Fleiri fréttir

Þrír vistmenn á Stuðlum handteknir

Þrír unglingar sem vistaðir eru á meðferðarheimilinu Stuðlum, sem Barnaverndastofa rekur, voru handteknir rétt fyrir miðnætti og færðir í fangageymslur eftir að slagsmál brutust út á Stuðlum. Starfsmenn Stuðla munu ekki hafa ráðið við ástandið og því var ákveðið að kalla til lögregluna. Unglingarnir, sem eru fimmtán og sextán ára gamlir, eru enn í haldi lögreglunnar. Ákveðið verður síðar í dag, í samráði við barnaverndaryfirvöld hvað gert verður í málum unglinganna.

Fjöldi fólks skoðaði Þór

Fjöldi fólks hefur lagt leið sína niður að höfn til þess að skoða varðskipið Þór sem kom til landsins í vikunni. Landhelgisgæslan áætlar að um fimm þúsund manns séu búnir að skoða skipið. Um 3500 manns lögðu leið sína niður að Miðbakka Reykjavíkurhafnar í dag þar sem varðskipið liggur við bryggju. Þrátt fyrir rigningu lét fólk það ekki á sig fá og stóð um stund í biðröð eftir að komast um borð. Skipið verður áfram opið til sýnis milli klukkan 13 og 17 á morgun.

Búist við fárviðri í Bandaríkjunum

Svo virðist sem það ætli að gera aftakaveður á austurströnd Bandaríkjanna nú um helgina. Bandaríska veðurstofan hefur í þa minnsta gefið út aðvörun þar sem gert er ráð fyrir vindstyrk allt upp undir 72 km/klst, eftir því sem BBC greinir frá. Búist er við mikilli snjókomu með storminum. Óveðrið er þegar byrjað í Pennsylvaníu, Maryland og Vestur-Virginíu. Þar eru um 10 þúsund manns án rafmagns vegna óveðursins.

Staða Íslendinga sterkari í Icesave deilunni

Lögmaður sem sat í Icesave samninganefndinni telur að staðfesting neyðarlaganna fyrir Hæstarétti í gær styrki málstað Íslendinga og dragi úr áhættu ef illa fer í Icesave málinu fyrir EFTA dómstólnum.

Hanna ferju í staðin fyrir Herjólf

Eimskip hefur látið hanna nýja ferju sem gæti hentað betur en Herjólfur til siglinga á millli Vestmannaeyja og Landeyjarhafnar. Herjólfur er of djúpristur, tekur á sig of mikinn vind, á erfitt með strauminn og hentar að ýmsu öðru leyti illa til siglinga. Eimskip, sem er rekstraraðili Herjólfs, óskaði eftir nýju hönnuninni eftir að Vegagerðin bað fyrirtækið um að leita að nýrri ferju sem gæti gagnast betur til siglinga á milli lands og Eyja en Herjólfur.

Moore hvatti mótmælendur til dáða

Rithöfundurinn og kvikmyndaframleiðandinn Michael Moore hvatti mótmælendur í Oakland í Bandaríkjunum í dag til dáða. Hann sagði að þeir hefðu blásið lífi og von í fólk. Fólkið mótmælir launaójöfnuði, spillingu í fyrirtækjum og aðgerðarleysi stjórnvalda.

Ætla með Legoland til Japan

Legoland heldur áfram að teygja út anga sína. Nýlega opnaði Legoland í Orlando í Flórída, verið er að byggja Legoland í Malasíu og innan fárra ára verður enn eitt opnað í Japan.

Kannabismaður sprengdi íbúð

Sprenging varð í íbúð í Osló, höfuðborg Noregs, í gærkvöld þegar karlmaður á þrítugsaldri var að blanda saman kannabisolíum. Rúður í íbúðinni sprungu og hún er mikið skemmd, eftir því sem fram kemur í Aftenposten. Enginn meiddist í sprengingunni sem varð í íbúðinni á níundu hæð. Lögreglan segir að ekki hafi verið mikið af fíkniefnum í íbúðinni. Þetta verði vart kallað fíkniefnaverksmiðja. Ungi maðurinn hefur verið handtekinn fyrir að hafa valdið sprengingunni.

