Fleiri fréttir

Tíu milljarðar settir í almenningssamgöngur

Ríkisstjórnin hefur skuldbundið sig til að setja einn milljarð króna árlega í almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu. Litið er á verkefnið sem kjarabót, þar sem samgöngur eru nú næststærsti útgjaldaliður heimila, næst á eftir húsnæði og hærri en matarinnkaup.

Sigurvegarinn fær forsíðuna

Ljósmyndasamkeppni Fréttablaðsins hefst í dag og er þemað „Fólk að hausti“. Besta myndin mun prýða forsíðu Fréttablaðsins laugardaginn 1. október næstkomandi. Verðlaun fyrir fyrsta sætið eru leikhúsmiðar fyrir sex í Borgarleikhúsið. Verðlaun fyrir annað og þriðja sætið eru leikhúsmiðar fyrir tvo í Borgarleikhúsið.

Ákært fyrir vanrækslu sauðfjár

Lögreglustjórinn á Eskifirði hefur ákært ábúanda á Stórhóli í Djúpavogshreppi fyrir brot á lögum um dýravernd og búfjárhald með því að vanrækja að tryggja góðan aðbúnað, meðferð og fóðrun sauðfjár á ofangreindum bæ.

Afstæðiskenning Einsteins í hættu

Vísindamenn telja sig hafa fundið efni sem fer hraðar en ljósið. Sé uppgötvunin rétt, er afstæðiskenning Alberts Einstein þar með fallin.

Samkeppnisstaða fjármálafyrirtækja skert með nýjum bankaskatti

Okkur líst afar illa á þennan skatt, segir Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja. Hann staðfestir í samtali við Vísi að samtökunum hafi verið kynntar hugmyndir í gær um 10,5% skatt sem fjármálaráðuneytið hyggst leggja á launagreiðslur starfsmanna hjá fjármálafyrirtækjum vátryggingafélögum og lífeyrissjóðum á næsta ári.

Sutherland og Glover leiða saman hesta sína

Stórleikarinn Kiefer Sutherland mun bráðlega sjást á ný í sjónvarpi í þáttum sem hafa fengið nafnið Touch. Eins og mörgum er kunnugt um sló Kiefer Sutherland rækilega í gegn í þáttunum 24 eftir að leikaraferill hans hafði verið í lægð um nokkra ára skeið. Lítið hefur spurst til leikarans frá því að sýningu á 24 lauk í fyrrai, þangað til að Fox sjónvarpsstöðin tilkynnti í gær að von væri á þáttunum í sýningu á sjónvarpsstöðinni.

Milljónatjón fyrir fornleifafræðinga

Fornleifafræðingar sem vinna við uppgröft á Landspítalalóðinni við Hringbraut urðu fyrir miklum skakkaföllum í fyrrinótt þegar tækjabúnaði, að verðmæti margra milljóna króna, var stolið úr vinnuaðstöðu þeirra.

Efast um skatta á laun bankastarfsmanna

Pétur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur efasemdir um að rétt sé að hækka skatta á laun bankastarfsmanna. Í fjármálaráðuneytinu er um þessar mundir verið að ræða að leggja sérstakan 10,5% skatti ofan á launakostnað banka og tryggingafyrirtækja, eftir því sem Viðskiptablaðið greinir frá.

Gæslan fær Þór á morgun

Varðskipið Þór verður afhent Landhelgisgæslunni við hátíðlega athöfn í Asmar skipasmíðastöð skipasmíðastöð sjóhersins í Chile á morgun.

Nokkrir voru ósyndir

Nokkrir af þeim sem varðskipið Ægir bjargaði úr ofhlöðnum báti á sjó milli Marokkó og Spánar lentu í sjónum og virtust vera ósyndir. Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni lak mjög hratt úr bátnum þeirra en skamman tíma tók að setja út Springer léttbát varðskipsins og var björgunarvestum kastað til fólksins. Einnig voru tveir gúmmíbjörgunarbátar sjósettir.

Þroskaþjálfar styðja félagsráðgjafa í kjarabaráttu

Þroskaþjálfar lýsa yfir fullum stuðningi við félagsráðgjafa í kröfum þeirra um bætt kjör og að fá leiðréttingu launa sinna. Í ályktun frá Þroskaþjálfafélagi Íslands segir að félagsráðgjafar sinni mikilvægu starfi af metnaði og dugnaði. Mikil fagleg uppbygging hafi átt sér stað á liðnum árum og oft á tíðum við erfiðar aðstæður eftir bankahrunið.

