Innlent

Einn handtekinn á Austurvelli þegar lögregla tók tjald mótmælenda niður

Mynd/GVA
Einn maður var handtekinn í morgun á Austurvelli þegar lögregla fór í það að taka niður tjald sem komið hafði verið fyrir á vellinum. Að sögn lögreglu veittust nokkrir mótmælendur að lögreglumönnunum sem fóru í málið og var ákveðið að handtaka einn, þann sem mest hafði sig í frammi. Maðurinn var fluttur á lögreglustöðina við Hverfisgötu og þar er nú verið að skoða hans mál eins og lögreglan orðaði það. Að því loknu verður honum líklegast sleppt.

Lögregla segir að ekkert leyfi hafi verið fengið fyrir því að tjalda á Austurvelli en það var  hópurinn Occupy Reykjavík sem setti tjaldið upp í gær. Því var ákveðið að fara í það í morgun að taka tjaldið niður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×