Ég skrifa alvöru bókmenntir

Útlendingar spyrja mig stundum hvort ég dragi ekki upp óþarflega dökka mynd af Íslendingum í mínum bókum,“ segir Arnaldur Indriðason rithöfundur, sem hefur sérhæft sig í sögum af glæpum. „Ég hef svarað því til að Íslendingar séu fullfærir um að sjálfir og þurfi enga hjálp frá mér í þeim efnum,“ bætir hann við og hlær.

Vara ferðamenn við að kaupa hvalkjöt í Leifsstöð

Erlendir ferðamenn sem kaupa hvalkjöt í Leifsstöð og taka það með sér heim brjóta gegn alþjóðlegu viðskiptabanni með hvalaafurðir og gætu lent í fangelsi. Þetta kemur fram í umfjöllun þýska dagblaðsins Bild um málið.

Steingrímur endurkjörinn formaður

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra var endurkjörinn formaður Vinstri hreyfingarinnar - græns framboð á landsfundi flokksins í dag. Steingrímur hlaut tæplega 77% atkvæða. Tveir voru í framboði auk Steingríms, Margrét Pétursdóttir og Þorvaldur Þorvaldsson. Margrét hlaut 15,7% atkvæða og Þorvaldur hlaut 7,6% atkvæða. Alls greiddu 208 atkvæði í kosningunum og voru 10 seðlar auðir eða ógildir.

Nýjar eftirlitsmyndavélar settar upp í Reykjavík

Reykjavíkurborg ætlar að verja 6,5 milljónum til þess að endurnýja myndavélakerfið í miðborg Reykjavíkur. Jón Gnarr borgarstjóri lagði fram tillögu þessa efnis á borgarráðsfundi á fimmtudaginn, sem var samþykkt.

Katrín verður varaformaður VG áfram

Kosningu er lokið til formanns VG og er verið að telja atkvæði. Búast má við því að niðurstaða liggi fyrir klukkan korter í eitt. Þrír eru í framboði. Þá hefur verið lýst yfir framboðum í embætti varaformanns, ritara og gjaldkera flokksins og er einn maður í framboði til hvers embættis. Katrín Jakobsdóttir býður sig fram til varaformanns, Sóley Tómasdóttir til ritara og Hildur Sveinsdóttir til gjaldkera.

Segja sig úr VG

Lilja Mósesdóttir og Atli Gíslason hafa ákveðið að segja sig úr VG. Lilja er ósátt við margt innan flokksins og hyggst stofna nýtt stjórnmálaafl.

Daglega gerðar 600 þúsund tilraunir til tölvubrota

Á hverjum degi eru gerðar um 600 þúsund tilraunir til þess að brjótast inn á læstar Fésbókarsíður, eftir því sem fram kemur á vef Daily Telegraph. Með innbrotunum vilja tölvuþrjótar ná aðgangi að skilaboðum, myndum og persónulegum upplýsingum sem almenningur hefur sett á síðurnar sínar. Sérfræðingar í öryggismálum segja að þessar tölur séu allt of háar og að fólk verði að huga betur að því hvaða lykilorð það velur sér og á hvaða hlekki það smellir á fésbókinni.

Enn skelfur í Mýrdalsjökli

Þrír skjálftar urðu nærri Goðabungu í Mýrdalsjökli á tíunda tímanum í morgun. Sá snarpasti var 3,6 á Richter, en hann var töluvert djúpur eða á 5,9 kílómetra dýpi, samkvæmt mælum Veðurstofunnar. Annar var 2,4 á Richter og sá þriðji var 1,9 á Richter. Hinir tveir síðarnefndu voru öllu grynnri en sá fyrsnefndi. Töluverð virkni hefur verið á svæðinu undanfarnar vikur og mánuði.

