Fleiri fréttir Einn handtekinn á Austurvelli þegar lögregla tók tjald mótmælenda niður Einn maður var handtekinn í morgun á Austurvelli þegar lögregla fór í það að taka niður tjald sem komið hafði verið fyrir á vellinum. Að sögn lögreglu veittust nokkrir mótmælendur að lögreglumönnunum sem fóru í málið og var ákveðið að handtaka einn, þann sem mest hafði sig í frammi. Maðurinn var fluttur á lögreglustöðina við Hverfisgötu og þar er nú verið að skoða hans mál eins og lögreglan orðaði það. Að því loknu verður honum líklegast sleppt. 31.10.2011 11:41 Ahmadinejad boðaður í yfirheyrslur Þing Írans mun boða Mahmoud Ahmadinejad, forseta landsins, í yfirheyrslur vegna meintra svika. 73 af 290 þingmönnum skrifuðu undir beiðni til að yfirheyra forsetann en Ahmadinejad hefur átt í langri orrustu við andstæðinga sína á þinginu. 31.10.2011 11:23 Hinstu orð Steve Jobs opinberuð Mona Simpson, systir Steve Jobs, upplýsti um hinstu orð bróður síns um helgina. 31.10.2011 11:00 Dominosmenn kveiktu í pizzastað keppinautarins Baráttan um yfirhöndina á flatbökumarkaðnum í Flórída er komin á nýtt stig. Tveir yfirmenn Dominos veitingastaða hafa verið ákærðir fyrir að kveikja í húsnæði keppinautarins, Papa John"s, í Lake City. 31.10.2011 11:00 Heill á húfi á Þröskuldum Björgunarsveitarmenn frá Hólmavík brutust upp á Þröskulda í afleitu veðri og ófærð í morgun, til að koma ökumanni til hjálpar sem sat þar fastur í bíl sínum. Vetrarríki er nú um alla Vestfirði. 31.10.2011 10:49 Mótmælendur handteknir í Oregon Tugir mótmælenda voru handteknir í gær í Oregon. 31.10.2011 10:34
Sjá næstu 50 fréttir
Einn handtekinn á Austurvelli þegar lögregla tók tjald mótmælenda niður Einn maður var handtekinn í morgun á Austurvelli þegar lögregla fór í það að taka niður tjald sem komið hafði verið fyrir á vellinum. Að sögn lögreglu veittust nokkrir mótmælendur að lögreglumönnunum sem fóru í málið og var ákveðið að handtaka einn, þann sem mest hafði sig í frammi. Maðurinn var fluttur á lögreglustöðina við Hverfisgötu og þar er nú verið að skoða hans mál eins og lögreglan orðaði það. Að því loknu verður honum líklegast sleppt. 31.10.2011 11:41
Ahmadinejad boðaður í yfirheyrslur Þing Írans mun boða Mahmoud Ahmadinejad, forseta landsins, í yfirheyrslur vegna meintra svika. 73 af 290 þingmönnum skrifuðu undir beiðni til að yfirheyra forsetann en Ahmadinejad hefur átt í langri orrustu við andstæðinga sína á þinginu. 31.10.2011 11:23
Hinstu orð Steve Jobs opinberuð Mona Simpson, systir Steve Jobs, upplýsti um hinstu orð bróður síns um helgina. 31.10.2011 11:00
Dominosmenn kveiktu í pizzastað keppinautarins Baráttan um yfirhöndina á flatbökumarkaðnum í Flórída er komin á nýtt stig. Tveir yfirmenn Dominos veitingastaða hafa verið ákærðir fyrir að kveikja í húsnæði keppinautarins, Papa John"s, í Lake City. 31.10.2011 11:00
Heill á húfi á Þröskuldum Björgunarsveitarmenn frá Hólmavík brutust upp á Þröskulda í afleitu veðri og ófærð í morgun, til að koma ökumanni til hjálpar sem sat þar fastur í bíl sínum. Vetrarríki er nú um alla Vestfirði. 31.10.2011 10:49
77 ráðningar án auglýsinga Ráðuneytin réðu alls 77 sinnum í stöður án auglýsinga frá ársbyrjun 2009 fram í september síðastliðinn. Þetta kemur fram í svörum ráðuneytanna við fyrirspurn Fréttablaðsins. 31.10.2011 10:29
Réttarhöldum yfir Mubarak frestað Réttarhöldum yfir fyrrverandi forseta Egyptalands, Hosni Mubarak, hefur verið frestað þangað til að niðurstaða liggur fyrir um hvort að nýr dómari muni annast málið. 31.10.2011 10:17