Bandaríkjamenn gengu út af Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna

Fulltrúar Bandaríkjanna, Frakklands og fleiri vestrænna ríkja gengu af fundi á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í dag eftir að forseti Íran réðst að Ísraelum í ræðu sinni á þinginu og kallaði hryðjuverkaárásirnar þann 11. september 2001 „ráðgátu"

Áfrýjar DV-máli til Hæstaréttar

Heiðar Már Guðjónsson fjárfestir ætlar að áfrýja sýknudómi Héraðsdóms Reykjavíkur yfir DV til Hæstaréttar. Heiðar Már höfðaði mál gegn blaðinu vegna ummæla sem féllu um hann í blaðinu í október á síðasta ári. Í blaðinu var meðal annars fullyrt að Heiðar Már hefði tekið stöðu gegn krónunni.

Sló mann fjórum sinnum í andlitið með slökkvitæki

Hæstiréttur Íslands hefur staðfest átta mánaða fangelsisdóm yfir karlmanni á fertugsaldri sem sló annan mann að minnsta kosti fjórum höggum í andlitið með slökkvitæki. Hæstiréttur lækkaði greiðslu á miskabótum til mannsins um 250 þúsund krónur en héraðsdómur hafði áður dæmt manninn til að greiða fórnarlambi sínu 500 þúsund í bætur.

Pútin vill kynnast Kjarval

Forsætisráðherra Rússlands, Vladimir Putin, bauð forseta Íslands Ólafi Ragnari Grímssyni að sækja ráðstefnu um norðurleiðina og önnur málefni Norðurslóða. Meginviðfangsefni ráðstefnunnar er hvernig bráðnun hafíss kallar á nýja skipan og ábyrga stefnumótun.

Blindaðist af sólinni og velti bílnum

Ökumaður bifreiðar slapp við minniháttar áverka þegar að hann velti bíl sínum á Reykjanesbrautinni fyrir hádegið í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum blindaðist ökumaðurinn af sólinni og missti stjórn á bílnum í kjölfarið. Hann var fluttur á slysadeild til skoðunar.

Minnsta kona í heimi 69 sentimetrar

Bridgette Jordan tuttugu og tveggja ára gömul kona frá Illinois í Bandaríkjunum var á dögunum útnefnd minnsta kona í heimi af heimsmetabók Guinness. Jordan er um 69 sentimetrar á hæð.

Vox rakaði inn verðlaunum fyrir matreiðslumann ársins

Úrslitakeppni um Matreiðslumann ársins fór fram í Hótel- og matvælaskólanum um síðustu helgi. Fulltrúar frá VOX Restaurant lentu í tveimur af þremur efstu sætunum, þeir Sigurður Kristinn Laufdal Haraldsson sem sigraði keppnina, og Fannar Vernharðsson í því þriðja.

Gervihnöttur á leið til jarðar - myndband

Myndband náðist af bandarískum gervihnettinum fyrir ofan Frakkland þegar hann brann upp í lofthjúpi jarðar um miðjan mánuðinn. Áætlað er að gervihnötturinn muni lenda á jörðinni þann 24. september næstkomandi.

DV-menn sýknaðir: "Sanngjörn og falleg niðurstaða“

"Þetta gefur mér aukna trú á dómskerfið,“ segir Reynir Traustason, ritstjóri DV, sem var sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag í meiðyrðamáli sem hagfræðingurinn Hreiðar Már Guðjónsson höfðaði gegn honum.

1400 blaðsíður um íslenska listasögu

Á blaðamannafundi í morgun var kynnt útgáfa yfirlitsverks um íslenska myndlist. Verkið ber nafnið Íslensk listasaga og er fimm binda verk sem spannar tímabilið frá síðari hluta 19. aldar til upphafs 21. aldar. Bindin eru gefin út í vandaðri öskju og er samtals um 1400 blaðsíður.

Sprengja sprakk í Pakistan

Fimm manns fórust og þréttán slösuðust þegar að sprengja sprakk í vegarkanti á þjóðvegi nálægt þorpinu Bajur í norðvesturhluta Pakistan í morgun. Talíbanar í landinu höfðu aðsetur í bænum þar til pakistanski herinn bolaði þeim burt árið 2008. Síðan þá hefur herinn sagt að uppreisnarmennirnir séu á bak og burt en þrátt fyrir það halda hryðjuverk áfram á svæðinu í kringum þorpið. Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á sprengjunni í morgun.

