Fleiri fréttir

Aaaarg...reykingamaður um borð

Þotu American Airlines sem var á leið frá New York til Los Angeles í gær var snúið til lendingar í Nýju Mexíkó þegar talið var að farþegi hefði kveikt sér í sígarettu.

Sættir í málefnum Götusmiðjunnar

Barnaverndarstofa og Götusmiðjan hafa náð samkomulagi um að Götusmiðjan hætti rekstri meðferðarheimilisins. Barnaverndarstofa og Götusmiðjan eru sammála um að þrátt fyrir að Götusmiðjan hafi unnið gott starf í þágu barna og ungmenna á undanförnum árum sé tímabært að ljúka samstarfi aðila.

Ásta skipuð umboðsmaður skuldara

Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, hefur skipað Ástu Sigrúnu Helgadóttur umboðsmann skuldara. Ásta var metin mjög vel hæf til starfsins í hæfnismati sem unnið var í kjölfar nýafstaðins umsóknarferlis.

Skiptu með sér milljónum

Vinningshafarnir tveir sem skiptu með sér 1. vinningi í Lottóinu um síðastliðna helgi eru báðir komnir fram.

Vill dauðadóm yfir WikiLeaks hermanni

Bandarískur þingmaður telur að dæma eigi til dauða hermanninn sem sakaður hefur verið um að leka hernaðarupplýsingum til WikiLeaks vefsíðunnar.

Segir slökkviliðsmenn hafna kjarabótum fyrir þá tekjulægstu

Inga Rún Ólafsdóttir, formaður samninganefndar Launanefndar sveitafélaga, segir að slökkviliðs- og sjúkraflutningarmenn hafi hafnað launahækkunum fyrir launalægstu félagsmenn sína þegar þeir höfnuðu kjarasamningum í atkvæðagreiðslu sem forystumenn stéttarfélags þeirra undirrituðu við Launanefndina í fyrrasumar.

Allar þoturnar farnar af Reykjavíkurflugvelli

Allar þoturnar sem lentu á Reykjavíkurflugvelli eru farnar þaðan aftur. Eins og greint var frá í morgun lentu fimm farþegarþotur á vegum Icelandair og Iceland Express á Reykjavíkurflugvelli í morgun vegna blindþoku, sem óvænt

Sautján sóttu um í Skagafirði

Sautján umsóknir bárust um stöðu sveitastjóra í Skagafirði, en umsóknarfrestur um starfið rann út fyrir helgi. Stefán Vagn Stefánsson, formaður byggðarráðs, sagði í samtali við fréttavefinn Feyki

Fidel Castro ávarpar þingið á Kúbu

Reiknað er með að Fidel Castro fyrrum leiðtogi Kúbu muni ávarpa þingið á Kúbu um helgina. Yrði það í fyrsta sinn í fjögur ár að Fidel ávarpar þingið.

Farþegaþotum rignir niður á Reykavíkurflugvöll

Fimm farþegarþotur á vegum Icelandair og Iceland Express lentu á Reykjavíkurflugvelli í morgun vegna blindþoku , sem óvænt gerði á Keflavíkurflugvelli skömmu áður en vélarnar komu til landsins.

Stór jarðskjálfti austur af Kuril eyjum

Jarðskjálfti upp á 6 á richter mældist austur af Kuril eyjum í nótt en eyjarnar liggja á milli Japans og Rússlands í Kyrrahafinu og teljast til rússnesk yfirráðasvæðis.

BP dælir sementi í borholuna á Mexíkóflóa

Aðgerðir BP olíufélagsins á Mexíkóflóa ganga mjög vel og ætlar félagið í dag að byrja að dæla sementi niður í borholuna sem lekið hefur olíu út í flóann.

Talaði aldrei um fimm fyrirtæki

Björk Guðmundsdóttir tónlistarmaður segir fréttamann AFP-fréttaveitunnar hafa haft rangt eftir sér svör hennar um Magma Energy á blaðamannafundi á þriðjudag.