Þrjár tegundir uppsjávarfisks gætu skilað 75 milljörðum Útflutningsverðmæti norsk-íslenskrar síldar og makríls í sumar er um 45 milljarðar króna. Gangi veiðar á loðnu á næstu mánuðum samkvæmt væntingum fer verðmæti þessara þriggja tegunda á nokkrum mánuðum í 75 milljarða króna. Aðrar tegundir uppsjávarfisks færa útflutningsverðmætið vel yfir 80 milljarða króna. 31.10.2011 09:13
Björgunsveit á leið upp á Þröskulda að aðstoða ökumann Björgunarsveitarmenn frá Hólmavík eru nú á leið upp á Þröskulda á milli Reykhólasveitar og Steingrímsfjarðar að aðstoða, eða sækja ökumann, sem þar er fastur í bíl sínum. Hann mun vera einn í bílnum. 31.10.2011 08:25
Atlantsolía lækkaði bensínverðið í morgun Atlantsolía lækkaði bensínverð um tvær krónur lítrannn í morgun og kostar það nú liðlega 231 krónu. 31.10.2011 07:42
Lyfjum stolið úr apóteki í Spönginni Brotist var inn í Lyfju í Spönginni í nótt og þaðan stolið einhverju af deyfandi lyfjum, sem eftirsótt eru á fíkniefnamarkaðnum. 31.10.2011 07:40
Hertökum Reykjavík á Austurvelli í nótt Nokkrir mótmælendur undir kjörorðinu: Hertökum Reykjavík, höfðust við í tjaldi á Austurvelli í nótt. 31.10.2011 07:39
Danskar orrustuþotur á leið heim frá Líbíu Sex danskar F-16 orrustuþotur eru væntanlegar heim frá Líbíu á miðvikudag en danski flugherinn hefur lokið aðgerðum sínum í landinu. 31.10.2011 07:28
Fundu kjarnorku- og efnavopn í Líbíu Bráðabirgðastjórn Líbíu segir að fundist hefðu bæði kjarnorku- og efnavopn í landinu. Sökum þessa sé von á alþjóðlegum eftirlitsmönnum til landsins. 31.10.2011 07:25
Slapp lítið meiddur úr bílveltu Ökumaður, sem var einn á ferð, slapp litið meiddur, þegar bíll hans valt út af þjóðveginum í Mosfellsbæ um klukkan hálf tólf í gærkvöldi. 31.10.2011 07:24
Rússar breyta ekki klukkunni, verða áfram á sumartíma Rússland hefur ekki sett klukkuna aftur á vetrartíma eins og flestar þjóðir í Evrópu. Dmitry Medvedev forseti landsins hefur ákveðið að klukkan í Rússlandi skuli vera varanlega stillt á sumatímann. 31.10.2011 07:21
Þjófar reyndu að brjóta upp spilakassa Innbrotsþjófar gerðu í nótt tilraun til að brjóta upp spilakassa í kaffihúsi við Grensásveg í Reykjavík. 31.10.2011 07:19
Snjókoma og blindbylur veldur mannsköðum í Bandaríkjunum Að minnsta kosti níu manns hafa farist í mikilli snjókomu og blindbyljum við austurströnd Bandaríkjanna um helgina. Yfir þrjár milljónir manna eru án rafmagns og hita og þarf stór hluti þessa fólks að búa við það ástand næstu daga. 31.10.2011 07:16
Miklar hörmungar yfirvofandi í Taílandi Miklar hörmungar eru yfirvofandi í Taílandi vegna flóðanna þar í landi undanfarnar vikur. Nú óttast sérfræðingar að farsóttir á borð við malaríu muni breiðast út meðal íbúa landsins. 31.10.2011 07:03
Sjaldan meiri andstaða gegn ESB-aðild í Noregi Andstaða Norðmanna við inngöngu í Evrópusambandið hefur aldrei verið meiri á síðari tímum. 31.10.2011 07:01
Íbúar jarðarinnar orðnir 7 milljarðar talsins Íbúar jarðarinnar eru orðnir 7 milljarðar talsins en sá fjöldi náðist einhvern tímann snemma í morgun samkvæmt áætluðum tölum. 31.10.2011 06:56
Mikil umræða um fátækt í Danmörku Mikil umræða hefur orðið í Danmörku undanfarna daga um fátækt í landinu og hver sé raunverulegur fjöldi fátækra Dana. 31.10.2011 06:52
Fjöldinn sprengir af sér skólaeldhús víða „Við erum að skoða það að ræða við stjórnendur hjá Reykjavík um þessi mál,“ segir Fríða Ólafsdóttir, eftirlitsmaður hjá Vinnueftirliti ríkisins, um stöðuna í skólamötuneytum borgarinnar. 31.10.2011 06:30
Endurskoða þarf hlutverk biskups Endurskoðun á hlutverki biskups og minna umfang stjórnsýslu kirkjunnar. Þetta er meðal hugmynda sem séra Örn Bárður Jónsson setti fram í prédikun í Neskirkju í gær. 31.10.2011 06:00