Jackson sprautaði sig sjálfur

Poppstjarnan Michael Jackson sprautaði sig sjálfur með lyfjunum sem drógu hann til dauða fyrir rúmum tveimur árum. Þetta er mat svæfingalæknis sem bar vitni í réttarhöldunum yfir Conrad Murray lækni söngvarans í gær. Hann telur engar sannanir vera fyrir því að Murray hafi gefið söngvaranum svæfingalyfið propofol rétt fyrir andlátið, líkt og áður hefur verið haldið fram, en vitnisburðurinn þykir styrkja vörn Murrays til muna. Réttarhöldin hafa staðið yfir í fimm vikur en svæfingalæknirinn var síðastur til að bera vitni fyrir lokamálflutning beggja málsaðila.

Enn leitað að fólki í rústunum

Nú sex dögum eftir að jarðskjálfti upp á 7,2 á Richter reið yfir Tyrkland eru þarlendar björgunarsveitir enn að leita að fólki í rústum fjögurra bygginga. Samkvæmt nýjustu upplýsingum frá yfirvöldum hafa fimmhundruð áttatíu og tveir látist í jarðskjálftanum, þar af fleiri en 450 í borginni Ersis í austurhluta Tyrklands, en sú borg varð verst úti í skjálftanum.

Rjúpnaskyttur komust til byggða

Björgunarmenn úr björgunarsveitunum Brák og Heiðari fundu á tólfta tímanum í gær, skammt frá Hreðavatni, tvær rjúpnaskyttur sem leitað hafði verið að allt kvöldið. Þeir voru slæptir og þreyttir en eftir smá hressingu treystu þeir sér til að ganga með björgunarmönnunum í bíla sem biðu þeirra ofan við Hreðavatn. Gönguferðin var um ein og hálf klukkustund og voru björgunarmenn komnir heim til sín um þrjúleytið, samkvæmt upplýsingum frá björgunarsveitamönnum.

Um 500 unglingar á landsmóti hjá kirkjunni

Um 500 unglingar og leiðtogar eru samankomnir á landsmóti æskulýðsfélaga kirkjunnar sem var sett á Selfossi í gærkvöld. Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, setti landsmótið og þakkaði unglingunum fyrir gott starf og góðan hug.

Stunginn í hálsinn

Þrir unglingar, tveir piltar og ein stúlka, réðust óboðnir inn í teiti í Mosfellsbæ í gærkvöld. Þegar gestir í teitinu hugðust vísa þeim þeim út brást annar pilturinn við með því að lemja einn gestinn með steikarpönnu í andlitið. Hinn pilturinn tók upp hníf og stakk einn gestinn í hálsinn. Ekki hafa fengist upplýsingar um ástand hinna slösuðu.

Eldhætta af lúpínu í byggð

"Það er ekki spurning um hvort heldur hvenær það verður stórbruni þar sem lúpínan vex í miklu magni,“ segir Jón Gunnar Ottósson, forstjóri Náttúrufræðistofnunar Íslands. "Ég veit ekki hvort fólk áttar sig á hættunni.“

Sveppi í bíó og reiðhjól í vinning

Sjálfur Sveppi mun mæta á sérstaka sýningu á Algjörum Sveppa og töfraskápnum á morgun, 30. október, kl. 12 í Kringlubíói. Bíómiðinn gildir sem happdrætti og verða reiðhjólin sem Sveppi og félagar hjóla á í myndinni í vinning.

Mikill hugur í rjúpnaskyttum

Rjúpnaveiðitímabilið hófst í gær og eru leyfðar veiðar í alls níu daga fram til 27. nóvember. Rjúpnaskyttur fjölmenna í veiðiverslanir og birgja sig upp af skotum og öðrum nauðsynjum.

Ísland staðurinn til að heimsækja 2012

Ferðaþjónusta Ísland og Reykjavík eru mest spennandi ferðamannastaðir heims árið 2012. Þetta er mat lesenda efnis frá fyrirtækinu Lonely Planet, sem er stærsti útgefandi ferðatengds efnis í heiminum. Stutt er síðan bandaríska tímaritið National Geographic valdi Ísland einnig mest spennandi áfangastaðinn 2012.