Lýsa yfir stuðningi við Ögmund í Teigskógarmálinu

Landvernd, Fuglavernd og Náttúruverndarsamtök Íslands lýsa yfir stuðningi við þá ákvörðun Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra að hlífa Teigsskógi og leggja til vegagerð eftir svokallaðri D-leið í Gufudalssveit með göngum undir Hjallaháls. Í sameiginlegri tilkynningu frá félögunum segir að þessi leið hafi verið samþykkt af Skipulagsstofnun og umhverfisráðherra og því sé ekkert til fyrirstöðu að ráðast í hana og bæta þannig strax úr brýnni þörf Vestfirðinga á betri samgöngum með láglendisvegi. Hugmyndin hefur mætt mikilli andstöðu heimamanna og á dögunum gekk stór hluti fundarmanna út þegar Ögmundur kynnti málið á Patreksfirði

Gagnrýnir Ferðaklúbbinn fyrir kortagrunn

Umhverfisstofnun er ósátt við Ferðaklúbb 4x4 eftir að þeir birtu GPS kortagrunn með upplýsingum um vegi, slóða og aðrar akstursleiðir á Íslandi.

Framkvæmdastýra jafnréttisstofu: VR brýtur hugsanlega á karlmönnum

Framkvæmdastýra Jafnréttisstofu telur að hugsanlega sé verið að brjóta á karlmönnum með aðgerð VR sem felst í því hvetja fyrirtæki til að veita konum tíu prósent afslátt af vörum þessa vikuna. Átak VR er liður í því að vekja athygli á launamisrétti kynjanna.

Kvikmyndahús slást um klassíska tónlist

„Þetta er enginn risamarkaður heldur mjög tryggur hópur og við sjáum oft sömu andlitin," segir Alfreð Árnason, framkvæmdastjóri Sambíóanna. Kvikmyndafélagið Sena tilkynnti í gær að það hygðist hefja beinar útsendingar frá óperum og ballettsýningum Royal Opera House í Háskólabíói. Fyrsta sýningin verður Faust miðvikudaginn 28. september.

Helmingur á móti staðsetningu hátæknisjúkrahúss

Rúmur helmingur þjóðarinnar er andvígur staðsetningu nýs hátæknisjúkrahúss við Hringbraut, samkvæmt könnun MMR. Tvöfalt fleiri eru mjög andvígir staðsetningunni en mjög hlynntir en lítill munur er á afstöðu fólks eftir búsetu en hann er mikill eftir aldri.

Messar yfir 70 þúsund manns í Berlín

Benedikt sextándi páfi er nú í sinni fyrstu opinberu heimsókn í heimalandi sínu, Þýskalandi. Hann mun ferðast víðsvegar um landið og ræða við kaþólika en um 25 milljónir íbúa Þýskalands eru kaþólikar.

Styðja við almenningssamgöngur en fresta stórum vegaframkvæmdum

Viljayfirlýsing um að vinna skuli að samningi um tíu ára tilraunaverkefni um almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu var undirrituð í í innanríkisráðuneytinu morgun. Málið snýst um að gerður verði verði samningur um uppbyggingu og rekstur almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu með markvissum stuðningsaðgerðum en um leið er sæst á frestun stórra vegaframkvæmda.

Eimskip smíðar skip fyrir sex milljarða

Eimskipafélag Íslands hefur gert samning um smíði tveggja nýrra gámaskipa. Áætlað er að skipin verði afhent félaginu á fyrri hluta árs 2013 samkvæmt tilkynningu frá Eimskipi.

Sigmundur Davíð fékk matareitrun í Finnlandi

"Fundaferðin með utanríkismálanefnd gekk vel þar til ég fékk matareitrun,“ skrifar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson á Facebook síðu sinni í morgun. Sigmundur Davíð er í Finnlandi en fram kom áður en hann fór út að hann myndi hætta að borða íslenskan mat, sem hann hefur einungis neytt undanfarnar vikur, og prófa finnskan mat.

BHM lýsir fullum stuðningi við félagsráðgjafa

Bandalag háskólamanna lýsir fullum stuðningi við baráttu Félagsráðgjafafélags Íslands í yfirstandandi kjaradeilu þess við Reykjavíkurborg. Bandalagið hvetur Reykjavíkurborg til að koma til móts við kröfur félagsráðgjafa og forðast þannig að til verkfallsaðgerða þurfi að koma en eins og staðan er nú virðist fátt geta komið í veg fyrir verkfall á mánudaginn kemur. BHM minnir á að aðrar starfsstéttir mega lögum samkvæmt ekki ganga í störf félagsráðgjafa í verkfalli og mun standa vörð um verkfallsrétt þeirra. Engin verkfallsbrot verði liðin.

