Icesave-viðræður í gang í september 5. ágúst 2010 06:00 Icesave-samningur var samþykktur 30. desember 2009 í annað skipti á Alþingi. Ekki hefur verið fundað í málinu frá því 4. mars.
Reiknað er með að funda um Icesave í september, að loknum sumarleyfum í Bretlandi. Síðasti formlegi samningafundur var haldinn 5. mars, rétt fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu Íslendinga þar sem samningum frá því haustið 2009 var hafnað. Samninganefndirnar hafa átt í óformlegu sambandi af og til síðan þá og embættismenn hittust í byrjun júlí, á tveggja daga fundi í Reykjavík. Þar var rætt um að koma málum af stað í haust. Lee Buchheit, formaður ísensku samninganefndarinnar, sat þann fund. „Menn hafa verið að skiptast á skeytum og stefnt er að því að koma málum í traustari og skipulagðari farveg eftir sumarfrí,“ segir Guðmundur Árnason, ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytisins. Hann væntir þess að fundað verði í september. Enn er deilt um ábyrgðina á Icesave-reikningunum og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins svaraði norsku fréttastofunni ABC því til á dögunum að Íslendingum bæri að greiða Icesave að fullu. Fyrir því væru tvær áðstæður. Í fyrsta lagi hefði innstæðutryggingartilskipun Evrópusambandsins ekki verið innleidd hér með réttum hætti á sínum tíma. Í öðru lagi vísaði framkvæmdastjórnin í jafnræðisregluna og að hún hefði verið brotin. Er þar horft til neyðarlaganna svokölluðu, en með þeim tryggðu íslensk stjórnvöld innlendar innstæður í bönkum hérlendis að fullu. Framkvæmdastjórnin vísar til þess og að það sama þurfi að gilda um allar innstæður, ætli menn að halda jafnræðisregluna í heiðri. Fréttablaðið sendi fjármálaráðuneytinu fyrirspurn um kostnað vegna Icesave-viðræðnanna. Þar var bæði spurt um launakostnað nefndarmanna sem og þann kostnað sem hlotist hefði af ráðleggingum erlendra sérfræðinga. Rósa Björk Brynjólfsdóttir, upplýsingafulltrúi fjármálaráðuneytisins, upplýsti Fréttablaðið að tölur yfir þann kostnað lægju ekki fyrir og ekki stæði til að taka þær saman fyrr en að viðræðum loknum. Líkt og áður segir er allsendis óvíst hvenær það verður. kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Innlent María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Innlent Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Innlent Bandaríkjamenn vilji að stríðinu verði lokið í júní Erlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Fleiri fréttir „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi Sjá meira