Fyrirmæli voru ekki framkvæmanleg

Ákvörðun Reykjavíkurborgar um að afturkalla að hluta byggingarleyfi vegna breytinga við íbúðarhús á Laufásvegi hefur verið ógilt af úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála.

Ótvíræður árangur hjá ríkisstjórninni

Sjöundi landsfundur Vinstri grænna hófst á Akureyri í gær. Steingrímur J. Sigfússon, formaður flokksins, flutti setningarræðu þar sem hann leit yfir hið pólitíska svið.

Þjónusta sérfræðilækna muni hækka um 15% á næsta ári

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra segir að nauðsynlegt sé að geta gert kröfu á sérfræðilækna um hvar þeir starfi á landinu og hvernig þeir hagi sínu starfi. Sérfræðilæknar hafa verið samningslausir frá 1. apríl síðastliðnum.

Sigur íslamskra umbótasinna í höfn

Sigurvegarar þingkosninganna í Túnis um síðustu helgi voru félagar í Endurreisnarflokknum, Ennahda, sem er sagður vera hófsamur flokkur íslamista. Þegar talningu atkvæða var lokið á fimmtudaginn reyndist flokkurinn hafa fengið 41,47 prósent atkvæða og 90 sæti á 217 manna stjórnlagaþingi, sem fær það tvískipta hlutverk að semja nýja stjórnarskrá og skipa bráðabirgðastjórn sem fer með völd í landinu þangað til hin nýja stjórnskipan tekur gildi.

Mistök að hafa Grikkland með

Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti segir það hafa verið mistök að leyfa Grikkjum að taka upp evruna strax árið 2001. Grísk stjórnvöld hafi ekki verið reiðubúin og að auki beitt blekkingum í ríkisbókhaldinu til að fegra stöðuna.

Pottur gleymdist á eldavél

Slökkviliðið á Höfuðborgarsvæðinu var kallað út fyrir stundu vegna tilkynningar um eld í íbúð á Háaleitisbrautinni. Í ljós kom að pottur hafði gleymst á eldavél og þurfti að reykræsta íbúðina. Því er ekki jafn mikil hætta á ferð og í fyrstu var talið.

Bjarni fagnar dómi Hæstaréttar en minnir á mál Geirs

Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins segir ljóst að nú verði ekki bornar frekari brigður á lögmæti neyðarlaganna fyrir dómstólum hér á landi. Bjarni minnir þó á að enn sé lokið landsdómsmálinu gegn Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, en hann mælti fyrir neyðarlögunum á sínum tíma.

Fimm mánaða skilorð fyrir vörslu barnakláms

Karlmaður var dæmdur í fimm mánaðar fangelsi í héraðsdómi reykjaness í dag fyrir húsbrot og líkamsárás. Maðurinn ruddist í heimildarleysi inn í íbúðarhús með því að brjóta rúðu í útidyrahurð með tréskafti af exi og opna svo hurðina. Maðurinn réðst síðan á fyrrum tengdaföður sinn og hrinti honum þannig að hann féll á hurðarkarm, með þeim afleiðingum að hann hlaut tvo skurði á enni og einn skurð á nefrót. Maðurinn játaði brot sitt fyrir dómi en hann hefur þrisvar sinnum áður verið gerst sekur um hegningarlagabrot.

Rauði krossinn kaupir tvöþúsund svefnpoka

Rauði kross Íslands hefur varið 6 milljónum króna úr neyðarsjóði sínum til kaupa á um 2200 svefnpokum fyrir fórnarlömb jarðskjálftans í Tyrklandi á dögunum. Tugþúsundir manna eru heimilislausir eftir jarðskjálftann og vetur eru harðir á þessum slóðum, og því nauðsynlegt að koma sem flestum í skjól í bráðabirgðahúsnæði eða tjöldum.

