Innlent

Þjófar reyndu að brjóta upp spilakassa

Innbrotsþjófar gerðu í nótt tilraun til að brjóta upp spilakassa í kaffihúsi við Grensásveg í Reykjavík.

Þeim tókst þó ekki að komast í peningahólf kassanna, sem vafalaust hefur verið tilgangurinn, en nokkrar skemmdir urðu á kössunum. Þjófarnir komust undan og eru ófundnir.

Einhverjum verðmætum var hinsvegar stolið úr bíl í Bakkahverfi í Reykjavík í nótt. Ekki vitað hver var þar að verki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×