“ segir arkitektinn Guðlaug Jónsdóttir sem mun á næstunni stækka við sig með opnun skrifstofa í fimm löndum. 23.11.2011 07:30
Grímuklæddir þjófar brutust inn í tölvuverslun Þrír grímuklæddir þjófar brutust inn í tölvuverslun í Smárahverfi undri morgun og stálu þaðan átta tuttugu og fjögurra tommu tölvuskjám. 23.11.2011 07:28
Árekstur kostaði þrjú hross lífið Eitt hross drapst og tvö slösuðust svo alvarlega að það þurfti að aflífa þau, þegar bíl var ekið á þau á þjóðveginum á milli Ólafsvíkur og Rifs í gærkvöldi. 23.11.2011 07:26
Aukin notkun jarðsprengja þrátt fyrir bann Fleiri lönd notuðu jarðsprengjur í hernaðarátökum í ár en nokkurn tíman frá árinu 2004 þrátt fyrir að alþjóðlegt bann sé við notkun þessara sprengja. 23.11.2011 07:24
Mikið þrumuveður gekk ekk inn á landið Mikið þrumuveður, sem geysaði suðaustur af landinu í gær, gekk ekki inn á landið eins og búist var við að það gerði í gærkvöldi. 23.11.2011 07:21
Litlar líkur á að Obama nái endurkjöri á næsta ári Líkurnar á því að Barack Obama Bandaríkjaforseti nái endurkjöri á næsta ári eru aðeins einn á móti sjö. 23.11.2011 07:17
Mikið um ölvunar- og fíkniefnaakstur Ökumaður var tekinn úr umferð og sviftur ökuréttindum í Reykjavík í nótt vegna ölvunaraksturs. 23.11.2011 07:15
Verkföll boðuð í Grikklandi og á Ítalíu Stærsta verkalýðsfélag Grikklands hefur boðað til sólarhrings verkfalls í landinu þann 1. desember næstkomandi, viku áður en gríska þingið afgreiðir fjárlög sín fyrir næsta ár. 23.11.2011 07:04
Mótmælin á Friðartorginu halda áfram Þúsundir manna halda áfram mótmælum sínum á Friðartorginu í Kaíró fjórða daginn í röð. 23.11.2011 07:02
Aflaverðmætið eykst milli ára Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 98,8 milljörðum króna fyrstu átta mánuði ársins 2011 samanborið við 92,4 milljarða á sama tímabili 2010. Aflaverðmæti hefur því aukist um 6,4 milljarða króna eða 6,9 prósent á milli ára. 23.11.2011 07:00
Engar opinberar jólaskreytingar í Borgarnesi Engar jólakreytingar verða settar upp í Borgarnesi eða annarsstaðar í Borgarbyggð á vegum sveitaffélagsins fyrir næstu jól. 23.11.2011 06:59
Tillaga um Palestínu afgreidd úr nefnd Utanríkismálanefnd Alþingis afgreiddi tillögu um að Ísland viðurkenni sjálfstæði og fullveldi Palestínu á fundi sínum í gærmorgun. Utanríkisráðherrann Össur Skarphéðinsson lagði þingsályktunartillöguna fyrir Alþingi í síðasta mánuði. 23.11.2011 06:45