Ríkisstjórnin segir að óvissunni hafi verið eytt

Ríkisstjórnin fagnar niðurstöðu Hæstaréttar frá því í dag þegar ljóst varð að neyðarlögin svokölluðu standa. Í tilkynningu frá ríkisstjórninni segir að með dómum Hæstaréttar hafi „óvissu um mikilvægt grundvallaratriði verið eytt.“

Stolnu Rolex-úrin líklega sett í sölu

„Ég er alveg ákveðinn í að veita þau ef einhver kom með ábendingu, en ég veit það ekki fyrr en rannsókn lögreglu er lokið,“ segir Frank Michelsen úrsmiður á Laugavegi en vopnað rán var framið í verslun hans í síðustu viki.

Segja fólk ganga niðurbrotið út af Alþingi vegna eineltis

Margir hafa velt því fyrir sér undanfarin misseri hvort einelti tíðkist meðal þingmanna á Alþingi. Ísland í dag kafaði í málið í gær. „Það kemur oft fyrir að fólk gangi héðan niðurbrotið út, einelti þrífst á Alþingi," segir þingmaður Hreyfingarinnar. Aðrir segja þó einelti aðeins í hinum flokkunum, ekki þeirra.

Buster var í spreng og fann kannabisrækt

Fíkniefnahundurinn Buster rambaði á kannabisræktun í nótt. Lögreglumenn voru þá á ferð um um uppsveitir Árnessýslu og var Buster með í för.

Í óformlegum viðræðum við son Gaddafís

Saksóknarar hjá Alþjóðastríðsglæpadómstólnum hafa verið í óformlegu sambandi við Saif al Islam, son Múammars Gaddafís fyrrum einræðisherra í Líbíu. Saif er eftirlýstur af dómstólnum sakaður um stríðsglæpi en hann hefur farið huldu höfði síðustu mánuði.

Dómarinn: Eini tilgangurinn var að fylgjast með ferðum Sivjar

Eini tilgangur Þorsteins Húnbogasonar að koma staðsetningarbúnaði fyrir í bifreið sem fyrrum sambýliskona hans, Siv Friðleifsdóttir hafði til umráða, var að fylgjast með ferðum hennar. Þetta er niðurstaða dómara sem dæmdi Þorsteinn til greiðslu sektar upp á 270 þúsund krónur í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Gefa út 20 íslenskar hljóðbækur fyrir jólin

Nýtt útgáfufélag, Skynjun, hefur verið stofnað utan um framleiðslu hljóðbóka sem verða fáanlegar á vefnum Tónlist.is. Formleg opnun hljóðbókasvæðis Tónlist.is, sem er á slóðinni tonlist.is/audiobook, er 1. nóvember en nú þegar eru nokkrir titlar fáanlegir.

Neyðarlögin fyrir Hæstarétt

Hæstiréttur Íslands mun í dag klukkan tvö birta dómsniðurstöður í ellefu málum sem varða innistæður sparifjáreigenda og svokölluð heildsöluinnlán en í málunum reynir á stjórnskipulegt gildi neyðarlaganna, þ.e hvort neyðarlögin standist stjórnarskrá.

Síbrotamaður úrskurðaður í gæsluvarðhald

Karl um þrítugt hefur verið úrskurðaður í síbrotagæslu til 24. nóvember að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Að sögn lögreglu hefur maðurinn ítrekað komið við sögu hjá lögreglu en hann var síðast handtekinn í fyrrinótt. „Þá ók kauði um á stolnum bíl og var auk þess í annarlegu ástandi,“ eins og segir í tilkynningu.

Guðmundar- og Geirfinnsmál - fólk hvatt til að hafa samband

Starfshópur sem innanríkisráðherra skipaði til að fara ofan í gögn um Guðmundar- og Geirfinnsmál hefur nú tekið til starfa. Í fyrstunni er hópurinn að viða að sér gögnum og eru þeir sem telja sig búa yfir upplýsingum um málin hvattir til að hafa samband.

Sjá næstu 50 fréttir