Segir afskipti hleypa öllu í bál og brand Bashar al-Assad Sýrlandsforseti segir að Vesturlönd taki mikla áhættu ætli þau að skipta sér af stjórn Sýrlands, landi þar sem mótmælendur hafa í sjö mánuði krafist afsagnar forsetans. „Sýrland er kjarninn í þessum heimshluta núna. Það er jarðsprungan, og ef þú leikur þér að jörðinni þá veldurðu jarðskjálfta,“ sagði Assad í viðtali við breska blaðið Sunday Telegraph. „Viljið þið sjá annað Afganistan eða tíu Afganistan?“ 31.10.2011 05:00
Vilja skilgreina fátæktarmörk Stjórnvöld í Danmörku stefna að því að skilgreina fátæktarmörk þar í landi og mun niðurstaða liggja fyrir á næsta ári. Nokkur umræða hefur skapast um fátækt í Danmörku þar sem deilt er um hvort eigi að einblína á aðstæður innanlands eða setja þær í samanburð við fátækt á heimsvísu. Talsmaður Róttæka flokksins, sem er einn af stjórnarflokkunum, segir við Berlingske að ákvarða þurfi nauðsynlegar ráðstöfunartekjur. Með það að leiðarljósi megi fara að vinna á fátækt sem sé raunverulegt vandamál í Danmörku 31.10.2011 04:00
Búið að sótthreinsa Bogann Búið er að sótthreinsa gervigrasið í íþróttahúsinu Boganum á Akureyri. Eins og Fréttablaðið greindi frá í síðustu viku eru mörg dæmi um að íþróttaiðkendur hafi fengið sýkingar í sár eftir að hafa dottið í grasið þar, vegna þess að það hafði ekki verið þrifið frá opnun. Sýkingavaldar í grasinu eru raktir til þess meðal annars að fólk hræki í grasið. 31.10.2011 04:00
Ræðst hvort Assange verður framseldur Dómstóll í London mun taka ákvörðun um það á miðvikudaginn kemur hvort Julian Assange, stofnandi Wikileaks, verður framseldur til Svíþjóðar. Assange var handtekinn í London í desember síðastliðnum og er nú laus gegn tryggingu. Hann er ákærður fyrir kynferðisbrot gegn tveimur konum í Svíþjóð og því hafa Svíar viljað hafa hendur í hári hans. Hann neitar alfarið sök og segir málið vera pólitískt. Nú hefur verið greint frá því að 2. nóvember klukkan 9.45 verði kveðinn upp úrskurður í framsalsmálinu. 31.10.2011 04:00
Þingið rannsakar forseta Íranska þjóðþingið hefur samþykkt að kalla Mahmoud Ahmadinejad forseta til yfirheyrslu, þar sem hann verður spurður bæði út í stefnu sína og út í grun um efnahagsmisferli. Áður hefur þingið komist að þeirri niðurstöðu að efnahagsráðherra Ahmadinedjads hafi gerst sekur um efnahagsmisferli. Það mál er þó aðeins eitt af mörgum sem forsetinn er talinn vera flæktur í. 31.10.2011 03:15
Fimmta morðið á einum mánuði Ungur maður var myrtur á heimili sínu í Ósló, höfuðborg Noregs, í fyrrinótt og annar komst illa særður á slysadeild. Meintur árásarmaður var handtekinn í bakgarði hússins þar sem morðið átti sér stað. 31.10.2011 03:00
Jólin flutt í kössum til Úkraínu Samtökin KFUM og KFUK standa í áttunda sinn fyrir verkefninu Jól í skókassa. Í því er nokkrum jólagjöfum pakkað ofan í skókassa sem síðan eru sendir til þurfandi barna í Úkraínu. Markmiðið er að gleðja þurfandi börn í anda jólanna. 31.10.2011 03:00
Á annan tug manna látnir á Gasa-svæðinu Tíu Palestínumenn og einn Ísraeli hafa látið lífið í átökum um helgina, sem hafa dregið mjög úr vonum um að samband Ísraelsstjórnar og Hamas-samtakanna skáni eitthvað. 31.10.2011 02:00
Velti bíl í Mosfellsdal Nú laust eftir miðnætti var karlmanni bjargað út úr bíl sem hafði velt í Mosfellsdal. Karlmaðurinn var einn í bílnum. Sjúkraflutningamenn fluttu hann á slysadeild þar sem gert verður að sárum hans. Hann virtist ekki mikið slasaður en orðinn nokkuð kaldur. 31.10.2011 00:01
