Fjöldinn sprengir af sér skólaeldhús víða 31. október 2011 06:30 Kátir krakkar í Háteigsskóla. Gæði skólamáltíða hafa síst minnkað eftir hrunið segir Reykjavíkurborg en Vinnueftirlitið segir mörg skólaeldhús hins vegar ekki henta fyrir fjöldann sem þau eiga að þjóna og íhugar að taka málið upp við stjórnendur borgarinnar. Fréttablaðið/Anton
l„Við erum að skoða það að ræða við stjórnendur hjá Reykjavík um þessi mál,“ segir Fríða Ólafsdóttir, eftirlitsmaður hjá Vinnueftirliti ríkisins, um stöðuna í skólamötuneytum borgarinnar. Fríða segir fréttir undanfarið, ábendingar sem hafi borist auk skoðunarferða Vinnueftirlitsins sjálfs hafa beint sjónum þess sérstaklega að skólamötuneytunum. „Í nokkrum grunnskólum er ástandið nokkuð gott og jafnvel sumstaðar frábært en víða mætti betur fara. Sum eldhúsin eru þannig að þau eru ekki í samræmi við fjöldann sem þau eru að þjóna og mannhaldið ber merki þess að það er alltaf verið að skera niður,“ segir Fríða. Eins og kom fram í Fréttablaðinu á dögunum segja Samtök faglærðra matreiðslumanna í grunnskólum Reykjavíkur starfsfólki hafa fækkað og að gífurlegt álag sé því á starfsliðinu. Það komi niður á gæðum matarins. „Ekkert bendir til þess að gæði matar hafi rýrnað, þvert á móti,“ segir í svari skóla- og tómstundasviðs Reykjavíkurborgar við fyrirspurn Fréttablaðsins vegna gagnrýni matreiðslumannanna. Með samræmdum innkaupum sé lögð vinna í að tryggja sem mest gæði á allri matvöru sem keypt sé inn fyrir skólamötuneytin. „Leitast er við að framreiða eins hollan og góðan mat og mögulegt er. Fylgst er með gæðum matar og unnið eftir gæðahandbók.“ Þegar spurt er hvort skólamötuneytin séu undirmönnuð og álagið of mikið er svarið að þau hafi tekið á sig hagræðingu eins og flestar aðrar starfseiningar og starfsþættir. „Skólastjórar taka ákvörðun um ráðningar og stöðugildi vegna skólamötuneyta á forsendum fjárhagsáætlunar,“ bendir skólasviðið á. Borgin segir að síðustu níu mánuðum hafi starfshópur skoðað rekstur allra skólamötuneyta borgarinnar, meðal annars starfsmannahald þeirra og verði niðurstöður þeirrar vinnu kynntar innan skamms. Fríða segir vandamálið einmitt vera fjármagn. Skólarnir hafi ekki notið góðærisins og nú sé ástandið enn verra. „Aðstæður eru orðnar erfiðar því það er svo gríðarlega mikill niðurskurður. Þá eru til dæmis kannski keyptir pottar sem henta ekki fyrir þann fjölda sem verið er að elda. Þetta er mjög óheppilegt en það þarf að vera á bremsunni alls staðar,“ segir Fríða Ólafsdóttir.- gar
Mest lesið Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Innlent Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Erlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Enginn andvígur hvalveiðum Innlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Skordýr í súpu skólabarna Innlent Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Innlent Fleiri fréttir Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Sjá meira