Vill að Hringbrautin verði Þórbergsstræti

"Þannig er mál með vexti að ég er með bón til þín að handan," segir í bréfi til Jóns Gnarr borgarstjóra frá manni sem kveðst vera "skyggnigáfumaður" og leggur til að nafni Hringbrautar vestan Melatorgs verði breytt í Þórbergsstræti.

Aftur kveikt í á Bergstaðastræti - fimmta sinn á skömmum tíma

Slökkviliðið var kallað út seint í nótt vegna bruna í Bergstaðastræti en þar hafði verið kveikt í einangrun sem er utan á sökkli nýbyggingar í götunni. Fljótlega gekk að slökkva eldinn og hlaust lítið tjón af. Þetta er hinsvegar í fimmta sinn á rúmum mánuði sem kveikt er í þessu sama húsi. Ekki er vitað hver þar hefur verið að verki.

Icesave er á leiðinni fyrir EFTA-dómstól

ESA, eftirlitsstofnun EFTA, mun ekki bíða eftir uppgjöri þrotabús Landsbankans heldur fara með Icesave-málið fyrir EFTA-dómstólinn, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.

Troy Davis tekinn af lífi í Georgíu þrátt fyrir allt

Troy Davis sem dæmdur hafði verið fyrir morð á lögreglumanni í Georgíu í Bandaríkjunum árið 1989 var tekinn af lífi í gærkvöldi. Aftökunni var frestað á elleftu stundu í gærkvöldi, en aðeins um nokkra klukkutíma og fregnir af því að Hæstiréttur Bandaríkjanna hefði skorist í leikinn voru ekki á rökum reistar. Árið 1991 var Davis dæmdur til dauða en efasemdir hafa komið upp um framburð vitna og mörg þeirra höfðu raunar dregið frásagnir sínar til baka eftir að dómurinn var kveðinn upp. Davis sjálfur hélt ætíð fram sakleysi sínu.

Lögreglumenn þreyttir á ofríki

„Lögreglumenn eru þreyttir á ofríki því sem þeim er sýnt og skilningsleysi gagnvart neikvæðri launaþróun þeirra.“ Svo segir í ályktun félagsfundar Lögreglufélags Reykjavíkur sem var samþykkt í fyrradag. Lögreglumenn krefjast leiðréttingu launa sinna miðað við launaþróun annarra stétta síðastliðin tíu ár og segjast eiga betra skilið frá ríkinu.

Vilja að ekkert skyggi á kirkjuna í Skálholti

Afkomendur Harðar Bjarnasonar, fyrrum húsameistara ríkisins og hönnuður Skálholtskirkju, eru ósáttir við gerð svonefndrar Þorláksbúðar í nágrenni kirkjunnar og segja ekkert samráð hafa verið haft við sig vegna málsins.

Allt stefnir í allsherjarverkfall á mánudag

Félagsráðgjafar funduðu með fulltrúum frá Reykjavíkurborg hjá Ríkissáttasemjara í gær. Fundinum lauk upp úr hádegi án árangurs og er annar boðaður klukkan tvö í dag.

Aftökunni frestað á elleftu stundu

Aftöku Troy Davis, sem fara átti fram nú í kvöld, í fangelsi í Virginíu í Bandaríkjunum var frestað á elleftu stundu. Ástæðan er sú að Hæstiréttur í Bandaríkjunum ákvað að taka sér frest til þess að skoða betur hvort taka ætti upp mál Davis að nýju.

Lögregluþjónar ákærðir fyrir manndráp af gáleysi

Tveir lögregluþjónar í borginni Fullerton í Kaliforníu gætu átt yfir höfði sér margra ára fangelsi fyrir að hafa orðið geðsjúkum manni að bana með rafbyssu. Mennirnir voru ákærðir í gær.

Atvinnuleitin erfið

Atvinnulaus ungmenni segja leit að vinnu geta verið erfiða en mörg hver hafa sótt um fjölda starfa án árangurs. Um fjórðungur ungmenna sem eru atvinnulaus hefur verið án án atvinnu í meira en eitt ár.

Klippum beitt til að ná manni úr bíl

Einn slasaðist alvarlega í bílslysinu efst í Kömbunum um fimmleytið í dag. Ekki er þó talið að hann sé í lífshættu. Tveir bílar rákust þar saman og er talið að annar þeirra hafi verið að aka inn á veginn af bílastæði sem þar er. Einn maður var í öðrum bílnum og fimm í hinum. Allir sex voru fluttir á spítala, en fimm voru með minniháttar meiðsl. Beita þurfti klippum til að ná þeim sem slasaðist mest út úr bíl sínum.

Sjá næstu 50 fréttir