Jón skiptir yfir í vistvænan bíl

Jón Gnarr borgarstjóri skiptir um embættisbifreið í dag og tekur vistvænan bíl í notkun. „Mér skilst að þetta sé vetnisbíll og mig langar að sýna fordæmi í því að prófa þessa bíla og taka þátt í þessu,“ segir Jón.

Sextíu þúsund nýir fermetrar í fyrra

Verslunarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu stækkaði um tæpa sextíu þúsund fermetra frá árinu 2008 til 2009, sem jafngildir 7,9 prósenta stækkun. Þetta kemur fram í nýútkominni Árbók verslunarinnar.

Yfir eitt hundrað læra íslensku

Yfir hundrað nemendur frá Evrópu, Norður-Ameríku og Hong Kong læra nú íslensku hjá Háskólasetrinu á Vestfjörðum. Þetta er í þriðja skiptið sem námskeiðið er haldið.

Um 400 borgarstarfsmenn í Höfðatorgi

Starfsemi Reykjavíkurborgar hefur að miklu leyti fært aðsetur sitt í Höfðatorg. Fjöldi skrifstofa sem Reykjavíkurborg leigði víðs vegar um borgina hafa nú verið tæmdar og starfsemi þeirra komið fyrir undir einu þaki.

Tvöfalda hreina orku á áratug

Þjóðverjar ráðgera að fimmtungur af allri orkunotkun þeirra verði frá endurnýjanlegum orkugjöfum árið 2020. Með því myndi hlutdeild endurnýjanlegra orkugjafa tvöfaldast á næsta áratug.

Bera ábyrgð á mesta olíuleka sögunnar

Frá 23. apríl fram í ágústbyrjun láku nærri fimm milljónir tunna af olíu út í Mexíkóflóa. Í gær gáfu bandarísk stjórnvöld út þá tilkynningu að fjórðungur þeirrar olíu væri enn í hafinu, en 75 prósent hafi ýmist verið hreinsuð upp, brennd, gufað upp í andrúmsloftið eða brotnað niður í hafinu.

Álitamál orkugeirans eru enn óleyst

Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra segir umræðuna um Magma hafa snúist um of um einstaka kaupendur í stað stóru spurninganna. Setja þurfi ramma um orkumál Íslendinga til framtíðar. Hún óttast ekki einkafjármagn í orkuframleiðslu.

Vilja upplýsingar um Magma

Orkuveita Reykjavíkur hefur synjað ósk um upplýsingar um samskipti við Magma Energy og sölu hlutafjár í HS orku.

Úrbætur fyrir einn milljarð

Áætlað er að fyrirhugaðar úrbætur á íslenskum jarðgöngum sem gera á fyrir árið 2014 muni kosta um einn milljarð króna. Óvíst er hvort tekst að bæta úr öryggismálum í göngunum fyrir þann tíma vegna óvissu um fjárframlög frá ríkinu.

Icesave-viðræður í gang í september

Reiknað er með að funda um Icesave í september, að loknum sumarleyfum í Bretlandi. Síðasti formlegi samningafundur var haldinn 5. mars, rétt fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu Íslendinga þar sem samningum frá því haustið 2009 var hafnað.

Segir Arion hafa rekið svínabú af vanþekkingu

Arion banki hefur selt Stjörnugrís rekstur gjaldþrota svínabúanna Brautarholts á Kjalarnesi og Hýrumels í Borgarfirði. Bankinn tók svínabúin yfir fyrr á árinu vegna skuldavandræða. Búin voru boðin út en ekkert tilboð barst nema frá Stjörnugrís.

Mökkurinn yfir Moskvu aldrei verið þykkari

Borgaryfirvöld í Moskvu vöruðu íbúa í gær við eitruðum reyk af völdum nærliggjandi skógarelda sem liggur yfir borginni. Mökkurinn í gær er sagður sá þykkasti til þessa.

Fjórtán ára ein í hnattsiglingu

Fjórtán ára gömul hollensk stúlka vonast til að verða sú yngsta í heimi til að sigla einsömul umhverfis heiminn á seglskútu. Laura Dekker lagði í gær upp frá höfninni í Den Osse í 11,5 metra langri skútu sem nefnist Guppy. Ferðinni er heitið til Portúgal, þar sem hún skilur föður sinn eftir og leggur af stað í hnattsiglinguna.