Landsmóti æskulýðsfélaga kirkjunnar lokið Landsmóti æskulýðsfélaga kirkjunnar lauk með messu í Selfosskirkju í dag. Þar voru 500 unglingar og leiðtogar. Þau komu frá landinu öllu og voru einskonar þverskurður af kirkjunni. Séra Óskar Hafsteinn Óskarsson, prestur í Selfosskirkju, prédikaði í messunni. Herra Karl Sigurbjörnsson heiðraði mótið með nærveru sinni í gær. 30.10.2011 19:44
Tannheilsan verst á Íslandi Tannheilsa Íslendinga er mun verri en annarra Norðurlandabúa þrátt fyrir að tannlæknar séu hlutfallslega fleiri á Íslandi. Ungmenni hér á landi fá fjórfalt fleiri skemmdir en danskir jafnaldrar þeirra. 30.10.2011 19:39
Úrskurði gerðardóms enn frestað Gerðardómur í deilu Norðuráls og HS Orku vegna álversins í Helguvík hefur frestað úrskurði sínum um einn mánuð, en vonast hafði verið eftir niðurstöðu nú um þessi mánaðamót. Fresturinn er að ósk dómaranna, sem telja deilumálið um orkusamninginn það viðamikið að þeir þurfi lengri tíma. 30.10.2011 18:32
Karlmaður skarst á höfði Karlmaður á fimmtugsaldri skarst á höfði og í andliti þegar hann ók á bryggjupolla við Grindavíkurhöfn síðdegis í dag. Hann var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild. Bíllinn sem hann ók er talinn ónýtur. 30.10.2011 18:28
Brutust inn og stálu fötum fyrir 1,2 milljónir Fötum að verðmæti 1,2 milljónir króna var stolið úr fataversluninni Allir krakkar aðfaranótt laugardagsins. Þá var sjóðsvél í versluninni tæmd. 30.10.2011 15:41
Jóhanna fundar með forsætisráðherra Dana Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra mun funda með Helle Thorning-Schmidt, nýjum forsætisráðherra Danmerkur, eftir helgi. Fundurinn fer fram í tengslum við þing Norðurlandaráðs sem fer fram í vikunni. 30.10.2011 15:16
Þröskuldar ófærir Leiðin um Þröskulda á Vestfjörðum er ófær og er þar mjög slæmt veður. Viljum við benda vegfarendum á þessari leið að fara Ennishálsinn og um strandir en sú leið er greiðfær. 30.10.2011 14:35
Ríki sem banna samkynhneigð fá ekki aðstoð David Cameron, forsætisráðherra Breta, hótar því að Bretar muni hætta að veita ríkjum aðstoð sem banna samkynhneigð. Cameron segist hafa rætt þetta á alþjóðlegum fundi um velferðarmál í Perth í Ástralíu sem er nýlokið. Cameron segir að þeir sem ætli sér að þiggja aðstoð frá Bretum skuli tileinka sér mannréttindi. 30.10.2011 14:24
Garðfuglaskoðun hefst í dag Í dag hefst árviss garðfuglaskoðun Fuglaverndar þar sem landsmenn eru hvattir til að skoða og skrá fjölda og tegundir fugla í görðum sínum. 30.10.2011 12:42
Neyðarvistunin var yfirfull þegar unglingarnir voru handteknir Neyðarvistunin á Stuðlum var yfirfull í gærkvöld þegar þrír unglingar voru handteknir og gistu fangageymslur lögreglunnar. Ástæðan er sú að taka þurfti á móti einum af þeim einstaklingum sem hafði strokið af meðferðarheimilinu í Háholti. Unglingarnir komust yfir lykla eins starfsmannsins í gær og þegar þeir áttu að fara í ró ákváðu þeir að ráðast til atlögu. Starfsmenn reyndu að stöðva þá en þegar það gerðist tóku unglingarnir í sundur sófa sem er á Stuðlum og bjuggu sér til vopn úr honum. Þegar starfsmennirnir sáu að þeir réðu ekki við aðstæður ákváðu þeir að kalla til lögreglu. 30.10.2011 12:05
Niðurstaða Hæstaréttar kom ekki á óvart Niðurstaða Hæstaréttar á föstudaginn kemur ekki á óvart, að mati Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Hæstiréttur staðfesti á föstudaginn þá niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavikur að neyðarlögin frá 6. október 2008 stæðust stjórnarskrá. Innlán í gamla Landsbankanum og Glitni skyldu teljast forgangskröfur umfram kröfur lánadrottna og hluthafa í bankanum. 30.10.2011 10:32