Þrjár tegundir uppsjávarfisks gætu skilað 75 milljörðum 31. október 2011 09:13 Mynd/Hari
Útflutningsverðmæti norsk-íslenskrar síldar og makríls í sumar er um 45 milljarðar króna. Gangi veiðar á loðnu á næstu mánuðum samkvæmt væntingum fer verðmæti þessara þriggja tegunda á nokkrum mánuðum í 75 milljarða króna. Aðrar tegundir uppsjávarfisks færa útflutningsverðmætið vel yfir 80 milljarða króna. Heildarútflutningstekjur sjávarútvegs í fyrra voru 220 milljarðar króna. Viðmælendur Fréttablaðsins innan útgerðarinnar segja að útflutningsverðmæti uppsjávarfisks hafi verið um þriðjungur af þeirri tölu eða 66 milljarðar. Hlutdeild uppsjávarfisks í útflutningsverðmæti sjávarafurða, sem er áætlað 225 milljarðar í ár, hefur því aukist umtalsvert. Makríllinn breytir myndinni mest. Nú liggur fyrir að af rúmlega 150 þúsund tonna veiði af makríl í sumar fóru rúmlega 90 prósent til manneldisvinnslu. Á vertíðinni 2010 fóru 40 prósent aflans í bræðslu og árið 2009 80 prósent. Útflutningsverðmæti makríls er áætlað um 30 milljarðar króna á þessu ári, helmingi hærra en fyrir tveimur árum. Flotinn snýr sér nú af krafti að loðnuveiðum þar sem síld- og makrílkvótar eru veiddir. Ef væntingar ganga eftir er fyrir höndum stærsta loðnuvertíð í sex ár eða veiði upp á hálfa milljón tonna. Varlega áætlað og miðað við hagstæða samsetningu í bræðslu aflans, frystingu og hrognavinnslu má reikna með að heildarverðmæti úr sjó verði 25 til 30 milljarðar króna. Talið er að norsk-íslenska síldin hafi skilað 16 milljörðum í ár í útflutningsverðmæti. Kolmunni var ekki veiddur að ráði í ár en íslenskum skipum verður heimilt að veiða 63 þúsund tonn á árinu 2012. Það er að vonum tveir til þrír milljarðar. Beðið er eftir ákvörðun um kvóta í íslenska síldarstofninum en þar var kvótinn 45 þúsund tonn á síðustu vertíð og útflutningsverðmætið metið á um fjóra milljarða. - shá
Mest lesið Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Innlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Erlent Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Enginn andvígur hvalveiðum Innlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Skordýr í súpu skólabarna Innlent Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Erlent Fleiri fréttir Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Sjá meira