Hip Hoppari í forsetaframboð

Hip hop-tónlistarmaðurinn Wyclef Jean hyggst bjóða sig fram til forseta Haítí. Haft er eftir bróður Jean að honum sé full alvara með framboðinu og að hann geri sér fullkomlega grein fyrir því hve erfitt hlutskipti næsta forseta verður.

Faldi sig í trjám á Klambratúni

Ölvaður ökumaður var handtekinn aðfaranótt miðvikudags. Maðurinn velti bíl sínum á Miklubraut til móts við Rauðarárstíg rétt fyrir þrjú um nóttina. Bílnum var ekið í austurátt en hann hafnaði á hvolfi á ak­rein í vesturátt, eftir að hafa farið í gegnum girðingu.

Bandaríkjamenn minnast í Hírósíma

Sendinefnd frá Bandaríkjunum verður við minningarathöfn um kjarnorkuárás Bandaríkjamanna á Hírósíma í Japan sem haldin verður í borginni á morgun. Þá verða 65 ár liðin frá kjarnorkusprengingunni sem kostaði 140.000 manns lífið. Þetta er í fyrsta skipti sem Bandaríkjamenn senda fulltrúa á minningarathöfnina.

Er þegar kominn til starfa

Stjórnmál Undirbúningsnefnd stjórnlagaþings hefur ráðið Þorstein Fr. Sigurðsson rekstrarhagfræðing sem framkvæmdastjóra undirbúningsnefndarinnar. Hann hefur þegar hafið störf.

Einkaþota Pauls Allen lenti á Reykjavíkurflugvelli

Einkaþota Pauls Allen, auðkýfings og eins stofnanda Microsoft, lenti á Reykjavíkurflugvelli í gærkvöldi. Octopus, risasnekkja í hans eigu, hefur legið við akkeri í ytri höfninni í Reykjavík síðustu daga. Um borð eru tveir kafbátar og tvær þyrlur.

Árni Páll nýtur stuðnings þingflokksins

„Ég get ekki betur heyrt og séð en að hann geri það,“ segir Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður þingflokks Samfylkingarinnar, aðspurð um hvort að Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra njóti stuðnings þingsflokksins. Þingflokkurinn fundaði nú síðdegis.

Ekki litið til persónulegra fjárreiðna umsækjenda

Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra sat sjálfur viðtölin við Runólf Ágústsson og Ástu Sigrúnu Helgadóttur sem sóttu um að verða umboðsmaður skuldara. Viðtölin fóru fram 20. júlí síðastliðinn en aðstoðarmaður ráðherra, ráðuneytisstjóri Félagsmálaráðuneytisins og framkvæmdastjóra ráðningafyrirtækisins STRÁ MRI, sem sá um ráðninguna.

Jón Gnarr: Er ekki kvíðinn eða hræddur

Jón Gnarr borgarstjóri í Reykjavík er nýkominn heim frá Finnlandi þar sem hann dvaldi í nokkra daga. Eftir ferðina sagði hann meðal annars að hann vildi gera Múmíndal að vinabæ Reykjavíkur.

Enginn með alvarlegan heilsubrest vegna öskunnar

Ráðstafanir heilbrigðisyfirvalda vegna öskufalls úr gosinu í Eyjafjallajökli virðast hafa borið árangur að því er fram kemur í nýustu farsóttarfréttum Landlæknisembættisins.

Galli í Hörpu hleypur á hundruðum milljóna króna

Tjónið vegna galla í stálvirkinu sem heldur glervegg við suðurhlið Hörpunnar hleypur á hundruðum milljóna króna. Taka þarf niður hluta af stálvirkinu þar sem prófanir sýndu að veggurinn þolir ekki mesta vindálag sem búast má við á næstu árum. Gallann má til mistaka kínversks undirverktaka Íslenskra aðalverktaka. Kínverjarnir hafa fallist á að bera tjónið.

Sjá næstu 50 fréttir