Innlent

Jóhanna fundar með forsætisráðherra Dana

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Jóhanna Sigurðardóttir er forsætisráðherra Dana.
Jóhanna Sigurðardóttir er forsætisráðherra Dana.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra mun funda með Helle Thorning-Schmidt, nýjum forsætisráðherra Danmerkur, eftir helgi. Fundurinn fer fram í tengslum við þing Norðurlandaráðs sem fer fram í vikunni.

Norðurlandaráðsþingið í ár verður haldið í Kristjánsborgarhöll, sem er þinghús Dana. Þar munu norrænir þingmenn funda og ræða norræna pólitík. Þema leiðtogafundar norrænna forsætisráðherra og þingmanna Norðurlandaráðs verður opið norrænt samfélag.

Helle Thorning-Schmidt varð forsætisráðherra Dana eftir þingkosningar sem fóru fram í landinu þann 15. september síðastliðinn. Hún er fyrsta konan til að gegna embættinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×