Endurskoða þarf hlutverk biskups 31. október 2011 06:00 Örn Bárður Jónsson
Endurskoðun á hlutverki biskups og minna umfang stjórnsýslu kirkjunnar. Þetta er meðal hugmynda sem séra Örn Bárður Jónsson setti fram í prédikun í Neskirkju í gær. Í prédikun sinni lýsti Örn Bárður yfir áhyggjum af fjárhagsstöðu kirkjunnar. Tekjur hafi dregist saman vegna fækkunar á meðlimum og endurskoðunar á samningum kirkju og ríkis. Segir Örn Bárður að haldi þessi þróun áfram kunni það að koma niður á starfi kirkjunnar og bendir máli sínu til stuðnings á nýlegar fréttir af því að fimm starfsmönnum Háteigskirkju hafi verið sagt upp vegna aðhaldsaðgerða. Til að bregðast við þessari þróun leggur Örn Bárður til að skrifstofuhúsnæði kirkjunnar við Laugaveg og Biskupsgarður, íbúðarhús biskups við Bergstaðastræti, verði seld. „Yfirstjórn kirkjunnar breyttist 1997 þegar mörg verkefni færðust frá ráðuneytinu og inn í kirkjuna. Og þá óx biskupsstofa og risið á kirkjunni varð svolítið bratt og er svolítið bratt. Ég hef talað fyrir því að það þurfi að lækka þetta ris aftur,“ sagði Örn Bárður í prédikun sinni. Örn leggur einnig til að þjóðkirkjan kaupi hálft safnaðarheimili Dómkirkjunnar sem standi varla undir rekstri þess vegna skulda. Þá mundi starfsemi biskups færast inn í Dómkirkjuna. „Ég vil að biskupinn sé niðri í miðbæ og þjóni við Dómkirkjuna. Messi þar einu sinni í mánuði þar sem almenningur getur hlustað og haft aðgang að honum,“ segir Örn og bætir við: „Ég geri þá ráð fyrir því að kirkjuþing og kirkjuráð mundu sjá um þessa veraldlegu umsýslu. Og það mætti framkvæma hana á skrifstofu á ódýrara svæði en á Laugaveginum. Á móti væri biskupinn ekki í þessu veraldarvafstri.“ Loks viðurkennir Örn fúslega að þessar hugmyndir séu ekki fullmótaðar. Þær megi hins vegar ræða og þá komi vonandi eitthvað gott út úr þeim.- mþl
Mest lesið Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Innlent Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Erlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Innlent Enginn andvígur hvalveiðum Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Erlent Skordýr í súpu skólabarna Innlent Fleiri fréttir Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Sjá meira